Morgunblaðið - 16.06.1996, Side 2
2 SUNNUDAGUR 16. JÚNÍ 1996
MORGUNBLAÐIÐ
FRETTIR
Mikil vanskil vegna leigu félagslegra kaupleiguíbúða í Reykjavík
Fólki gert að rýma
vegna vanskila
STÓRAUKIN vanskil vegna leigu
kaupleiguíbúða á vegum Húsnæðis-
nefndar Reykjavíkur (HR) valda því
að gripið hefur verið til harðari inn-
heimtuaðgerða af hálfu nefndarinn-
ar. Á næstunni má búast við að
allnokkrum aðilum verði gert að
rýma íbúðir sínar vegna mikilla
skulda og síendurtekinna vanefnda
á skuldaskilum vegna Ieigunnar.
Húsnæðisnefnd Reykjavíkur hef-
ur falið lögfræðingi sínum að semja
ítarlega greinargerð um vanskil
vegna kaupleiguíbúða og til hvaða
aðgerða er unnt að grípa. Greinar-
gerðin verður fljótlega kynnt borg-
aryfirvöldum.
„Við erum að senda þetta í
stranga innheimtu hjá lögfræðing-
um með vöxtum og tilheyrandi
kostnaði, en það er nýtilkomið hjá
okkur að gera slíkt,“ sagði Guðrún
Árnadóttur, skrifstofustjóri HR.
„Ef það dugir ekki þá er ekki um
annað að ræða en að rýma þessar
íbúðir og það verður gert.“ Guðrún
vildi ekki upplýsa um hve mikil
vanskilin eru né heldur um hve
margir skuldarar eru á síðasta
snúningi fyrr en málið hefur verið
kynnt borgaryfirvöldum. Hún sagði
að vanskilaskuldir í innheimtu
næmu „mörgum milljónum" og ykj-
ust stöðugt, þrátt fyrir hertar inn-
heimtuaðgerðir.
Á vegum HR eru um 150 kaup-
leiguíbúðjr, flestar þeirra félagsleg-
ar. Þeim er úthlutað að uppfylltum
vissum skilyrðum. Fólk flytur í þær
ýmist sem leigjendur eða kaupend-
ur. Leigan er niðurgreidd en ætlast
er til að leigjandinn kaupi íbúðina
innan fimm ára. Enginn þeirra sem
nú stendur til að rými íbúð sína
hefur gengið frá kaupum á íbúðinni.
Ekki allir við sama borð
Guðrún sagði leigjendur félags-
legra kaupleiguíbúða hjá HR ekki
sitja við sama borð og aðrir leigj-
endur félagslegra íbúða hvað varðar
húsaleigubætur. Leigjendur hjá
Búseta og Félagsstofnun stúdenta,
sem væru félagsleg kerfi, fengju
greiddar húsaleigubætur en leigj-
endur hjá Húsnæðisnefnd Reykja-
víkur ekki.
Undarleg
bílferð
JEPPABIFREIÐ, sem lagt var í
bilastæði framan við Borgar-
kringluna í gærmorgun, tók upp
á að fara í undarlegt ferðalag sem
endaði einni hæð neðar.
Þegar eigandi bílsins kom út
úr Borgarkringlunni og sá ekki
bílinn taldi hann að honum hefði
verið stolið. Þegar betur var að
gáð kom í (jós að hann stóð niðri
við götu við hlið innkeyrslunnar
inn í bílageymslu Borgarkringl-
unnar. Svo virðist sem bíllinn
hafi runnið af stað aftur á bak
með hjólin í beygju, haldið sem
leið lá niður á götu, runnið eftir
henni og endað síðan á veggnum.
Varadekkið, sem liggur utan á
afturhlera bílsins þrýstist inn i
hlerann og rúðan í honum brotn-
aði. Á myndinni sést hvar bílum
er lagt á bilastæðinu, sem er einni
hæð ofar en gatan. Jeppinn stóð
á þessu sama stæði og sneri eins
og bílarnir sem sjást á myndinni
nema honum var lagt, sunnar, nær
innkeyrslunni upp á stæðið.
íslenska menntanetið
Viðskiptavinum
vísað til Nýherja
ÍSLENSKA menntanetið hefur sent þeim viðskiptavinum sínum, sem ekki
falla undir skilgreiningu menntamálaráðuneytisins um framtíðarhlutverk
menntanetsins, tilboð um að flytja netfang sitt og viðskipti til Nýheija hf.
