Morgunblaðið - 09.07.1996, Qupperneq 18
18 ÞRIÐJUDAGUR 9. JÚLÍ 1996
VIÐSKIPTI
MORGUNBLAÐIÐ
I
Iðnlánasjóður selur 28% hlut sinn í Skipasmíðastöðinni Þorgeiri og Ellert hf. á Akranesi
Kaupverðið
nemur 20
millj. króna
IÐNLÁNASJÓÐUR hefur selt um
28% hlut sinn í Skipasmíðastöðinni
Þorgeiri og Ellert hf. á Akranesi.
Kaupendur bréfanna voru Hörður
Pálsson, Bifreiðastöð ÞÞÞ, Sveinn
Arnar Knútsson og Þorgeir Jós-
epsson, en þeir stóðu upphaflega
að stofnun fyrirtækisins með
Akranesbæ árið 1994. Bréfin eru
að nafnvirði um ellefu milljónir
króna og voru seld á genginu 1,8
eða fyrir um tuttugu milljónir
króna.
Iðnlánasjóður eignaðist hluta-
bréfin þegar sjóðurinn seldi stofn-
endum félagsins eignir þrotabús
Þorgeirs og Ellerts hf. í mars á
síðasta ári.
Þrefalt hærra verð
Iðnlánasjóður fékk tæplega þre-
falt hærra verð en Akranesbær
fékk fyrir sinn eignarhluta um síð-
ustu áramót. Þá seldi bærinn bréf
að nafnverði 7,7 milljónir króna á
genginu 0,65 til IA Hönnunar ehf.
Sala á hlut bæjarins olli deilum
þar sem fimmtán aðilar á Akra-
nesi höfðu skömmu áður keypt
hlutabréf að nafnvirði rúmar 4
milljónir króna á genginu 1,0. Einn
þeirra sendi inn stjórnsýslukæru
til félagsmálaráðuneytisins á
hendur bæjarráði Akraness vegna
þessa máls.
Hlutabréfin skráð á Opna
tilboðsmarkaðnum?
Þorgeir Jósepsson, fram-
kvæmdastjóri Skipasmíðastöðvar-
innar Þorgeirs og Ellerts hf. sagði
í samtali við Morgunblaðið að
rætt hefði verið um að skrá hluta-
bréfin í fyrirtækinu á Opna tilboðs-
markaðnum hf. og það væri til
athugunar.
VERÐA smíðuð fleiri skip á Akranesi? Síðasta skipið, sem hleypt
var af stokkunum hjá Skipasmíðastöð Þorgeirs og Ellerts, var
smíðað 1993-94. Myndin er af raðsmíðaskipi, sem
smíðað var í stöðinni árið 1985.
Hugbúnaðarfyrirtækið Softis hf. með hlutafjárútboð
Hlutabréfin boðin
á genginu átta
Verðbréfaþing
íslands
Metvið-
skiptiá
fyrri
hlutaárs
METVIÐSKIPTI urðu á
Verðbréfaþingi íslands á fyrri
hluta ársins 1995. Námu
heildarviðskipti um 54,4
milljörðum og jukust um 16%
frá síðari hluta fyrra árs, en
um 126% frá sama tímabili í
fyrra, að því er fram kemur
í nýju fréttabréfi Verðbréfa-
þingsins.
Viðskipti í júnímánuði á
þinginu voru með meira móti
og var þetta þriðji mánuður-
inn á árinu þar sem þau fóru
yfir 10 milljarða króna.
Prófanir á nýju viðskipta-
og upplýsingakerfi Verð-
bréfaþings hafa gengið vel
að undanfömu og er því búist
við því að unnt verði að taka
viðskiptakerfið í notkun síðar
í þessum mánuði eða í síðasta
lagi um mánaðamótin júlí-
ágúst.
Á fundi stjómar Verð-
bréfaþings nýlega var sam-
þykkt að taka hlutabréf
Tæknivals hf. á skrá þegar
hluthafar yrðu orðnir fleiri
en 200 talsins. Því marki
hefur nú verið náð og verða
bréfín tekin á skrá á næstu
dögum.
Þingvísitala lækkar
Nokkuð lífleg viðskipti
urðu annars með hlutabréf í
viðskiptakerfí Verðbréfa-
þingsins í gær og námu þau
samtals tæplega 33 milljón-
um króna. Verð á hlutabréf-
um í nokkrum hlutafélögum
lækkaði lítillega sem olli um
0,3% lækkun á þingvísi-
tölunni.
