Morgunblaðið - 23.06.1996, Page 21
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 23. JÚNÍ 1996 B 21
ATYIN NUAUGIYSINGA R
Kennara
og sérkennara
vantar við Grunnskóia Borgarfjarðar,
Borgarfirði, eystra.
Umsóknarfrestur er til 6. júlí.
Upplýsingar gefur oddviti í síma 472 9855.
Vélstjóri
- Baader-maður
Óskum eftir vélstjóra með full réttindi og
vönum Baader-manni á frystitogara, sem
gerður er út frá Vestfjörðum.
Svar sendist til afgreiðslu Mbl. fyrir 29. júní,
merkt: „K - 588“.
Hrútafjörður
Skólabúðirnar að Reykjum
og Barnaskóli Staðarhrepps
auglýsa eftirfarandi stöður lausartil umsóknar:
Við Skólabúðirnar er laus staða íþróttakennara.
Upplýsingar gefur skólastjóri í síma 451 0001
heima eða 451 0000.
Við Barnaskóla Staðarhrepps er laus IV2
staða kennara. Um er að ræða kennslu í
1.-7. bekk og er þeim skipt í tvær deildir,
eldri og yngri. Eru 10-12 nemendur í hvorri
deild. Um er að ræða bæði almenna kennslu
og kennslu í verkgreinum.
Upplýsingar gefur skólastjóri í síma 451 0025
eða 451 0030 heima.
Netfang: inkjar@ismennt.is.
Leikskólar Reykjavíkurborgar
Leikskólastjórar
Stöður leikskólastjóra við leikskólann Efrihlíð
við Stigahlíð og nýjan leikskóia Seljakot við
Rangársel eru lausar til umsóknar.
Umsóknarfrestur er til 8. júlí nk.
Leikskólakennaramenntun er áskilin.
Nánari upplýsingar gefa Bergur Felixson,
framkvæmdastjóri, og Margrét Vallý Jóhanns-
dóttir, deildarstjóri, í síma 552 7277.
Dagvist barna,
Hafnarhúsinu, Tryggvagötu 17, sími 552 7277.
ALÞINGI
Ritarar
Skrifstofa Alþingis auglýsir eftir riturum.
Um er að ræða störf fyrir alþingismenn og
starfshópa innan skrifstofunnar. Óskað er
eftir umsækjendum með góða kunnáttu í rit-
vinnslu og reynslu af skrifstofustörfum. Mjög
gott vald á íslenskri tungu er áskilið.
Góð kunnátta í ensku og einu Norðurlanda-
máli er æskileg. Umsækjendur verða að geta
starfað sjálfstætt og unnið undir álagi.
Þeir sem til álita koma verða beðnir um að
þreyta hæfnispróf.
Nánari upplýsingar í síma 563 0500.
Umsóknarfrestur er til 3. júlí 1996.
Umsóknir sendist skrifstofu Alþingis, rekstr-
arskrifstofu, Austurstræti 14.
Heilsugæslulæknir
Staða yfirlæknis við Heilsugæslustöð Suður-
nesja, Grindavík, er laus til umsóknar.
Umsækendur skulu hafa viðurkenningu sem
sérfræðingar í heimilislækningum.
Umsóknum skal skilað til undirritaðs fyrir
20. júlí nk. á sérstökum eyðublöðum, sem
látin eru í té á skrifstofu heilsugæslustöðvar-
innar, Mánagötu 9, Keflavík, og á skrifstofu
landlæknis.
Allar nánari upplýsingar veitir undirritaður í
síma 422 0580 og yfirlæknir stöðvarinnar í
síma 426 7000.
Keflavík, 4. júní 1996.
Framkvæmdastjóri.
ysy
Leikskólakennarar
Leikskólakennara vantar í leikskólann Mar-
bakka. Um er að ræða starf allan daginn og
eftir hádegi.
Upplýsingar gefur Lilja Kristjánsdóttir leik-
skólastjóri í síma 564 1112.
Einnig vantar leikskólakennara í aðra leik-
skóla bæjarins.
Upplýsingar gefur leikskólafulltrúi í síma
554 5700.
Starfsmannastjóri.
Kennarar!
Enn er möguleiki
Við erum að byggja upp frábæran skóla.
Undir Esjuhlíðum í stórkostlegu umhverfi og
aðeins 25 mín. akstri frá Reykjavík er Klé-
bergsskóli, fullbúinn, einsetinn skóli með um
120 nemendum, 1.-10. bekk.
Hjá okkur er laus staða kennara í íslensku,
dönsku og tónmennt.
Ef þú ert hugmyndaríkur og áhugasamur
kennari, hvetjum við þig til að koma og vinna
með okkur að uppbyggingu skólans.
Nánari upplýsingar veitir skólastjóri, Sigþór
Magnússon, í símum 566 6083 og 566 6035.
Sölumanneskja
Framsækið þjónustufyrirtæki leitar að dugmikl-
um og þjónustuliprum einstaklingi. Starfið felst
í uppbyggingu á nýrri þjónustu, sölumennsku
og símsvörun. Tölvukunnátta æskileg.
Umsóknir sendist til afgreiðslu Mbl. fyrir
28. júní, merktar: „F - 93“.
Píanóleikari - leikari
Vegna uppsetningar á Master Class eftir
Terrence McNally í íslensku óperunni í haust,
auglýsum við eftir klassískum píanóleikara,
sem einnig þarf að geta leikið. Aðeins karl-
menn á aldrinum 20-40 ára koma til greina.
Umsóknir sendist til afgreiðslu Mbl., merkt-
ar: „Master Class - 16134“, fyrir 1. júlí.
Vantarhugbúnað?
Hafið þið með höndum gagnavinnslu í Excel
og viljið færa hana í gagnagrunn og nota
þægilegar skjámyndir? Hefur þú gert hug-
búnað með Microsoft Access og vilt gera
hann ennþá betri?
Tölvunarfræðingur getur tekið að sér verk-
efni í Windows umhverfi. Föst verðtilboð.
Uppl. veitir Sveinn í síma 562 4460 (símboði
846 0995).
Kennarar
Við leitum að áhugasömum kennurum til
starfa við Grunnskólann í Grindavík á næsta
skólaári.
M.a. kennslugreina eru almenn kennsla á
yngsta og miðstigi, fagkennsla á unglinga-
stigi, hand- og myndmennt, raungreinar,
tónmennt og íþróttir.
Einnig vantar sérkennara.
Grindavík er 2.200 íbúa bæjarfélag í aðeins 50 km fjarlægð frá Reykjavík.
Á staðnum er góð, almenn þjónusta og aðstaða til íþróttaiðkana. í skólan-
um eru tæplega 400 nemendur í 20 bekkjardeildum. Unnið er markvisst
að skólaþróun og umbótum í skólastarfi.
Greiddur er flutningsstyrkur og aðstoðað við öflun húsnæðis.
Upplýsingar veita skólastjóri og aðstoðar-
skólastjóri í síma 426 8555 og hs. 426 8504.
Umsóknir skal senda til Grunnskólans
í Grindavík.
Grindavík, 18.júní 1996.
Bæjarstjóri.
Svæðisskrifstofa
fatlaðra á Norður-
landi vestra
Laus er staða deildarstjóra við sambýli á
Sauðárkróki í Skagafirði. Við leitum að
þroskaþjálfa eða starfsmanni með sambæri-
lega menntun. Við bjóðum upp á skemmti-
legt starfsumhverfi og hin klassísku laun rík-
isstarfsmanna, launaflokkur 536-244.
Umsóknarfrestur er til 5. júlí 1996.
Einnig er laus til umsóknar staða forstöðu-
manns ráðgjafa- og sálfræðiþjónustudeildar
Svæðisskrifstofu á Sauðárkróki.
Um er að ræða þjónustu við stofnanir okkar
á Norðurlandi vestra. Sálfræðingur eða sam-
bærileg menntun áskilin (félagsráðgjafi, upp-
eldisfr. o.s.frv.).
Laun samkvæmt launakerfi ríkisins launa-
flokkur 555-148.
Umsóknarfrestur er til 26. júlí 1996.
Upplýsingar um störfin eru gefnar í síma
453 5002.
FJÓRÐUNGSSJÚKRAHÚSIÐ Á ÍSAFIRÐI
FSÍ óskar að ráða:
Ljósmóður
í fasta stöðu.
Um er að ræða dagvaktir með gæsluvöktum
utan dagvinnutíma.
Ljósmóður
til sumarafleysinga, sérstaklega tímabilið frá
25. júlí til 25. ágúst nk.
Afleysingar yfir styttri tímabil (2-4 vikur)
koma vel til greina.
Upplýsingar veitir hjúkrunarforstjóri
í síma 456 4500.
F.S.i. er nýtt sjúkrahús, mjög vel búiö tækjum og með fyrsta flokks
vinnuaöstöðu. Spitalinn þjónar norðanveröum Vestfjörðum. Við veit-
um skjólstæðingum okkar alla almenna þjónustu á sviði skurð- og
lyflækninga, fæðingarhjálpar, öldrunarlækninga, slysa- og áfallahjálp-
ar og endurhæfingar. Starfsemin hefur verið í örum vexti á undan-
förnum árum. Er það fyrst og fremst aö þakka metnaðarfullu starfs-
fólki, nýjum og góðum tækjabúnaöi, fyrirmyndar vinnuaðstöðu og
ánægðum viðskiptavinum. Starfsmenn FSi eru rúmlega 90 talsins.