Morgunblaðið - 23.06.1996, Síða 11
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 23. JÚNÍ 1996 B 11
KINVERSK stúlka með Down-heilkenni við saumaskap.
GREINARHÖFUNDUR með gestgjöfum sínum úr skólanum. Skólastjórinn er annar frá hægri en frú
Zhang, starfsmaður íslenska sendiráðsins í Peking, lengst til hægri.
mennt séð, svo vikið sé að lang-
vinnri, hugmyndafræðilegri deilu.
Þar eru valkostir þegar hentar, þar
eru menntasetur sérkennara og
dýrmætur þekkingarbrunnur.
Hvað sem líður ólíkum aðstæðum
var í senn forvitnilegt og ánægjulegt
að heyra og fínna að viðhorf og við-
leitni eru þau hin sömu í þessum
efnum svo langt í austurvegi og hér
uppi á þessari makalausu gijóthrúgu
við norðurheimskautsbaug.
Tónlist og tölvuver
Eftir gott spjall og tedrykkju var
boðið í skoðunarferð um skólann.
Okkur var vísað um myndarlega
byggingu með þeirri elskulegu kurt-
eisi og reisn sem einkenndi allt við-
mót gestgjafa minna.
Fyrst varð fyrir tónlistarstofan
þar sem fram fór hreyfiþjálfun
10-12 nemenda eftir píanóleik og
klappi kennarans. Og þarna voru
málmgjöll og fleiri ásláttarhljóðfæri
eins og vera ber. Það sem vakti
sérstaka athygli þarna, eins og
reyndar víðar í stuttri viðkynningu
minni við kínverskt þjóðlíf, var sam-
stillingin, samhljómurinn, sam..., -
það er erfitt að finna rétta orðið.
Ef til vill er rétta hugtakið ekki til
í tungu fámenns samfélags á norð-
urhjara þar sem ailir eru konungar
og drottningar, prinsar og prinsess-
ur, hver á sinn hátt vegna rýmis
og velmegunar, - miðað við óhjá-
kvæmilega tilhliðrunarsemi fjöl-
mennisins þar eystra. En það segir
sitt að þarna hljómaði nemendahóp-
urinn eins og ein rödd, hvort sem
var í söng ellegar þegar heilsað var
og kvatt í tónlistarstofunni, sem
öðrum stofum. Og röddin hljómaði
sjálfkrafa og ótilkvödd. Ugglaust
er það mikilvægur þáttur í námi
kennara í svo fjölmennu landi að
efla sjálfsstjórn nemenda og ná aga
meðal þeirra með því að þjálfa sam-
stillingu hópsins. Og ekki fór hjá
því að slíkur samhljómur fjöldans
einkenndi mannlífið víðar þar sem
ég fór um þessa miklu borg.
Ég varð dálítið hvumsa þegar við
litum inn í næstu stofu. Víst var
mér ljóst að Kínverjar kunna margt
fyrir sér í flókinni tækni og víða
sjást þess merki, en borgarlífið í
Peking einkennist ekki síður af
frumstæðum aðferðum í samgöng-
um, vinnuaðferðum og verslun. Eg
hafði vitaskuld tekið eftir þeim
fjölda manna sem hafa til reiðu
fótstigna „leigubíla“, eins konar
þríhjól með þægindasæti aftan við
„bílstjórann", og ég hafði séð
fimmtán manna skófluher jafna úr
malarhlassi sem sturtað var af
vörubíl - engin jarðýta nálæg -
og sem bílaáhugamanni varð mér
einatt starsýnt á vörubíla og stræt-
isvagna sem hefðu þótt gamaldags
hérlendis fyrir 30 árunp
Ég átti því frekar von á að tækn-
in væri með frumstæðara móti í
skólakerfinu líka. En það gerði mig
hvumsa að þarna blasti við tölvu-
ver; afar nútímaleg kennslustofa
þar sem hver og einn nemandi
stungumeðferð, allir með nálar í
höfðinu. Sumir voru með nálamar
einar, aðrir með nálar tengdar raf-
rænni örvun úr þar til gerðum tækj-
um.
Þarna voru skólalæknirinn og
annar til, sérfræðingur í greininni,
sem og hjúkrunarfræðingur. Ég verð
að játa að fyrsta hugsun var: Ég er
í Kína, hér er beitt nálarstungumeð-
ferð, þetta er sögulegt, má ég taka
myndir? Það var velkomið. Svo ég
tók myndir af nokkrum bömum, og
síst höfðu þau á móti því. Vildu
endilega að ég tæki fleiri.
Ég hlaut að spyija: Við hveiju
er þessi meðferð? Læknarnir sögðu
að margt mætti bæta með þessum
hætti og nefndu dæmi um að minnka
mætti slef, sem er algengt vanda-
mál hjá þroskaheftum börnum með
slaka vöðvaspennu, og hjálpa þeim
sem hætti til að pissa undir á nótt-
unni. Og þeir vom ekki í nokkmm
vafa um að meðferðin virkaði vel.