Samkvæmt heimildum blaðsins mun gæta nokkurrar óánægju hjá almennum
viðskiptavinum ísmenntar með að þjónustu við þá verður hætt. Því fylgja
ýmis óþægindi svo sem að netfang þeirra ónýtist.
Akureyri
Morgnn-
blaðið í nýtt
húsnæði
SKRIFSTOFA Morgunblaðsins á
Akureyri hefur flutt starfsemi sína
úr Hafnarstræti 85 í Kaupvangs-
stræti 1. Það er nýtt hús á homi
Kaupvangsstrætis, sem stundum er
nefnt Grófargil, og Drottningar-
brautar. Ritstjóm og afgreiðsla
blaðsins verða þar til húsa og em
viðskiptavinir beðnir að snúa sér
þangað.
Símanúmer blaðsins eru óbreytt.
Afgreiðsla 461 1600, ritstjórn 461
1601, auglýsingar 461 1602ogsím-
bréf 461 1603.
MORGUNBLAÐINU í dag
fylgir 40 síðna blaðauki sem
nefnist Sumarfrí á íslandi.
Að sögn Péturs Þorsteinssonar,
skólastjóra og frumkvöðuls mennta-
netsins, er hér um 3-400 aðila að
ræða. Hann sagði þetta tilraun til
að draga úr því hnjaski sem óhjá-
kvæmilega hlýst af lokun þjónustu
við almenna viðskiptamenn og
skásta leikinn í stöðunni.
íslenska menntanetið mun ein-
ungis sinna alnetsþjónustu við skóla-
kerfíð eftir 1. júlí næstkomandi.
Einkanotendur og aðrir sem ekki
tengjast skólastarfi beinlínis mega
ekki hafa aðgang að menntanetinu
eftir þann tíma. Sem kunnugt er
keypti menntamálaráðuneytið þann
hluta íslenska menntanetsins sem
sneri að skólakerfinu og mun Kenn-
araháskóli íslands annast rekstur
þess í framtíðinni.
íslenska menntanetið var með
nokkrar tölvumiðstöðvar á lands-
byggðinni sem tryggðu viðskiptavin-
um alnetsaðgang á lægsta sím-
gjaldi. Þessar stöðvar fylgdu ekki í
kaupum menntamálaráðuneytisins.
Samstarfsaðilar ísmenntar á Norð-
urlandi eystra og á Suðurlandi munu
kaupa tölvumiðstöðvarnar þar og
starfrækja, að sögn Péturs Þor-
steinssonar. Ekki er afráðið með
framtíð stöðvanna á Vesfjörðum, þar
sem ísmennt hefur verið í samstarfi
við Pólinn á ísafirði, og á Vestur-
landi, en stöðin þar er á Bifröst í
Borgarfirði. Báðar þessar stöðvar
eru í fullum rekstri.
Morgunblaðið/RAX
Ný skiptistöð fyrir-
hugnð í Kvosinni
ARNAR Kristjánsson ehf. átti
lægsta tilboð í gerð skiptistöðvar
SVR í Kvosinni sem fyrirhugað er
að byggja á lóð Hafnarstrætis 23
þar sem smurstöð Esso var til húsa.
Tilboð voru opnuð á fimmtudag og
hljóðaði það lægsta upp á
11.926.033 krónur, eða 66,87% af
kostnaðaráætlun.
Áætlaður kostnaður er
17.835.180 krónur og áttu Björn
og Guðni og Dalverk sf. næst-
lægsta tilboð, sem var 74,66% af
kostnaðaráætlun. Aðrir sem buðu í
verkið voru Garðaprýði hf. og BJ -
Verktakar ehf. og var hið síðar-
nefnda 76,78% af kostnaðaráætlun.
Tilboð Garðaprýði var hæst og
hljóðaði upp á 17.250.000 krónur.
Hafíst var handa við að rífa Hafn-
arstræti 23 fyrr í vikunni og lauk
verkinu á tveimur dögum, að sögn
Inga Arasonar, deildarstjóra á
hreinsunardeild Reykjavíkurborgar.
Á lóðinni var smurstöð frá Esso, sú
fyrsta sem byggð var sinnar tegund-
ar, að Inga sögn, og jafnframt að-
staða fyrir leigubílstjóra, sem nú
heyrir sögunni til. Einnig var þar
til skamms tíma verslunin Tókíó.
Húsnæðið var brotið niður með
20 tonna skut'ðgröfu og unnu átta
menn við verkið, segir Ingi.
Gert er ráð fyrir að framkvæmd-
um við nýja skiptistöð SVR verði
lokið 15. ágúst.