HUGBÚNAÐARFYRIRTÆKIÐ
Softis hf. hefur ákveðið að auka
hlutafé félagsins um þrjár milljón-
ir króna að nafnverði. Nemur
aukningin um 5,7% af hlutafé fé-
lagsins og eru hlutabréfin boðin á
genginu 8. Söluverð hlutabréfanna
er því samtals 24 milljónir króna.
Bréfin eru ekki til sölu á almenn-
um markaði en völdum hópi stofn-
anafjárfesta hefur verið boðin þau
til kaups. Hlutafjárútboðið stendur
til 19. júlí.
Nafnverð hlutafjár Softis hf.
er nú tæpar 49 milljónir króna. Á
aðalfundi Softis hf., sem haldinn
var í maí, var samþykkt að auka
hlutafé í allt að 65 milljónir króna
að nafnvirði eða um rúmar 22
milljónir þannig að sú heimild er
ÓVISSU gætti á evrópskum hluta-
bréfamarkaði í gær af því að ugg-
ur um vaxtahækkanir í Bandaríkj-
unum hefur aftur gert vart við
sig. Óvissa ríkir einnig í Wall Stre-
et og kemur fram í verðsveiflum.
Óvissan stafar af því að banda-
ríska Dow Jones vísitalan lækkaði
um tæplega 115 punkta á föstudag
vegna upplýsinga um að dregið
hefði út atvinnuleysi vestanhafs,
en það eykur líkur á vaxtahækkun.
Óvíst er hvert þróunin stefnir,
en þegar mörkuðum var lokað í
Evrópu hafði Dow vísitalan hækk-
að um fjóra punkta eftir nokkrar
sveiflur frá opnun í Wall Street.
London var eini markaðurinn í
aðeins nýtt að litlu leyti nú. Þá
hefur stjórn fyrirtækisins sótt um
heimild til ríkisskattstjóra til út-
gáfu jöfnunarhlutabréfa um allt
að 88,4 milljónir króna. Eigið fé
fyrirtækisins í árslok var um 144
milljónir króna samkvæmt árs-
reikningi fyrir árið 1995. Þá námu
heildarskuldir tæpum 74 milljón-
um og eiginfjárhlutfall var 66%.
Samningar farnir að
skila tekjum
Síðustu viðskipti með hlutabréf
í Softis hf. áttu sér stað á Opna
tilboðsmarkaðnum í apríl sl. á
genginu 4,5. Sigurður Björnsson,
framkvæmdastjóri fyrirtækisins,
segir að sala bréfanna nú á geng-
inu 8 sé rökrétt og það gengi sé
Evrópu þar sem hækkanir tóku
við af lækkunum fyrr um daginn
og við lokun var verðið nánast
óbreytt frá því um morguninn.
Gengi dollars hafði ekki verið
hærra í 30 mánuði og seldist hann
á 111,20 jen í Asíu, en lækkaði
síðan í innan við 111.
Getum er leitt að því að banda-
ríski seðlabankinn hækki vexti
jafnvel í þessari viku af því að
tölurnar frá föstudag um meiri
atvinnu hafa endurvakið ugg um
verðbólgu.
Margir sérfræðingar búast við
að seðlabankinn bíði þar til fundur
verður haldinn í stjórn hans í ág-
úst. Aðrir velta því fyrir sér hvort
síst of hátt þegar haft sé í huga
að fyrirtækið hafi nýverið gert
samninga við bandarísku fyrir-
tækin Liant Software Corporation
og Acucobol Inc. um alþjóðlega
dreifingu og markaðssetningu á
LOUIS-hugbúnaðinum. „Þessir
samningar eru nú þegar farnir
að skila Softis tekjum. Við erum
bjartsýnir á að þær verði farnar
að standa undir rekstrarkostnaði
fyrirtækisins á fyrri hluta næsta
árs. Við förum því varlega í að
auka hlutafé enda er tilgangur
útboðsins fyrst og fremst sá að
afla rekstrarfjár. Þá spilar einnig
inn í að erlent tölvufyrirtæki hef-
ur sýnt því áhuga að undanförnu
að kaupa hlut í Softis.“
Alan Greenspan seðlabankastjóri
láti til skarar skríða fyrir 18. júlí
þegar hann á að bera vitni í öld-
ungadeildinni.
Kl. 3.30 í gær seldist dollar á
110,82 jen og 1,5269 mörk miðað
við 110,88 jen og 1,5315 mörk á
föstudag.
Verð á þýzkum ríkisskuldabréf-
um var óbreytt frá því á föstudag
við lokun í gær. Þjóðveijar eru
vongóðir um að áhrifa muni ekki
gæta frá hræringum á bandaríska
markaðnum að sinni.
Verðbréfasalar í London furð-
uðu sig á stöðugleika markaðar-
ins, en sögðu að fjárfestar væru
enn varir um sig.
Sveiflur í Wall Street
vekja uggíEvrópu
London. Reuter.
Brautar-
kóngur í
varðhald
París. Reuter.
YFIRMAÐUR frönsku ríkisjárn-
brautanna, SNCF, hefur verið úr-
skurðaður í gæzluvarðhald vegna
ásakana um misferli þegar hann
var yfirmaður olíurisans Elf-Aqu-
itaine í byijun þessa áratugar.
Loik Le Floch-Prigent stjórnar-
formaður var handtekinn vegna
rannsóknar á ásökunum um að
hann hafí dregið sér fé úr sjóðum
fyrirtækisins, hirt ágóða af fjár-
svikum og veitt rangar upplýsingar
til að hjálpa umsvifamiklum vini
sínun í vefnaðarvörugeiranum.
Le Floch-Prigont dafnaði vel á
valdaárum sósíalista og er í hópi
nokkurra forystumanna í frönsku
atvinnulífi, sem hafa verið ákærðir
vegna spillingar. Margir þeirra
hafa verið viðriðnir ólöglega fjár-
mögnun stjórnmálaflokka.
Hins vegar er Le Floch-Prigent
fyrsti yfirmaður opinbers fyrirtæk-
is í Frakklandi sem varpað hefur
verið í fangelsi. Það bendir til auk-
ins áræðis rannsóknardómara, sem
þrýst er á að taka vægt á kaup-
sýslu- og stjórnmálamönnum.
Handtakan er alvarlegt áfall
fyrir SNCF af því að stutt er síðan
Le Floch-Prigent lagði fram áætl-
un um að bjarga ríkisjárnbrautun-
um, sem eru reknar með miklu
tapi.
Lögfræðingur Le Floch-Prig-
ents, Olivier Metzner, kvað skjól-
stæðing sinn ekki ætla að segja
af sér.
------» ♦ ♦-----
Réttarhöld
gegn Alan
Bond hafin
Perth, Ástralíu. Reuter.
ÁSTRALSKI kaupsýslumaðurinn
Alan Bond hefur neitað ákærum
um fjársvik við upphaf réttarhalda
í máli hans í Perth í Vestur-Ástra-
líu.
Bond er ákærður fyrir að hafa
borið ábyrgð á því sem stjórnarfor-
maður Bond Corporation á tímabil-
inu maí 1988 til október 1989 að
fyrirtækið hafi misst af möguleika
á að kaupa málverk Edouard Ma-
nets, La Promenade á töluvert
lægra verði en markaðsverði.
I þess stað keypti fjölskyldu-
fyrirtæki Bonds, Dallhold Pty Ltd,
málverkið og seldi það með veru-
legum hagnaði ári síðar.
------♦ ♦ ♦-----
Athugasemd
frá Cha Cha
VEGNA fréttar á viðskiptasíðu á
laugardag um dóm í útburðarmáli
Kringlunnar 4-6 hf. gegn verslun-
inni Cha Cha, vill Bárður Guðfínns-
son, eigandi hennar, taka eftirfar-
andi fram.
„Áréttað skal að fyrirtæki mín,
Próf ehf. og Cha Cha skulda Kringl-
unni 4-6 hf. hvorki húsaleigu né
annað en skilja mátti á umræddri
frétt að þau skulduðu henni stórfé.
Upphæðin sem nefnd var í um-
ræddri frétt, þ.e. kr. 1.924.113 var
öll greidd með geymslugreiðslum,
þ.e. svokallaðri deboneringu í apríl
og maí á þessu ári að ráði lög-
manns okkar. Þessar geymslu-
greiðslur voru inntar af hendi án
nokkurra kvaða af okkar hálfu og
voru að auki óafturkræfar. Var
forsvarsmönnum Borgarkringlunn-
ar fullkunnugt um greiðslumar og
í lófa lagið að sækja þær hvenær
sem þeim hentaði. Ástæðan fyrir
því að notuð var þessi aðferð við
greiðslu var mikill og óásættanleg-
ur ágreiningur sem upp var kominn
á milli Kringlunnar 4-6 og fyrir-
tækja minna.“
I
I
>
>
í
!
i
t
i
>
I
I
I
\
i
I
I
t
\
i
i
U