Morgunblaðið - 23.06.1996, Qupperneq 43
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 23. JÚNÍ1996 43
Árnað heilla
Havsögtilcn - 7752 SrtMitcð - tksrmart!
TLF. 97 93 44 OO
Fax. 97 93 77
Við sendum
skattfrjálst
til islands
I DAG
AFMÆLI
O pTÁRA afmæli. Á
OfJmorgun, mánudaginn
24. júní, verður áttatíu og
fimm ára Haraldur Hann-
esson, útgerðarmaður,
Birkihlíð 5, Vestmanna-
eyjum.Hann tekur á móti
gestum í Akogeshúsinu í
Vestmannaeyjum eftir kl.
20 á afmælisdaginn.
77/VÁRA afmæli. Á
I v/morgun, mánudaginn
24. júní, er sjötugur Grím-
ur Jónsson, járnsmiður,
Háaleitisbraut 45,
Reykjavík. Eiginkona hans
er Ásta Jónsdóttir. Þau
taka á móti gestum í fé-
lagsheimili Rafveitunnar
v/EIliðaár á morgun, af-
mælisdaginn kl. 18-21.
SKAK
Umsjón Margeir
Pétursson
Hvítur leikur
og vinnur
STAÐAN kom upp á alþjóð-
legu móti í Malmö í Svfjýóð,
sem nú stendur yfir í viður-
eign tveggja stórmeistara.
Það var sjálfur Viktor
Kortsnoj (2.645) sem hafði
hvítt og átti leik, en Svíinn
Jonny Hector (2.520) var
með svart. Gamla brýnið
hefur náð tvöföldu valdi
þungu manna sinna á sjö-
undu línunni og einu sinni
sem oftar ræður það úrslit-
um:
40. Hc4! - Dxc4 (Leikur
sig beint í mát, en ef svart-
ur víkur drottningunni und-
an þrefaldar hvítur á sjö-
undu línunni með 41. Hcc7
og þá þarf heldur ekki að
spyija að leikslokum) 41.
Hg7+ og Hector gafst upp
því hann er mát í öðrum
leik.
Staðan í Malmö er þessi
þegar lokið er sjö umferðum
af níu: 1.-2. Kortsnoj og
Miles 5 v. 3. Curt Hansen
3'/2 v. 4. Pia Cramling 3
v. 5.-8. Bator, Bellon,
Hellsten og Ziegler 2 v. 9.
Agrest 2 v. 10. Hector 1 v.
O/VÁRA afmæli. Á
0\/morgun, mánudaginn
24. júní, verður áttræð Lillý
Kristjánsson, Hæðargarði
29, Reykjavík. Hún tekur
á móti gestum í Félags-
heimilinu, Hæðargarði
milli kl. 18 og 20 á afmælis-
daginn.
P7/\ÁRA afmæli. í dag,
I \/sunnudaginn 23.júní,
er sjötugur Skúli Einars-
son, matsveinn, Tungnseli
4, Reylqavík. Eiginkona
hans er Inga Ingimars-
dóttir. Þau eru stödd í Port-
úgal á hótel Felix Choro,
íbúð 1006, Areias
Desjóao, 8200, Albufeira,
Algarve, sími 089-587-
430-1, bréfsími 089-5123-
99.
GULLBRÚÐKAUP. í dag, sunnudaginn 23. júní, eiga
fimmtíu ára hjúskaparafmæli hjónin Margaret og Bent
Scheving Thorsteinsson, Efstaieiti 12, Reykjavík. Þau
eru nú í hálfsmánaðar skemmtisiglingu um Miðjarðarhafið.
Ljósm. MYND Hafnarfirði
BRÚÐKAUP. Gefín voru
saman 1. júní sl. í Fríkirkj-
unni í Hafnarfirði af sr.
Einari Eyjólfssyni Sigrún
Ómarsdóttir og Einar Kr.
Vilhjálmsson. Heimili
þeirra er á Sléttahrauni 25,
Hafnarfirði.
HOGNIHREKKVÍ SI
KRABBI
Afmælisbarn dagsins:
Þú hefur aðlaðandi
framkomu, sem tryggir
þér trausta vini.
Hrútur
(21. mars-19. apríl)
Háttvísi hefur styrkt stöðu
þína í vinnunni, og framund-
an eru uppgangstímar.
Njóttu kvöldsins í hópi góðra
vina.
Naut
(20. apríl - 20. mai)
Þú ættir ekki að láta það
spilla skapinu þótt vinur sé
þér ekki fyllilega sammála í
dag. Hann gæti haft á réttu
að standa.