Faxamjöl stækkar fyrir
300 milljónir króna
MORGUNBLAÐIÐ kemur
næst út miðvikudaginn 19.
júní.
FRAMKVÆMDIR eru hafnar við
stækkun verksmiðju Faxamjöls í
Örfirisey en áætlaður kostnaður við
hana nemur um 300 milljónum
króna.
Afkastageta verksmiðjunnar
margfaldast við stækkun, eða úr
120 tonnum á sólarhring í um
470-520 tonn, að sögn Gunnlaugs
Sævars Gunnarssonar fram-
kvæmdastjóra Faxamjöls.
Verksmiðja fyrir
loðnuvinnslu
„Stækkunin er til þess að við
getum varið okkar íjárfestingar í
kringum loðnuna, en við höfum ekki
verið með neina loðnubræðslu í verk-
smiðjunni. Stækkunin er hins vegar
hugsuð til að hýsa loðnuverksmiðju
sem verður þá aðskilin frá fiskúi'-
ganginum. Grandi hf. er stór í loðnu-
frystingu en hefur árum saman þurft
að flytja 10-20 þúsund tonn af loðnu
til Siglufjarðar þar sem ekki hefur
verið hægt að vinna hana í Reykja-
vík,“ segir Gunnlaugur.
Bætt verður við 600 fermetra
stóru húsi, sem á að vera tilbúið
um áramót og er búið að gera samn-
ing við íslenska aðila og norska um
að annast framkvæmdina og af-
henda fullbúna verksmiðju.
Það tekur sinn tíma
►Ari Teitsson, formaður Bænda-
samtaka íslands, ræðir mistök for-
tíðar og möguleika framtíðar í
landbúnaði. /10
Keisarinn í
atkvæðaleit
►Af Jeltsín Rússlandsforseta og
öðrum atkvæðaveiðurum í kosn-
ingunum nú um helgina. /13
Vex ekkert í augum
►Rannveig Rist, sem er að taka
við forstjórastarfi ÍSAL, á fjöl-
breytta starfsreynslu að baki. /22
„Nýtt blóð“ í
skíðaskólann
►í Viðskiptum/atvinnulífí er rætt
við Valdimar Örnólfsson, helsta
forsprakka skíðaskólans í Kerling-
arfjöllum. /24
Stormasamt flug
►Létt hefur verið leynd af gögn-
um frá Bandaríkjaher varðandi
flugslys á Eyjafjallajökli. /32
B
► 1-32
Horfst í augu
við dauðann
►Sigrún Ásta Pétursdóttur hefur
óvenjulegar skoðanir á því hvernig
á að sinna deyjandi fólki og kemur
að þessu máli á tvo vegu, sem
hjúkrunarfræðingur og sem dauð-
vona sjúklingur. /1-5
Miðill ímyndunar-
aflsins
► Ólafur Ormsson ræðir við Maríu
Kristjánsdóttur um lífið, tilveruna
og útvarpsleikhúsið. /8
Kraftakonur í
kjarnaskóla
►Með hótel- og matvælaskólanum
stækkar kennsluhúsnæði Mennta-
skólans í Kópavogi um helming.
Þar ráða Margrét Friðriksdóttir
og Sigrún Magnúsdóttir. /18
c
FERÐALÖG
Höfðaströndin kallar
á sumrin
►Þau eru sterk böndin sem toga
fjölskyldu úr Breiðholti vestur á
Jökulfirðiáhverjusumri. /2
Hrikalegt landslag
►Ferðafélag Grýtubakkahrepps
mun í sumar bjóða uppá fjögurra
daga gönguferðir um Fjörður og
Látraströnd með leiðsögn. /24
D
BILAR
► 1-4
Vel til hafður
Audi A4
►Af einum glæsilegasta Audi-
bílnum á landinu sem jafnframt
er fyrsti bíll eigandans. /1
Reynsluakstur
► Honda Shuttle er fjölhæfur fjöl-
notabíll. /2
FASTIR ÞÆTTIR
Préttir 1/2/4/8/bak
Leiðari 28
Helgispjall 28
Reykjavíkurbréf 28
Skoðun 30aog31b
Minningar 36
Myndasögur 40
Bréf til blaðsins 40
ídag 42
Brids 42
Stjörnuspá 42
Skák 42
Fólk í fréttum 44
Bíó/dans 46
íþróttir 50
Útvarp/sjónvarp 52
Dagbók/veður 55
Mannlífsstr. lOb
Kvikmyndir 12b
Dægurtónlist 141)
INNLENDAR FRÉTTIR-
2-4-8-BAK
ERLENDAR FRÉTTIR;
1-6