Morgunblaðið - 23.06.1996, Page 25
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 23. JÚNÍ 1996 25
peningum mega ekki snerta við neinu
matarkyns nema þvo sér áður með
bakteríudrepandi sápu og nagla-
bursta, svo eru hendurnar skolaðar
upp úr bakteríudrepandi efni. Allur
matur er afgreiddur í einnota umbúð-
um og er það eina aðferðin til að
tryggja sóttvarnir, að sögn Kjartans.
Allar tuskur eru soðnar og geymdar
í sótthreinsivökva, það er skipt um
tuskur á 30 mínútna fresti eða oftar
ef þarf. „Fólk er farið að átta sig á
þessum gæðum og hreinlæti, það eru
kúnnar sem fara ekki annað út að
borða en tii okkar. Ég segi þetta
ekki í yfirlæti heldur er gaman að
heyra að fólk skilur og kann að
meta það sem við erum að reyna að
gera.“
Kjartan segir að það hafi komið
fyrir að mat frá fyrirtækinu hafi
verið kennt um að valda matareitr-
un. í hvert skipti hefur verið kallað
á opinbera rannsókn og aldrei neitt
fundist sem rekja mátti til McDon-
ald’s. „Það sem við hræðumst er
ekki það sem er í matnum okkar
heldur hvað getur verið á höndum
viðskiptavinarins, þar er mesta hætt-
an.“
Kokteilsósan komst á
matseðilinn
McDonald’s-veitingastöðum er
skylt að hafa ákveðnar tegundir veit-
inga á matseðlinum. Rekstraraðilar
mega síðan ráða því hvaða vörum
er bætt við þennan kjarna. Til að
ný vara fái inni verður hún að upp-
fylla ákveðin skilyrði um gæði, hrein-
leika og hollustu. Það vakti athygli
á sínum tíma að hjá McDonald’s var
ekki hægt að fá hina rammíslensku
kokteilsósu, og þótti sumum ótrúlegt
að slíkur veitingastaður fengi þrifist
til lengdar. Nú er kokteilsósan komin
á matseðilinn hjá McDonald’s. Er
forsaga þess gott dæmi um viðhorf
fyrirtækisins.
„Allur okkar matur er mjög fitu-
snauður," segir Kjartan. „Það kvört-
uðu margir yfir því að þeir fengju
ekki fylli sína því það vantaði fit-
una. Islendingar eru vanir feitari
og þyngri mat en við framleiðum.
Því var ákveðið að bjóða kokteilsósu
sem viðbit fyrir þá sem óskuðu eftir
fleiri hitaeiningum. Það tók tíma að
finna framleiðanda sem gat uppfyllt
skilyrði okkar. Sósuna varð að fram-
leiða í lokuðu, sótthreinsuðu um-
hverfi og setja hana í lokaðar um-
búðir. Loks fundum við lokað kerfi
hjá Osta- og smjörsölunni. Þeir lög-
uðu verksmiðjuna að okkar kröfum
og nú framleiða þeir sósuna. Við
prófum sósuna reglulega og sendum
sýni í ræktun. Hún er alltaf fersk
og þetta er eina kokteilsósan á land-
inu sem ég þori að mæla með,“ seg-
ir Kjartan og hlær. Hann segir sós-
ur frá McDonald’s almennt hitaein-
ingasnauðar og hyggst ekki reyna
að flytja kokteilsósuna til útlanda.
Hún sé of dýr auk þess sem aðrar
þjóðir virðast ekki eins sólgnar í fit-
una og landinn.
„Annars er þetta að breytast. Fólk
sem venst bragðinu okkar og léttleik-
anum vill ekki feitu sósuna. Það er
gaman að sjá að sterkustu viðskipta-
vinir okkar eru fyrrverandi starfs-
menn, fólk sem þekkir gæðin og
hreinlætið. Það segir sína sögu. Það
er ekki hægt að deila um smekk,
hann er persónulegur, en ég get
sannarlega talað um tæknina. Við
notum vönduðustu tækni sem til er,
hvar sem á hana er litið."
Kjartan segir McDonald’s leitast
við að skaða ekki umhverfið. Umbúð-
irnar eru umhverfisvænar, úr pappír
eða klórfríu frauðplasti. Bréfsefni
skrifstofunnar og umbúðapappír er
allur endurunninn. Veitingastaður-
inn við Suðurlandsbraut fékk sérstök
verðlaun fyrir lagnakerfi, það trygg-
ir meðal annars að fita berst ekki út
í umhverfið frá staðnum.
Matur er dýr á íslandi
Tímaritið The Economist birtir á
hverju ári svonefna hamborgaravísi-
tölu sem byggist á verði Big Mac-
hamborgara á McDonald’s-veitinga-
stöðum víða um heim. Þessi vísitala
var gamansöm tilraun til að bera
saman raungengi ýmissa gjaldmiðla
gagnvart dollar. Miðað við verðskrá,
sem lögð er til grundvallar, má ætla
að hamborgarar séu óvíða dýrari en
á íslandi, en Big Mac kostar hér 395
krónur. Hvernig stendur á því?
„Allt sem til þarf er dýrt hér á
landi,“ segir Kjartan. „Virðisauka-
skattur er 24,5% eða einn fimmti
„Við erum hvött til að vera
löghlýðin, breyta rétt,
vinna vel og vanda okkur
við allt sem við gerum.
