Morgunblaðið - 23.06.1996, Side 2
2 SUNNUDAGUR 23. JÚNÍ 1996
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Morgunblaðið/Lárus Karl
ELÍSABET Hermannsdóttir, eiginkona Indriða Pálssonar stjórn-
arformanns Eimskips, gaf nýju skipi fyrirtækisins
nafn í Póllandi á föstudag.
NÝJU skipi Eimskipafélags Ís-
lands M. var gefið nafnið Brúar-
foss við hátíðlega athöfn í
Stocznia Szczecinski-skipasmíða-
stöðinni í Stettin í Póllandi föstu-
daginn 21. júní sl. Skipið er fjórði
Brúarfossinn í sögu Eimskipafé-
lagsins. Eftir nafngiftina lagði
skipið í jómfrúrferð sína og kem-
ur til íslands eftir lestun í Evr-
BRÚARFOSS er stærsta skip Eimskipafélagsins og er yfirbygg-
ingin eins og sjö hæða hús. Smíði skipsins hófst í byrjun
október. Sjósetning fór fram 6. apríl.
Djúprista er 8,25 m. Aðalvél
skipsins er 9.500 hestöfl af gerð-
inni B&W-MAN. í skipinu er góð
aðstaða fyrir 12 farþega.
Nýi Brúarfoss tekur við af
skipi með sama nafn í megin-
landsflutningum. Skipsljóri Brú-
arfoss er Engilbert Engilberts-
son og yfirvélstjóri er Jón Valdi-
marsson.
Fjórði Brúarfossinn
í eigu Eimskips
ópuhöfnum 30. júní nk. tækisins. Skipið getur flutt allt
Brúarfoss er 12.500 tonna að 1.012 gámaeiningar. Lengdin
gámaskip og stærsta skip fyrir- er 150 m og breiddin 22,3 m.
Forseti íslands á ráðstefnu Norræna skógarsambandsins
Morgunblaðið/Ámi Sæberg
VIGDÍS Finnbogadóttur, forseti íslands, við upphaf ráðstefnu Norræna skógarsambandsins í Borgar-
leikhúsinu í gærmorgun. Á myndinni eru einnig Huida Valtýsdóttir, formaður Skógræktarfélags
Reykjavíkur, Karen Westerbye-Juhi, forseti Norræna skógarsambandsins, Jón Loftsson skógræktar-
stjóri og Kornelíus Sigmundsson.
Grænna land þýðir
betri framtíð
Lagði þrí-
vegis til
ungs manns
í bifreið
UNGUR maður veitti öðrum þijú
stungusár í bifreið við veitingastað-
inn Víkurbæ í Bolungarvík um kl.
3.30 aðfaranótt laugardags. Hinn
særði fékk að fara heim af sjúkra-
húsinu á ísafirði í gærmorgun.
Jónas Guðmundsson sýslumaður
sagði að árásarmaðurinn, sem er
17 ára, hefði stungið liðlega tvítug-
an manninn í andlit, öxl og bijóst.
Hinn slasaði var fluttur á sjúkra-
húsið á ísafirði og árásarmaðurinn
fluttur í fangageymslu lögreglunn-
ar í Bolungarvík.
Skömmu síðar hugðust tveir fé-
laga hans ná honum út og brutu í
því skyni rúðu á fangageymslunni.
Mönnunum tókst ekki ætlunarverk
sitt og fengu þeir að dúsa í fanga-
geymslunni með félaga sínum um
nóttina.
Einn mannanna er frá Bolungar-
vík og tveir frá Reykjavík. Árásar-
maðurinn var undir áhrifum áfeng-
is þegar árásin átti sér stað. Ósætti
hafði verið á milli mannanna' helg-
ina áður.
Spurt um
ferða-
venjur
ALLT að þijú þúsund íslend-
ingar, sem verða á faralds-
fæti innanlands um helgina,
geta átt von á að fólk í gulum
vestum leiti til þeirra til að
spyrjast fyrir um ferðatilhög-
un.
Það eru Ferðamálasamtök
íslands sem standa að þesari
könnun um ferðavenjur land-
ans. Að úrvinnslu iokinni er
markmiðið að móta ákveðna
stefnu til að gera uppbygg-
ingu markvissari.
■ Góðir Íslendingar/Cl
RÁÐSTEFNA í tilefni af 50 ára
afmæli Norræna skógarsambands-
ins fór fram í Borgarleikhúsinu í gær
og er þetta langfjölmennasta ráð-
stefnan, sem haldin hefur verið hér
á landi um skógræktarmál. Þátttak-
endur voru hátt í 400 talsins, þar
af um 200 gestir frá öðrum Norður-
löndum, en ráðstefnan bar yfirskrift-
ina „Skógurinn og umheimurinn“.
Ráðstefnustjórn var í höndum Huldu
Valtýsdóttur, formanns Skógrækt-
arfélags íslands, og Jóns Loftssonar
skógræktarstjóra.
Karen Westerbye-Juhl, forseti
Norræna skógarsambandsins, setti
ráðstefnuna og Vigdís Finnboga-
dóttir, forseti Islands, flutti ávarp.
Hún minnti á mikilvægi skógræktar
og sagði m.a. frá skógræktaráætlun
íslendinga. Hún sagðist gera sér
miklar vonir um að uppbygging ís-
lensku skóganna muni heppnast.
Grænna land þýddi betri framtíð.
