Morgunblaðið - 23.06.1996, Síða 44
MORGUNBLAÐIÐ
44 SUNNUDAGUR 23. JÚNÍ 1996
Stóra sviðift kl. 20.00:
• TAKTU LAGIÐ LÓA eftir Jim Cartwright
í kvöld uppselt. Sföasta sýning í Reykjavík, leikferö hefst með 100. sýningu leikverks-
ins á Akureyri 27/6.
Miöasalan verður opin í dag frá kl. 13.00-20.00.
Sími miðasölu 551 1200 - Sími skrifstofu 551 1204.
Litla svið kl. 14.00
0 GULLTARAÞOLL eftir Ásu Hlín Svavarsdóttur, Gunnar Gunnarsson
og Helgu Arnalds.
Handrit: Gunnar Gunnarsson.
Leikstjóri: Ása Hlín Svavarsdóttir.
Leikmynd, búningar og grfmur: Helga Arnalds.
Tónlist: Eyþór Arnalds.
Leikarar: Asta Arnardóttir, Ellert A. Ingimundarson og Helga Braga Jónsdóttir.
Forsýningar á Listahátið í dag og sunnud. 23/6.
SAMSTARFSVERKEFNI VIÐ LEIKFÉLAG REYKJAVÍKUR
Leikfélag íslands sýnir á Stóra sviði kl. 20.00.
• STONE FREE eftir Jim Cartwright.
Frumsýning fös. 12. júlí, 2. sýn. sun. 14. júlí, 3. sýn. fim. 18. júlí.
Forsala aðgöngumiða hafin.
Miðasalan er opin frá kl. 15-20. Lokað á mánudögum. Tekið er á móti miðapóntunum
í síma 568-8000. Skrifstofusími er 568-5500.
Faxnúmer er 568-0383.
Gjafakortin okkar — frábær tækifærisgjöf!
FÓLK í FRÉTTUM
ÁHORFENDUR voru vel með á nótunum.
Morgunblaðið/Þorkell
Reggítónar
kynntir
HUÓMSVEITIN Reggae On Ice
hélt útgáfutónleika á Astró síðast-
liðið miðvikudagskvöld. Tilefnið
var útgáfa á geislaplötu sveitar-
innar og fluttu liðsmenn hennar
að sjálfsögðu lög af plötunni.
Fjöldi áhorfenda sótti tónleikana
eins og sést á annarri af meðfylgj-
andi myndum.
HLJÓMSVEITIN Reggae On
Ice í góðri sveiflu.
Leikið tveim
skjöldum
KVIKMYNPIR
Háskólabíó
INNSTI ÓTTI
(„Primal Fear“) ★ ★ ★
Leikstjóri Gregory Hoblit. Handrits-
höfundur Steve Shagan og Ann Bid-
erman. Kvikmyndatökustjóri Mich-
ael Chapman. Tónlist James Newton
Howard. Aðalleikendur Richard
Gere, Laura Linney, John Mahoney:
Alfre Woodard, Frances McDor-
mand, Ekiward Norton. Bandarísk.
Paramount 1996.
ÚTLITIÐ er svart hjá kórdrengn-
um Aaron (Edward Norton). Þessi
stamandi, óframfærni flækingur frá
Suðurríkjunum hafði verið hirtur
upp af öngstrætum Chicago af erki-
biskupi borgarinnar fyrir tveimur
árum. Nú situr hann inni, grunaður
um hroðalegt morð á velgjörðar-
manni sínum. Málið er talið upp-
lýst, enda pilturinn gripinn nærri
morðstaðnum, útataður blóði
fómarlambsins. Þá kemur til sög-
unnar lagarefurinn Martin Vail
(Richard Gere), kunnur fyrir að
taka að sér varnir í málum sem
efst eru á baugi og hafa betur.
Vail er bjartsýnn og telur sig kom-
inn vel á veg með að upplýsa málið
er það tekur nýja og óvænta stefnu.
Bak við vammlausar grímur geist-
legra og veraldlegra leiðtoga borg-
arinnar leynast vafasamar persónur
sem leika tveim skjöldum. Hvað
með morðingjann?
