Morgunblaðið - 23.06.1996, Blaðsíða 50
50 SUNNUDAGUR 23. JÚNÍ 1996
MORGUNBLAÐIÐ
ÍÞRÓTTIR
KNATTSPYRNA
Norrænn baráttufótbotti
með suðrænum sambatakti
töm
FOLK
■ CARLO Ancelotti hefur verið
ráðinn þjálfari hjá Parma. Ancel-
otti, var _ aðstoðarmaður Arrigo
Sacchi er ítalir náðu í úrslit á HM
í Bandaríkjunum 1994. Ancelotti,
sem lék áður með Parma, tekur við
af Nevio Scala. Parma hefur keypt
fimm nýja leikmenn fyrir næsta
tímabil; Enrico Chiesa, Frakkana
Daniel Bravo og Lilian Thuram,
Argentínumanninn Hernan Cre-
spo og Braislíumanninn Rivaldo.
Búlgarinn Hristo Stoichkov er
einnig á leikmannalistanum.
■ ARTUR Jorge, landsliðsþjálfari
Sviss, verður næsti þjálfari FC
Porto ef marka má fréttir dagblaða
í Portúgal. Joreg, sem er portúg-
alskur og tók við landsliðinu af Eng-
lendingnum Roy Hodgson í desem-
ber, er samningsbundinn svissneska
landsliðinu til 1998 og koma því
þessar fréttir mörgum á óvart. „Ég
trúi því ekki að Jorge ætli að bijóta
samninginn við okkur,“ sagði Peter
Benoit, talsmaður svissneska knatt-
spyrnusambandsins er þessar fréttir
voru bomar undir hann.
■ KENNET Andersson, landsliðs-
maður Svía, hefur gengið til liðs við
Bologna á Ítalíu. Andersson lék
með Bari, sem féll í 2. deild.
■ MIKE Walker hefur á ný tekið
við starfi knattspyrnustjóra hjá
Norwich City. Walker stjómaði
Norwich fyrir nokkrum árum og
kom þeim m.a. í UEFA-keppnina
fyrir þremur árum þar sem það sló
Bayern Munchen úr leik áður en
það tapaði fyrir Inter Milan.
■ WALKER hætti síðan fyrirvara-
laust hjá félaginu nokkru síðar þrátt
fyrir að vera með gildandi samning
og tók við hjá Everton. Hann stopp-
aði hins vegar ekki lengi hjá Everton
og var rekinn frá þeim í janúar í
fyrra. í millitíðinni hafði Everton
verið sektað af enska knattspyrnu-
sambandinu fyrir að bjóða honum
starf á sama tíma og hann var í vinnu
hjá öðru félagi.
■ EFTIR að Walker hafði verið
rekinn frá Everton lýsti hann þvi
yfir að hann kæmi ekki til Norwich
á ný á meðan Robert Chase væri
stjórnarformaður. Chase sagði af sér
nýlega og ný stjórn félagsins lét það
verða eitt af sínum fyrstu verkum
að ráða Walker sem knattspyrnu-
stjóra, en hann nýtur mikillar hylli
hjá stuðningsmönnum félagsins.
í ÚTJAÐRI Gautaborgar f Sví-
þjóð, í hverfinu Hjállbo, á
bækistöðvar fyrstu deiídar lið
íknattspyrnu Gunnilse IS.
Síðastliðið haust varð ungl-
ingalið félagsins, skipað 18
ára leikmönnum, sænskur
meistari. Þetta væri í sjálfu
sér tæplega í frásögur fær-
andi, ef ekki vildi svo til að
annar þjálfara liðsins í ár er
íslendingur, Pétur Róberts-
son 34 ára gamall. Á dögunum
heimsóttu Morgunblaðsmenn
Pétur á Hjállbovallen og litu
um leið á leik liðs hans gegn
unglingaliði meistara IFK
Gautaborgar. Fyrst lék okkur
forvitni á hvernig það hefði
atvikast að Pétur fór að þjálfa
unglingameistara Svíþjóðar?
íslendingurinn Pétur
Róbertsson þjálfar ungl-
ingaliðið Gunnilse IS,
sem er m.a. skipað leik-
mönnum af sjö þjóðern-
um í Gautaborg. Grétar
Þór Eyþórsson hitti
íslenska þjálfarann
að máli á dögunum.
Þetta kom þannig til að ég fór
á íþróttalínu við lýðháskólann
hérna í haust. Einn kennaranna
þar er Ulf Carlsson sem er þekkt-
ur þjálfari og yfirmaður kennslu-
mála hjá knattspymusambandi
Gautaborgar og jafnframt þjálfari
1. deildar liðs Gunnilse. Þeir hjá
félaginu báðu hann um að velja
unglingaþjálfara úr skólanum og
hann vildi mig. Ég byijaði síðan
sem aðstoðarþjálfari í vor, en þeg-
ar aðalþjálfarinn hætti var mér
boðið að verða annar aðalþjálfar-
anna.“
Þannig að leiðin hefur legið upp
á við hjá þér síðustu mánuði?
„Já, það er óhætt að segja það.
