Morgunblaðið - 09.07.1996, Blaðsíða 30
30 ÞRIÐJUDAGUR 9. JÚLÍ1996
MORGUNBLAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ
3R*tgttulrI*frife
STOFNAÐ 1913
ÚTGEFANDI: Árvakur hf., Reykjavík.
FRAMKVÆMDASTJÓRI: Hallgrímur B. Geirsson.
RITSTJÓRAR: Matthías Johannessen,
Styrmir Gunnarsson.
PÓLITÍSK
ÁKVÖRÐUN -
GEÐÞÓTTA-
ÁKVÖRÐUN?
VINNUBRÖGÐ og tilsvör Guðmundar Bjarnasonar umhverf-
isráðherra, um þá „pólitísku ákvörðun“ að flytja starfsemi
Landmælinga ríkisins til Akraness eru fjarri því að geta talist
boðleg eða ráðherra sæmandi. Umhverfisráðherra verður að
færa fram einhver efnisleg rök fyrir þessari ákvörðun. Geri
hann það ekki verður litið svo á, að um geðþóttaákvörðun ráð-
herrans sé að ræða. Jafnvel ráðherrar geta ekki nú á tímum
leyft sér að láta ákvarðanir stjórnast af eigin geðþótta.
Umhverfisráðherra sagði í viðtali við Morgunblaðið sl. laugar-
dag, að honum hafi verið kunnugt um viðhorf starfsmanna til
flutnings vegna þess, að þau hafi komið fram, þegar málið var
kannað í tíð fyrrverandi ráðherra. Hvers konar vinnubrögð eru
það að láta könnun á sjónarmiðum starfsmanna frá því fyrir
nokkrum misserum nægja? Eiga starfsmenn ekki rétt á því, að
þeim sé sýnd sú virðing að þeir fái að leggja mat á flutning á
ný, úr því að málið er tekið upp á nýjan leik? Eiga þeir ekki rétt
á því a.m.k. að koma nýjum sjónarmiðum að áður en ákvörðun
er tekin?
Hvað á ráðherrann við þegar hann segir í viðtali við Morgun-
blaðið sl. laugardag?: „Ég geri mér grein fyrir að flutningar
valda mikilli röskun fyrir starfsmenn og að fleiri en færri eru
líklega óánægðir í upphafi. Af þeirri ástæðu vissi ég að þetta
hlyti að vera ákvörðun sem stjórnvaldið þyrfti að taka.“ Ráðherr-
ann hefur hvergi sýnt fram á, að hér væri um ákvörðun að
ræða, sem stjórnvaldið „þyrfti að taka“. Hann hefur hvergi
komið fram með efnisleg né fagleg rök fyrir flutningnum, ein-
ungis veifað valdboði að ofan, um að „samkvæmt lögum er
skýrt að opinberum starfsmanni beri að hlíta því eða sætta sig
við það að starf hans sé flutt til“.
Líklega er stjórnvaldið hér að taka ákvörðun um búferlaflutn-
inga a.m.k. eitt hundrað manns, þegar makar og börn eru talin
með þeim starfsmönnum sem um ræðir. Hvaða tryggingu hafa
makar starfsmanna fyrir atvinnu við þeirra hæfi á Akranesi?
Hvaða áhrif hefur það á börn starfsmanna að flytjast úr því
skólaumhverfi, sem þau þekkja, ekki vegna ákvörðunar fjölskyld-
unnar sjálfrar um flutning heldur vegna fyrirmæla frá ráðherra?
Ótal spurningar vakna um hagnýt atriði, þegar stjórnvöld
taka ákvarðanir af þessu tagi. Það er dýrt að taka sig upp og
flytjast búferlum á milli byggðarlaga. Ætlar ríkið að borga
þann kostnað, sem af því hlýzt? Kjósi starfsmenn að búa áfram
í Reykjavík en aka dag hvern til og frá Akranesi má þá búast
við að ríkið greiði þann viðbótarkostnað, sem það hefur óhjá-
kvæmilega í för með sér?
