Morgunblaðið - 16.06.1996, Blaðsíða 40
40 SUNNUDAGUR 16. JÚNÍ 1996
MORGUNBLAÐIÐ
BRÉF
HL BLAÐSINS
Grettir
Tommi og Jenni
Ljóska
Ferdinand
Kringlan 1103 Reykjavík • Sími 5691100 • Símbréf 569 1329
• Netfang: lauga@mbl.is
Otrúleg kjarabót
Frá Magnúsi Jónssyni:
NÚNA í kvöld, þann 7. júní, sagði
Gunnar Schram í sjónvarpsviðtali
að til athugunar væri að veita for-
setaframbjóðendum ríkisstyrk,
vegna kostnaðar þeirra við fram-
boð. Hann taldi hóflegt að hver
frambjóðandi fengi 15 milljónir.
Þetta eru góð tíðindi fyrir þá
sem búa við bág kjör, láglauna-
fólk, atvinnulausa, eftirlaunafólk
og öryrkja. Þessir aðilar geta stór-
lega bætt kjör sín með því að bjóða
sig fram til forseta. Löglegan með-
mælendafjölda væri auðvelt að fá,
þar sem menn skrifuðu upp á hver
fyrir annan. Hver og einn fengi
15 milljónir. Þessar 15 milljónir
væru skattfijálsartekjur. Það sam-
svarar 25.862.069 kr. í launatekj-
um.
Kjörtímabilið er 4 ár.
25.862.069:4 = 6.465.517.
Styrkurinn sem hver og einn
fengi samsvarar nær sex og hálfri
milljón í árstekjur á hveiju ári.
Þetta er allgóð kjarabót. Líklegt
er að einhveijir vildu nota þessi
bættu kjör til að eignast fjárstofn.
Með því að leggja 15 milljónir inn
á hagstæðan reikning hjá fjárfest-
ingarfélagi er möguleiki að fá í
vexti og verðbætur 2 milljónir á
ári. Fyrstu fjögur árin væri því ár
hvert hægt að taka út 2 milljónir
til eyðslu og eigin nota og eiga
samt eftir 15 milljónir á vöxtum.
Næstu fjögur árin væri hægt að
taka út 4 milljónir ár hvert til
eyðslu og eigin nota og eiga samt
eftir 30 milljónir á vöxtum og
þannig ykist stöðugt eignin og það
fé, sem taka mætti til eigin nota.
Þetta er björt framtíð.
Er ekki með þessu snjallræði
búið að leysa efnahagsvanda heim-
ilanna? MAGNÚS JÓNSSON,
fyrrverandi skólastjóri.
20 milljarðar ljósára
Frá Þorsteini Guðjónssyni:
„VÍSINDAMENN hafa fundið vetr-
arbraut sem er eldri en alheimurinn
- samkvæmt hefðbundnum kenn-
ingum“ - eitthvað á þessa leið
heyrði ég frá sagt í tíufréttum 12.
júní, og kom ekki á óvart, enda
hafa undanfarin 3-5 ár verið að
koma, æ ofan í æ, vísindafréttir líks
efnis og þessi. En það sem kemur
mér alltaf jafnmikið á óvart er sú
staðreynd, að til skuli vera í alheimi
svo fávíst mannkyn, að það ímyndi
sér, að alheimurinn geti verið yngri
en nokkuð annað. Eða með öðrum
orðum, að alheimur hafi nokkru
sinni verið öðru vísi en til.
Náttúrlega hafa verið uppi, jafn-
vel á slíkri öld, fjölmargir visinda-
menn, sem höfðu meira en snefil
af dómgreind, menn sem sáu í
gegnum þennan vef og undu ekki
vel við, en þeir hafa verið ofurliði
bornir fram að þessu. En nú er
engu líkara en verulega sé að rofa
til, og verður alspryngið fyrir hveiju
áfallinu eftir annað, ásamt nokkr-
um öðrum reginfirrum. Mun seint
takast að bæta öll svörtu götin, sem
eru að detta á þær slitnu flíkur.
