Morgunblaðið - 23.06.1996, Side 47
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 23. JÚNÍ 1996 47
TRUFLUÐ TILVERA
2 #3 #4
í haepnasta svaði
Sýnd kl. 3, 5. 7, 9, og 11 í THX DIGITAL
Vaski gi
Sýnd kl. 3 og 5 fsl. tal.
Sýnd kl. 7.05 enskt tal.
Forsýning í kvöld kl. 11 í THX digital
£4MMOi
Grínsprengja ársins er komin. Leslie Nielsen (Naked Gun)
er njósnarinn Steele, Dick Steele og nú geta illmennin
fariö aö pakka saman.
Aðalhlutverk: Leslie Nielsen, Andie Griffith, Nicolette
Sheridan og Charles During.
DIGITAL
Kletturinn
Ein stærsta kvikmynd sumarsins er komin til íslands.
Óskarsverdlaunahafarnir Scan Connery og Nicholas Cage fara á kostum í
magnaöri s'pennumynd ásamt fjölda annara heimsþekktra leikara.
Alcatrazkletturinn hefur verið hertekinn og hótað er sprengjuárás á San
Fransisco. Á meðan klukkan tifar er árás á Klettinn skipulögð og til aðstoðar
er fenginn eini maðurinn sem nokkru sinni hefur flúið Klettinn... lifandi.
m m n
fM
t wmm
Vel dulbúin
mæðgin
► MEG RYAN, leikkonan kunna,
kann greinilega að dulbúast,
enda er sjálfsagt ekki vanþörf á
þar sem stjömurnar verða oft
og tíðum fyrir áreitni á götum
úti vestra. Á þessari mynd sést
að meira að segja sonur Meg,
Jack, er farinn að ganga með
sólgleraugu til að þekkjast síður.
TONLIST
Gcisladiskur
MARTRAÐIR
Martraðir, geisladiskur hljómsveitar-
innar Leiksviðs fáránleikans. Ýmsir
koma við sögu, enda diskurinn tekinn
upp á löngum tíma, helst þeir
Alfrerð Alfreðsson sem leikur á
trommur, Ágúst Karlsson gítarleik-
ari og söngvari, Jóhann Vilhjálms-
son, söngvari, Hreiðar H. Hreiðars-
son söngvari, Jón Harry Óskarsson
bassaleikari og Sigurbjöm Rafn
Úlfarsson hryngítarleikari. Ýmsir
tóku upp á ýmsum stöðum.
Hljómsveitn gefur sjálf út.
56,57 mín., 1.999 kr.
LEIKSVIÐ fáránleikans á sér
langa sögu í íslensku rokki, þó
ekki hafi hún gefið út plötu áður.
Þannig hefur sveitin verið iðin við
tónleikahald í um áratug, þó á
stundum hafi við legið að sveitin
hætti og breytti um nafn um tíma.
Kjarninn hefur þó ævinlega verið
sá sami og iðulega mátti hafa
gaman af tónleikum sveitarinnar.
Það heyrist og víða á disknum sem
hér um ræðir að þeir félagar kunna
vel til verka; iðulega er keyrslan
hvöss og ákveðin, eins og til að
mynda í laginu Sulti, grípandi
fokklag, og reyndar er upphafslag
LEIKSVIÐ fáránleikans.
Agæt nasasjón
diskins, Hiti, einnig skemmtilegt,
Jarðarber er mikil gítarveisla og
fleiri lög mætti tína til. Yfirleitt
vantar þó herslumuninn á að lögin
lifni og betur hefði mátt vinna lög
eins og Sult, Hanaat, Við ána og
Skuggamann, þó Hanaat sé eitt
besta lag disksins og góður sprett-
ur í upphafi Við ána. Skuggamað-
ur er reyndar gott dæmi um góða
drungalega hugmynd sem koðnar
niður í tilgerð. Annað lag sem líð-
ur fyrir stefnuleysi er Eldhola þar
sem þeir Leiksviðsmenn brydda
upp á ýmsum nýjungum í útsetn-
ingu, bæta meðal annars við sig
lágfiðlu, en ómarkvisst.
Martraðir gefa ágæta
nasasjón af því hve Leik-
sviðið gat verið skemmtilegt
á tónleikum þegar best
tekst til, en heildarsvipur
plötunnar er ansi dauflegur,
að ekki sé tekið tillit til þess
að hún er afrakstur tíu ára
starfs sveitarinnar. Það er
aðeins í stöku lögum sem
allt gengur upp, eins og til
að mynda í Sandi, sem er
geysigott lag, og áður-
nefndu Hanaati, sem er
grípandi poppað rokk. Plat-
an er einfaldlega of löng og
of kaflaskipt.
Söngurinn er akkilesar-
I hæll Leiksviðsins í flestum
Morgunbiaðið/Ásdís lögum, ýmist eru þau illa
sungin eins og fyrstu þrjú
lögin, eða söngur er sér-
kennilega staðsettur í hljóðblönd-
un, eins og til að mynda í Kadil-
ökkum, sem Jóhann syngur þó lip-
urlega.
Textar á plötunni eru á íslensku
og því sérkennilegt að sjá texta
aftan á disknum á ensku, eins og
hann sé sérstaklega ætlaður fyrir
enskumælandi, en kannski hyggj-
ast Leiksviðsmenn á landvinninga.
Til þess að það megi auðnast verða
þeir að skerpa lagasmíðar og fága
tónmálið.
Árni Matthíasson
Fólk