Morgunblaðið - 16.06.1996, Side 34
34 SUNNUDAGUR 16. JÚNÍ 1996
MORGUNBLAÐIÐ
í
þ
í
I
I
VARLA HEFUR það farið
fram hjá mörgum að
Björk Guðmundsdóttir
heldur tónleika í Laug-
ardalshöll á föstudag á vegum
Listahátíðar og Smekkleysu. Ekki
er aftur á móti gott að átta sig á
hve margir gera sér grein fyrir
því að með í för sem upphitun er
merkasti jungle-tónlistarmaður
Bretlands um þessar mundir,
Goldie. Hann sendi frá sér jungle-
skífuna Timeless sem var víðast
talin með helstu plötum ársins í
Bretlandi. Goldie leikur með
hljómsveit sinni Metalheads
Æðisgenginn taktur
Goldie er helsti spámaður
jungle, sem tröllríður breskum
danshúsum um þessar mundir og
hefur reyndar gert síðustu miss-
eri. Jungle er sennilega sú tegund
danstónlistar sem rokkeyru eiga
erfiðast með að sætta sig við,
enda grípa þau strax æðisgenginn
taktinn, um 160 slög á mínútu,
sem virðist ekki í neinu samhengi
við annað það sem er á seyði í
laginu. Ofan á villtan taktinn
koma til að mynda hægfara tóna-
klasar og söngur í allt öðrum takti.
Jungle tekur mikinn innblástur frá
reggíi og ska-tónlist frá Jamaíka.
Iðulega er grunntakurinn 160
slög, eins og áður er getið, en
ofan á því lagi er sönglína og jafn-
vel fleiri hljóðfæri í 60 slaga takti,
sem er reggítaktur. Á árum áður
áttu jungle-listamenn það til að
spila saman tvö reggí-lög samtím-
is, annað á tvöföldum hraða með
tilheyrandi skrækum röddum, og
hitt síðan á eðlilegum hraða.
Raggamuffín, sem iðulega kallast
einfaldlega ragga, er líka vinsæl
uppspretta innblásturs fyrir
jungle, en ragga er eins konar
samruni reggís og rapps.
Goldie er í fremstu röð jungle-
listamanna, eins og áður er getið,
fyrir margvíslegar nýjungar og
ekki síst fyrstu breiðskífu sína,
Timeless, sem kom út á síðasta
ári og var af mörgum valin plata
ársins. Þar reyndi hann á þanþol
jungle og skapaði nýjan og eftir-
tektarverðan stíl og í kjölfarið
hafa fylgt fleiri listamenn. Reynd-
ar er þróunin og gróskan svo mik-
il í jungle um þessar mundir að
margt jungle er búið að sprengja
utan af sér formið og sumir tón-
listarmenn vilja ekki kalla það
jungle lengur; heimta að það sé
einfaldlega kallað drum ’n bass,
trommu & bassatónlist.
Listrænt veggjakrot
Goldie stendur á þrítugu og
vann sér snemma orð fyrir list-
rænt veggjakrot í heimabæ sínum
Walsall í Mið-Englandi. Eftir að
hafa æft sig á húsveggjum og í
lestargöngum tóku bæjaryfirvöld
að leita til hans um skreytingar
og áður en langt um leið var hann
farinn að hafa dijúgar tekjur af
skreytilistinni, bæði heima í Bret-
landi og vestur í New York þar
sem hann bjó um tíma. Veggja-
krot og hipphopp var nátengt á
þeim tíma og
Jungle-tónlistar- / asson segir frá
maðurinn Goldie jungle og ferli
hitar upp fyrir
Björk Guð-
mundsdótt-
ur á tónleik-
um hennar á
Listahátíð í vik
er enn og þótt Goldie hafi ekki
fengist við tónlist hlustaði hann
mikið og eyddi tíma með ýmsum
frumheijum hipphoppsins á
níunda áratugnum, lék meðal ann-
ars í stuttmynd með Afrika
Bambaata 1986, sem var að
nokkru leyti tekin upp í Bristol og
í Bronx-hverfí New York þar sem
Goldie bjó um tíma, en einnig bjó
hann í Miami.
1988 sneri Goldie aftur til Bret-
lands og settist að í Lundúnum.
Orðstír hans sem listamaður varð
til þess að Jazzie B fékk hann til
að hanna plötuumslög fyrir Soul
II Soul sem kom honum í frekari
kynni við aðra tónlistarmenn. Á
þessum tíma segist hann hafa
verið orðinn þreyttur á hipphopp-
inu í Bretlandi.„Mér fannst ekkert
vera á seyði, kannski vegna þess
að ég hafði sjálfur lifað og hrærst
í hipphoppinu vestan hafs,“ segir
hann en bætir við að í gegnum
umslagahönnunina hafí hann náð
góðum tökum á breakbeat, sem
þá var í mikilli uppsveiflu í Bret-
landi, og ekki leið á löngu þar til
hann var farinn að taka upp með
félaga sínum undir nafninu Rufíge
Crew. Fyrsta smáskífan var Kill-
ermuffín, og þar endurgerði Goldie
meðal annars með aðstoð tölvu
rödd Cutty Ranks, sem kom af
stað miklu æði í þeim efnum.
Nútímablús
1993 sendi Goldie frá sér lag
undir nafninu Metalheads, sem
hann hefur iðulega notað síðan,
kallar meðal annars útgáfu sína
því nafni og hljómsveit. Lagið
kallaði hann Terminator og nýtti
þar nýja tölvutækni í að teygja
rödd yfír hvaða
taktsvið
Goldies, sem
hann segir
einn merk-
asta tón-
listarmann
Bretlands um
unni. Ami Matthí- þessar mundir.
sem er án þess að breyta tónhæð-
inni. Það lag og næsta lag hans,
Terminator 2, teljast fyrstu
junglelögin, en stíllinn kallaðist
dark, eða dimma, á þeim tíma.
