Morgunblaðið - 16.06.1996, Blaðsíða 30
30 SUNNUDAGUR 16. JÚNÍ 1996
SKOÐUN
MORGUNBLAÐIÐ
HÁHRAÐAFJARSKIPTI -
RANNSÓKNASAMVINNA
INNAN EES
Sæmundur Þór Jes
Þorsteinsson Þórisson
SKIPTING rannsóknarfjár í fjórðu rammaáætluninni.
180
Upplýs.t. Fjarsk.t. Umhv. Landb. Hafranns.
loftsl. fiskv.
RANNSÓKNARSVIÐ er njóta mestra styrkja úr sjóðum ESB.
MEÐ SAMNINGN-
UM um Evrópska
efnahagssvæðið
fengu Islendingar að-
gang að rannsókna-
sjóðum Evrópusam-
bandsins innan fjórðu
rammaáætlunarinn-
ar. Þar á meðal er
sjóður sem styrkir
rannsóknir á sviði
háhraðáfjarskipta.
Það svið nefnist
XCTS (Advanced
Communications Tec-
^nologies and Servic-
és). Þessi ramma-
áætlun nær yfir árin
1995-1998. Heildarfjárveitingar
til 4. rammaáætlunarinnar eru
11.764 milljónir ECU eða um 976
milljarðar króna. Þar af er veitt
til ACTS 671 milljón ECU eða um
66 milljörðum kr. Fyrsta útboð í
&CTS var í september 1994 og
bárust 333 verkefnistillögur. Þar
áf urðu 116 að verkefnum. Öðru
útboði lauk í mars sl. og bárust
111 tillögur, þar sem allmargar
voru viðbætur við verkefni úr
fyrsta útboði.
Þátttaka íslendinga, 114
milljónir kr. frá ESB
Rannsóknir á sviði háhraðafjar-
skipta voru nær engar á íslandi
þegar EES-samningurinn gekk í
gildi 1994. Með tilliti til þess að
háhraðafjarskipti eru ein af undir-
stöðum upplýsingaþjóðfélagsins
má segja að mikilvægi þess að
stunda rannsóknir á þessu sviði
verði seint of metið, enda er rann-
sóknastarfsemi forsenda þess að
öðlast þekkingu. Þátttaka í ACTS
er því sérstaklega mikilvæg fyrir
^Tsland, enda er ekki unnt að
byggja upp upplýsingaþjóðfélag
án þekkingar á undirstöðum þess.
Menntamálaráðuneytið hefur
yfirumsjón með rannsóknasam-
starfínu og sér Rannsóknarráð
íslands (Rannís) um framkvæmd
þess. Að okkar mati hafa þessir
aðilar staðið vel að málum þegar
íslendingar eru að stíga sín fyrstu
spor í samstarfi þessu . Á sviði
ACTS hafa menntamálaráðuneyt-
ið, Póstur og sími og Kerfísverk-
fræðistofa Háskólans sýnt mikinn
stuðning í verki með því að fjár-
magna hið mikla undirbúnings-
starf sem til þurfti.
Stærsta verkefnið sem Islend-
ingar taka þátt í er AMUSE-verk-
efnið (Advanced multimedia
services for residential users), en
það er jafnframt stærsta verkefnið
sem ESB styrkir á sviði margmiðl-
unarfjarskipta. Umfang þess er
alls um 1.280 milljónir króna.
Hlutur íslendinga er um 166 mkr.
og nema styrkir ESB helmingi
þeirrar upphæðar eða um 83 mkr.
Islendingar taka þátt í þremur
öðrum verkefnum sem nefnast
MultiPort (Multimedia Portable
Digital Assistant), NICE (National
Host Interconnection Experiment)
og InfoWin (Information Window).
Umfang þeirra á íslandi er sam-
tals um 31 mkr. og nema styrkir
ESB rúmum 19 mkr. Auk þessa
tóku íslendingar þátt í verkefni
sem nefndist SONAH (Services
and Information Infrastructure of
National Hosts) og tilheyrði það
3. rammaáætluninni. Þar námu
styrkir ESB rúmum 12 mkr. Alls
mun ESB því styrkja fjarskipta-
rannsóknir hér á landi um a.m.k.
114 mkr. á árunum 1995-1998. Á
mynd 2 er yfirlit yfír þau verkefni
sem unnið er að hér á landi.
Rannsóknir á sviði há-
hraðafjarskipta voru
nær engar á íslandi
þegar EES-samningur-
inn gekk í gildi 1994.