Mikilvægustu málin
Jagmohan S. Maini, formaður al-
þjóðlegrar nefndar um skógræktar-
mál á vegum Sameinuðu þjóðanna,
fjallaði um stöðu norrænna skóga og
barrskógabeltisins í alþjóðlegri um-
ræðu um heimsskóga. „Vaxandi skó-
geyðing, rýrnun skóga og ýmsar hlið-
ar á hinum umhverfíslegu þáttum
alþjóðaverslunar með skógarafurðir
hafa valdið því að skógar jarðar eru
meðal mikilvægustu mála í alþjóða
stefnumótun og pólitískri umfjöllun,"
sagðihann. Sú þróun hefði leitt til
stofnunar alþjóðlegrar nefndar um
skógræktarmál á vegum Sameinuðu
þjóðanna, en málefni er vörðuðu
skógana væru bæði mjög flókin og
umdeild og næðu yfír vítt svið.
Hann sagði athygli heimsins hafa
beinst mjög að hitabeltisskógunum.
Hinsvegar hefði vistrænum áhrifum
norðlægra skóga og skóga í kald-
tempraða beltinu á heimsvísu og
þætti þeirra í alþjóðaverslun með
tijáafurðir verið minni gaumur gef-
inn. Mörg norðlæg lönd og Norður-
löndin hefðu gegnt mikilvægu hlut-
verki í alþjóðaumræðum um skóga
jarðar og unnið að sjálfbærri nýtingu
skóga í eigin löndum. Þau hefðu þar
með gegnt lykilhlutverki í baráttu
fyrir því að hverfa frá varanlegum
afrakstri til sjálfbærrar nýtingar,
sem fælist í tilsvarandi fráhvarfi frá
stjórnun á nýtingu skóga til stjórn-
unar á vistkerfi þeirra.
Monika Stridsman, aðalritari Al-
þjóðlega náttúruverndarsjóðsins í
Svíþjóð, lagði áherslu á að ábyrgð
mannsins gagnvart náttúrunni væri
mikil. Ætti mannlíf að þróast áfram
á jörðinni, yrði að koma á og við-
halda sjálfbærri þróun. „Við munum
nota hinar endurnýjanlegu auðlindir
skóganna í enn ríkari mæii en nú
er gert. Við það er hætta á að álag-
ið á fjölbreytilegt lífríki þeirra verði
of mikið og að ýmis óbætanleg vist-
kerfi og tegundir lífvera glatist.
Á þessu sviði hafa skógræktar-
menn til brunns að bera einstæða
þekkingu, sem þeir hafa öðlast,
bæði í starfí og með rannsóknum.
En umhverfissjónarmið mega ekki
einangrast innan skógræktarinnar
því þá fer ekki fram hin nauðsynlega
og mikilvæga umræða milli manna
með ólíkt gildismat og reynslu. Finna
þarf hagkvæmar alþjóðlegar lausnir
í samvinnu við umhverfissamtök
heimsins og aðlaga þær aðstæðum
á hveijum stað. Skógræktarmenn
verða því að þora að söðla um og
breyta eigin áætlunum til samræmis
við aðra til þess að ná árangri,11
sagði Stridsman.
Hin harða lífsbarátta
húsagarðanna
►Margir garðeigendur láta úða
skordýraeitri yfír garða sína, með
misjöfnum árangri. /10
„Auðveldara að af la
fjár til stríðs en friðar"
►Stoltenberg, fyrrum ráðherra og
sáttasemjari, er nú sendiherra
Noregs í Danmörku. /12
Ný kynslóð
forritara
►Tölvuskóli Reykjavíkur hefur
verið með námskeið í forritun fyr-
ir börn og unglinga. /20
Suður-Afríka lögð
að velli
►íslensk fjölskylda á ferð um
Afríku á leið til Islands. /22
Hamborgarar og
háleitar hugsjónir
►í Viðskiptum/atvinnulífí er rætt
við Kjartan Örn Kjartansson fram-
kvæmdastjóra McDonald’s. /24
B
► 1-32
Selkjöt á laugardögum
►Fylgst er með vorverkum í Skál-
eyjum á Breiðafirði þar sem búið
er við æður og sel. /1-6
Efnahagur í rúst
og mannlíf í molum
►Um miðjan maí síðastliðinn fór
fram í Novosibirsk í Síberíu alþjóð-
leg ráðstefna ungs fólks. /7
í „Öskjuhlíðar-
skólanum" í Peking
►Skipulegt skólahald fyrir
þroskahefta er tiltölulega nýtil-
komiðíKína. /10
í kjölfar
Vestur-íslendinga
►Afkomendur vesturfaranna
héldu upp á 17. júní. /14
Hamingjusöm
sprengja
►Björk á Listahátíð. /16
FERÐALÖG
► 1-4
Góðir íslendingar
spurðir um ferðamáta
► Umfangsmikil rannsókn meðal
innlendra ferðamanna. /1
Biskupstungur
►Fjölbreytta ferðaþjónustu er að
fínna í mestu ferðamannasveit
landsins. /4
BÍLAR____________
► 1-4
Eru einrýmisbílar það
sem koma skal?
►Einrýmisbílar eru svar Evrópu-
manna við fjölnotabílum. /1
Reynsluakstur
►Golf V ariant þykir traustur
langbakur með aldrifí. /4
FASTIR ÞÆTTIR
Fréttir 1/2/4/8/bak Skák 42
Leiðari 28 Fðlk í fréttum 44
Helgispjall 28 Bíó/dans 46
Reykjavíkurbréf 28 íþróttir 50
Minningar 30 Útvarp/sjónvarp 52
Myndasögur 40 Dagbók/veður 55
Bréf til blaðsins 40 Mannlífsstr. 8b
ídag 42 Kvikmyndir 12b
Brids 42 Dægurtónlist 13b
Stjörnuspá 42
INNLENDAR FRÉTTIR:
2-4-8-BAK
ERLENDAR FRÉTTIR: