Morgunblaðið - 16.06.1996, Qupperneq 16

Morgunblaðið - 16.06.1996, Qupperneq 16
16 SUNNUDAGUR 16. JÚNÍ 1996 LISTIR MORGUNBLAÐIÐ Norrænu leik- húsdagarnir í Kaupmannahöfn * > Oskin o g Himnaríki eftir Arna Ibsen íslenskt framlag Kaupmannahöfn. Morgunblaðið. NORRÆNU leikhúsdagarnir standa nú yfir í Kaupmannahöfn og var opnunarsýningin Óskin eft- ir Jóhann Sigutjónsson í flutningi leikara frá Leikfélagi Reykjavíkur undir leikstjórn Páls Baldvinsson- ar. Samtök leikhúsa á Norðurlönd- um standa að hátíðinni og þar eru ýmsar norrænar sýningar fluttar af hópum frá löndunum, auk þess sem afhent voru verðlaun fyrir besta norræna leikritið. Verðlauna- hafinn að þessu sinni var Paavo Haavikko og hlaut hann fimmtíu þúsund danskar krónur með viður- kenningunni. íslenska framlagið var Himnaríki, leikrit eftir Árna Ibsen. Leikrit Árna verður ekki flutt, en kynnt með leiklestri, þar sem höfundurinn segir einnig frá verkinu. Paavo Haavikko er fæddur 1931. Hann er afkastamikill rithöf- undur á öllum sviðum bókmennta og hefur áður hreppt ýmis bók- menntaverðlaun. í mótmælaskyni við stefnu finnskra stjórnvalda í menningarmálum mætti Haavikko þó ekki sjálfur til að taka á móti verðlaunafénu og þyrlaði þar með upp nokkru moldviðri heima fyrir. Svend Holm, danski verðlaunahaf- inn frá í fyrra, átti að afhenda finnska starfsbróður sínum verð- launin, en það mál var leyst með því að hann hengdi umslagið með verðlaunafénu á krók, sem síðan var dreginn var upp. Afhendingin fór fram að lokinni opnunarsýn- ingu Leikfélagsins á Óskinni, en alls verða tvær sýningar á Óskinni í þetta skiptið. Til samkeppninnar um norrænu leikritaverðiaunin voru tilnefnd eitt leikrit frá hverju Norðurland- anna. Tvö þeirra eru flutt á hátíð- inni nú, en þau sem ekki eru flutt í heild verða kynnt með leiklestri og þannig verður um leikrit Árna. Danskur leikstjóri hefur æft leik- lesturinn, en Árni verður sjálfur viðstaddur og ræðir um verk sitt. Auk leik- og danssýninga frá Norðurlöndunum fimm verður sýnt samískt verk og færeyskt, auk þess sem Rússland er tekið í hópinn og ein sýning kemur það- an. Ævisaga Jóns Sigurðs- sonar á ensku og dönsku Á LÝÐVELDISDAGINN 17. júní næstkomandi, afmælisdegi Jóns Sigurðssonar, kemur út ævisaga hans í hnotskurn á ensku og dönsku, 128 blaðsíður að lengd í mjög handhægu broti, sem Hall- grímur Sveinsson á Hrafnseyri tók saman, en útgefandi er Vestfirska forlagið. Hersteinn Pálsson þýddi á ensku en Auðunn Bragi Sveins- son á dönsku. Allar ljósmyndir sem vitað er um af Jóni Sigurðssyni, prýða bækurnar, auk fjölda ann- arra frá ýmsum tímum. Björn Davíðsson_ hjá Tölvuþjónustunni Snerpu á ísafirði sá um uppsetn- ingu (layout), en Prentsmiðjan Oddi hf. prentaði. Eftir því sem best er vitað, eru þetta fyrstu út- gáfur á erlendum málum, þar sem fjallað er um Jón Sigurðsson og sögu hans í bókarformi, en skylt er þó að geta þess, að frændi Jóns, Þorlákur Ó. Johnson, gaf út stutta æviminningu hans á ensku árið 1887, með skrá yfir rit hans og útgáfur, sem Steingrímur Thor- steinsson tók saman. Forseti íslands, Vigdís Finn- bogadóttir, skrifar formála að báð- um verkunum, en þar fjallar hún meðal annars um stöðu Jóns Sig- urðssonar í hugum íslendinga og afstöðu Dana til hans. Að ávaxta sitt pund TÖNLIST Háskólabíö SINFÓNÍUTÓNLEIKAR Sinfóníuhljómsvoit Islands, fiðlusnill- ingurinn Corey Cerovsek og hljóm- sveitarstjórinn Robert Henderson fluttu tónverk eftir Brahms og Stra- vinskíj. Á LISTAHÁTÍÐ í Reykjavík voru haldnir stórtónleikar sl. fimmtu- dagskvöld og það var fiðlusnilling- urinn Corey Cerocsek er flutti, ásamt Sinfóníuhljómsveit Islands undir stjórn Roberts Hendesons, fiðlukonsertinn í D-dúr op. 77 eftir Johannes Brahms. Það fer ekki á milli mála að Cerovsek, sem er að- eins 24 ára, er fiðlusnillingur af stærri gerðinni, ræður yfir ótrúlegri tækni og hafði auk þess skáldskap verkins nokkuð vel á valdi sínu. Fyrsti kaflinn er í raun sinfónía og margir hafa það til marks að vei sé spilað, ef einleikarinn nær að túlka friðsældina með innkomu að- alstefsins á eftir kandesunni. Cerov- sek lék það mjög vel en helst til of blátt áfram, til að vaxandi hrað- inn undir lokin nyti sín eins og „fljótrituð undirskrift". Hægi kaflinn hófst á fallegum óbóeinleik hjá Kristjáni Þ. Stephen- sen og hjá einleikaranum var allt mjög fallega flutt, þó á nokkrum stöðum vantaði að dvelja ögn við einstaka tónmynstur, t.d. rósa- mynstrið í miðhlutanum. Lokakafl- inn var glæsilega leikinn af Cerov- sek, enda þykir ungum flytjendum oft meira til koma að leika hratt en gefa oft minni gaum að þungbú- inni tilfinningatúlkun. Leikur Cerocsek var í heild mjög fallega mótaður og borinn uppi mikilli tækni. Eins og fyrr segir er hér á ferðinni listamaður af stærri gerð- inni og verður fróðlegt að heyra til hans, er honum vex skilningur á hinum dýpri duldum skáldskapar- ins, sem Brahms hafði skynjað skuggann af, í langri leit sinni. Seinna verk tónleikanna var Eld- fuglinn eftir Stravinskíj, meistara- verk í hljóðfærarithætti, sannkolluð leikveisla fyrir hljómsveitina, sem Ilenderson kunni öll skil á og stjórn- aði utanað. Sjaldan hefur hljóm- sveitin leikið betur, en á undan Eld- fuglinum voru þrír félagar í Sinfón- íuhljómsveit íslands heiðraðir og ef rétt er munað mun Jónas Dag- bjartsson fiðluleikari hafa verið með frá stofnun sveitarinnar, 1950, og Morgunblaðið/Ásdís Sögulegur dómsdagur TÓNLIST N o r r æ n a h ú s i ð GÍTARLEIKUR Þórólfur Stefánsson gítarleikari. Miðvikudagur 12. júní 1996. TÓNLEIKARNIR í Norræna húsinu á miðvikudagskvöld voru, eins og flestir tónleikar á höfuð- borgarsvæðinu þessa dagana, háð- ir undir merkjum Listahátíðar í Reykjavík. Það voru fleiri tónleikagestir en sú sem þetta skrifar sem mættu til leiks þegar nokkuð var liðið á flutninginn. Misskilnings hafði gætt, jafnvel hjá þeim sem svöruðu í síma í tónleikahúsinu sjálfu! Slíkt á ekki að þurfa að gerast í okkar annars ágæta upplýsingaþjóðfé- lagi. Þórólfur Stefánsson gítarleikari fór fyrir tæpum tíu árum af landi brott með burtfararpróf frá Tón- skóla Sigursveins í farteskinu. Leiðin lá til Svíþjóðar. Lokapróf tók hann í gítarleik frá Stockholms musikpedagogiska institut árið 1994. Nú starfar hann hjá þessum góðu grönnum okkar sem hljóð- færaleikari og kennari. Verkin á síðari hluta efnisskrár þessara tónleika eru öll frá þessari öld. Útsetningar Baltazar Benites fyrir gítar af tangóættuðum smá- verkum Astors Piazzolla hljómuðu um margt vel. í Verano Porteno mátti heyra vel unnar styrkleika- breytingar sem settu fallegt yfir- bragð á hljóðfæraleikinn. Þórólfi lét vel að láta ljóðrænni línur miðk- aflans syngja í hljóðfæri sínu. Ekki tókst þó að skapa hina villtu en hömdu spennu sem alla jafna ein- kennir tangóinn. Milonga del Ang- el er fágaðra og hægferðugra verk en hið fyrrnefnda, þar sem spenn- an býr í hrynfijálsri meðferð skreytinótna. Þó ekki hafi tekist að leika verkið alveg fiplaust og skreytinótur hafi ekki alltaf verið teknar af miklu næmi, var flutn- ingurinn áheyrilegur, verkið fal- legt. Fjórar stemmningar fyrir gítar eftir Jón Ásgeirsson er eitt af fáum íslenskum gítarverkum. Forspilið vakti eftirvæntingu, nokkur spenna falin í rísandi sekvensum í upphafi og lok kaflans. í góðu jafnvægi og fagurri andstæðu hljómuðu fallandi sekvensar Sakn- aðarins sannfærandi. Þó þeir grétu ekki í þessum flutningi eins og þeir virtust þó geta gert. Rímna- lagið bjó ekki yfir þeim frumkrafti þjóðlagsins sem maður vænti, en lokakaflinn Óþol var mjög áheyri- legur með laglínubrotum og hófa- taki. Eftir Francis Kleynjans var að lokum flutt verkið Að morgni dómsdagsins. Verkið lýsir, sam- kvæmt efnisskrá, síðustu mínútun: um í lífi fanga áður en hann er hálshöggvinn. Og þessar mínútur dómsdagsins eru sögulegar og dramatískar. í kapp við klukkuna rifjar fanginn upp líf sitt. Verkinu lýkur með högginu sjálfu. Minning- arnar voru túlkaðar með tónlistar- brotum sem voru kunnugleg, en dramatíkin var vel útfærð. Verkið er vel samið og áhrifaríkt prógram- verk, einfalt og jafnvel barnslega gegnsætt á köflum en þó um leið aðgengilegt. Þórólfur lék verkið mjög vel, var góður sögumaður með gítarinn einan að vopni. Sigfríður Björnsdóttir Morgunblaðið/Þorkell HLJÓMSVEITARSTJÓRINN Robert Henderson og fiðlusnilling- urinn Corey Cerovsek slá á Iétta strengi á æfingu fyrir tónleikana í Háskólabíói. löngu fyrr tekið þátt í Lilraunum til að koma á stofn smfóníuhljómsveit. Hinir tveir voru Árni Arinbjarnar- son fiðluleikari og Jón Sigurðsson trompettleikari. Aður (23. maí sl.) hafði Ingvar Jónasson lágfiðluleik- ari verið kvaddur. Glæsilegur flutn- ingur Eldfuglsins er til vitnis um að þeir sem ruddu brautina, við erfið skilyrði á fyrstu árum hljóm- sveitarinnar, hafa skilað góðum vinnudegi og ávaxtað ríkulega sitt pund, svo að nú er Sinfóníuhljóm- sveit íslands góð hljómsveit og áttu margir þarna fallegar einleiksstróf- ur, Joseph Ognibene á hornið sitt, Kristján Þ. Stephensen á óbó, Haf- steinn Guðmundsson á fagott og fleiri. í þessu margnaða verki getur oft að heyra skemmtilegt samspil einstakra hljóðfæraflokka, eins og hjá tréblásurunum, lúðrunum, slag- verkinu og strengjunum og var aðdáunarvert hversu skýr leikur þeirra var. Jón Ásgeirsson Galdra-Loft- ur áfram í haust ÁKVEÐIÐ hefur verið að halda sýningum á óperu Jóns Ásgeirssonar, Galdra-Lofti, áfram í haust í íslensku óper- unni og er fyrsta sýning fyrir- huguð um miðjan september. Sjötta og síðasta sýning á óperunni á Listahátíð var á föstudagskvöld. Tuttug’u smá- sögur valdar TUTTUGU smásögur hafa verið valdar úr þeim 225, sem bárust þegar auglýst var eftir sögum til flutnings í sumar- dagskrá Rásar eitt. Þriggja manna dómnefnd skipuð Jóni Halli Stefánssyni á Rás eitt, Kristínu Ómarsdóttur rithöf- undi og Guðrúnu Nordal bók- menntafræðingi, sá um að velja sögurnar. Sögurnar eru frumfluttar á sunnudögum kl. 18 og endur- teknar næsta föstudag á eftir kl. 10.15. Fyrsta sagan sem lesin verður er sagan „Bleikur múkki“ eftir óþekktan höfund og er á dagskrá 16. júní. Fjörviti að ljúka SÝNINGUNNI Fjörviti í Ný- listasafninu, Vatnsstíg 3b í Reykjavík, lýkur í dag sunnu- dag. Fjörvit er heiti á íjórum sýningum sem eru sameigin- legt framiag Listahátíðar í Reykjavík og Nýlistasafnsins. Sýnendur eru Christine og Irene Hohenbúcler ft'á Austurríki, Carsten Höller frá Þýskalandi og Dan Wolgers frá Svíþjóð. Safnið er opið daglega frá kl 14-18. Síðasta sýn- ing leikársins SÍÐASTA sýning leikárs Þjóðleikhússins verður á sunnudag á söngleiknum Hamingjuráninu. Höfundur verksins er Bengt Ahlfors. Leikendur í Hamingjurán- inu eru Hilmir Snær Guðna- son, Steinunn Ólína Þor- steinsdóttir, Ólafía Hrönn Jónsdóttir, Vigdís Gunnars- dóttir, Örn Árnason, Bergur Þór Ingólfsson og Flosi Ólafs- son. Einnig tekur þriggja manna hljómsveit þátt í sýn- ingunni. Silfur í Þjóð- minjasafni SÝNINGAR í Þjóðminjasafni Islands verða opnar á þjóðhá- tíðardaginn frá kl. 11-17. Ber þar hæst sýninguna Silfur í Þjóðminjasafni sem opnuð var á fyrsta degi Listahátíðar. Er hún í Bogasal og þar getur að líta úrval silfurgripa sem varðveittir eru í Þjóð- minjasafni. Það er silfursjóð- urinn frá Miðhúsum ásamt fleiri forngripum úr silfri, kaleikar, búningasilfur og borðbúnaður auk verkstæði gullsmiðsins Kristófers Pét- urssonar frá Kúludalsá.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.