Morgunblaðið - 16.06.1996, Qupperneq 42
42 SUNNUDAGUR 16. JÚNÍ 1996
MORGUNBLAÐIÐ
BREF» FORSETAKJOR
Meira um
drengskaparheit
Frá Pétrí Gunnarssyni.
JÓN Steinar Gunnlaugsson hæsta-
réttarlögmaður skrifar grein í
Morgunblaðið í gær þar sem hann
staðfestir lýsingu mína á því með
hvaða hætti Ólafur Ragnar Gríms-
son vann drengskaparheit að fram-
burði sínum í máli Magnúsar Thor-
oddsen.
Þau orð Ólafs Ragnars í réttar-
salnum — fyrir rúmum 7 árum —
að hann væri í meiri vafa um til-
vist Guðs en um drengskap sinn
geta út af fyrir sig orðið tilefni til
ýmissa hugleiðinga og hugsanlegra
ályktana um trúarskoðanir hans á
þeim tíma. Ein þeirra ályktana er
vissulega sú sem Jón Steinar Gunn-
laugsson hefur dregið opinberlega
af þeim orðum sem Ólafur Ragnar
lét falla í réttarsalnum.
Það er mergurinn málsins. Þær
umræður sem orðið hafa vegna
drengskaparheits Ólafs Ragnars
Grímssonar byggjast á ályktun Jóns
Steinars en ekki á þeim orðum sem
vitnið Ólafur Ragnar Grímsson lét
falla í réttarsalnum.
PÉTUR GUNNARSSON,
blaðamaður.
STARFIÐ FYRIR HUMAN DEVELOPMENT
Angola
Þrjátíu ára styrjöld í Angola er u.þ.b. loklð.
Þróunarhjálp frá þjóð tll þjóðar (DAPÞ)
leitar að sjálfboðallðum tll að taka þátt
i 14 mánaða alþjóðlegu verkefnl.
Ensrar sérstakrar kunnáttu krafist.
6 mánaöa þjálfun I TfieTravelling Hlsh
School í Noregl, 6 mánafla starf I Angóla
- vlO aO kenna gðtu-
bðrnum I "barnaþorpinu".
- Koma upp hrelnlætis-
aOstOOu og eldsneytis-
sparandi eldunaraOstóðu.
- Kenna ungum, angólskum
konum Jarörækt, fyrlrtækja-
rekstur og hellsufræOI.
2 mán. starf viO úrvinnslu gagna.
Skólagjöld. ByrjaO 15/11 eöa 1/6.
Símbréf: 00 45 43 99 59 82, DAPP, box, 236,
2630 Tástrup, Danmörku. E-mail: oneworld@online.no
Asmundur Gunnlaugsson
Y06A í'
Jóganámskeið
Grunnnámskeið 2.-22. júlí, mán. &mið. kl. 20.00-21.30
(7 skipti). Kenndar verða m.a. jógastöður, öndunaræfingar,
hugleiðsla og slökun.
Jóga gegn kvíða
2.-23. júlí, þri. & fim. kl. 20.00-22.i5 (7 skipti).
Námskeið fyrir þá sem eiga við kvíða og fælni að stríða
og/eða eru að ganga í gegnum miklar breytingar í lífrnu.
Kenndar verða leiðir til að slaka á og öðlast aukið frelsi
og lífsgleði. Engin reynsla eða jiekking á jóga nauðsynleg.
Leiðbeinandi Asmundur Gunnlaugsson jógakennari.
1
STUDIO
Hátúni 6A, 105 Reykjavik,
símar ö i i-3100.
Veðurþolinn hand-farsími
fyrir NMT-450 farsímakerfið
freeway 450 RL
Simonsen Freeway RL er
rétti farsíminn fyrir allt
útivistarfólk.
- Vatns og rakavarinn.
- Rykþéttur.
- Höggvarinn.
- Innbyggður símsvari.
- 24. stata skjár.
- 255 númera minni.
- Valtextakerfi á skjá.
- Vegur aðeins 360 gr.
- Ýmiss aukabúnaður fáanlegur t.d.
tenging við faxtæki og módem.
