Morgunblaðið - 23.06.1996, Qupperneq 26
26 SUNNUDAGUR 23. JÚNÍ 1996
MORGUNBLAÐIÐ
KVIKMYNDIR/Laugarásbíó sýnir spennumyndina Nick of Time með Johnny Depp og
*
Christopher Walken í aðalhlutverkum. I myndinni leikur Depp bókhaldara sem skyndi-
lega lendir í ógnvekjandi aðstæðum sem gjörbreyta lífi hans
Avenjulegum eftirmiðdegi líð-
ur tíminn átakalaust og án
tilþrifa í lífi bókhaldarans Gene
Watson (Johnny Depp) en einn
daginn verður veruleg breyting
þar á. Hann er nefnilega í þann
mund að upplifa atburði sem vekja
nánast sjúklega athygli þegar
þeir verða aðalefnið í fréttum
dagsins, en einskær tilviljun hefur
dregið Watson inn í hringiðu
skelfilegrar atburðarásar. Þegar
hann kemur á Union brautarstöð-
ina í miðborg Los Angeles þar sem
hann á stefnumót eru Watson og
sex ára gömul dóttir hans tekin
í gíslingu af fólki í gervi lögreglu-
manna (Christopher Walken og
Roma Maffia). Þau segja Watson
að hann verði að fremja morð
innan 90 mínútna ella muni dóttir
hans láta lífíð, en fómarlambið
tilvonandi er saklaus stjómmála-
maður (Marsha Mason). Allar til-
raunir Watsons til að gera yfír-
völdum viðvart um hvað er á seiði
era hindraðar vegna vitneskju
hans um að mannræningjarnir
muni bregðast við með því að
drepa dóttur hans, og í hamstola
kapphlaupi hans við tímann hefur
hver mínúta í för með sér skyndi-
legar og banvænar afleiðingar.
Leikstjóri Nick of Time er John
Badham sem áður hefur m.a. gert
myndirnar Point of No Return,
Stakeout, War Games og Sat-
urday Night Fever. Badham er
fæddur á Englandi en stundaði
nám í Yale háskóla og Yale leik-
listarskólanum. Að námi loknu
fluttist hann til Hollywood þar
sem hann hóf feril sinn með því
að leikstýra fyrir
sjónvarp og hlaut
hann nokkrar til-
nefningar til Emmy
verðlauna fyrir Sjón-
varpsmyndir sínar.
Hann hefur einnig
leikstýrt mikið á
sviði og einnig hefur
hann verið iðinn við
gerð tölvuforrita
sem notuð hafa ver-
ið við kvikmynda-
gerð. Badham segir
um Nick of Time að
á hverjum degi sé
getið um það í frá-
sögnum dagblaða að
fólk hafí lent í raun-
verulegum aðstæð-
um sem séu jafn
óskiljanlegar og þær
í klóm tímans
GENE Watson (Johnny Depp) á að myrða saklausan stjórnmálamann ella missir
sex ára dóttir hans lífið.
séu sorglegar. „Slíkar frásagnir
sýna hvað eftir annað að sannleik-
urinn getur verið mun ótrúlegri
en skáldskapur. Flest fólk á von
á því að hver dagur vikunnar verði
svipaður deginum áður. En á
hveijum einasta degi era einhveij-
ir sem upplifa eitthvað sem er svo
óvænt eða ógnvekjandi að þeir
CHRISTOPHER Walken og Roma Maffia leika illþýðið
sem rænir bókhaldaranum og dóttur hans.
LEIKSTJORI Nick of Time er John Badham sem hér sést
leiðbeina Johnny Depp við tökur á myndinni.
geta ekki með nokkru móti gert
sér grein fyrir að það er raunveru-
lega að eiga sér stað, hvað þá að
það sé eitthvað sem þeir sjálfir
eru að upplifa. Þetta er einmitt
sú aðstaða sem Gene Watson
lendir í, en hann er ósköp venju-
legur maður sem flækist í sér-
stæða atburði sem í senn eru
hryllilegir og þess eðlis að hann
getur vart haft nokkur áhrif á
framvindu mála.“
Höfundur kvikmyndahandrits-
ins er Patrick Sheane Duncan
(Mr. Holland’s Opus) og hreifst
hann af þeirri hugmynd að gera
mynd þar sem sagan spannar
sama tíma og sýning myndarinnar
tekur. Þetta hefur reyndar verið
gert áður í kvikmyndum og þekkt-
asta myndin af þessu tagi er sjálf-
sagt sálfræðitryllirinn Rope sem
Alfred Hitchcock gerði árið 1948.
Christopher Walken leikur ill-
mennið Mr. Smith og bætir þar
með enn einu fólinu í hlutverka-
safn sitt, en Walken á nú að baki
hátt í 50 kvikmyndir. Hann er
fæddur í New York og var aðeins
15 ára gamall þegar hann kom
fyrst fram á leiksviði árið 1958.
