Morgunblaðið - 16.06.1996, Side 9
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 16. JÚNÍ 1996 9 >
Lífleg sala
í Ríkinu
MIKIL sala var á föstudag og í
gær á útsölustöðum Áfengis- og
tóbaksverslunar ríkisins.
Ottó Hreinsson, verslunarstjóri
í Ríkinu í Austurstræti, segir dag-
inn hafa minnt nokkuð á föstudag
fyrir verslunarmannahelgi þótt sal-
an hafi ekki orðið alveg eins mik-
il. Þá sagði hann hlutfall bjórs í
sölunni hafa verið óvanalega hátt.
Hann segir augljósa ástæðu fyrir
mikilli áfengissölu vera þá að
þriggja daga helgi var framundan.
Ástæðuna fyrir mikiili bjórsölu
taldi hann vera Evrópukeppni
landsliða í fótbolta og sjónvarpsút-
sendingar henni tengdar.
-----♦—♦—*----
Bílvelta í Bisk-
upstungum
BÍLVELTA varð við Hjarðarland
í Biskupstungum seint í fyrrakvöld.
Fjórir útlendingar voru í bílnum.
Ökumaðurinn var fluttur á sjúkra-
hús á Selfossi til skoðunar en hann
reyndist ómeiddur. Farþegarnir
sluppu án meiðsla.
A
Astþór
kærir
Stöð 2
ÁSTÞÓR Magnússon forsetafram-
bjóðandi hefur kært Stöð 2 til út-
varpsréttarnefndar. Ástþór kom
fram í viðtalsþætti á fimmtudags-
kvöld á Stöð 2. í upphafi þáttarins
var flutt samantekt stöðvarinnar
um feril og fortíð Ástþórs og var
hún sýnd í opinni dagskrá. Að lok-
inni úttektinni hófst viðtal við Ást-
þór í beinni útsendingu og var það
sýnt í læstri dagskrá.
Ástþór segist hafa hreyft mót-
mælum við þessu fyrirkomulagi
fyrir útsendinguna. I samantekt-
inni hefðu komið fram staðhæfing-
ar sem hann teldi ekki réttar og
vildi hann fá að svara fyrir þær í
opinni dagskrá. Þá hafi honum
verið sagt að um þessa tilhögun
giltu ströng fyrirmæli útvarps-
stjórans og henni yrði ekki breytt
með skömmum fyrirvara.
Að fengnu lögfræðiáliti um að
þetta bryti í bága við útvarpslög,
segist Ástþór hafa ákveðið að
kæra Stöð 2 fyrir útvarpsréttar-
nefnd.
FRÉTTIR
Morgunblaðið/Kristinn
Hollvinum safnað
HOLLVINASAMTÖK Háskóla ís-
lands verða formlega stofnuð á
Háskólahátíð þann 17. júní. Þeir
sem skrá sig í samtökin fyrir þann
tíma teljast stofnfélagar.
I gær stóðu stúdentar fyrir
skráningu hollvina á Ingólfstorgi
í Reykjavík. Háskólakórinn söng
og fleira var gert til skemmtun-
ar. Að sögn Sigríðar Stefánsdótt-
ur, framkvæmdastjóra Hollvina-
samtakanna, hafa stúdentar verið
mjög áhugasamir um undirbún-
ing þeirra og öflun félaga. Þeir
sem vilja gerast stofnfélagar geta
hringt í síma 551 4374 til 17. júní
og lesið nöfn sín á símsvara. Sig-
ríður tók fram að hollvinir væru
velkomnir á Háskólahátíð í Laug-
ardalshöllinni á mánudag, húsinu
verður lokað kl. 13.15.
Morgunblaðið/gg
FRÁ vinstri Stefán Bjartur Runólfsson, Skarphéðinn Á. Runólfs-
son, Runólfur Ágústsson og Jóhannes Guðmundsson með veiði
sína í Langá í gærmorgun en þar byrjar veiði með eindæmum vel.
Sýknaður af ákæru
um kynferðisbrot
og líkamsmeiðingar
Góð byrjun
í Langá
„ÞETTA er besta byijun í mörg
ár, það er mikill lax hérna, aðal-
lega á Breiðunni og í Strengjun-
um,“ sagði Runólfur Ágústsson,
einn leigutaka Langár á Mýrum,
í gærmorgun, en áin var þá opnuð
fyrir laxveiði. Um klukkan 11 voru
komnir 9 laxar á land og nokkrir
til viðbótar höfðu sloppið. Stærsti
laxinn var 19 punda grálúsugur
hængur sem Ólafur Þ. Harðarson
veiddi á svarta Frances túbu^ á
Breiðunni. Var það Maríulax Ól-
afs.
Það var hin aldna kempa Jó-
hannes Guðmundsson, formaður
Veiðifélags Langár, sem dró fyrsta
laxinn, 12 punda hæng á maðk á
Breiðunni. Á meðan voru 8 og 9
ára synir Runólfs að gera sig klára
í Strengjunum og drógu þar síðan
sinn fiskinn hvor, Skarphéðinn 5
punda fisk og Stefán Bjartur 4
punda fisk. Nokkru síðar dró Run-
ólfur sjálfur 7 punda lax á Breið-
unni þannig að dagurinn var eftir-
minnilegur hjá þeim feðgum. Stef-
án Bjartur veiddi þarna sinn fyrsta
lax. Sagði hann að laxinn hefði
verið sterkur og næstum kippt af
sér stönginni og bróðir hans
Skarphéðinn hafði svipaða sögu
að segja.
Næsta fimmtudag verða svæðin
ofar í ánni opnuð. Taldi Runólfur
að miðað við árferði gætu menn
verið bjartsýnir á þeim slóðum.