Ef það er markmið ríkisstjórnarinnar að tryggja Akranesi
aukin umsvif með flutningi Landmælinga ríkisins, sem virðist
vera eina haldbæra skýringin á hinni „pólitísku ákvörðun" ráð-
herrans, er spurning hvort það er ekki hagkvæmara að leggja
þá fjármuni, sem það kostar að flytja þessa stofnun, í nýja at-
vinnustarfsemi á Ákranesi.
Það er einfaldlega ekkert vit í svona flutningi opinberra stofn-
ana á milli byggðarlaga. Það getur verið vit í því að staðsetja
nýja starfsemi á vegum ríkisstofnana í byggðarlögum utan höf-
uðborgarsvæðisins en þó alveg sérstaklega, ef um er að ræða
opinbera starfsemi, sem á einn eða annan veg beinist að ákveðn-
um byggðarlögum eða landshlutum. Til þess þarf vandaðan
undirbúning. í þessu tilviki hefur hins vegar ekki verið vandað
til verka.
HALLALAUS
FJÁRLÖG 1997?
KENNILEITI í þjóðarbúskapnum hafa breytzt til hins betra
síðustu árin. Tekizt hefur að vinna bug á verðbólgu og
viðskiptahalla. Stöðugleiki og jafnvægi setja svip á efnahagslíf-
ið. Hlutur íslands er nokkuð góður í samanburði við önnur
OECD-ríki, mældur á helztu efnahagsmælikvarða.
Langvarandi fjárlagahalli og tilheyrandi skuldsetning og áhrif
á lánsfjármarkað og vaxtastig í landinu hafa lengi verið afger-
andi þáttur í efnahagsvanda okkar. Nú horfir til hins betra í
þeim efnum. Tekjur ríkissjóðs hafa vaxið verulega umfram
áætlanir í kjölfar efnahagsbatans. Það á við um útgjöldin líka
þótt aðhald í ríkisútgjöldum hafi vissulega skilað nokkrum ár-
angri. Nú hefur ríkisstjórnin sett sér það markmið að ná halla-
lausum fjárlögum á næsta ári, meðal annars með því að skera
heildarútgjöld ráðuneyta niður um fjóra milljarða króna frá því
sem ella hefði orðið. Mikilvægt er að það markmið náist.
VESTURFARASETUR Á HOFSÓSI
Forseti íslands hefur
opnað Vesturfaraset-
ur á Hofsósi og sýn-
inguna Annað land -
annað líf. Valgeir Þor-
valdsson ferðaþjón-
ustubóndi er aðal-
hvatamaður að stofn-
un setursins en hefur
notið aðstoðar fyrir-
tækja o g einstaklinga.
Helgi Bjarnason var
við opnunina og ræddi
við Valgeir.
MIKILL fjöldi gesta var viðstaddur opnun Vesturfarasafns á Hofsósi,
FERÐAÞJÓNUSTA bænda
er þátttakandi í samstarfs-
verkefni ellefu Evrópu-
þjóða sem ber heitir „Ro-
utes to the Roots“, eða Ættirnar
raktar. Verkefnið snýst um mark-
aðssetningu safna og ferðaþjón-
ustufyrirtækja og miðar að því að
fá afkomendur Vesturfara til að
heimsækja land forfeðranna og
kynnast menningu og sögu ættlands
síns.
Valgeir Þorvaldsson hefur í fjórt-
án ár rekið ferðaþjónustu á Vatni.
Hann hefur á seinni árum unnið að
uppbyggingu ferðaþjónustu og
safna í elsta hluta Hofsóss og tekið
þátt í endurbyggingu gamalla húsa
í þeim tilgangi. Hann segist hafa
fengið þetta nýja verkefni upp í
hendurnar frá Ferðaþjónustu
bænda.
Hefur vantað í flóruna
„Þetta er sprottið af ákveðinni
þörf fyrir að sjá góða hluti gerast,"
segir Valgeir þegar hann er spurður
um kveikjuna að því mikla verki sem
hann hefur staðið fyrir. „Ég hef lengi
starfað að þjónustu við ferðamenn
og tel mig vita nokkuð vel hveijar
þarfir þeirra og væntingar eru. Ég
hef einnig fylgst með þróun safna
hér í Skagafirði. Mér hefur verið það
ljóst að starfsemi sem þessa, að sinna
þörfum fólks af íslenskum ættum
sem býr erlendis, hefur vantað í flóru
íslenskrar ferðaþjónustu," segir
hann.