Verður ekki hjá því komist að minna
á, að hér á landi hefur verið uppi
betri heimspeki en jafnvel nokkur
önnur, og hefur hún auðveldað
mörgum að átta sig á heimsfræði-
legum efnum. Það er í slíkum efnum
eins og svo mörgum öðrum, sem
íslendingar ættu að geta orðið
„fremstir meðal jafningja“, þar sem
er hinn ótölulegi grúi Jarðarbúa.
Hugmyndin um „skapaðan al-
heim“ er að vísu umræðu verð, og
mun verða rædd, undireins og fer
að birta til eftir það miðaldamyrkur
sem grúft hefur yfir jörðu okkar
um skeið. Þá munu margar hug-
sjónir og hugsýnir vakna af dvala.
ÞORSTEINN GUÐJÓNSSON,
Rauðalæk 14, Reykjavík.
Smáfólk
^U/AlTINö/400J DO VOU^
FOR MY THINK HE'S
NEW D06.. EVER G0IN6T0
—_______A pkid vni)7
D06S ARE SMART..
THEYCAN FINDTHEIR
\jJM ANVPLACE..THEV
AIWAVS KN0W WHERE
THEV ARE..
I THINK I
LIVE AR00ND HERE
50MEPLACE..
f-2l
Hvað ertu að gera Bíða eftir nýja hundinum Hundar eru snjallir... þeir Ég held að ég eigi
héma úti? mínum ... Hvemig heldurðu rata alls staðar... þeir vita heima einhvers stað-
að hann geti nokkurn tím- alltaf hvar þeir em... ar hérna...
ann fundið þig?
Þjóðhátíðarkveðja til
borg'arstjórans í Reykjavík
Frá Bjarka Má Magnússyni:
ÞAÐ var á vetrarmánuðum er ég sat
þing Iðnnemasambands íslands að
ég gerði það að tillögu minni, að
undangengnum samræðum við
Kristínu Arnadóttur aðstoðarmann
borgarastjórans í Reykjavík að iðn-
nemar fengju hlutdeild í hátíðarhöld-
unum 17. júní. Hugmynd mín var
sú að nýútskrifaðir iðnnemar myndu
ásamt nýstúdentum aðstoða við að
leggja krans á leiði og styttu Jóns
Sigurðssonar eins og tíðkast hefur
um langt skeið. Tillagan var sam-
þykkt og afgreidd frá þingi INSÍ
með öllum atkvæðum þingfulltrúa.
Fyrir tilstuðlan aðstoðarmanns borg-
arstjórans og annarra sem að málinu
hafa komið verður þetta að veruleika
eftir tvo daga, einungis nokkrum
mánuðum eftir að hugmyndinni var
komið á framfæri við borgaryfirvöld.
Sú ákvörðun nú, að iðnnemar taki
þátt í hátíðarhöldunum er ennfremur
viðurkenning borgaryfirvalda á mik-
ilvægi verkmenntunar á íslandi sem
hefur að mínu mati ekki verið metin
sem skyldi í okkar þjóðfélagi. Marg-
ir hafa reyndar bent á að rétta þyrfti
hlut verkmenntunar en það hafa yfir-
leitt verið orðin tóm. Það er ekki
ætlun mín í þessari grein að fara
frekar út í hugmyndir mínar um
iðnnámið heldur að geta þess sem
vel er gert og þar á Ingibjörg Sólrún
svo sannarlega skilið hrós fyrir þetta
framlag hennar í þágu verknáms á
íslandi. Megi landsmenn eiga gleði-
legan þjóðhátíðardag.
BJARKIMÁR MAGNÚSSON,
félagsmaður í Trésmíðafélagi Reykja-
vfkur, Austurbergi 8, Reykjavík.
AUt efni sem birtist i Morgunblaðinu og Lesbók verður framvegis varðveitt í
upplýsingasafni þess. Morgunblaðið áskiíur sér rétt til að ráðstafa efninu það-
an, hvort sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu
efni til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.