Verð kr.
99.964,- stgr.
Innifalid: Farsími,
rafhlada, borð-
hleðslutæki, loftnet
og leiðbeiningar.
SIMONSEN
MOBILE TEÍIPHONE
Í5(4
Síðumúla 37 Sími 588-2800
ÍDAG
VELVAKANDI
Svarar í síma 569 1100 frá 10-12 og 14-16
frá mánudegi til föstudags
Netfang: lauga@mbl.is
Gæludýr
Kisa týnd í
Norðurmýri
TÁTA, ólarlaus 8 ára göm-
ul læða, hvarf frá Bolla-
götu sl. sunnudag. Hún er
yrjótt, rauðbrún og svört.
Geti einhver gefið upplýs-
ingar um Tátu vinsamleg-
ast látið vita í síma
552-2134.
Kolli er týndur
KOLLI, sem er fjögurra
ára Seal Point síamskött-
ur, fór frá Selvogsgrunni
10, Reykjavík, þar sem
hann var í fóstri fimmtu-
dagsmorguninn 13. júní sl.
Hann býr á Akureyri og
og er hugsanlegt að hann
hafi vilist. Geti einhver
gefið upplýsingar um Kolla
sem merktur var fagur-
blárri hálsól, vinsamlega
hafið samband við Unni í
síma 553-6942 eða Ingi-
björgu í síma 460-1451.
Týnd læða
LÍTIL, svört og hvít læða
fór að heiman á sunnudag-
inn var frá Tunguvegi 19.
Hún er óvön útiveru og því
ólíklegt að hún rati. Læðan
er með hálsól og ritað er
á hana „Tunguvegur 19“
og símanúmer. Ef einhver
hefur orðið var við hana,
hvort sem það er nálægt
heimili hennar eða fjær,
vinsamlegast hafið sam-
band í síma 588-1024.
Tapað/fundið
Barnabakpoki
tapaðist
BLÁR barnabakpoki með
mynd af Tomma og Jenna
tapaðist fyrir u.þ.b. mán-
uði, annaðhvort í Hlíðun-
um eða miðbænum. í pok-
anum var barnafatnaður.
Skilvís finnandi er vinsam-
lega beðinn að hafa sam-
band í síma 552-7175 og
er fundarlaunum heitið.
SKÁK
Umsjón Margeir
Pétursson
og vinnur
STAÐAN kom upp á Credis-
mótinu í ^ussloch í Þýska-
landi í viðureign tveggja af
sterkustu skákmönnum
Þýskalands. Artúr Júsupov
(2.655) hafði hvítt og átti
leik, en Eric Lobron (2.590)
var með svart og lék síðast
19. - Rc6-a5
20. dxe6! — Rxb3 (Það var
einnig vonlaust að taka
drottninguna: 20. — Hxd3
21. exf7+ - Kg7 22. fxe8=D
— Dxe8 23. Hxd3 — Rxb3
24. Hde3 með léttunnu tafli)
21. exf7+ - Kxf7 22. Dc4+
- Kg7 23. Re5 - Rg8 24.
Hxd8 - Dxd8 25. Df7+! -
Kh8 26. Dxb3 - Dd4 27.
He3 - Hf8 28. Bxe7 og
Lobron gafst upp.
Tveir Rússar, sem nú
tefla fyrir Þýskaland, sigr-
uðu á mótinu: 1—2. Dautov
og Júsupov 7 v. af 11
mögulegum, 3. Drejev,
Rússlandi 6Vi v. 4—6.
HUbner, Ivan Sokolov,
Bosniu og Hracek, Tékk-
landi 6 v. 7. Piket, Hol-
landi 5‘rí v. 8—10. Kind-
ermann, Lutz og Lobron 5
v. 11. Hickl 4>/2 v. 12.
Slobodjan 2‘/2 v.
ÞESSI póstþjónusta nær
ekki nokkurri átt. Maðurinn
minn er í viðskiptaferð í
Danmörku, en kortið frá
honum er með póststimpli
frá París.