Tvíburar
(21.maí-20.júní)
Gættu tungu þinnar í mikil-
vægum viðræðum við áhrifa-
menn, því mikið er í húfi.
Kurteisi skilar þeim árangri
sem þú sækist eftir.
Krabbi
(21. júnf - 22. júlí)
Ástvinir njóta frístundanna
saman í dag, _og skreppa í
stutt ferðalag. I kvöld kemur
eitthvað þér mjög ánægju-
lega á óvart.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Láttu ekki viðkvæmt mál
valda óþarfa deilum innan
fjölskyldunnar í dag. Þú ert
vel fær um að finna ásættan-
lega lausn.
Meyja
(23. ágúst - 22. september)
Ef þú átt við vandamál að
stríða, ættir þú að þiggja
með þökkum þá aðstoð, sem
býðst í dag. Hún leiðir til
góðrar lausnar.
Vog
(23. sept. - 22. október)
Vertu ekki óþarflega hör-
undsár þótt þér líki ekki van-
hugsuð orð vinar í dag.
Reyndu að sýna þolinmæði,
því hann vill þér vel.
Ljósm. Norðurmynd/Ásgrímur
BRÚÐKAUP. Gefin voru
saman 1. júní sl. í Akur-
eyrarkirkju af sr. Svavari
Alfreð Jónssyni Ásdís
Skúladóttir og Jón Krist-
inn Signrðsson. Heimili
þeirra er á Melasíðu 3,
Akureyri.
Sþoródreki
(23. okt. -21. nóvember) ^(0
Gefðu þér nægan tíma til
umhugsunar áður en þú tek-
ur mikilvæga ákvörðun varð-
andi fjármálin. Þér verður
boðið i samkvæmi.
Bogmaöur
(22. nóv. - 21. desember) m
Þér býðst í dag óvænt tæki-
færi til að fara í spennandi
ferðalag fljótlega. Þú ættir
að nota kvöldið til að sinna
fjölskyldunni.
Steingeit
(22. des. - 19.janúar)
Þótt þú hafir komið ár þinni
vel fyrir borð t vinnunni, og
tekjumar fari vaxandi, er
óþarfi að eyða öllu jafnóðum
í dag, 23. júní, á
Jónsmessu verður
ágætur veiðifélagi okk-
ar og vinur sjötugur.
Ólafur Ólafsson vegg-
fóðrari Leifsgötu hér í
borg er maðurinn sá,
og viljum við félagar
senda honum hugheilar
árnaðaróskir á þessum
tímamótum. Það er
afar fjarri lagi að Ólafi
líkaði, að frá okkur
kæmu skrif um hól og
lof, eða slegna gull-
hamra, því hann er í
eðli sínu mjög svo hlé-
drægur og af hjarta lí-
tillátur. Það er þó
næsta ógerlegt að
senda honum línu án þess að þakka
allar ágætar stundir í þá mörgu
áratugi, sem við höfum stundað
veiðar saman og allt er við höfum
bjástrað. Ólafur er fæddur og uppal-
inn í Reykjavík og sleit barnsskónum
við Laugaveg og Hlíðarenda, en eft-
ir að hann stofnar sitt eigið heimili,
hefur hann búið lengst af við Leifs-
götu. Eftir venjulegt grunnskólanám
fór Ólafur í Iðnskólann í Reylqavík
og lauk þaðan prófi árið 1946, en í
)á daga var það talinn ágætur kost-
ur fyrir unga duglega menn að ljúka
prófi úr þeim skóla. Þá var verknám
í heiðri haft.
Veggfóðrun, dúka- og tejppalagn-
ing varð hans ævistarf. Á þessari
iðngrein sinni náði hann ótrúlega
góðum tökum, og höfum við það
fyrir satt að snilli hans, hraði og
verklag allt sé eitt hið besta sem
hér þekkist. Við félagar höfum oft
haft það í flymtingum að hann sé
búinn að skríða fyrir stórmenni
iessa lands í hálfa öld, og sé enn
við sama heygarðshornið. Sam-
viskusamur er hann og bóngóður
með eindæmun, og leysir vandamál
allra er til hans leita eftir bestu
getu. Reglusamur er hann í hví-
vetna. Ólafur hefur valist til margra
trúnaðarstarfa í áranna rás. Hann
var lengi í stjórn Félags veggfóðr-
arameistara og formaður þess í
mörg ár, sat lengi í stjórn Stanga-
veiðifélags Reykjavíkur og í ár-
nefndum þess, í stjórn Sjóstanga-
veiðifélags Reykjavíkur, rak um
tíma verslun með öðrum og svo
mætti áfram telja. Aðaláhugamál
hans utan vinnu sinnar eru veiðar
með stöng hvort heldur er á sjó eða
við vötnin ströng, árnar okkar sem
hann hefur mikið yndi af að sækja
heim. Hann er veiðimaður frábær
Vatnsberi
(20. janúar - 18. febrúar)
Ef lausnin á smá vandamáli
heima vefst fyrir þér, ættir
þú að hætta leitinni og hugsa
um eitthvað annað. Þú finn
ur svarið síðar.
