Morgunblaðið - 23.06.1996, Qupperneq 4
4 SUNNUDAGUR 23. JÚNÍ 1996
MORGUNBLAÐIÐ
h
► ÁHEYRENDUR á öllum
aldri nutu tónleika Davids
Bowies i Laugardalshöll sl.
fimmtudagskvöld. Bowie
lék mörg lög af nýjustu
hljómplötu sinni Outside við
góðar undirtektir en áheyr-
endur fögnuðu þó sérstak-
lega eldri lögum hans sem
þekktari eru.
►Á FIMMTA þúsund tón-
leikagestir tóku Björk Guð-
mundsdóttur vel þegar hún
sté á svið á tónieikum i
Laugardalshöilinni sl.
föstudagskvöld. Björk flutti
m.a. lög af breiðskífunum
Post og Debut. Hún flutti
lögin, að einu undanskyldu,
á íslensku.
►GUÐJÓN Ó. Magnússon,
formaður Rauða kross Is-
lands, gagnrýnir stjórnvöld
harðlega fyrir hvað fram-
lög íslendinga til þróunar-
hjálpar séu lág í saman-
burði við nágrannalöndin.
Markmið SÞ væri að fram-
lög næmu 0,7% af vergri
þjóðarframleiðslu. íslend-
ingar veittu að meðaltali
0,11% af vergri þjóðarfram-
leiðslu til þróunaraðstoðar
á árunum 1990 til 1995.
►HITI fór upp í 19,2 stig
á HveravöIIum á föstudag.
Ekki hefur jafn hár hiti
mælst í júní á Hveravöllum
frá því mælingar hófust
árið 1966. Áður hafði mest-
ur hiti mælst 18,7 stig.
►BANASLYS varð í Foss-
vogskirkjugarði um hádeg-
isbil á föstudag. Steinstigi
losnaði frá vegg og valt
yfir starfsmann. Maðurinn
lést samstundis. Trillusjó-
manns af Gylli BA er sakn-
að frá því á mánudags-
kvöld. Talið er að hann
hafi fallið útbyrðis.
Guðrún Pétursdóttir
hættir við framboð
GUÐRÚN Pétursdóttir tilkynnti síðast-
liðinn miðvikudag að hún drægi fram-
boð sitt til forseta íslands til baka. Hún
sagðist telja óraunhæft eins og málum
væri komið að halda baráttunni áfram
og leggja þá miklu vinnu sem því myndi
fylgja á stuðningsmenn sína. Á blaða-
mannafundi vildi hún ekki lýsa yfir
stuðningi við annan frambjóðanda.
Ekki er fordæmi fyrir því að fram-
bjóðandi í forsetakosningum á íslandi
taki ákvörðun sem þessa.
Umhverfisráðherra
úrskurðar
UMHVERISRÁÐHERRA hefur úr-
skurðað um mat á umhverfisáhrifum
álvers á Grundartanga og er í megin-
atriðum fallist á athugasemdir Lands-
virkjunar og Markaðsskrifstofu iðnaðar-
ráðuneytisins.
ÚA vill hlut í Tanga
VOPNAFJARÐARHREPPUR hefur
lagt fram tilboð í 33% hlut Þróunarsjóðs
sjávarútvegsins í Tanga hf. á Vopna-
firði sem er að nafnvirði 115 milljónir
króna. í framhaldi af þessum kaupum
er gert ráð fyrir að hreppurinn selji
aftur um 20-30% hlut til Útgerðarfélags
Akureyringa hf. og fyrirtækin taki upp
náið samstarf um hráefnisöflun og
vinnslu.
Vopnaíjarðarhreppur á 38% hlut í
Tanga en auk Þróunarsjóðsins eiga Út-
vegsfélag Samvinnumanna, Vátrygging-
arfélag Islands hf., Olíufélagið hf. og
Tryggingamiðstöðin hf. hluti í félaginu.
Veist að lögreglu
30 til 40.000 manns héldu þjóðhátíð-
ardaginn 17. júní hátíðlegan í miðborg
Reykjavíkur eftirmiðdaginn á mánudag.
Um nóttina var veist að lögreglu á
tveimur stöðum í miðborginni eftir
kvölddagskrá. Tólf lögreglumenn í mið-
borginni þurftu að kalla eftir aðstoð
vegna óláta í Austurstræti.
Jeltsín Zjúganov
Jeltsín efstur í
fyrri umferð
BORÍS N. Jeltsín Rússlandsforseti bar
naumlega sigurorð af helsta keppi-
nauti sínum í fyrri umferð forsetakosn-
inganna á sunnudag, hlaut rúmlega
35% atkvæða en kommúnistinn
Gennadí Zjúganov rúm 32%. Alexand-
er Lebed, fyrrverandi hershöfðingi
varð óvænt í þriðja sæti með 14,5%.