Mér þykir þetta að sjálfsögðu mik-
ill heiður að vera valinn svona og
ekki versnaði það þegar mér var
svo boðið að verða einn af leiðbein-
endunum á tækninámskeiði sem
knattspymusamband borgarinnar
heldur fyrir útvalda unglinga í
júní.“
Hlúð þétt að strákunum
Hvernig er æfíngaaðstaða og
annar aðbúnaður hjá liði Gunnilse?
„Aðstaðan er góð, hér er aðal-
völlurinn auk æfingavalla og stórs
félagsheimilis. Hér er hlúð þétt
að strákunum. Við æfum núna
fjórum sinnum í viku auk leikja.
Við höfum einnig farið í æfinga-
búðir í útlöndum og í lok maí fór-
um við sem Svíþjóðameistarar á
sterka alþjóðlega tumeringu í
Arnhem í Hollandi.
Það þykir kannske einhveijum
Morgunblaðið/Golli
UNGLINGALIÐ Gunnilse vakti mikla athygli í fyrra er þeir urðu
meistarar og spilaði ð köflum sambafótbolta.
mikið, en félagið veitir u.þ.b.
200.000 sænskum krónum í liðið
í ár, en það er lítið sé t.d. borið
saman við IFK Gautaborg, sem
mér er sagt að leggi 2,5 miljónir
í sitt unglingalið."
Leikmenn
frá sjö þjóðum
Unglingalið Gunnilse vakti
mikla athygli í fyrra er þeir urðu
meistarar, þar sem liðið var skipað
nánast „allra þjóða kvikindum “ og
spilaði á köflum sambafótbolta.
Er þetta svona ennþá?
„Já her eru leikmenn af sjö þjóð-
emum: Frá Svíþjóð, Finnlandi,
Noregi, Serbíu, Cap Verde, Eritreu
og loks tyrknesku Kúrdi. Allt em
þetta börn innflytjenda. Svo er ég
auðvitað íslenskur!"
Og hvernig er að setja saman
lið úr svona blöndu?
„Það er ekki alltaf einfalt. Það
þarf að láta Evrópumennina falla
að sambastíl og tileinka sér tækni
Afríkumannanna og um leið að
kenna þeim að tileinka sér baráttu-
anda Evrópubúa og að gefast ekki
upp, þó á móti blási. Þetta tekst
því miður ekki alltaf, eins og t.d.
í dag þar sem við töpum 1:6 gegn
IFK Gautaborg, sem við unnum
um daginn með 5:3. Það þarf því
að ná betra jafnvægi á stemmn-
inguna í liðinu. Það er ekki knatt-
spyrnuleg geta sem er vandamálið
hér.“
OPNA
OMK
Ó. Johnson & Kaaber hf
M0TIÐ
verður haldið í Urriðavatnsdölum
29. júní n.k.
Leiknar verða 18 holur - glæsileg verðlaun veitt fyrir þrjú efstu sætin
með og án forgjafar - lengsta teighögg á 3ju braut, næst holu á
4/13 & 6/15 braut.
Ræst verður út frá
kl. 8-10 og 13-15.
Skráning fer fram í golfskála
Oddfellowa sem opinn er frá
10-22 alla daga í síma 565 9092.
mm
ró
Ó. Johnson & Kaaber hf
PÉTUR Róbertsson byrjaði
sem aðstoðarþjálfari í vor,
en þegar aðalþjálfarinn
hætti var honum boðið að
verða annar aðalþjálfaranna
hjá Gunnilse IS.
Áhersla lögð
á uppbyggingu
Er pressa á þjálfaranum að end-
urtaka sigurinn frá í fyrra?“
„Nei, alls ekki. Félagið hefur
sett sér sem fyrsta markmið að
við komust í 16-Iiða úrslitin og
allt umfram það sé aukageta. Það
gengu alls fimm leikmenn uppúr
flokknum í fyrra og því er styrk-
leikinn kannske ekki alveg sá
sami. Félagið leggur mikla áherslu
á uppbyggingu yngri flokkanna
og það er yfirlýst markmið að í
aðaliðinu sé a.m.k. helmingurinn
heimamenn. “
Að lokum Pétur. Læturðu þig
dreyma um titilinn?
„Nei, ég geng ekki svo langt,
en ég veit að möguleikinn er fyrir
hendi, ef vel tekst til. Við erum
örugglega eitt af fjórum bestu Iið-
um landsins í dag.“
Johansson
ánægður
með EM
LENNART Johansson forseti
UEFA hefur fylgst grannt
með Evrópumótinu á Eng-
landi. Hann hefur lýst yfir
ánægju með framkvæmd
mótsins og framkomu stuðn-
ingsmanna liðanna sem tug-
þúsundum saman hafa komið
til landsins. „Umgjörð keppn-
innar og andrúmsloftið hefur
verið frábært og þar eiga
áhorfendur ekki hvað sistan
þátt með jákvæðri framkomu
utan vallar janft sem innan,“
sagði Johansson.
Um þá gagnrýni sem fram
hefur komið á störf dómara
og að þeir hafi farið offari í
að gefa gul spjöld, einkum í
fyrstu leikjunum sagði Jo-
hansson. „Þeir fylgdu bara
þeim skipunum sem þeim
voru gefnar fyrir keppnina
og ég held að allir geti verið
sáttir. Dómararnir tóku hart
á brotum enda hafa engin slys
eins og fórbrot átt sér stað.“