Fiskar
(19. febrúar-20. mars) *
Það er óþarfí að kvíða því
að þurfa að sækja mann
fagnað í dag, því þú átt eft
ir að skemmta þér betur
þú bjóst við.
// T/e/uróa nú lent í bardagQ. einusinnC cnnf?
Stjömuspána á að lesa sem
dægradvöl. Spár af þessu tagi
byggjast ekki í traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
og stundar íþrótt sína
af kappi miklu en um
leið af forsjálni, og
gengur aldrei á hlut
annarra við veiðarnar,
heldur sýnir öllu í um-
hverfinu fyllstu tillit-
semi að hætti náttúru-
unnandans. Það er
ótrúlega gott að um-
gangast mann sem
Olaf, einstaklega
geðprúðan, traustan,
reglusaman sómamann
sem eigi má vamm sitt
vita. Honum mislíkar
örugglega þessi upp-
talning orða okkar, en
sönn eru þau.
Vinátta okkar hefur
haldist í tugi ára, og aldrei fallið
skuggi þar á. Hún hefur styrkst og
eflst eftir því sem árin líða. Sá er
vinur sem í raun reynist, og það
þekkja allir. Sterk vináttubönd og
tryggð er farsælasta veganestið til
æðstu gæða, slík bönd taka til alls
sem manninum finnst ómaksins
vert að sækjast eftir í lífinu. Séu
þessi vináttubönd fyrir hendi erum
við sæl með lífið, ef þau skortir
erum við vansæl. Áherslu ber því
að leggja á það að velja vini af
kostgæfni. Ólafur okkar valdi sér
lífsförunaut og vin er hann gekk
að eiga Valgerði Hannesdóttur árið
1955, hina ágætustu konu sem
búið hefur þeim afar fallegt og
gott heimili, þar sem gott er að
koma og njóta gestrisni í ríkum
mæli. Börn þeirra hjóna eru þrjú,
öll hin mannvænlegustu; Hannes,
Björg og Valgerður. Við félagarnir
viljum hér með óska þeim hjónum
innilega til hamingju á þessum
tímamótum, um leið og við sendum
börnum þeirra, mökum barnabörn-
um og öðru venslafólki öllu, okkar
ágætustu kveðjur, með innilegri
þökk fyrir allt gamalt og gott á liðn-
um árum. Ólafur býður til veislu á
afmælisdeginum eins og honum er
einum lagið að höfðingjasið í húsi
Læknafélags íslands, Hlíðasmára 8.
Kæri vinur. Innilegustu afmælis-
óskir færum við þér með þessum
fátæklegu orðum á þessum merka
degi.
Lifðu heill um ókomna framtíð,
og njóttu í ríkum mæli útivistar
með stöng í liönd við vötnin ströng.
Þess óska þér af alhug:
Jóhann Guðmundsson,
Halldór Þórðarson,
Friðleifur Stefánsson,
Kjartan Zophaníasson.
Ásmundur Gunnlaugsson
Y06A ?
Jóganámskeið
GrunnnámskeiÖ 2.-22. júlí, mán. &roið. kl. 20.00-21.30
(7 skipti). Kenndar verða m.a. jógastöður, öndunarætingar,
hugleiðsla og slökun.
Jóga gegn kvíða
2.-23. júlí, þri. & fim. kl. 20.00-22.15 (7 skipti).
Námskeið fyrir þá scm eiga við kvíða og fælni að stríða
og/eða cru að ganga í gegnum miklar brcytingar í lífinu.
Kenndar verða leiðir til að slaka á og öðlast aukið frelsi
og lífsgleði. Engin reynsla eða þekking á jóga nauðsynleg.
Leiðbeinandi Asmundur Gunnlaugsson jógakennari.
Hátúni 6A, 105 Reykjavík,
símar 511-3100.
Hringið eða skrifið
og fáið nýja pöntunar-
listann fyrir 1996
sem er með allt
fyrir barnið þitt.
ÓLAFUR ÓLAFSSON
STJÖRNUSPÁ