BRIDS
Umsjón Guðmundur Páll
Arnarson
BLÁA sveitin ítalska er
undur í bridssögunni. Á
rúmlega 20 ára tímabili
(1956-79) unnu ítalir
Bermudaskátina 13 sinn-
um, urðu þrisvar Olympiu-
meistarar og 10 sinnum
Evrópumeistarar. Kjarninn
í liði ítala var að mestu sá
sami og einn maður átti
hlutdeild í öllum þessum
sigrum _ - Giorgio Bella-
donna. í hveiju fólust þess-
ir miklu yfirburðir? Voru
liðsmenn bláu sveitarinnar
betri spilarar en til dæmis
helstu spilarar Bandaríkj-
anna? Fyrirliðinn, Alberto
Perroux, taldi svo ekkivera.
Hann sagði sjálfur: „Ég er
ekki með bestu einstakling-
ana, en alveg_ örugglega
bestu sveitina.“ í þessu felst
sú skoðun að heildin sé
annað og meira en summa
einstaklinganna. Oft er
sagt að styrkur Bláu sveit-
arinnar hafi legið í vel út-
færðu kerfi. Aðrir tala um
aga, metnað og ákafa.
Sjálfur held ég að yfirburð-
ir þeirra hafi legið í sagn-
baráttunni - þeir skildu
mikilvægi skiptingarinnar.
Hér er ágætt dæmi frá
Evrópumótinu 1958 úr leik
ítala og Frakka.
Vestur gefur; NS á
hættu:
Norður
♦ 643
V ÁIO
♦ KD53
♦ K1064
Vestur Austur
♦ G85 ♦ -
V D865 1 V KG742
♦ 10842 111111 ♦ G9
♦ ÁG * D98753
Suður
♦ ÁKD10972
V 93
♦ Á76
♦ 2
Vcstur Norður Austur Suður
Avarelli Trézel Belladonna Jais
- - - 1 spaði
Pass 2 tíglar 2 grönd* 3 lauf**
4 hjörtu 5 hjörtu** 6 hjörtu 6 spaðar
Pass Pass 7 hjörtu Dobl
Pass Pass Pass
* Ijjarta og lauf,
** Fyrirstöðusagnir.
Tvílita innákoma Bella-
donna þætti ekki merkileg
nú til dags, en á þessum
árum var ekki til siðs að
blanda sér í sagnir á „engin
spil“. Þessi hvassi stfll hefur
einkennt pólskar sveitir á
síðustu árum og gefið þeim
fleiri stig en nokkuð annað
á Evrópumótum. En þetta
er næstum 40 ára gamalt
spil og Belladonna meldar
eins og trylltur Pólveiji.
Við fyrstu sýn lítur út
fyrir að fómin í sjö hjörtu
sé misheppnuð. Eða fara sex
spaðar ekki niður með þjarta
út?
Raunar ekki. Sagnhafi
drepur strax á hjartaás og
tekur öll trompin. Vestur
verður að hanga á fjórum
tíglum og laufás, sem þýðir
að hann neyðist til að kasta
öllum hjörtunum. Og þá er
óhætt að sækja úrslitaslag-
inn á laufkóng.
Auðvitað sá Belladonna
þetta ekki fyrir, en hann
taldi líklegt að slemman ynn-
ist og vissi að fómin var
ódýr.
Víkveiji skrifar...
FORSETAKOSNINGAR eru
framundan. Embætti forseta
íslands var stofnsett með stjórnar-
skrá lýðveldisins (samþykktri á Al-
þingi 8. marz 1994, tók gildi á
stofndegi lýðveldisins 17. júní sama
ár). Árið 1944 er ekki eina stóra
ártalið í sjálfstæðisbaráttu þjóðar-
innar. Þar koma fleiri til, ekki sízt
ártölin 1904 og 1918.
