Morgunblaðið - 16.06.1996, Blaðsíða 4
4 SUNNUDAGUR 16. JÚNÍ 1996
MORGUNBLAÐIÐ
JMatgtutlritaMfe
VIKAN 9/6-15/6.
► ENN slitnaði upp úr við-
ræðum íslands, Noregs og
Rússlands um samkomulag
um veiðar okkar Islendinga
í Barentshafi á fundi í Ósló
um síðustu lielgi. Eftir
óformlegar viðræður ráða-
manna hér heima við sjávar-
útvegsráðherra Rússa voru
vonir bundnar við fundinn.
Samkvæmt þeim var talað
um ákveðinn kvóta í Smug-
unni og síðan frekari þorsk-
veiðiheimildir innan lög-
sögu Rússa og þeir fengju
heimildir til loðnuveiða hér
við land í staðinn. Norð-
menn vildu þá að hluti veiði-
heimilda okkar i Barents-
hafi yrði tekinn í norskri
lögsögu og á móti fengju
þeir veiðiheimildir innan
lögsögu okkar. Fyrir vikið
gekk ekki saman með þjóð-
unum þremur.
► HALLINN á ríkissjóði
fyrstu fjóra mánuði ársins
var 2.780 milljónir, en á
sama tímabili í fyrra var
hallinn 4.120 milljónir.
Þetta er afkomubati um
1.340 milljónir króna. Betri
afkoma skýrist fyrst og
fremst af auknum tekjum
vegna meiri veltu I þjóðfé-
laginu.
►ÞRÁTT fyrir niðurskurð
og lokanir á sjúkrahúsunum
í Reykjavík er útlit fyrir að
kostnaður við rekstur þeirra
verði 300-400 milljónum
króna meiri en fjárlög gerðu
ráð fyrir. Ennfremur er út-
lit fyrir að kostnaður ríkisins
vegna lyfja fari um 200 mil|j-
ónir fram úr áætlun.
► ICELAND SEAFOOD,
dótturfyrirtæki íslenskra
sjávarafurða hf. (ÍS) í
Bandarikjunum, er nú að
kanna hvort reist verður ný
fiskréttaverksmiðja í
Bandaríkjunum eða núver-
andi verksmiðja í Harris-
burg endurnýjuð.
Sophiu dæmdur
tveggja mánaða um-
gengnisréttur
HALIM A1, fyrrverandi eiginmanni
Sophiu Hansen, var dæmt forræði
dætra þeirra í undirrétti í Istanbúl í
Tyrklandi á fimmtudag. Sophiu var
dæmdur umgengnisréttur við stúlk-
umar í júlí og ágúst í Tyrklandi.
Niðurstöðunni verður áfrýjað.
Flosi fór á hliðina
TÍU manna áhöfn Flosá ÍS 15 komst
um borð í Börk NK 122 þegar Flosi
lagðist á stjómborðshliðina um kl.
19.30 á sunnudagskvöld. Verið var
að dæla síld úr nótinni hjá Berki yfir
í lestar Flosa og vora 50-60 tonn
komin í þær þegar skipið hallaðist
skyndilega. Áhöfnin kom með Berki
til hafnar í Neskaupstað á þriðjudag
og varðskipið Týr kom þangað með
Flosa í togi á fimmtudag. Talið er
að skilrúm í lest skipsins hafí gefíð
sig með þeim afleiðingum að farmur-
inn lenti allur stjórnborðsmegin. Flosi
verður sendur aftur á síldveiðar.
Rannveig Rist ráðin
forstjóri ÍSAL
STJÓRN Alusuisse-Lonza hefur sam-
þykkt að ráða Rannveigu Rist for-
stjóra íslenska álversins hf. frá og
með næstu áramótum. Dr. Christian
Roth, sem verið hefur forstjóri fyrir-
tækisins í átta á_r, lætur þá af starfí
að eigin ósk. Ákvörðun þessi var
kynnt starfsmönnum á þriðjudag.
Heyskapur hafinn
HEYSKAPUR er hafinn á túnum sem
ekki hafa verið beitt á nokkrum bæj-
um í Landeyjum, Mýrdal og undir
Eyjafjöllum og búist er við að í þess-
ari viku verði farið að slá víða á sunn-
anverðu landinu. Að sögn Ólafs R.
Dýrmundssonar, landnýtingarráðu-
nauts hjá Bændasamtökunum, er
heyskapur í ár 1-2 vikum fyrr á ferð-
inni en í meðalári og þarf að fara
allt aftur til ársins 1964 til að finna
sambærilegt tíðarfar.
KOSIÐ í Grozní.
Tvísýnar kosningar
í Rússlandi
RÚSSAR ganga í dag að kjörborðinu
og sé eitthvað að marka skoðana-
kannanir vinnur Borís Jeltsín forseti
nauman sigur á Gennadí Zjúganov,
leiðtoga kommúnista, og munu þeir
tveir takast á í annarri umferð kosn-
inganna í fyrri hluta júlí.
Kosningabaráttan náði hámarki á
föstudag og hét Jeltsín þá rækilegri
uppstokkun í stjóm sinni, en Zjúg-
anov boðaði hófsemd og sátt.
Samkomulag í
Tsjetsjníju
RÚSSAR og tsjetsjenskir uppreisnar-
menn undirrituðu friðarsamkomulag
á mánudag, sem kveður á um að
rússneskir hermenn verði á brott frá
Tsjetsjníju fyrir ágústlok og uppreisn-
armenn afvopnist.
Átökum linnti hins vegar ekki al-
veg þrátt fyrir samkomulagið og enn
er meginágreiningsefnið óleyst:
framtíðarstaða Tsjetsjníju.
Stórtap Sumitomo
JAPANSKA fyrirtækið Sumitomo til-
kynnti á fimmtudag að það hefði
tapað 126 milljörðum króna á kopar-
viðskiptum, sem gerð voru í heimild-
arleysi á tiu árum á málmmörkuðum
í London, og sögðu fjármálasérfræð-
ingar að þetta gæti reynst mesta tap
í sögu fjármálamarkaða í heiminum.
►TANSU Ciller, fyrrver-
andi forsætisráðherra Tyrk-
lands, sagði í vikunni líklegt
að flokkur sinn, Sannleiks-
stígurinn gengi til samstarfs
við Velferðarflokk heittrú-
aðra múslima. Leiðtogi hans,
Ecmettin Erbakan, fer nú
með sljómarmyndunarum-
boð í Tyrklandi.
► INDVERSKA þingið lýsti
á miðvikudag yfir trausti á
stjórn H.D. Deve Gowda
forsætisráðherra og lauk
þar með sex vikna stjómar-
kreppu á Indlandi. Stjórn
Gowda tekur við af skamm-
lífri stjóm bókstafstrúaðra
hindúa, Janata-flokksins.
► EDMUND Joensen, leið-
togp Sambandsflokksins,
myndaði á þriðjudag nýja
landstjórn á Færeyjum eftir
að fyrri stjórn hans missti
meirihluta á þingi við það
að jafnaðarmenn gengu úr
henni. Stjórnin hefur stuðn-
ing 17 þingmanna af 32.
►ÞAÐ þótti ganga krafta-
verki næst að 272 farþegar
o g flugliðar skyldu komast
lífs af þegar farþegaþota
af gerðinni Boeing 727
hafnaði utan brautar eftir
misheppnað flugtak í Japan
á fimmtudag. Þrír létu lífið.
►NÝ skoðanakönnun bend-
ir til að Bob Dole, væntan-
legur forsetaframbjóðandi
repúblikana, sé að draga á
Bill Clinton Bandaríkjafor-
seta og nú muni aðeins 6%.