Ég gat ekki annað en hrifist með,
en hafði ekki forsendur til þess að
meðtaka hinn fræðilega gmndvöll
aðferðarinnar. Ljóst er að þroska-
hömluninni sem slíkri verður ekki
breytt á þennan hátt, en rökrétt er
að hugsa sem svo að hafa megi
áhrif á þá þætti sem lúta beinlínis
að stoð- og hreyfíkerfi líkamans, svo
sem örvun taugaboða til vöðva.
Eitthvað mun vera um nálar-
stungumeðferð hérlendis og vissu-
lega væri forvitnilegt
að þeir sem gerst til
þekkja í þeim efnum
könnuðu frekar hvað
þarna er á ferðinni.
Víst er að þessi al-
dagömlu reynsluvís-
indi em allrar at-
hygli verð.
skygndist um skjá og lék sér við
lyklaborðið. Þarna undu sér ein
fimmtán börn vel við sitt. Tíu ára
gömul stúlka sem ég fylgdist með
um stund var niðursokkin í kennslu-
forrit sem æfði hana í frádrætti:
Fimm bangsar mínus þrír bangsar,
það gerir tvo bangsa. Ekki vafðist
það fyrir henni, frekar en níu kanín-
ur mínus fjórar.
Á nokkrum tölvum var skilti þar
sem stóð að þær væru gjöf frá
bandarískri styrktarstofnun. Það
kom enda á daginn að Pei Zhi-skól-
inn á sér bandamenn austan megin
hafsins, m.a. tvo hliðstæða skóla í
Bandaríkjunum. Hjörtum mann-
anna svipar augljóslega einnig sam-
an beggja vegna Kyrrahafsins.
Saumavélar og
nálarstungumeðferð
Okkur var heilsað með jafn sam-
stilltri röddu í næstu stofu, enn sem
fyrr líkastri ósjálfráðu viðbragði,
þar sem nokkrir eldri nemendur,
13-16 ára, grúfðu sig yfir sauma-
vélar af miklum áhuga. Þeir voru
mislangt á veg komnir í sauma-
skapnum, sumir æfðu sig á pappír,
aðrir földuðu dúka af mikilli list.
Saumavélarnar voru fótstignar.
Það var engin tilviljun og réð þar
hvorki skortur á tækni né raf-
magni. Ég minntist þess sem Lun
skólastjóri sagði í spjalli okkar fyrr
um morguninn um að skólinn legði
sérstaka áherslu á starfsþjálfun svo
nemendur gætu unnið hagnýt störf
að námi loknu. Það kom ekki á
óvart, né heldur það sem hann lét
í ljós um mikilvægi saumavéla í því
sambandi. Þar færi saman þjálfun
fín- og grófhreyfinga, ásamt með
samhæfíngu við sjónina. Hinar fínni
hreyfingar birtust í saumsporinu -
í samvinnu við augað - þær gróf-
ari í fótstiginu. Og samhæfingin á
milli sjónar og hreyfinga væri afar
mikilvæg þroskanum. Mér varð
hugsað til þess að vinnufélagar
mínir við Greiningar- og ráðgjafar-
stöðina hefðu tekið heilshugar und-
ir þessi sjónarmið.
Þegar mér varð ljóst í upphafi
Peking-dvalarinnar að ég ætti þess
kost að hitta að máli samstarfsfólk
Þau biðja að
heilsa
„Atta nemendur í
nálarstungumeð-
ferð, allír með nálar
í höfðinu. Sumir voru
með nálarnar einar,
aðrir með nálar
tengdar rafrænni
orvun.
í málefnum fatlaðra kom að sjálf-
sögðu upp í hugann: Hvað gera
þeir í Kína sem við gerum ekki
heima? Hvað getum við lært af
þeim? Ég spurði sérkennslumála-
stjórann, frú Zhu, þessarar spurn-
ingar daginn áður, og nefndi sér-
staklega hvort fornar kínverskar
aðferðir væru á einhvern hátt við-
hafðar. Þá hafði ég vitaskuld í huga
nálarstungumeðferð og viðlíka
reynslu aldanna. Frú Zhu gerði lítið
úr því, ef til vill fannst henni aðferð-
ir þeirra of sjálfsagðar til að nefna
þær sérstaklega.
Þeim mun meira kom mér næsta
stofa í opna skjöldu. Vestrænum
hugvísindamanni - mettaður af
raunvísindahyggju en forvitinn um
allt annað - fannst eins þar væru
helg vé: Átta nemendur í nálar-
Einn morgunn
var fljótur að líða við svo forvitni-
legar aðstæður. Ekki vegna þess
eins að þær væru svo framandi,
heldur einnig fyrir það hve líkar
þær voru heimaslóð, þrátt fyrir fjar-
lægðina og gjörólíka menningar-
heima.
Fyrr en varði var komið að
kveðjustund. Við gengum út í mars-
sólina; það var svalt í veðri, rétt
eins og í hægri norðangolu í Reykja-
vík á sama árstíma. Gestgjafar
mínir báðu fyrir kveðjur til kollega
sinna á íslandi og buðu mig hjartan-
lega velkominn aftur, ef ég ætti
leið um. Ég svaraði í sama dúr. Það
var ekki eins fráleitt og ætla mætti
í fljótu bragði; samskipti okkar við
Kínveija fara sífellt vaxandi. Við
eigum orðið öflugan sendiherra og
sendiráð í höfuðborginni Peking,
samningur um menningarsamskipti
landanna mun vera í burðarliðnum
og nú í framhaldi af þessari heim-
sókn okkar er fyrirsjáanleg menn-
ingarhelgi í Peking að ári undir
stjórn Guðmundar Emilssonar og
Hjálmars W. Hannessonar. Og hver
veit nema kínversk sérkennarasveit
bregði sér til íslands við hentug-
leika. Mér þætti vænt um að mega
fýlgja Lun skólastjóra og samstarfs-
fólki hans um sviðið hér heima, sýna
þeim systurskólann, Öskjuhlíðar-
skóla, og aðra skóla þar sem fatlað-
ir nemendur stunda nám.
Þegar ég var að lokum beðinn
að skrifa nokkur orð í gestabók Pei
Zhi-skólans varð mér fyrst fyrir að
minnast þess sem fyrr er nefnt um
hve viðhorfum og viðleitni svipar
saman þar eystra og hér á klakanum
þegar kemur að málefnum fatlaðra.
Það kemur vitaskuld ekki á óvart
þegar til þess er litið að vandinn er
hinn sami, en ég leyfði mér að full-
yrða í gestabókinni að hjörtu okkar
slægju í takt.
Song bílstjóri var til reiðu með
bílinn, frú Zhang túlkaði síðustu
þakklætisorð mín til þessa elskulega
fólks sem hafði sýnt mér svo mikla
vinsemd, og okkur var vinkað úr
hlaði.
Það hafði hægst um á hraðbraut-
inni, slangur af bílum dólaði á öllum
akreinum. Song hélt sig alveg á
veginum að þessu sinni en gaf dug-
lega í sem fyrr. Það kom í ljós að
mínum góða túlki, frú Zhang, hafði
ekki þótt heimsóknin síður forvitni-
legt. Hún er kennari að mennt, vann
sem slík áður og kynntist þá vita-
skuld einnig nem-
endum sem áttu við
námsörðugleika að
stríða.
Eftir því sem við
nálguðumst mið-
borgina urðu ný-
byggingarnar fleiri
og stærri; alls stað-
ar er verið að
byggja. Við þutum
framhjá stórbygg-
ingu í smíðum sem
ég hafði tekið eftir
tveimur dögum áður og ég er nærri
viss um að það hafði bæst við ein
hæð síðan. Það mátti nánast sjá
húsin spretta, enda her bygginga-
manna að störfum dag og nótt. Eitt
kvöldið var á að líta eins og hundrað
sjúkrabílar með blá, blikkandi ljós
stæðu á efstu hæðinni; það reyndist
vera fjölmennur hópur rafsuðu-
manna að sjóða saman stálbitana í
næstu hæð. Gróskan blasir alls stað-
ar við í þessu mikla og áhugaverða
landi þar sem saman fer dafnandi
markaðsbúskapur og afar auðug
menning og saga.
Sá sem hefur litið augum þó ekki
sé nema örlítinn hluta Kínamúrsins
mikla - steini lostinn - gerir sér
ljóst að þessari þjóð er ekkert
ómögulegt.
Spurningin er nærtæk: Verður
Kína helsta stórveldi 21. aldarinnar?
Höfundur er framkvæmdastjóri
Greiningar- og ráðgjafarstöðvar
ríkisins.
Afmælistilboð 23.-30. júní
1 ár er síflan við fluttum af Laugavegi í Mörhina 6.
Heilsárskápa
með fóðrl sem hægt er
að hneppa úr.
Áður Nú
$krf8o.- 15.900,-
Ullarjakkar, yfirstæðir
Áður Nú
IJsóSo.- 4.900.-
Unglingajakkar,
hcilsárs, regnþcttir.
Áður Nú
\ssÓ00.- 7.900.-
Stutlkápur
Áður Nú
IJs&OO.- 7.900.-
Suinarkápur
Aður 19.000:-
Nh 9.900.-
Möíq önnuf spennandi tilboð • SumarjflHHar 05 stuttHapur.
Opiö 6 LðUQðrdöguinTsuniaf Hl. 1H4
POSTSENDUM
Hörhin G - sími SBB SSIB (v/hliðina á Teppalandi]* Bílastæði viö böðarveQQinn