Valgeir beitti sér fyrir stofnun
einkahlutafélagsins Snorra Þorfínns-
sonar í apríl á síðasta ári til þess að
reisa og reka Vesturfarasetur og
annast skyld verkefni. Safninu var
valinn staður í verslunarhúsi niðri
við höfnina á Hofsósi, Húsið var
byggt 1910 og hefur á síðustu árum
gengið undir nafninu gamla kaupfé-
lagshúsið. Það var mjög illa farið
þegar ráðist var í endurbyggingu
þess. Þakið var fokið af og segir
Valgeir að ekki hafi mátt miklu
muna að það eyðilegðist alveg.
Unnið hefur verið að endurbygg-
ingu hússins frá því í fyrravor og
uppsetningu sýningar um Vesturfar-
ana.
Valgeir telur að kostnaður við
verkefnið í heild verði um 50 milljón-
Þörfin fyrir að sjá
góða hluti gerast
ir kr. Nokkur stórfyrirtæki, stofnanir
og einstaklingar hafa stutt uppbygg-
inguna með því að leggja fram hlut-
afé í Snorra Þorfinnsson hf. og nefn-
ir Valgeir sérstaklega Sjóvá-Almenn-
ar tryggingar hf., Kassagerð Reykja-
víkur hf., Olíufélagið Skeljung hf. og
Eignarhaldsfélagið Hof hf. (Hag-
kaup). Segir hann að þessi fyrirtæki
hafi gert það mögulegt að ráðast í
þessar framkvæmdir. Þá hafí stjóm-
völd ákveðið að taka í þá hönd sem
íslendingar vestan hafs hafi lengi rétt
fram. Ríkisstjórnin leggur fram eina
milljón kr. til verkefnisins og Valgeir
segist hafa notið beins og óbeins
stuðnings sex ráðherra stjórnarinnar.
Vesturfarasetrið á að standa sjálft
undir rekstrinum með því að selja
aðgang og minjagripi og með því að
taka að sér launuð verkefni á sínu
sviði. Hins vegar segir Valgeir að
það taki hugsanlega þijú ár að koma
fyrirtækinu á réttan grundvöll og
vonast hann eftir stuðningi ríkisins
á þeim tíma.
Byijað er að kynna Vesturfara-
setrið í Kanada og Bandaríkjunum
en Valgeir á þó ekki von á því að
það dragi marga Vestur-íslendinga
til landsins í sumar. Fólk skipuleggi
ferðir sínar lengra fram í tímann. í
haust verður farið af fullu afli í
markaðssetningu fyrir næsta sumar.
Bendir hann jafnframt á að sýningin
höfði ekki síður til Islendinga. „Það
ferðafólk sem hefur áhuga á sögu
þjóðarinnar ætti að koma hér við.
Við erum að takast á við það tímabil
í sögu þjóðarinnar sem ekki hafa
verið gerð mikil skil, mikið átaka-
og erfiðleikatímabil og fullt af trega,“
segir Valgeir.
Ættfræðistofa og
upplýsingaþjónusta
Auk sýningarinnar verður komið
Morgunblaðið/Friðrik Helgason
VALGEIR Þorvaldsson fylgir forseta íslands, Vigdísi Finnboga-
dóttur, „um borð“ á sýningunni Annað land - annað líf í
Vesturfarasafninu.
upp ættfræðistofu og bókasafni í
Vesturfarasetrinu. Ætlunin er að
ættfræðistofan verði miðstöð rann-
sókna á ættum vesturfara og fólki
verður boðin þjónusta á sviði ætt-
fræði og sögu. Aðstaða verður fyrir
fræðimenn til að vinna að viðfangs-
efnum sínum á þessu sviði og fyrir-
lestrarsalur til að taka á móti hópum,
meðal annars skólafólki. Þá hefur
verið komið upp verslun í safninu þar
sem til sölu eru íslenskir minjagripir
og handverk.
Forseti íslands, frú Vigdís Finn-
bogadóttir, opnaði Vesturfarasafnið
sl. sunnudag að viðstöddum fjölda
fólks. Meðal gesta voru Davíð Odds-
son forsætisráðherra, Björn Bjarna-
son menntamálaráðherra, Halldór
Blöndal samgönguráðherra, Páll Pét-
ursson félagsmálaráðherra, Helgi
Ágústsson ráðuneytisstjóri í utanrík-
isráðuneytinu, Þór Magnússon þjóð-
minjavörður, Sturla Böðvarsson for-
maður þjóðminjaráðs og Laurence
S.G. Johnson forseti Þjóðræknisfé-
lags Vestur-íslendinga í Kanada. „Þc
við séum fyrst og fremst Kanada-
menn og Bandaríkjamenn metum vic
mikils þau bönd sem binda okkur vic
heimalandið,“ sagði Laurence John-
son í ávarpi sínu á opnunarhátíðinni
Þurfti að framvinna
allar heimildir
„MESTA verkið var að safna
heimildum. Þetta er nánast
óplægður akur og því þurfti að
frumvinna allar heimildir," segir
Sigríður Sigurðardóttir, safn-
stjóri Byggðasafns Skagfirðina.
Byggðasafnið stendur að sýning-
unni Annað land - annað lif, í
Vesturfarasafninu á Hofsósi þar
sem fjallað er um Vesturheims-
ferðir íslendinga 1870-1914.
Sýningin er þrískipt og er einn
þáttur í hverjum hluta hússins.
Sigríður segir að unnið sé út frá
þeirri hugmynd að fólk hafi
þurft ástæðu til að fara. Á fyrstu
hæð, í risi og á hanabjálka er
lífinu á íslandi gerð skil á tíma
fólksflutninganna vestur um haf,
búskap og breytingum á þjóðlífi.
Sagt frá aðdraganda vestur-
ferða, áróðri fyrir landnámi í
Ameríku og andófi gegn honum.
Fjallað er um ástæður þess að
fólk fór og fjölda vesturfara eft-
ir héruðum. í kjallara hússins er
ferðalagið yfir hafið tekið fyrir,
sýndur aðbúnaður um borð í
skipunum, hvert fólkið fór og
fyrstu kynnum þess af nýju landi.
Sýningin er byggð upp með
ljósmyndum, texta, kortum og
ýmsum munum frá byggðasöfn-
um, Þjóðminjasafni og úr einka-
eigu. Iljörleifur Stefánsson arki-
tekt liannaði sýninguna.
Sýningin verður eingöngu í
Vesturfarasafninu. Sigríður von-
ast til að sú söfnun sem farið
hefur fram á munum frá þessum
tíma sé aðeins byrjunin, meira
eigi eftir að berast og nýir hlut-
ir komi í stað lánsmuna. Vegna
uppsetningar sýningarinnar fór
Sigríður til Kanada. Hún segist
hafa fundið fyrir ótrúlega mikl-
um áhuga þar á þessu framtaki.
Unnið er að því að koma á tengsl
um við byggðasafn Vestur-
íslendinga í Gimli og vonast hún
til að fá ýmsar upplýsingar og
jafnvel muni þaðan.
ÞRIÐJUDAGUR 9. JÚLÍ1996 31
U mhverfisráðherra beinir tilmælum til hreppsnefndar Svínavatnshrepps
Ferðafélagið fái sömu
meðferð og Veðurstofan
í úrskurði umhverfisráðherra um aðalskipulag
á Hveravöllum er þeim tilmælum beint til
hreppsnefndar Svínavatnshrepps að Ferðafé-
lagi íslands verði veitt sambærileg fyrir
greiðsla og Veðurstofa íslands hafí fengið,
en gert er ráð fyrir að hús veðureftirlits-
manns á Hveravöllum standi óhreyft a.m.k.
til ársins 2012. Egill Ólafsson fjallar um
skipulagsmál á Hveravöllum.
ÁHUGI ferðamanna á Hveravöllum fer vaxandi, enda auðveldara
að komast þangað en áður og margir þeirra fara í heita laugina,
sem er við eldri skála Ferðafélags íslands.
IÚRSKURÐI umhverfisráð-
herra, um að Svínavatns-
hreppur hafi rétt til að gera
aðalskipulag á Hveravöllum,
er þeim tilmælum beint til hrepps-
nefndar Svínavatnshrepps að hún
leyfi Ferðafélagi íslands að vera
með aðstöðu á Hveravöllum til 2012
þar eð nefndin hafi ákveðið að heim-
ila Veðurstofu íslands að vera með
aðstöðu þar út gildistíma aðalskipu-
lags árið 2012.
í varakröfu Ferðafélagsins til
umhverfisráðuneytisins fór félagið
fram á að það fengi stöðuleyfi fyrir
núverandi aðstöðu á Hveravöllum
til ársins 2030 og í þrautvarakröfu
til ársins 2012. Skipulagsstjóri
bendir á í greinargerð sinni til ráðu-
neytisins að engar heimildir séu í
byggingarlögum eða reglugerð sem
heimili veitingu stöðuleyfis fyrir
húsbyggingar. Ráðuneytið segist
þess vegna ekki hafa vald til að
veita umbeðið stöðuleyfi. Það bend-
ir aftur á móti hreppsnefnd Svína-
vatnshrepps á að sanngjarnt sé að
veita Ferðafélaginu sambærilega
fyrirgreiðslu og Veðurstofa íslands
hafi fengið, en stofnunin á hús á
Hveravöllum sem veðureftirlitsmað-
ur notar.
Tillaga um að Veðurstofan
færi líka
í aðalskipulagi fyrir Hveravelli
er gert ráð fyrir að bæði Ferðafélag-
ið og Veðurstofan fjarlægðu bygg-
ingar sínar á svæðinu. í deiliskipu-
lagi, sem auglýst var á síðasta vetri,
var hins vegar gert ráð fyrir að
húsnæði veðureftirlitsmanns Veður-
stofu íslands stæði óhreyft á Hvera-
völlum, en hús Ferðafélagsins viki.
í úrskurði umhverfisráðherra
segir: „Ráðuneytið tekur hins vegar
undir þau sjónarmið kærenda
[Ferðafélags íslands] að sanngirn-
isrök mæli með því að kærandi fái
að halda núverandi aðstöðu sinni á
Hveravöllum um einhvern tíma.
Kærandi heldur því fram í kæru
sinni að Veðurstofa íslands hafi nú
þegar fengið leyfi forsvarsmanna
Svínavatnshrepps til að hafa sína
aðstöðu á Hverávöllum óhreyfða
a.m.k. til ársins 2012. Hafi hrepps-
nefnd veitt öðrum aðilum leyfi til
þess að halda aðstöðu sinni um tíma,
telur ráðuneytið sanngjarnt að kær-
anda verði veitt sambærilegt leyfi.“
Páll Sigurðsson, forseti Ferðafé-
lagsins, sagðist vonast eftir að
hreppsnefnd Svínavatnshrepps tæki
tillit til þessara tilmæla umhverfis-
ráðuneytisins. Hann sagðist hafa
örugga vitneskju um að nefndin
hefði gefið Veðurstofunni munnlegt
loforð um að hús veðureftirlits-
manns fengi að standa óhreyft
a.m.k. út gildistíma aðalskipulags,
sem gildir til ársins 2012. Eðlilegt
væri að Ferðafélagið fengi sam-
bærilega fyrirgreiðslu.
Magnús Jónsson veðurstofustjóri
segir að engar viðræður
hafi farið fram milli Veð-
urstofunnar og hrepps-
nefndar Svínavatnshrepps
um að hús Veðurstofunn-
ar á Hveravöllum yrði rif-
ið eða fært. Stofnunin hefði þar af
leiðandi ekki fengið neitt loforð um
þetta mál frá hreppsnefnd Svína-
vatnshrepps. Það eina sem lægi
fyrir væri að drög að deiliskipulagi
gerði ekki ráð fyrir að húsið færi.
Margvíslegar athugasemdir voru
gerðar við deiliskipulagið. M.a. var
fundið að því að ekki hefðu verið
gerðar rannsóknir á hverasvæðinu
og gróðurfari. Þetta varð til þess
að skipulagsstjóri ríkisins féllst ekki
á tillöguna. Nú er unnið að því að
gera þessar rannsóknir og endur-
skoða deiliskipulagið með tilliti til
þeirra athugasemda sem fram hafa
komið. Þegar þessari vinnu hefur
verið lokið verður nýtt deiliskipulag
auglýst.
Vísað til umboðsmanns Alþingis
Páll sagðist ætla að leggja til við
stjórn Ferðafélagsins að hún óskaði
eftir áliti umboðsmanns Alþingis á
úrskurði umhverfisráðuneytisins
um að aðalskipulag Hveravalla
heyrði undir Svínavatnshrepp.
Páll sagði einnig koma
til greina að vísa málinu
til dómstóla og láta þann-
ig reyna á hvort einhvers
staðar hafi í þessu máli
öllu verið brotnar megin-
reglur íslensks stjórnSýsluréttar.
Ferðafélagið hefur í athugasemdum
til umhverfisráðuneytisins borið fyr-
ir sig ákvæði stjórnsýslulaga. Aðal-
skipulag fyrir Hveravelli hafði ný-
lega verið staðfest þegar stjórn-
sýslulögin tóku gildi. Páll sagði að
það breytti ekki því að meginreglur
stjórnsýslulaga, andmælareglan og
jafnræðisreglan, hefðu verið í gildi
lengi. Hann sagði að engin ákvörð-
un hefði verið tekin um að höfða
dómsmál. Það yrði skoðað síðar,
hugsanlega með hliðsjón af niður-
stöðu umboðsmanns Álþingis.
Sönnun um eignarrétt ótvíræð
Hæstiréttur hefur fellt nokkra
dóma í ágreiningsmálum um eign-
arhald á hálendissvæðum og í öllum
tilfellum hefur kröfu stefnanda um
að þeim verði úrskurðað eignarhald
verið hafnað. í dómi Hæstaréttar
um eignarrétt á Landmannaafrétti
frá árinu 1981 var öllum kröfum
um eignarhald á afréttinum hafnað,
einnig kröfu ríkisins. Hjörleifur
Guttormsson alþingis-
maður sagðist líta svo á
að Hæstiréttur hefði með
þessum dómi vísað deilum
um eignarhald á hálend-
inu til Alþingis. Þingið
hefði hins vegar enn ekki treyst sér
til að taka á málinu.
I dómi Hæstaréttar um Nýjabæj-
arafrétt frá árinu 1969 var kröfu
Skagfirðinga og Eyfirðinga um
eignarrétt á afréttinum hafnað.
Þetta varð niðurstaðan þrátt fyrir
að báðir aðilar ættu upprekstrarrétt
á afréttinn.
Sama niðurstaða varð árið 1994
þegar kveðinn var upp í Hæstarétti
dómur um eignarrétt á Geitlandsaf-
rétti. Málið varðaði rjúpnaskyttu
sem var tekin við meintar ólöglegar
veiðar á afréttinum. Hann neitaði
að borga sekt á þeirri forsendu að
enginn ætti afréttinn. Hæstiréttur
lýsti sig sammála sjónarmiðum
skyttunnar þrátt fyrir að sveitarfé-
lagið hefði upprekstrarrétt á afrétt-
inum.
Geitlandsmálið byggði á sam-
bærilegum gögnum og lögð hafa
verið fram í dómsmáli sem nú bíður
úrskurðar Hæstaréttar um eignar-
hald á Auðkúluheiði, en Hveravellir
falla undir hana. Svínavatnshreppur
og Torfalækjarhreppur hafa gert
kröfu um eignarhald á heiðinni, en'
Héraðsdómur Reykjavíkur hafnaði
henni. