Morgunblaðið - 16.06.1996, Side 1
136 SÍÐUR B/C/D
135. TBL. 84. ÁRG.
SUNNUDAGUR 16. JÚNÍ 1996 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Reuter
ALDRAÐUR Tsjetsjeni sting-ur atkvæði sínu í kjörkassa skammt
frá mosku í úthverfi Grozní, höfuðborgar Tsjetsjníju, í gær.
Rússar ganga til
tvísýnna kosninga
Moskvu. Reuter.
RÚSSAR ganga í dag að kjörborð-
inu í kosningum, sem geta skipt
sköpum fyrir framtíð Rússlands.
Forsetaframbjóðendur eru tíu, en
samkvæmt skoðanakönnunum
stendur val kjósenda milli Borís
Jeltsíns forseta og Gennadís Zjúg-
anovs, leiðtoga kommúnista, milli
sársaukafullra umbóta og óvissunn-
ar.
Kosningaáróður var bannaður í
gær og var eins og þögn félli yfir
eftir harða kosningabaráttu í fjöl-
miðlum undanfarna fjóra mánuði.
Skorað á kjósendur
Jeltsín og Zjuganov hafa skipst
á ásökunum. Á föstudag skoraði
Jeltsín á kjósendur að sameinast
að baki sér og Zjúganov þrætti fyr-
ir það að hann myndi leggja lýð-
ræði af og hét að tryggja málfrelsi
og réttinn til stjórnmálastarfsemi.
Byijað var að kjósa á föstudag
á afskekktum svæðum Rússlands
og í Tsjetsjníju, þar sem aðskilnað-
arsinnar höfðu hótað að valda usla
á þeirri forsendu að kosningarnar
væru ekki löglegar.
Rússland skiptist í 11 tímabelti
og er byrjað að kjósa klukkan átta
að morgni á staðartíma og kjörstöð-
Forsetakosning-
arnar í Rússlandi
standa milli Borís
Jeltsíns og Genn-
adís Zjúganovs
um lokað klukkan tíu að kvöldi.
Kosningar hófust á Tsjúkotka-
skaga austast í Rússlandi klukkan
sjö í gærkvöldi að íslenskum tíma
og lýkur klukkan sjö í kvöld í Kalin-
íngrad, sem er milli Póllands og
Litháens. Búist er við fyrstu, óopin-
beru tölum skömmu eftir klukkan
sjö, en línur verði ekki orðnar skýr-
ar og upplýsingar komnar frá öllum
kjördæmum fyrr en seint á morgun.
Eitt þúsund eftirlitsmenn
Eitt þúsund erlendir eftirlits-
menn eru komnir til að fylgjast með
kosningunum og þeir munu hafa
nóg að gera því að kjörstaðir eru
93 þúsund. 107 milljónir manna eru
á kjörskrá.
Hver kjósandi fær einn kjörseðil
og getur þar merkt við einn fram-
bjóðanda eða línu, þar sem stendur
að hann sé andvígur öllum fram-
bjóðendum. Auður seðill eða seðill
með meira en einni merkingu telst
ógildur.
Kosningastjómin hefur 15 daga
til að tilkynna opinbera niðurstöðu
kosninganna og nái enginn fram-
bjóðandi meirihluta á að halda seinni
umferðina á sunnudegi innan 15
daga frá því að úrslitin liggja fyrir.
Kosningastjórnin hefur heitið að
hraða talningu þannig að seinni
umferðin geti farið fram 7. júlí.
í annarri umferðinni verður kosið
milli þeirra tveggja frambjóðenda,
sem fá flest atkvæði. Dragi annar
þeirra sig í hlé tekur frambjóðand-
inn í þriðja sæti hans stað. Eftir
aðra umferðina hefur kjörstjórnin
30 daga til að greina frá niðurstöð-
um og nýkjörinn forseti tekur við
30 dögum eftir það. Ekki eru skýr-
ar reglur um það hvernig valda-
skipti fara fram tapi Jeltsín.
