Morgunblaðið - 23.06.1996, Síða 14

Morgunblaðið - 23.06.1996, Síða 14
14 SUNNUDAGUR 23. JÚNÍ 1996 LISTIR MORGUNBLAÐIÐ Listahátíð í Reykjavík 1996 Sunnudagur 23. júní „Gulltárþöll". Borgarleikhúsið: 2. sýn. kl. 14. ---♦ ♦ ♦- Gluggasýning í Sneglu ELÍN Guðmundsdóttir sýnir verk sín í gluggum Sneglu listhúss við Klapp- arstíg. Elín útskrifaðist úr leirlistadeild Myndlista- og handíðaskóla íslands árið 1988. Snegla listhús er opið virka daga frá kl. 12-18 og laugardaga kl. 10-14. ------♦ ♦ ♦----- Ljóðatónleikar á Kaffi Oliver UÓÐATÓNLEIKAR verða haldnir á Kaffí Oliver í kvöid kl. 19. Þar munu ljóðskáldin Andri Snær Magnússon, Björgvin ívar, Magnúx Gezzon og Davíð Stefánsson lesa ljóð sín við undirleik hljómsveitarinnar Semen. ------♦ ♦ ♦----- Colin Porter sýnir í Eden ÞESSA dagana er Colin Porter með málverkasýningu í Eden í Hvera- gerði. Þetta er þriðja einkasýning hans og sem fyrr leitar hann í ís- lenska náttúru eftir viðfangsefni. Colin verður sjálfur á staðnum næstu tvær helgar. Sýningunni lýk- ur 1. júlí næstkomandi. LEIKHÓPUR verksins „Ef ég væri gullfiskur". Nýtt verk eftir Arna Ibsen NÆSTA leikár hjá Leikfélagi Reykjavíkur hefst á nýju íslensku verki eftir Árna Ibsen, „Ef ég væri gullfískur", en æfíngar hafa staðið yfír nú í vor á verkinu. í kynningu segir: „Ef ég væri gullfiskur" fjaliar á gamansaman hátt um „stórfjölskylduna" í íslensk- um samtíma og er farsi að frönskum hætti, en með íslensku inntaki. Leikhópur verksins er fjölmennur en margir nýir leikarar koma til liðs við Leikfélag Reykjavíkur í þessu verki. Það eru þau; Ásta Arnardótt- ir, Eggert Þorleifsson, Guðlaug El- ísabet Óiafsdóttir, Halldóra Geir- harðsdóttir, Helga Braga Jónsdóttir, Kjartan Guðjónsson, Rósa Guðný Þórsdóttir, Sigurður Karlsson, Sóley Elíasdóttir og Þórhallur Gunnarsson. Leikstjóri sýningarinnar er Pétur Einarsson, þúningahöfundur Helga Stefánsdóttir og leikmyndahöfundur Siguijón Jóhannsson. Rödd fram- tíðarinnar TONLIST Tónleikar Tónleikar Bjarkar Guðmundsdóttur og hljómsveitar hennar í Laugardals- höll á vegum Smekkleysu og Listahá- tíðar. Auk Bjarkar komu fram breska hljómsveitin Plaid og tónlist- armaðurinn Goldie með hljómsveit sína, en tónleikarnir stóðu frá kl. átta til miðnættis. Áhorfendur voru um 4.500, miðinn kostaði 2.500 kr. i stæði, 3.000 kr. í sæti. BJÖRK Guðmunsdóttir hefur lít- inn tíma til að sinna íslenskum aðdáendum sínum vegna anna um heim allan, en þeir geta þó vel við unað að fá hana hingað til lands í annað sinn á tveimur árum. í bæði skiptin hefur hún komið fram á Listahátíð í Reykjavík, sem verður að teljast við hæfí því hún er ekki aðeins frægasti tónlistarmaður sem ísland hefur alið, heldur einn sá merkasti fyrir frumleika, atorku og kjark. Á tónleikum sínum að þessu sinni undirstrikaði hún enn að þótt hún sé alþjóðleg stjarna er hún fyrst og fremst íslenskur tón- listarmaður sem syngur á íslensku fyrir íslenska áheyrendur vegna þess að það sem hún er að gera skiptir máli; þar skilur á milli skemmtikrafts, sem er sama hvað hann gerir bara ef það selst, og listamannsins sem skapar af innri nauðsyn, en ekki til að fá salt í grautinn. Eins og áður er getið kom Björk hingað til lands til tónleikahalds fyrir tveimur árum og þá á ferð með hljómsveit að kynna plötu sína Debut. Debut var fyrsta eiginlega breiðskífa Bjarkar og þótt hún hafi komið sem ferskur vindur inn í vestræna dægurtónlist þá heyrðist það best þegar önnur breiðskífan, Post, kom út að Debut var eins konar tilraunaútgáfa eða uppkast. Að vissu leyti var hljómsveitin sem kom með Björk fyrir tveimur árum „tilraunaútgáfa“ og fór ekki á milli mála að hún var enn að spila sig saman og þótt færir hljóðfæraleik- arar hafi um vélað á sviðinu þá vantaði hinn fullkomna samhljóm sem tónlistamenn ná eftir langt samstarf. Að þessu sinni var hann til staðar. Á tónleikum Bjarkar í Wembley- íþróttahöllinni í Lundúnum í janúar sl. lék í síðasta sinn með henni fjöl- hæfur hljómborðsleikari og í hans stað komu tveir nýir menn. Það hefur styrkt hljómsveitina verulega og fyrir vikið hljómaði hún mun þéttari og um leið sveigjanlegri í Höllinni á föstudagskvöld. Eftir Heyrnartól, sem Björk flutti nánast a cappella, byijuðu hinir eiginlegu tónleikar með miklum ljósagangi og látum á Her