í það heila tekið er Innsti ótti
góð afþreying, vel gerð blanda af
morðgátu og réttarsalsdrama. Að
visu ekki ýkja frumleg, þó er
skemmtileg og óvænt flétta (sem
ekki má kvisast út) undir lok mynd-
arinnar sem gerir henni mikið gott.
Annar handritshöfundurinn er
Steve Shagan, hann vann til Ósk-
arsverðlaunanna fyrir einum 16
árum fyrir eftirminnilega gott
handrit að Save the Tiger, mynd
sem jafnframt færði stórleikaranum
Jack Lemmon sín einu Óskarsverð-
laun fyrir leik í aðalhlutverki. Síðan
hefur Shagan fátt gert markvert
og gott til þess að vita að Eyjólfur
sé að braggast, því Innsti ótti lum-
ar á nokkrum, góðum köflum utan
lokaþáttarins fyrrgreinda, það er
óhugnaður í loftinu og fátt sem
sýnist. Vissulega stinga upp kollin-
um gamalkunnar klisjur í loftinu,
en fleiri góðir þættir koma til hjálp-
ar. Tónlist James Newtons How-
ards og taka Michaels Chpmans
vega þyngst og leikstjóm Gregory
Hoblits er örugg og útsjónarsöm
Hér er þó um fyrstu bíómynd hans
að ræða, en áður hefur hann unnið
sig í álit sem snjall leikstjóri sjón-
varpsmynda sem gerst hafa í réttar-
sölum (m.a. L.A. Law, sem mddi
þáttunum vinsælu braut). Leikar-
arnir eru einnig vel valdir og standa
fyrir sínu. Gere er þó ekki sérstak-
lega trúverðugur í hlutverki refsins
(þrátt fyrir gleraugnabrelluna).
Hann er hinsvegar brattur, sá ágæti
eiginleiki bjargar honum sem
endranær. Lítið reynd en athyglis-
verð leikkona, Laura Linney, fer
með aðalkvenhlutverkið, sækjand-
ann í málinu og fyrrum hjásvæfu
Vails og gerir það vel. Þrír traustir
skapgerðarleikarar komast vel frá
litlum hlutverkum, þau John Ma-
honey, Alfre Woodard og Frances
McDormand. Það er hinsvegar ný-
liðinn Edward Norton sem stelur
senunni í erfíðu, margbrotnu hlut-
verki hins grunaða. Það er sannar-
lega gefandi og litríkt og nýliðinn
kann það vel að meta og fær að
öllum líkindum Óskarsverðlaunatil-
nefningu fyrir vikið. Hér er komin
mynd sem kemur skemmtilega á
óvart.
Sæbjörn Valdimarsson
MorgunMaðið/Áadfs
OLÍUBÍLL frá fimmta áratugnum í eigu félagsins var tll sýnis fyrir utan Hótel ísland þar sem
tekið var á móti gestum með lúðraþyt.
MARGRÉT Baldursdóttir ræðir hér við Óskar RAGNAR J. Bogason framkvæmdasljóri,
H. Gunnarsson. Þórólfur Ámason framkvæmdastjóri og
Kristinn Hallgrímsson hrl. ræddu saman.
ESSO
50ára
OLÍUFÉLAGIÐ hf., ESSO, hélt
upp á 60 ára afmæli sitt á Hótel
íslandi 14. júní. Viðskiptamenn,
starfsmenn og aðrir velunnarar
félagsins komu þar saman og
veislustjóri var Kristján Loftsson
stjórnarformaður fyrirtækisins.
Ifyrirtækið afhenti tvo styrki til
mannræktarmála, eina milljón
króna hvom. Þá hiutu Vfmuvama-
skólinn og Styrktarfélag vangef-
inna, en báðir aðilar þykja hafa
unnið brautryðjendastarf í mann-
rækt á íslandi. Einnig söng Karla-
kór Reykjavíkur nokkur lög.
GEIR Magnússon forstjóri fyrirtækisíns, Kristín Bjömsdóttir
og Krislján Loftsson stjórnarformaður vom í hátíðarskapi.