Leggja til þjóðfélagsins en
vera ekki bara þiggjendur.“
af verðinu. Það er ekki sambærilegt
við til dæmis 4-5% sums staðar í
Bandaríkjunum. Kjötið hér er marg-
falt dýrara en annars staðar. Sölu-
kerfi landbúnaðarins er þannig að
það breytir engu hvort maður kaup-
ir eitt kíló eða hundrað. Skrokkurinn
er alltaf á sama verði. Við notum
dýrari hluta skrokksins og eigum
meðal annars í samkeppni við aðila
sem nota ódýrara hráefni. Milliliða-
kostnaður, slátrun og kjötvinnsla,
er hár, í og með
vegna þess hvað
við framleiðum
lítið samanborið
við stóru löndin.
Allt innlent hrá-
efni er hræðilega
dýrt - matur er
allt of dýr á ís-
landi. Það sem við
þurfum að flytja
inn kemur um
langan veg svo
við það bætist flutningskostnaður
og háir tollar. Við reiknum verðið
út eins og allir aðrir. Það er mikill
þrýstingur á að lækka verðið, enda
höfum við lækkað það talsvert frá
upphafi. Enginn yrði glaðari en ég
ef við gætum lækkað enn frekar.
Því miður er verðið nú þegar það
lágt að sé það skoðað út frá álagn-
ingu, eins og Islendingum er tamt,
þá er arðsemin verst hjá mér. Ég
er ekkert sérstaklega hrifinn af því.
Við stöndum í skilum, en það er
heldur ekkert eftir.“
Rúmlega 80% af kostnaði fyrir-
tækisins er innlendur, það sem flutt
er inn eru umbúðir, franskar kartöfl-
ur sérræktaðar fyrir McDonald’s,
sósur og brauð. Það eru fimm sér-
hæfð bakarí í Evrópu sem baka fyr-
ir alla McDonald’s-veitingastaðina í
álfunni.
Hafa flutt inn þekkingu
„Við kaupum allt sem við getum
hér innanlands," segir Kjartan. „Við
höfum átt mjög góða og ánægjulega
samvinnu við íslenska framleiðendur
og þeir hafa lagt mikið á sig til _að
mæta óskum okkar og kröfum. Ég
held að það sem við höfum gert
ásamt þessum framleiðendum hafi
komið öllum neytendum til góða, án
þess að það hafi farið mjög hátt.
Við höfum flutt inn mikla þekkingu
í matvælaiðnaði. Það hafa komið og
koma reglulega sérfræðingar á okkar
vegum til að hjálpa samstarfsaðilum
okkar að gera betur."
Kjartan segir að McDonald’s gefi
sig út fyrir að vera fjölskyldustaður
en ekki sé um neinn staðlaðan kúnna
að ræða. „Við erum með fasta við-
skiptavini frá níræðisaldri og allt
niður í börnin, sem eru bestu vinir
okkar,“ segir Kjartan. „Við viljum
selja góðan mat og góða þjónustu á
góðu verði til allra. Við erum löghlýð-
in, reynum að gera allt eins vandað
og hægt er. Við erum með nákvæmt
bókhald endurskoðað af löggiltum
endurskoðendum og McDonald’s.
Hér er gert upp á hveijum degi,
gerð vörutalning og rýrnun skráð.
Hér er ekki stunduð svört atvinnu-
starfsemi, það eru allir starfsmenn
skráðir. Fyrirtækið er gegnsætt fyrir
alla sem vilja skoða það. Það er best
fyrir okkur ef eftirlitsstofnanir á sviði
fjármála, öryggismála og heilbrigðis-
mála heimsækja okkur sem oftast.
Þá getum við sannað ágæti okkar.“
Islendingar flykkjast í sumarleyfið með Plúsferðum
BILL UND
Vegna mikillar eftirspurnar og sölu til Billund, höfum viðfengið viðbótarsœti þangað.
Ennþá eru til laus sœti. Bókið strax!
26. júni'
27. júní
LAUS SÆTl
UPPSELT
BILLUND
3. júlí UPPSELT
4 . júlí UPPSELT
10. iúlí UPPSELT
11. iúlí ÖRFÁ SÆTl LAUS
17. iúlí UPPSELT
18. iúlí ÖRFÁ SÆTl LAUS
24. iúlí LAUS SÆTI
25. júlí 10 SÆTI LAUS
31. júlí UPPSELT
ÁGÚST
7. ágúst UPPSELT
14. ágúst UPPSELT
21. ágúst LAUS SÆTI
28. ágúst LAUS SÆTI
Flug
Y,
Bíll
pr. mann, 2 fullorðnir
og 2 börn 2-11 ára.
Innifalið: Flug,
flugv.skattar
og bíll í Bflokki í viku.
31910,-
pr. mann, 2fullorðnir
Innifalið: Flug, flugv.skattar og
btlliBflokki l viku.
Mikit nýjung hjá PLÚSferðum!
SÓLAR PLÚSINN
Brottför
l.jlílí,
29. jiilí og
26. cígúst
Þið bókið
ferðina og
vikufyrir
brottför látum
við ykkur vita
á hvaða
gististað
þið munið
dvelja.
Nánari upplýsingar hjá sölumönnum.
OPIÐ
ÁLAUGARDÖGUM
kl. 10-14
Farþegar PLÚSferða fljúga
eingöngu með Fhigleiðum.
VISA
SJÓVÁ-ALMENNAR
FERÐIR
Faxafeni 5 108 Reykjavík. Súni: 568 2277 Fax: 568 2274
E
OTT ó AUGLVSINGAR