Goldie gerir lítið úr brautryðjenda-
starfí sfnu: „Þessi lög spegluðu
bara tilfinningar fólks í kringum
mig á þessum tíma, í miðri kreppu
og hörðum vetri; dimman var bara
blústónlist þess tíma.“
Fjölmargir urðu til að feta þá
braut sem Goldie hafði rutt, en
hann leitaði aftur á móti á önnur
mið, eins og sannaðist eftirminni-
lega á áðurnefndri Timeless, en
kjarni þeirrar plötu var 22 mín-
útna verk sem hann kallaði Inner
City Life, sem byggist á jungle-
takti, strengjum og seiðandi söng.
Platan skaust í sjöunda sæti
breska breiðskífulistans, þótt ekki
hafí hún fengist leikin í útvarpi,
og í kjölfarið hélt Goldie til Banda-
ríkjanna að hita upp fyrir Björk
Guðmundsdóttur. Þeirra kynni
áttu eftir að verða náin, en Goldie
hefur einnig hitað upp fyrir hana
í Bretlandi, aukinheldur sem hann
hefur ferðast um Bretland með
sveit sína Metalheads og með
henni kemur hann hingað til lands
að kynna sitt jungle-evangelíum í
Laugardalshöll.
Tilfinning en ekki tækni
Goldie segir að myndlistin hafí
hjálpað sér að miklu leyti í tónlist-
ariðjunni. „Fyrir mér er mynd og
hljóð eitt og hið sama; á sama
hátt og ég sé fyrir mér það sem
ég síðan mála sé ég fyrir mér
hljóminn og taktinn og vinn
eftir því. Hrátt breakbeat eins
og það sem ungmenni eru að
setja saman heima í skúr er
það sama og þegar þau tóku
sér úðabrúsa í hönd á sínum
tíma og hófu að skapa með svo
hráu verkfæri. Sum ein-
földustu
tjósmyi
ur.
FRÁBÆR söngkona
Metalheads setur mikinn svip á
tónleika sveitarinnar.
Hér er hún á sviði Wembley
Arena í janúar sl.
breakbeat- og jungle-lög eru svo
einföld og hrá að snjöllustu
tæknimenn geta ekki skilið
hvernig þau eru búin til. Það
er ekki síst vegna þess að þau
byggjast á tilfínningu en ekki
tækni. Ungt fólk f Bretlandi var
orðið dauðleitt á þeirri tónlist sem
bar hæst og tók að glíma við tækn-
ina og ofbjóða tækjunum til að
skapa eitthvað nýtt. Afleiðing
þess er meðal annars
gjörbreytt viðhorf til laga-
smíða; stafræn tækni er
nýtt til hins ýtrasta sem er
kannsi mesta byltingin þegar
upp er staðið."
Álgengt viðhorf til jungle-
tónlistar er að hún sé bara há-
vaði og Goldie segir að það við-
horf sé eðlileg viðbrögð við nýj-
ungum. „Þegar hipphopp kom
fyrst fram fannst öllum það há-
vaði, á líkan hátt og gítarhama-
gangur hjá Pink Floyd í árdaga
var hávaði og pönkið var hávaði.
Víst er jungle hávaði og í því má
finna ögrun og árásargirni, en líka
fegurð.“
Tölvan gefur frelsi
Goldie hefur verið iðinn við að
nefna áhrifavalda í tónlist og
þeir spanna ótrúlega vítt svið,
allt frá Pink Floyd í Miles Dav-
is. Hann segist reyndar ekki
gera greinarmun á tónlist nema
eftir því hvort hún sé skemmti-
r;einsd6tt\r leg eða leiðinleg. „Einnafkost-
nd/Bjorg unum við að búa í Bretlandi er
að áhrifin koma úr öllum áttum
og tæknin hefur gert okkur
kleift að fá að láni hvað sem
er úr hvaða tíma sem er; gefur
okkur fullkomið frelsi,“ segir
Goldie og leggur áherslu á að
tæknin hafi ekki síst gert sér
kleift að skila því á plast sem
hann sjái fyrir sér. „Timeless
er öll sett saman á Macintosh-
tölvu og í kjölfarið er ég farinn
að vinna nánast einungis á slíka
tölvu. Hún nýtist mér { svo
margt, þar á meðal á tónleikum
þegar ég get látið hana spila það
sem ég kemst ekki yfir að spila
sjálfur, en hún hentar ekki síst
þegar ég fæ til liðs við mig hljóð-
færaleikara. Þannig fékk ég til
mín i hljóðverið saxófónleikara
sem spann fyrir mig nokkra kafla.
Eg púslaði þeim síðan saman í
tölvunni eins og ég vildi að þeir
hljómuðu, hann kom aftur og spil-
aði kaflann inn eftir því. Hann
þekkir nóturnar og hljómana, en
ég kann ekkert í slíku; ég heyrði
fyrir mér það sem ég vildi að hann
spilaði og tölvan gaf mér kost á
því að koma því á framfæri.“
Goldie hefur verið önnum kaf-
inn siðan hann sendi frá sér Time-
less og hann segist ekki sjá fram
á frí fyrr en eftir hálft ár eða
svo. Hann hefur þó gefið sér stund
og stund til að fara í hljóðver og
hefja vinnu við næstu breið-
skífu, en hann segist líka
vilja mála meira. „Ég hef
aldrei gert upp á milli
þessara listforma,
en í seinni tíð hef
ég ekki haft
tíma til að
mála fyrir
f tónlistinni,
ggp1 en Það kem'