Hann lék í fyrstu kvikmyndinni,
Me and My Tapes, árið 1968, en
sló hins vegar ekki í gegn fyrr
en tíu árum síðar þegar hann lék
á móti Robert DeNiro og Meryl
Streep í The Deer Hunter og hlaut
hann óskarsverðlaun fyrir bestan
leik í aukahlutverki fyrir frammi-
stöðu sína í myndinni. Meðal
þekktra mynda sem Walken hefur
nýlega leikið í eru Things to Do
in Denver When You’re Dead
(1995), Pulp Fiction
(1994), True Ro-
mance (1993), Bat-
man Returns (1992)
og King of New York
(1990).
Walken hefur alla
tíð leikið á leiksviði
samhliða kvik-
myndaleiknum og
hefur hann tekið þátt
í rúmlega 60 upp-
færslum. Honum
hefur áskotnast
margvíslegur heiður
fyrir sviðsleikinn og
hlaut hann t.d. Obie
verðlaunin fyrir hlut-
verk sitt í Mávinum
eftir Tsékov sem
sýnt var á Broadway.
Lofaður og
vinsæll
JOHNNY Depp hefur öðlast
mikið lof gagnrýnenda og al-
mennar vinsældir fyrir frammi-
stöðu sína í ýmsum athyglis-
verðum og oft á tíðum nokkuð
sérstæðum kvikmyndum. Það
var áhrifamikill leikur hans i
titilhlutverki myndar Tims
Burtons, Edward Scissorhands
(1990), sem kom honum í hóp
eftirsóttustu leikaranna í Holly-
wood auk þess að færa honum
tilnefningu til Golden Globe
verðlaunanna. Aðra tilnefningu
til verðlaunanna hlaut hann fyr-
ir hlutverk sitt í Benny & Joon
(1993), sérstæðri ástarsögu þar
sem hann lék á móti Mary Stu-
art Masterson og Aidan Quinn,
og þriðju tilnefninguna hlaut
hann fyrir túlkun sína á Ed
Wood í samnefndri kvikmynd
(1994), en í henni sameinuðu
Depp og Tim Burton krafta sína
á nýjan leik. I fyrra lék Depp í
myndinni Don Juan DeMarco á
móti þeim Marlon Brando og
Faye Dunaway og nýlega var
frumsýnd nýjasta mynd hans,
Dead Man, scm Jim Jarmush
leikstýrir, en það er vestri og
leikur Depp útlægan morðingja
í henni. Meðal annarra mynda
sem Depp hefur leikið í eru
What’s Eating Gilbert Grape
(1993), Arizona Dream (1993)
og Cry-Baby (1990).
Johnny Depp fæddist í Ow-
ensboro í Kentucky 9. júní 1963.
Hann ólst hins vegar upp í borg-
inni Miramar í Flórída, þar sem
hann hætti námi og stofnaði
hljómsveitina The Kids og gifti
sig. Hann fór til Hollywood með
hljómsveitinni til að reyna að
komast á plötusamning, en það
gekk ekki upp og þá benti Nic-
holas Cage vinur hans honum á
að reyna fyrir sér í leiklistinni.
Cage kynnti Depp fyrir umboðs-
manni sínum sem sendi Depp í
viðtal til leikstjórans Wes Cra-
ven sem réð hann til að fara
með smáhlutverk í A Nightmare
On Elm Street sem gerð var
1984. Er hlutverk
Depps í myndinni
einungis eftir-
minnilegt vegna
þess að hann leikur
strák sem gleyptur
er af rúmi sínu. Ari
seinna fékk Depp
hlutverk í táninga-
myndinni Private
Resort og árið þar
á eftir kom svo
stóra tækifærið.
Það var þegar Oli-
ver Stone fékk honum hlutverk
í Platoon, en flestar senurnar
með honum lentu hins vegar á
gólfi klippiherbergisins.
Árið 1987 var Johnny Depp
verkefnalaus og auralaus með
öllu, og fékk hann að hírast í
lítilli íbúð sem vinur hans Cage
átti. Hann var helst að hugsa
um að grípa til gítarsins á nýjan
leik þegar honum barst boð um
að leika í sjónvarpsmyndaröð-
inni 21 Jump Street og áður en
hann vissi var hann á leiðinni
til Vancouver þar sem þættirnir
voru gerðir og með fulla vasa
fjár.
í þáttaröðinni lék Depp löggu
í dulargervi og innan árs var
hann farinn að fá um tíu þúsund
aðdáendabréf á mánuði en hann
fékk sig fullsaddan á hlutverk-
inu og vildi losna. Það var John
Waters sem kom honum til
bjargar með því að færa honum
aðalhlutverkið í Cry-Baby.
Sama ár kynntist hann Tim
Burton sem fékk honum aðal-
hlutverkið í Edward Scissor-
hands og þar með var Depp
komin á fulla ferð til frægðar
og frama og orðinn einn af eftir-
sóttustu ungu leikurunum í
Hollywood.
Johnny Depp hefur alla tíð
verið þekktur fyrir áhuga sinn
á að vera í slagtogi við glæsi-
kvendi. Hann var lengi vel í
föstu sambandi með leikkonunni
Winonu Ryder og er húðflúr
hans „Winona Forever“ fyrir
löngu orðið frægt, en því breytti
hann reyndar í „Wino Forever".
Núverandi kærasta hans er of-
urfyrirsætan Kate Moss, en
einnig hefur hann verið orðaður
við skáldkonuna Barböru
Whitfield.