af mér og heyra mátti að sitthvað hafði verið átt við útsetningar. í þriðja lagi, Einn dag gerist það, var búið að slípa burt allan óþarfa og eftir stóð ein- föld og grípandi laglínan sem flutt var af mögnuðum slagverksspuna. Fleiri dæmi mátti heyra þar sem ftjálslega var farið með útsetningar og oft all fijálslega eins og til að mynda í Strákavenus, því snilldar- lagi, og Mannlegri hegðun. Flest voru lögin af Post, nokkur af Deb- ut og eitt af smáskífu sem kom út á eftir Post, en það lag samdi Björk með ensku danssveitinni LFO. Eitt lag flutti hún, bráðskemmtilegt Fannst í Bandaríkjunum Það er fátítt að áður óþekkt verk eftir Mozart komi fram. Talsmenn Christie’s segja að arían, sem virðist leggja vara við vandamálum ástarinnar, hafí fundist á heimili banda- rískra hjóna, sem létust fyrir skömmu. Gieslle Minns, mezzó-sópr- ansöngkona, flutti lagið við undirleik strengjakvartetts. „Það hljómar stórkostlega," sagði Jonathan Stone, sérfræð- ingur Christie’s í nótnablöðum og tónlistarhandritum. „Það er stutt, en afar tilkomumikið og án vafa alfarið Mozart." Um handritið sagði Stone: „Við höfum aðeins eina örk svo við getum ekki sagt hvað kom á undan eða eftir, en þetta er óþekkt verk og virðist vera úr einhvers konar söngleik." Virðist vera um ástina Verkið er skrifað fyrir tvær fiðlur, víólu, selló, tvö horn og mezzó-sópranrödd. Merking textans er ekki ljós og gæti hann átt við stúlku eða rós, en hann hljómar svo: „Ef þú vilt bijóta hana við stilkinn munu þyrnarnir stinga þig.“ í lokahlutanum er varað við því að ástin geti verið sársauka- full: „Svo að þúsundfalt skjall laðar þig að lystisemdum ást- arinnar og ótryggð, pest og öfund eru venjulega ávextirn- ir.“ Talið er að þetta brot hafi verið skrifað um svipað leyti og fyrsta stóra ópera Mozarts, „Brottnámið úr kvennabúr- inu“, sem var frumflutt 1783. Stone vildi hins vegar ekki taka undir vangaveltur um að blaðið væri uppkast að aríu, sem hefði verið ákveðið að nota ekki í þá óperu. Mozart hefði upp úr 1780 oft verið ráðinn til að skrifa tónlist fyrir leiklistar- kvöld í Vín og sennilega væri hér um slíkt verk að ræða. MYNDLISTARMENNIRNIR sem halda sýningar í sýningarsalnum Við Hamarinn í sumar. með sérkennilega grípandi laglínu, sem var líklega nýtt. Á heimavelli Lokalag tónleikanna var Ham- ingjusöm sprengja með mögnuðum orgelundirleik, en áheyrendur vildu meira og sem uppklappslag var sveiflulagið góðkunna It’s Oh So Quiet í einfaldri og skemmti- legri harmoníkuútsetningu. Þá náði sefjunin hámarki og fjögur þúsund manna kór tók undir full- um hálsi. Björk var vel létt í fasi á svið- inu, kunni greinilega vel við sig á heimavelli sem skilaði sér eflaust til hljómsveitarinnar. Þótt greini- legt væri að hún gæfí mönnum nokkuð lausan tauminn í lögunum, sérstaklega ótrúlega færum slag- verksleikara, fer ekki á milli mála að hún ræður ferðinni. Víða er hún greinilega að reyna á þanþol tón- málsins og gera tilraunir með sitt- hvað sem á líklega eftir að skila sér á næstu plötu, en ljóst að hún er þess albúin að stökkva af stað í óvæntar áttir í tónsköpun. Á fimmtudagskvöld heyrðist í Laug- ardalshöll rödd fortíðarinnar, en á föstudag var það rödd framtíðar- innar. Árni Matthíasson „Sex í list“ SEX nýlega útskrifaðir mynd- listarmenn úr MHI halda sýn- ingar í sýningarsalnum Við Hamarinn í Hafnarfirði í sum- ar. Sýningarnar verða þrjár; 22. júní til 7. júlí sýna Brynja Dís Björnsdóttir og Gunnhildur Björnsdóttir, 13. júní til 27. júlí sýna Berglind Svavarsdótt- ir og Ólöf Kjaran Knudsen, 10. ágúst til 25. ágúst sýna Ásdís Pétursdóttir og Ingibjörg Mar- ía Þorvaldsdóttir. Sýningarnar verða opnar laugardaga og sunnudaga frá kl. 14 til 20. Allir velkomnir. Ókeypis aðgangur. Nýfundið brot úr Mozart- aríu frum- flutt London. The Daily Telegraph. BROT úr aríu eftir Mozart, sem nýlega fannst, var flutt fyrsta sinni í að minnsta kosti tvö hundruð ár á miðvikudag, en nóturnar að laginu, skrifað- ar af hendi tónskáldsins, verða settar á uppboð hjá uppboðs- haldaranum Christie’s á mið- vikudag. Aríubrotið er 80 taktstrik á einu blaði og er skrifað á báð- ar hliðar þess. Búist er við að það verði selt á tvær milljónir króna. Morgunblaðið/Sverrir

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.