Morgunblaðið - 23.06.1996, Síða 16
16 B SUNNUDAGUR 23. JÚNÍ 1996
MORGUNBLAÐIÐ
Hamingjusöm
eftir Gunnar Hersvein og Þröst Helgason
LÖÐRANDI sviti og tónlist í lík-
amanum. Ljósin flæða um mann-
fjöldann. A sviðinu standa græn
tré sem teygja naktar greinarnar
upp í loftið. Fólkið lyftir höndum
og klappar: Björk: „Það eru al-
gjörlega engin rök fyrir mann-
legri hegðun. “
Hljómsveitin Plaid hefur hitað
Laugardalshöllina upp og Björk
er byrjuð að syngja á íslensku:
„Efþú kvartar færðu her af
mér.“ Bak við hana rís tungl og
marglit ljós lýsa upp tjöld sem
hreyfast milli tijánna. Hún
hleypur um sviðið með hárið í
hanakamb. Aheyrendur á gólfinu
fagna örugglega; fólkið næst
sviðinu hreyfir sig þó eins og það
skemmti sér betur en aðrir. Stillt-
ari áhorfendur eru í sætum i
stúkunni, samt má sjá einn og
einn rísa á fætur baðaða n fjólu-
bláum geislum og veifa höndun-
um í takt við söng Bjarkar um
strákinn Venus, sem trúir á feg-
urð.
„Hér er allt sem ég vildi sjá,“
segir einn. „Góðir
tónlistarmenn, gott
ljósasjó og flott
sviðsmynd." Það er
rétt, í flöktandi ljós-
unum er eins og
Björk sé göldrótt
vera í skóginum.
Tónlistin dynur úr
hljóðkerfinu og
áhorfendur finna
bylgjurnar leika um
skinnið. Þeim liður
vel. „Hamingjusöm
sprengja, “ lendir i
hjartanu og springur, „það er
stemmning innra með mér,“ segir
ein, „því ég elska þig. “
„Takk,“ segir Björk, en er
klöppuð aftur upp á sviðið og
leikurinn heldur áfram.
„Huss, huss, “ er kveðjan í lok-
in og allt verður rólegt um stund
eftir að ljósin í sajn-
um eru kveikt: „Ég
sakna þín, en við
höfum aldrei hist. “
Goldie iðar
af spilagleði
Vanur maður
snýr plötum, en
brátt stígur Goldie
vs. Metalheadz á
svið og leikur í
frumskóginum.
Tónlistin er svo
áhrifamikil að fáir
ráða við löngun líkamans til að
dansa.
Söngkona sem dansar um svið-
ið kallar fólkið úr stúkunni niður
á gólf til að koma að dansa.
Andartak tek ég um eyrun til að
verja heyrnina, og sé unga stúlku
benda á mig með hæðni. Svo lem-
ur hún hnúum út í loftið og legg-
ur allt í dansinn: Lifið og sálina.
„Heyrnartólin, þau björguðu
mér. “
Þannig halda tónleikarnir
áfram, Goldie virðist iða í skinn-
inu að spila áfram, og allt virðist
heppnast vel. „Einn daggerist
það, einn dag kemur það fram. “
Lengsta deginum lokið
Dyrnar opnast, tónleikar á
lengsta degi ársins á íslandi, 21.
júní, hafa endað, og fólkið
streymir út, margt löðrandi
sveitt eftir dans og veislu gerða
úr frumlegum tónum, borgin
dregur það til sín.
Morgunblaðið/Sverrir
Morgunblaðið/Golli
Skemmtileg
ljósadýrð
og göldrótt
ÁGÆT RÖÐ var fyrir utan
Laugardalshöllina áður en
tónleikar
Bjarkar
hófust.
Flestir
voru á
aldrinum
15 til 20
ára, en
einnig var
nokkuð um eldra fólk.
Þór Halldórsson læknir
stóð í röðinni um hálf átta
leytið. Hvað drífur þigá
tónleikana?
„Ég hef gaman af músik,
og hef fylgst með Björk frá
því hún var krakki," svarar
hann, „Krakkarnir mínir
voru með henni bæði í
barnamúsíkskóla og
menntaskóla. Björk er org-
ínal.“
Hann segist hafa flogið
með flnnsku flugfélagi um
daginn og fengið flugrit til
að skoða, á forsíðunni var
að sjálfsögðu Björk.
Þór segist líka fara á
tónleikana til að sjá hvern-
ig rokktónleikar fari fram.
Æðisleg sýning
Björk hefur rétt nýlokið
við lagið
um Venus-
arstrákinn
sem trúir á
fegurð,
sýningin
hefur náð
hámarki.
Silli sem
virðist skemmta sér kon-
unglega segist þó hafa
búist við meiri krafti í
Björk, meiri hávaða:
„Þetta er bara lágvaði, að
minnsta kosti miðað við
það sem ég heyrði á tón-
leikum Bowies í gær. Um-
gjörðin l\já Björk er hins
vegar öll miklu flottari,
þetta er æðisleg sýning."
Sviðsmyndin
virkar vel
Sóley Ragnarsdóttir
stendur
fremur ró-
leg aftar-
lega klukk-
an tíu mín-
útur í tíu.
„Mér finnst
tónleikarnir
ipjög góðir,“
segir hún, „sviðsmyndin og
umgjörðin er betri en síð-
ast þegar hún lék hérna.
Ég hefði samt viljað heyra
eitthvað af nýjum lögum.“
Sáum Pál
Óskar!
„Við
höfum
farið á
nokkra
tónleika
áður en
þessir ei*u
langbest-
ir, það er
ógeðslega
gaman
hérna,"
hrópuðu þær Dísa, Harpa,
Steinunn María og Marta
Rós í kór, spurðar um
stemmninguna.