Nú hefur orðið þar
breyting á, eins og Sæ-
mundur E. Þorsteins-
son og Þór Jes Þóris-
son rekja í þessari
grein sinni.
ESB veitir jafnframt styrki til
rannsóknarstarfsemi á öðrum
sviðum. Á mynd 3 eru sýnd
stærstu rannsóknarsviðin á íslandi
sem njóta styrkja ESB.
Sóknarfæri á sviði
upplýsingatækni
Undanfarin ár hefur Póstur og
sími ráðist í mikla uppbyggingu
á fjarskiptakerfum sínum með því
að leggja stofnleiðir í breiðbands-
neti um landið allt og byijað er
að leggja bandbreiðar brautir til
notenda. Þetta skapar íslending-
um mikil sóknarfæri á upplýs-
ingatæknisviðinu sem verða best
undirbúin með öflugu rannsókna-
samstarfi við aðrar þjóðir. Þau
verkefni, sem þegar eru í gangi
innan ACTS, ættu eingöngu að
vera byijunin á þessu starfi. Hjá
ESB er undirbúningur fyrir 5.
rammaáætlunina hafinn. Þar
verður framhald á þeirri áherslu
að fá lítil og meðalstór fyrirtæki
til þátttöku í rannsóknum enda
koma oft nýstárlegar og frjóar
hugmyndir frá slíkum aðilum.
Háþróað fjarskiptakerfi ásamt
nýjungagirni íslendinga gera ís-
land að ágætis prófunaraðstöðu
fyrir nýjar hugmyndir í upplýs-
ingatækni.
Sumarskóli ACTS
Dagana 9.-12. júlí nk. verður
haldinn sumarskóli um háhraða-
fjarskiptatækni á vegum ACTS-
áætlunarinnar. Sumarskólinn er
sjálfur sýnikennsla á því sem hægt
er að gera með nútíma fjarskipta-
tækni. Þetta verður í fjórða skipti
sem slíkur sumarskóli er haldinn
og í fyrsta skipti sem hann mun
hafa „útibú“ hér á landi. Þetta
byggist á því að á vegum NICE-
verkefnisins hefur verið sett upp
háhraða ATM-tenging (Async-
hronous Transfer Mode) til
Kanada, Þýskalands og þaðan til
níu annarra Evrópulanda. Með
þessari tengingu verður íslenska
útibúið tengt við aðalstaði sumar-
skólans, sem verða í fimm Evrópu-
löndum (mynd 4). Fyrirlesarar
skólans verða staddir á aðalstöð-
unum fímm en mörg önnur útibú
verða einnig tengd þeim með
gagnvirkri tengingu. Þetta þýðir
að hægt verður að senda hljóð og
mynd samtímis til og frá aðalstöð-
um og öllum útibúum. Nánari upp-
lýsingar um fyrirlestra, tímasetn-
ingu og stað sumarskóians verða
veittar á miðlara íslensku lands-
miðstöðvarinnar,
http://www.simi.is/icenh/. Þess
má geta að uppbygging þess miðl-
ara fór fram á vegum SONAH-
verkefnisins og er fram haldið
undir verkefninu InfoWin.
Þriðja útboð, fjórir milljarðar
i boði
Nú hefur verið tilkynnt að 3.
útboð í ACTS muni fara fram að
hausti árið 1997. Þar verða rúmir
4 milljarðar kr. til ráðstöfunar.
Við hvetjum hér með þá sem hug
hafa á að stunda rannsóknastarf-
semi á þessu sviði að taka þátt í
þessu útboði. Upplýsingar má
nálgast víða, t.d. hjá Rannís,
Kynningarmiðstöð Evrópurann-
sókna og undirrituðum. Jafnframt
má fletta upp á heimasíðu lands-
miðstöðvar fyrir rannsóknir á fjar-
skiptasviðinu,
http://www.simi.is/icenh/. Þar er
m.a. lýsing á ACTS-áætluninni og
tilvísanir til margra annarra upp-
lýsingalinda. Skal sérstaklega
bent á http://www.analy-
sys.co.uk/acts/. Gegnum gagna-
grunninn CORDIS fá menn m.a.
FORSETAKJÖR 1996
ÓLAFUR RAGNAR GRÍMSSON
'1 $0k 1 % 4" ** 1 Kópavogur
Ém| f f ■ 1 * Fundur með Ólafí Ragnari og Guðrúnu Katrínu í félagsheimilinu Fannborg kl. 20:30 í kvöld.
F \ i«>ra*rtur, áxörp oí* lyrirs|>uniir
% # Allir vclk&mnirí Stuðningsfólk Ólafs Ragnars Grímssonar Kópavogl.