Síðari umferðin verður 3. júlí. Jeltsín
tryggði sér stuðning Lebeds á þriðju-
dag er hann skipaði hann yfirmann
hins valdamikla öryggisráðs Rússlands
og gerði hann að sérstökum öryggis-
ráðgjafa sínum. Mun ætlunin að völd
Lebeds verði víðtæk á ýmsum sviðum,
einkum í baráttunni gegn glæpafári
og spillingu.
Sama dag var látið undan kröfun
Lebeds um að hinn umdeildi Pavel
Gratjsov varnarmálaráðherra viki og
tók forseti herráðsins við embættinu
til bráðabirgða. Sagðist Lebed hafa á
síðustu stundu komið í veg fyrir sam-
blástur nokkurra hershöfðingja er
hefðu haft í hyggju að beita valdi til
að grípa fram fyrir hendur á forset-
anum og styðja Gratsjov.
Á fimmtudag rak Jeltsín að auki
þijá háttsetta og nána samstarfsmenn
sína og andstæðinga róttækra umbóta-
sinna í Kreml úr starfi. Þykir ljóst að
hann reyni nú allt til að vinna hylli
umbótasinna fyrir síðari umferðina.
Lebed virðist taka afstöðu með þeim
í valdabaráttu í innsta hring sem Zjúg-
anov segir að geti endað með upplausn
og borgarastríði.
►BENJAMIN Netanyahu
tók á miðvikudag við emb-
ætti forsætisráðherra í
ísrael af Shimon Peres.
Arabaleiðtogar gagn-
rýndu harkalega stefnu
Netanyahus og töldu frið-
arhorfur hafa minnkað við
leiðtogaskiptin. Netanya-
hu hét því á fimmtudag
að standa við gerða friðar-
samninga.
►MIKLAR aurskriður
féllu á þorpið Finneids-
fjord í Norður-Noregi að-
faranótt fimmtudags og
fórust a.m.k. fjórir. Einn
hinna látnu var á ferð í
bíl sinum en einnig létust
hjón í húsi er skriðan ruddi
út í sjó. Ekki var útilokað
að vegaframkvæmdir
hefðu komið skriðunni af
stað.
►HARTvarsóttaðBill
Clinton Bandaríkjaforseta
og eiginkonu hans, Hill-
ary, í vikunni vegna
meintrar spillingar fyrr á
árum og misnotkunar á
skýrslum alríkislögregl-
unnar, FBI. Þingnefnd,
þar sem repúblikanar eru
í meirihluta, segir að for-
setinn og menn hans reyni
að torvelda rannsókn
Whitewater-málsins.
Dylgja repúblikanar m.a.
um að forsetafrúin hafi
framið meinsæri.
►ÍRSKI lýðveldisherinn,
IRA, stóð að baki mikilli
sprengingu í miðborg
Manchester á laugardag
og slösuðust yfir 100
manns. Viðvörun barst
lögreglunni um sprengj-
una en svo seint að ekki
tókst að rýma staðinn.
FRÉTTIR
Lausnir til braða-
birgða eru dýrar
ÁSTRÓS Sverrisdóttir, formaður
Umsjónarfélags einhverfra, segir
það ánægjulegt ef úrbóta sé að
vænta í málum einhverfra á næsta
fjárlagaári. Vandinn sé hins vegar
þess eðlis að úrbætur þoli enga bið.
Almennur félagsfundur Um-
sjónarfélags einhverfra lýsti ný-
lega furðu sinni á því að skýrsla
nefndar á vegum félagsmálaráðu-
neytisins um framtíðarskipulag á
þjónustu fyrir einhverfa skyldi
vera send til nefndar, sem á að
endurskoða lög um málefni fatl-
aðra, en með því sé verið að fresta
úrbótum um ófyrirséðan tíma.
Páll Pétursson félagsmálaráð-
herra svaraði því til að ekki væri
’ gert ráð fyrir viðbótarkostnaði
vegna búsetuúrræða einhverfra í
fjárlögum þessa árs. Það væri því
í fyrsta lagi á fjárlögum næsta
árs sem hægt væri að verða við
því sem lagt er til í umræddri
skýrslu.