►HELMUT Kohl, kanslari
Þýskalands, er óánægður
með að geta ekki talað móð-
urmálið í útlöndum og
hyggst nú auka veg þýskrar
tungu í heiminum með rík-
isfé.
FRÉTTIR
Atvinnumiðlun námsmanna með 1.200 manns á skrá
200 störf til námsmanna
ATVINNUMIÐLUN námsmanna
hefur útvegað u.þ.b. 200 náms-
mönnum störf það sem af er sumri,
en um 1.200 manns eru á skrá.
Eyrún María Rúnarsdóttir, fram-
kvæmdastjóri Atvinnumiðlunar-
innar, segir að vitað sé um 400
manns sem liafi útvegað sér störf
sjálfir og sjálfsagt væru það fleiri.
„Það hefur gengið verst að út-
vega störf fyrir yngsta aldurshóp-
inn sem er 16-19 ára og hef ég
mestar áhyggjur af þeim. Þau
hringja oftast að spyijast fyrir.
Auðveldara er að útvega eldri
námsmönnum störf. Atvinnurek-
endur leggja áherslu á reynslu,
setja vissar aldurskröfur og vilja
yfirleitt starfsmenn 20 ára og eldri,
svo erfitt er fyrir krakkana að fá
tækifæri til að sanna sig.“
Mikið hefur verið að gera á
miðluninni frá því í byrjun maí og
hefur aðeins dregið úr atvinnutil-
boðum nú að sögn Eyrúnar. „Fleiri
atvinnutilboð berast til okkar núna
en síðasta sumar þannig að við
stöndum betur að vígi. Helstu at-
vinnutilboðin eru skrifstofu,- af-
greiðslu- og símavörslustörf, al-
menn verkamannastörf s.s.
steypu-, málninga- og byggingar-
vinna. Talsvert er af bókhalds-
störfum og öðrum sérhæfðum við-
skiptatengdum störfum. Ferða-
málageirinn ræður einnig nokkuð
af fólki, t.d. hótelin og gistiheimil-
in.
í fyrrasumar starfaði miðlunin
allt fram í ágúst og útvegaði u.þ.b.
500 námsmönnum störf. Enn er
ekki hægt að sjá fyrir hvort sú
tala verði svipuð í ár. Þó fleiri at-
vinnutilboð berist nú, er spurning
hvort þeim fækki, hversu margir
eru ráðnir á hvern stað og alltaf
er hætta á að tilboð detti út og
atvinnurekendur ráði einhvetja
aðra,“ sagði hún ennfremur.
Eyrún María segist hafa fundið
fyrir því að námsfólk úr sumum
greinum skrái sig ekki hjá Atvinnu-
miðluninni og virðist ganga beint í
störf. Til dæmis er eftirspum eftir
verk- og tæknifræðinemum, vél-
stjóra- og stýrimannaskólanemum,
hjúkrunarfræðinemum, tölvunar-
fræðinemum og garyrkjunemum.
Sömuleiðis er minna af fólki á skrá
sem er komið lengra í námi.
Atvinnumiðlun námsmanna
mun starfa í allt sumar eða allt
til um miðjan ágúst.
Morgunblaðið/Kristinn
Gróðursett í Neskaupstað
INGIBJÖRG Magnúsdóttir var
að hjálpa mömmu sinni, Láru
Garðarsdóttur, að planta sumar-
blómum við kirkjuna á Neskaup-
stað 11. júní síðastliðinn. Lára
sagði að ekki hefði verið hægt
að gróðursetja fyrr vegna veðr-
áttunnar en aðeins nokkrum dög-
um áður hafði verið slydda í
bænum. Fjölskyldan hefur séð
um gróður fyrir kirkjuna síðast-
liðin átta ár. Eiginmaður Láru,
Magnús Sigurðsson, er kirkju-
garðsvðrður. Með þeim Ingi-
björgu og Láru við gróðursetn-
inguna var hundur þeirra Gæi.
