Morgunblaðið - 23.06.1996, Side 1

Morgunblaðið - 23.06.1996, Side 1
96 SÍÐUR B/C/D 140. TBL. 84. ÁRG. SUNNUDAGUR 23. JÚNÍ1996 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS Morgunblaðið/Ásdís Ásgeirsdóttir Þýskur hjólreiðamaður hvílir sig á leið til Þorlákshafnar. Fundur leiðtoga fjórtán arabaríkja í Kaíró Netanyahu hvattur til að halda áfram friðarviðleitni Kaíró, Damaskus. Reuter. Yatn undir íshellunni STAÐFEST hefur verið að eitt af stærstu stöðuvötnum heims er undir Suðurskautslandinu og er það á stærð við Ontario-vatn í Norður-Ameríku en mun dýpra og vatnsmeira, að sögn breskra og rússneskra vísindamanna. í tímaritinu Nature kemur fram að þeir kalla vatnið Vostok-vatn en Rússar eru með rannsóknastöð á ísnum yfir því. Um 4.000 metra þykk íshella er yfir vatninu en hitinn í jarðskorpunni kemur í veg fyrir að ferskvatn á svo miklu dýpi fijósi og íshellan virkar sem einangrun. Nokkur straumhreyfing er i vatninu vegna hitamismunar. Fyrstu vísbendingar um tilvist vatns- ins voru greindar fyrir um 20 árum er gerðar voru mælingar úr flugvélum á þykkt issins og þær bornar saman við gervihnattamælingar. Fundist hafa margs konar örverur í borkjörnum á Suðurskautslandinu, þ.ám. þörungar og gerlar. Menn gera sér nú vonir um að finna í botnlögum vatnsins áður óþekktar örverur er þoli óvenju mikinn kulda og þrýsting og ekki hafi verið í tengslum við aðra hluta Iífríkis jarðar í allt að fimm milljónir ára. Einnig gætu fundist þar verðmæt enzím til notkunar í iðnaði og efni til gerðar nýrra fúkkalyfja. Rannsóknirnar geta haft mikil áhrif á hugmyndir vísindamanna um þróun lífs á jörðunni. „Þetta er gluggi til að skoða söguna," segir dr. David Wynn- Williams hjá bresku Suðurskautsstofn- uninni og bendir á að örverur í vatninu hafi t.d. aldrei orðið fyrir mengun eða áhrifum útfjólublárra geisla. Baulað á eigið landslið ÆTTJARÐARÁST Kínveija kemur oft fram í tengslum við frammistöðu kín- verskra íþrótta- manna á alþjóða- vettvangi en merki eru um að tilfinningarnar risti ekki mjög djúpt í þeim efn- um. Landslið Eng- lendinga keppti í liðnum mánuði við Kínverja í Peking. Þegar Englend- ingar skoruðu í þriðja sinn sner- ust áhorfendur nær allir á sveif með þeim. Hve- nær sem enskur leikmaður var með boltann heyrðust fagnaðaröskur en þjóðbræðurnir uppskáru ekkert nema baul og formæl- ingar. TVEGGJA daga leiðtogafundur arabaríkja, hinn fyrsti í sex ár, hófst í Kaíró í gær og hvatti gestgjafinn, Hosni Mubarak Egypta- landsforseti, Ísraela til að halda áfram frið- arviðleitni í Mið-Austurlöndum. Lögð var áhersla á að staðið yrði við gerða samninga, öll deilumál yrðu rædd. Sem fyrr yrði að halda fast við að ísraelar afsöluðu sér her- numdu landi gegn því að grannar þeirra semdu við þá frið. Nýr utanríkisráðherra ísraels, David Levy, reyndi á föstudag ákaft að róa ráðamenn í arabaríkjunum sem hafa fordæmt harðlínu- stefnu hinnar nýju hægristjórnar Benjamins Netanyahus í ísrael og segja þærtefla friðar- viðræðunum í tvísýnu. Virðist Levy hafa orðið nokkuð ágengt þar sem tónninn í yfir- lýsingum leiðtoganna er sáttfúsari en marg- ir höfðu gert ráð fyrir. Amr Moussa, utanrík- isráðherra Egyptalands, lýsti í gær ánægju með þau ummæli Levys á föstudag, að hægristjórn Netanyahus myndi eiga viðræð- ur við Yasser Arafat Palestínuforseta og myndi ef til vill sættast á „einhvers konar“ breytingar á stöðu Gólanhæða. Sagði Mo- ussa að fagna bæri sérhveiju merki um að nýja stjórnin hygðist, þrátt fyrir ummæli er bentu til annars, halda áfram friðarferlinu. Bill Clinton Bandaríkjaforseti ræddi stefnu Netanyahus, er tók við völdum í vikunni, í viðtali við blaðið Asharq al-Awsat, sem kem- ur út á arabísku í London. Sagðist forsetinn ánægður með þær áherslur sem fram hefðu komið í stefnuyfirlýsingu Netanyahus og símtölum við hann. Egyptar tryggðu að Hafez al-Assad Sýr- landsforseti ætti fund í gær með Hussein Jórdaníukonungi og Arafat, en Assad hefur ekki hitt þessa menn að máli í tvö ár vegna ágreinings um afstöðuna til friðarsamninga við ísrael. Sýrlendingar krefjast þess að ísra- elar hverfi með her sinn frá Gólanhæðum sem þeir hernámu í sex daga stríðinu 1967, ella muni engir samningar takast milli ríkj- anna tveggja. Sagði talsmaður Husseins að fundurinn með Assad hefði tekist með ágæt- um og lagður hefði verið grunnur að sam- stöðu. Fá að kanna herstöðvar íraka Bagdad. Reuter. ÍRAKAR samþykktu í gær að eftirlitsmenn Sameinuðu þjóðanna fengju aðgang að herbækistöðvum og vopnaverksmiðjum landsins. Deilt hefur um málið um hríð. Eftirlitsmönnunum er ætlað að kanna hvort Irakar bijóti ákvæði vopnahléssamn- inga og reyni að framleiða gereyðingar- vopn. Fyrir skömmu var ákveðið að draga úr efnahagslegum refsiaðgerðum gegn stjórn Saddams Husseins og leyfa írökum að flytja út verulegt magn olíu. Deilan um eftirlitið var talin geta komið í veg fyrir að tilslökuninni yrði hrint i fram- kvæmd. Hin harða lífsbarátta húsagarðanna msammsmsúF Á SUNNUDEGI HAMBORGARAR OG HÁLEITAR HUGSJÓNIR

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.