Kosningarnar verða lýstar ógildar
verði kjörsókn minni en 50 af hundr-
aði eða merki fleiri við að þeir séu
andvígir öllum frambjóðendum, en
kjósa þann frambjóðanda, sem hefur
betur í seinni umferðinni.
■ Forsetakosningarnar/12
100 særast í sprengju-
tilræði í Manchester
STÓR sprengja sprakk í miðborg Manchester í
gærmorgun og slösuðust um 100 manns. Fjöldi
manns var í miðborginni þegar bílsprengja sprakk.
Mátti heyra sprenginguna í þriggja kílómetra §ar-
lægð og hlið verslunarmiðstöðvar var sögð hafa
horfíð. Skömmu síðar mátti heyra aðra spreng-
ingu. Reyndust sprengjusérfræðingar hafa sprengt
hlut, sem þeir töldu vera sprengju, en var það ekki.
John Major, forsætisráðherra Bretlands, kenndi
írska lýðveldishernum (IRA) um og sagði að þetta
væri „samviskulaust hryðjuverk . . . örfárra
öfgamanna" og bætti við: „Nú veit fólk hvers
vegna IRA á ekki þátt í friðarviðræðunum.“
Slökkviliðsmenn börðust við elda eftir sprenging-
una og sagt var að bjarga þyrfti fólki undan braki.
Um hádegi í gær var ekki vitað til þess að
Major kennir írska lýð-
veldishernum um og fordæm-
ir verk örfárra öfgamanna
neinn hefði látið lífið, en að sögn lögreglu voru
sár margra alvarleg. Fjöldi manns skarst þegar
glerbrotum rigndi yfír.
Enginn hafði lýst ábyrgð á sprengingunni á
hendur sér í gær, en grunur beindist að írska
lýðveldishernum (IRA).
Svæði rýmt eftir viðvörun
Viðvörun barst um sprenginguna, en ekki er
Ijóst frá hveijum. Fólk hafði verið látið yfirgefa
stóra verslunarmiðstöð í Manchester áður en
sprengjan sprakk, en lögregla sagði að hún hefði
verið öflugri en ráð var gert fyrir og því hefði
of lítið svæði verið rýmt. Lögregla hafði fundið
bílinn, sem sprengjan var í, en vannst ekki tími
til að koma í veg fyrir að hún spryngi.
Gerry Adams, leiðtogi Sinn Fein, stjórnmála-
arms IRA, sagði að samtökin væru enn staðráðin
í að vinna að friði. Friðarviðræður um Norður-
írland hófust í Belfast á mánudag. írska lýðveldis-
hernum hefur verið meinað að taka þátt vegna
þess að hann neitar að snúa baki við ofbeldi.
Fjöldi knattspyrnuáhugamanna er nú staddur
í Manchester vegna Evrópukeppni landsliða. Þjóð-
veijar leika í dag við Rússa á Old Trafford, heima-
velli Manchestei- United.
Nýir ráð-
herrar í
Færeyjum
Þórshöfn. Morgunblaðid.
RÁÐHERRASTÓLUM hefur
nú verið skipt upp í færeysku
landstjórninni eftir að Jafnað-
armannaflokkurinn gekk úr
henni.
Fólkaflokkurinn, sem kom
inn í stjórnina, fékk tvö ráð-
herraembætti, fjármálaráðu-
neytið, sem var í höndum jafn-
aðarmanna, og sjávarútvegs-
ráðuneytið, sem Sambands-
flokkurinn hafði.
John Petersen verður sjávar-
útvegsráðherra. Hann hefur
gegnt því embætti áður.
Annfínn Karlsberg, formaður
Fólkaflokksins, verður fjár-
málaráðherra.
Nýja stjórnin hefur 17 þing-
sæti af 32 í færeyska Lögþing-
inu.
„IMÝTT BLÓГ /
SKÍÐASKÁLANN
Mm
24
Horfst í augu
viö dauðann