HÆSTIRETTUR hefur hnekkt úr-
skurði héraðsdóms um tíu mánaða
fangelsi, þar af sjö mánuði skilorðs-
bundna, yfir tæplega fimmtugum
manni fyrir kynferðisbrot og lík-
amsmeiðingar. Telur Hæstiréttur
hæfilegt að dæma manninn til
þriggja mánaða skilorðsbundinnar
fangelsisvistar fyrir líkamsárás og
sýknar hann af ákæru um kynferð-
isbrot.
Dæmdur fyrir líkamsárás
vegna hrindingar
Fullnustu dómsins er frestað og
refsing felld niður að þremur árum
liðnum, haldi ákærði skilorð. Þá er
maðurinn dæmdur til að greiða
50.000 króna sekt í ríkissjóð og
helming sakarkostnaðar í héraði.
Maðurinn var í héraði dæmdur
fyrir að hafa leitað á sofandi konu
með kynmök í huga og valdið
meiðslum þegar hún reyndi að vísa
honum á dyr. Hrinti hann konunni
svo hún handleggsbrotnaði. I dómi
Hæstaréttar segir „óvarlegt að telja
sannað" þegar tillit sé tekið til hve
áleitni náði skammt og til aðstæðna
í íbúð konunnar að fyrir manninum
hafi vakað að þröngva konunni til
samræðis eða annarra kynferðis-
maka og að það beri að leggja til
grundvallar.
í íbúðinni voru auk ákærða og
konunnar sambýlismaður hennar
og þriðji maður og vaknaði hún
þegar á hana var leitað. Þá segir
að virða megi afleiðingu falls kon-
unnar hinum ákærða til gáleysis
en hann fundinn sekur um líkams-
árás.
H valfj arðargöng
Samið um
orlof og mat
á starfsaldri
FULLTRÚAR vinnuveitenda hafa
samþykkt að taka inn í vinnustaða-
samning ákvæði varðandi starfsald-
ur og orlof starfsmanna við Hval-
fjarðargöng, að sögn Snæs Karls-
sonar fulltrúa Verkamannasam-
bands Islands.
Snær segir að samningaviðræður
vinnuveitenda og fulltrúa verkalýðs-
félaga „þokist í rétta átt“ en ennþá
ber talsvert í milli hvað launaliðinn
varðar að hans sögn. Fundur var
haldinn á þriðjudag og fimmtudag
og hittast fulltrúar aftur í bytjun
næstu viku.
Skógrækt ríkisins og landbúnaðarráðuneytið efndu til samkeppni
Verðlaun fyrir besta skógarhnífinn
AFHENDING verðlauna fyrir besta skógar-
hnífinn fór fram í gær, í húsi Landgræðslu-
sjóðs við Suðurhlíð í Reykjavík. Sextíu hníf-
ar bárust í samkeppnina sem haldin var á
vegum Skógræktar ríkisins og landbúnað-
arráðuneytisins. Keppnin yar auglýst í jan-
úar í ár í tilefni að opnun „íslenskrar við-
armiðlunar", en starfsemi hennar hófst 7.
júní. Er tilgangur samkeppninnar að hvetja
til hönnunar og framleiðslu úr íslensku
hráefni og jafnframt að fá vandaðan mii\ja-
grip fyrir erlenda skógræktarmenn sem
heimsækja landið.
Verðlaunahnífurinn
úr birki og hreindýrshorni
Fyrstu verðlaun, 200.000 krónur, hlaut
Hlynur Halldórsson fyrir hníf sinn „Sigga“.
Skefti hans er úr sumarfelldu birki með
hreindýrshorni fremst, slíður er úr birkirót
og nautsleðri, blaðið er úr ryðfríu stáli. Sex
hlutu viðurkenningar að upphæð 25.000
krónur hver fyrir hnífa sína. Þeir sem
fengu viðurkenningar voru Hlynur Hall-
dórsson fyrir hnífinn „Frey“, Bergsveinn
Þórsson fékk viðurkenningar fyrir tvo
ónefnda hnífa, George Hollanders og Helgi
Morgunblaðið/Jón Svavai*sson
HLYNUR Halldórsson heldur á
verðlaunahnífnum „Sigga“.
Þórsson fyrir hnífinn „Orminn" og Berg-
steinn Ásbjörnsson fyrir ónefndan hníf.
Hjalti Þór Guðmundsson hlaut viðurkenn-
ingu fyrir að vera yngsti þátttakandinn í
keppninni. Verðlaunin afhenti Guðmundur
Bjarnason landbúnaðarráðherra.
Ólafur Oddsson, kynningarfulltrúi Skóg-
ræktar ríkisins, segir að þátttaka I sam-
keppninni hafi farið fram úr öllum vonum.
Komið hafi á óvart hversu margir höfðu
áhuga á keppninni og bárust fyrirspurnir
víða að. Hnífar voru jafnvel sendir í keppn-
ina frá íslendingum seni búa erlendis svo
og frá einum Frakka. Ólafur segir að
keppnin hafi bersýnilega höfðað til mjög
fjölbreytts hóps handverksmanna og lista-
manna, t.d. gullsmiða, tréútskurðarmanna,
járnsmiða, handavinnukennara og -nema,
svo fáir séu nefndir. Viðarmiðlunin útveg-
aði keppendum efni í smíðina.
Ólafur segir að val dómnefndarinnar
hafi verið mjög erfitt. „Það kom á óvart
hversu keppnin höfðaði til margra og hve
allt handbragð var vandað.
Sýning verður haldin á skógarhnífunum
sem bárust í keppnina nú um helgina í
Landgræðsluhúsinu í Fossvogsdal.