Lýðveldisstofnunin 1944 var
„síðasti áfanginn“ í sjálfstæðisbar-
áttu þjóðarinnar. Fullveldi hennar
vannst hins vegar með „sambands-
lögunum" árið 1918. Þar var ísland
lýst „fijálst og fullvalda ríki“. Dan-
mörk og ísland voru þó áfram „í
sambandi um einn og sama kon-
ung“. Danir fóru og með utanríkis-
mál íslands og önnuðust landhelg-
isgæzlu í umboði íslendinga.
Það var og stór áfangi í fuilveld-
isbaráttu okkar þegar við fengum
heimastjórn, árið 1904. Þá voru
embætti landshöfðingja í Reykjavík
og íslandsráðgjafa í Kaupmanna-
höfn lögð niður, en við tók Stjórnar-
ráð íslands. Fyrsti íslenzki ráðherr-
ann var góðskáldið og stjórnmála-
skörungurinn Hannes Hafstein. Um
leið komst á þingræði, þar sem
gert var ráð fyrir að ráðherra nyti
stuðnings meirihluta Alþingis.
XXX
A '
ISLAND, sækjum það heim!
Þannig hljóðar orlofsstef lands-
manna sumarið 1996. Það er að
vísu ekki nýtt af nál, stefið það,
en ferðaþjónusta, sem er sífellt að
sækja í sig veðrið, gerir það mark-
tækara en áður.
Flestir eiga þann kost að leggja
veg undir hjól, ef marka má tölur
um bifreiðaeign landsmanna.
Skráðar fólksbifreiðir um síðast lið-
in áramót voru 119.232 talsins. Og
skráðar hópferðabifreiðir voru rétt
undir 1.300. Reyndar segir í skýrslu
forsætisráðherra að íslendingar búi
við góð lífskjör, mælt á fleiri kvarða
en bílaeign, svo sem landsfram-
leiðslu, stærð íbúðarhúsnæðis og
sjónvarpstæki á íbúa - að ógleymd-
um og vísbendingum um gæði heil-
brigðisþjónustunnar.
Samkvæmt tölum frá Bifreiða-
skoðun íslands voru nýskráðar
fólksbifreiðar í fyrra rúmlega
6.900, þúsund fleiri en árið áður!
Og ekki hefur landinn kippt að sér
bílkaupahendinni á líðandi ári. Öku-
flotinn eykst hratt. Umferðin annó
1996 verður trúlegra þyngri en
nokkru sinni fyrr. Vonandi haga
menn akstri eftir því.
XXX
AÐ kostar á hinn bóginn sitt
að vera ökuþór á íslandi.
Skattkerfið heldur verði bifreiða og
benzíns háu. Rekstrarkostnaður
ökutækja er mikill.
Góður helmingur af verði nýrrar
bifreiðar er skattheimta. Svipuðu
máli gegnir um benzínið. Ökuþórar
greiddu á síðast liðnu ári (1995)
4.264 m.kr. í benzíngjald og nálægt
2.170 m.kr. í þungaskatt. Þá er
ótalinn annar kostnaður, trygging-
ar, viðhald o.sv.fv.
Benzíngjald og þungaskattur
rennur að stærstum hluta til vega-
gerðar og viðhalds vega. Ráðstöf-
unarfé Vegagerðarinnar í fyrra
nam rúmum 7.600 m.kr. og hefur
aðeins einu sinni verið meira (1993).
Utboð framkvæmda valda og því
síðan að þessir fjármunir nýtast
mun betur en áður. Samkeppnin
kemur neytendum og skattgreið-
endum að gagni hér og alls staðar!
xxx
AMORGUN er 17. júní, þjóðhá-
tíðardagur íslendinga. Stofn-
un íslenzka lýðveldisins var tíma-
sett á fæðingardag Jóns Sigurðs-
sonar, sem landsmenn hafa kallað
„forseta“ kynslóð eftir kynslóð, en
hann var fæddur hinn 17. júní árið
1811. Háskóli íslands var settur í
fyrsta sinni á aldaraffnæli Jóns for-
seta, 17. júní 1911. Ámorgunverða
liðin 185 ár frá fæðingu hans, sem
var „sómi íslands, sverð þess og
skjöldur". ■
Víkveiji óskar lesendum sínum
gleðilegrar þjóðhátíðar!