Fleiri
vistunar-
dagar
unglinga
AUKNING varð á vistunum á
deildum Meðferðarstöðvar ríkisins
fyrir unglinga á árinu 1995, sér-
staklega síðustu mánuði ársins.
Að því er fram kemur í ársskýrslu
MRU má að hluta rekja þessa
aukningu til lokunar Tinda í lok
ágúst 1995, en að öðru leyti virð-
ist vera um að ræða almenna þró-
un í þessum málaflokki. Ungling-
um í vanda fer fjölgandi og meiri
eftirspurn er eftir þjónustu MRU
en áður.
Samanlagt vistuðust 100 ein-
staklingar á deildunum í Sólheim-
um 7 og 17, Efstasundi og Tind-
um árið 1995, sem er u.þ.b. sami
fjöldi og árið 1994, sé gert ráð
fyrir hinum skerta starfstíma
Tinda á Kjalarnesi. Vistunardag-
ar voru 5.867, sem er rúmlega
9% aukning frá árinu áður. Af
þeim 100 unglingum sem um
ræðir áttu 49% lögheimili í
Reykjavík, 18% í öðrum sveitarfé-
lögum á höfuðborgarsvæðinu, en
33% komu frá öðrum stöðum á
landinu. Þetta eru svipuð hlutföll
og árið áður.
57% stúlkur
Stúlkur voru í meirihluta þeirra
sem vistuðust á deildum MRU sl.
ár, eða 57%. Þetta er í annað sinn
frá stofnun Unglingaheimilis ríkis-
ins árið 1972 sem stúlkur eru fleiri
en piltar, en árið 1994 voru þær
55% vistmanna. Fyrr á árum var
algengt að u.þ.b. tveir piltar væru
vistaðir fyrir hveija stúlku.
í
)
)
Ráðstefna um samskipti
Islands o g Grænlands
RÁÐSTEFNA undir yfirskriftinni
Grænland og ísland, nágrannar
fyrr og nú hófst í bænum Qaqortoq
á S-Grænlandi á fimmtudaginn.
Fjórir íslenskir sagnfræðingar
halda erindi á ráðstefnunni auk
fræðimanna. Frá S-Grænlandi og
Danmörku er 29 manna hópur ís-
lenskra sagnfræðinga staddur í
Qaqortoq vegna ráðstefnunnar.
Hann hefur ferðast um byggðir
norrænna manna á S-Grænlandi á
undanförnum dögum.
„Ráðstefnan er fyrsta skrefið í
að byggja upp samband við fræði-
menn á Grænlandi í tengslum við
sameiginlega sögu íslands og
Grænlands á miðöldum og sam-
skipti á seinni öldum,“ sagði
Hrefna Róbertsdóttir, formaður
Sagnfræðingafélags íslands, í
samtali við Morgunblaðið.
Ráðstefnan er haldin á vegum
Sagnfræðingafélagsins í sam-
vinnu við fræðimenn á Grænlandi
og í Danmörku með styrk frá
Norræna menningarsjóðnum.
Anna Agnarsdóttir dósent fjallar
um stjórnmálaleg og efnahagsleg
tengsl á milli Grænlands og ís-
lands á árunum 1700-1814,
Helgi Þorláksson prófessor fjallar
um endalok norskrasiglinga til I
Grænlands á árunum 1800 til \
1900 og Sveinbjörn Rafnsson pró- k
fessor fjallar um Grænland á mið-
öldum. Auk þess fjallar Ingvi
Þorsteinsson náttúrufræðingur
um náttúrufar og landnýtingu á
S-Grænlandi.
Aðrir fyrirlesarar á ráðstefn-
unni eru Jonathan Motzfeldt,
fyrrverandi formaður heima-
stjórnarinnar, Georg Nyegaard |
fornleifafræðingur, Knud J. j
Krogh fornleifafræðingur og [
Henrik Lund, fyrrverandi bæjar- *
stjóri í Qaqortoq.