Morgunblaðið - 23.06.1996, Side 30
30 B SUNNUDAGUR 23. JÚNÍ 1996
MORGUNBLAÐIÐ
Elliðaárkortið.
Selsins í Hítará
ákaft leitað
Sólstöðu-
ferð í upp-
sveitir Ar-
nessýslu
SÓLSTÖÐUFERÐ Hins íslenska
náttúrufræðifélags verður að
{)essu sinni farin um uppsveitir
Árnessýslu og nærliggjandi heiða-
lönd laugardaginn 29. júní og
sunnudaginn 30. júní.
Áhersla verður lögð á gróðurfar
svæðisins, baráttuna við jarðvegs-
eyðingu, landgræðslu og skóg-
rækt. Einnig verða skoðaðar jökla-
minjar frá lokum ísaldar ásamt
ýmsum öðrum jarðfræðilegum fyr-
irbærum. Lagt verður af stað frá
Umferðarmiðstöðinni laugardag-
inn 29. júní kl. 13.
Leiðbeinendur í ferðinni verða
Sigurður H. Magnússon, gróður-
vistfræðingur, Þorfinnur Guðna-
son, kvikmyndatökumaður, auk
fararstjórans Freysteins Sigurðs-
sonar, jarðfræðings og Guttorms
Sigbjarnarsonar, jarðfræðings.
Þátttökugjald í ferðinni er 4.000
kr. fyrir fullorðna og hálft far-
gjald fyrir böm auk gistigjalds við
Geysi. Öllum er heimil þátttaka
og eru menn beðnir um að skrá
sig í ferðini sem fyrst á skrifstofu
HIN.
-kjarni málsins!
MINKASKYTTA með þrautþjálf-
aða veiðihunda er búin að ganga
alla Hítará, frá Húshyl og ofan í
ós, án þess að verða vör við selinn
sem menn gengu í flasið á á
fimmtudagsmorguninn. Minkur
einn var þó ekki eins heppinn,
varð á vegi veiðimanna og hunda
og lét þar lífið. Um helgina verður
áin öll gengin á nýjan leik til að
ganga úr skugga um að selurinn
sé á bak og burt.
„Menn sáu boðaföllin af selnum
er hann forðaði sér úr Húshylnum
og niður strengina þar fyrir neð-
FRÉTTIR
Morgunblaðið/Sverrir
an. Allt verður gert til að tryggja
að hann verði flæmdur út í sjó eða
drepinn ef hann reynist vera enn
á sveimi, en það lítur út fyrir það
á þessari stundu að hann sé farinn
úr ánni,“ sagði Bergur Steingríms-
son, framkvæmdastjóri SVFR, í
samtali við Morgunblaðið og hafði
atburðarrásina eftir ráðsmanni
SVFR í veiðihúsinu við Hítará.
Bætti Bergur við að þótt ekkert
hefði veiðst í opnuninni til þessa
hefði selurinn ekki fyrr verið horf-
inn á braut en menn sáu laxa í
Húshyl. Sáu menn auk þess þó
nokkra fiska fýrir ofan Brúarfoss.
Lundur
tekinn í gegn
Hið fomfræga veiðihús við Hít-
ará, Lundur, sem Jóhannes á Borg
byggði fyrr á öldinni hefur verið
endursmíðað nánast frá grunni að
innan. Að sögn talsmanna SVFR,
sem hafa ána á leigu, hafa allir
gamlir innviðir haldið sér og stíl
hússins verið haldið við þrátt fyrir
að nánast hver fjöl á neðri hæð
hússins hafi verið endurnýjuð.
Neðri hæð hússins er rómuð fyrir
innréttingar sínar og fuglasafn
Jóhannesar hefur sett svip sinn á
stofuna. Allir fuglarnir hafa verið
hreinsaðir og lagfærðir af kunn-
áttumanni. Alls kostaði aðgerðin
öll 14 milljónir.