Málefni
einhverfra
heyra undir
þijú ráðuneyti
Ástrós segir að úrbætur á bú-
setumálum einhverfra séu vissu-
lega kostnaðarsamar, en bendir á
að þær bráðabirgðalausnir, sem
hingað til hafi verið gripið til, séu
einnig mjög dýrar. Það hljóti að
vera ódýrara þegar upp er staðið
að þjónustan sé samfelld og heild-
ræn.
Hún segir að óskin um meðferð-
arheimili fyrir einhverfa hafi fyrst
komið fram fyrir þremur árum,
og því sé ekki réttmætt að skýla
sér bak við það að ekki sé gert
ráð fyrir fjárveitingu í ár. Sú
spurning vakni óneitanlega hvort
skapast þurfi algert neyðarástand
áður en gripið er til aðgerða. Ljóst
sé að ástandið sé algjörlega óvið-
unandi nú og úrbætur þoli enga
bið.
Ráðuneyti
Málefni einhverfra heyra undir
þijú ráðuneyti, félagsmálaráðu-
neytið sér um húsnæðismál,
menntamálaráðuneytið um mennt-
un og heilbrigðisráðuneytið sér um
meðferðarúrræði. Viðræður
standa nú yfir milli ráðuneytanna
um framtíðarskipun í þessum mál-
um.
Ástrós segir að núverandi skip-
an mála geri baráttu Umsjónarfé-
lags einhverfra mjög erfíða og lýs-
ir yfir ánægju með að ráðuneytin
hafi hafið viðræður. Hún telur
nauðsynlegt að skipa fagteymi á
vegum allra ráðuneytanna sem
myndi halda utan um þjónustuna
við einhverfa.
®Lr*j i ■ 1
Norska blaðið Dagens Næringsliv
Lág laun gera
fiskkaup UA í
Noregi möguleg
í FRÉTT í norska blaðinu Dagens
Næringsliv er fullyrt að skýringin
á því að íslendingar geti keypt
fisk í Noregi, flutt hann til íslands
og unnið hann þar með hagnaði
sé sú að laun á íslandi séu nærri
helmingi lægri en í Noregi. Fyrir-
sögn fréttarinnar er „Lúsarlaun á
íslandi“.
í Noregi hefur talsvert verið
fjallað um kaup Útgerðarfélags
Akureyringa á fiski í Finnmörku
og hafa menn spurt hvers vegna
íslendingar geti keypt fisk í Nor-
egi, flutt hann 1.400 km til ís-
lands og samt hagnast á því að
vinna hann á meðan fískvinnslu-
fyrirtæki í Finnmörku séu meira
og minna lömuð vegna rekstrar-
erfiðleika. Blaðamaður Dagens
Næringsliv spyr Björgólf Jóhanns-
son, framkvæmdastjóra ÚA,
hvernig standi á því að ÚA geti
unnið norskan fisk með hagnaði á
meðan norsk fiskvinnslufyrirtæki
geti það ekki.
„Ég þekki ekki aðstæður í
norskum fiskiðnaði það vel að ég
geti gefið fullnægjandi svar við
spurningunni, en það hefur
kannski eitthvað með launastig
að gera,“ segir Björgólfur.
í fréttinni kemur fram að ís-
lensk fískvinnslufyrirtæki greiði
starfsmönnum sínum 400-500
krónur á tímann, en norskt físk-
vinnslufólk fái hins vegar 930
krónur á tímann. Haft er eftir
Stefáni Skjaldarsyni, í íslenska
sendiráðinu í Noregi, að laun á
íslandi séu u.þ.b. 45% lægri en í
Noregi.
Morgunblaðið/Kristján
Endamark
við heim-
skautsbaug
HESTAMANNAFÉLAGIÐ
Léttir á Akureyri stóð fyrir sér-
stæðum skeiðkappreiðum á
flugvellinum í Grímsey í gær,
þar sem endamarkið var heims-
skautsbaugur. Þetta mun hafa
verið í fyrsta skipti sem keppni
af þessu tagi fer fram í
eynni.
Farið var með sex skeiðhesta
og tvo klárhesta með tölti með
feijunni Sæfara frá Dalvík í
gærmorgun. Auk þess var 90
manna fylgdarlið með í för og
komust færri að en vildu í þessa
ævintýraför.
Guðmundur Bjarnason, land-
búnaðarráðherra, gaf farand-
bikar í skeiðkeppnina. Hann var
sjálfur á meðal áhorfenda og
afhenti verðlaunin að keppni
lokinni. Eftir skeiðkeppnina átti
að slá upp grillveislu í eynni.
Myndin var tekin á Dalvíkur-
í gærmorgun þegar
verið var að flytja hestana um
borð í Sæfara.
)
)
I
)
i
1