Nýtt kort
af Elliðaánum
Rafmagnsveitur Reykjavíkur
hafa í samvinnu við Landmælingar
íslands og SVFR gefið út nýtt
veiðikort af Elliðaánum og er það
í stíl við áðurútkomin kort sem
LÍ og SVFR hafa gefíð út með
Norðurá, Hítará og Soginu. Auk
nákvæmra korta af einstökum
svæðum í Elliðaánum er margvís-
legur fróðleikur um veiði í einstök-
um hyljum árinnar á tilteknum
árabilum, hvaða flugur hafa gefið
flesta laxa og fleira í líkum dúr.
Kortið mun fást á skrifstofu SVFR
og í veiðibúðum Reykjavíkursvæð-
isins.
A
Islendinga-
félag í Murc-
ia á Spáni
í MURCIA á Spáni var stofnað í
mars sl. „Saga, Asociación Murc-
iana de Amigos de Islandia" (Saga,
félag íslandsvina í Murcia) og eru
stjórnendur þess Mariano González
Campo (formaður), mannfræðingur
og B.Ph.Isl. í íslensku fyrir erlenda
stúdenta, Unnur Pálsdóttir (aðstoð-
arformaður), fiðlukennari við Tón-
skólann í Murcia, og Berglind Hall
Ruíz Marínez (ritari), ritari hjá
markaðssetningafyrirtæki.
Markmið félagsins er að kynna
íslenska menningu í Murcia á Spáni
í gegnum tónleika, fyrirlestra, sýn-
ingar, þýðingar og önnur menning-
arstörf.
----».♦------
Heilsustofnun
NLFÍ opnar
göngudeild
HEILSUSTOFNUN NLFÍ hefur nú
opnað göngudeild. Þangað geta sótt
þjónustu einstaklingar sem ekki
dveljast á stofnuninni. Einnig geta
dvalargestir, sem óska eftir meiri
þjónustu en fylgir dvöl á HNLFÍ,
leitað til göngudeildar.
Á göngudeildinni er hægt að fá
sjúkranudd og sogæðanudd, vatns-
nudd, heilsuböð og leirböð. Einnig
leirbakstra. Fljótlega verður þjón-
ustan aukin og tekur þá til fleiri
þátta endurhæfingar. Yfirmaður
göngudeildarinnar er Wolfgang
Roling, sjúkranuddari.
á Jónsmessuhátíð
í Borgarleikhúsinu
ídagkl. 17.00
Dag’skrá í aöalsal
Ávörp, tónlist, leiklist
Líf og Qör
í anddyri og' utanhúss
Útigrill
Húsið opnar
klukkan 16.30
Dagskrá
hefst klukkan 17.00
og lýkur klukkan 19.00
Lif og fjör uti og inni fyrir alla Qölskylduna
Ávörp: Guörún Agnarsdóttir og Helgi Valdimarsson • Páll Skúlason, prófessor •
f
Tónlist: Signý Sæmundsdóttir, Þóra Friöa Sæmundsdóttir • Steinunn Olína, Jóhann G.
Jóhannsson og Kristján Eldjám • Árstíöakvartettinn • Jóhanna Þórhallsdóttir, Viargrét
Pálmadóttir, Björk Jónsdóttir • Ama, Birta og Elín •
Leiklist: lir Hinu ljósa mani: Þanna lVlaría Karlsdóttir og Sigrún Edda Björnsdóttir •
Úr Sölku Völku: Lilja Guörún Þorvaldsdóttir • Euröuleikhúsiö • Edda Björgvinsdóttir •
rirefna Hallgrimsdóttir • Sigrún Sól og Katrin Þorkelsdóttir • Selma Bjömsdóttir og
Markús Þór Andrésson úr „Óinu“ • Fimleikar • Lína langsokkur • Spákonur • Trúöar •
Grillveisla, leiktæki og fleira • Kynnir er Amar Jónsson Allir velkomnir
Guðrún Agnarsdóttir^vrw^r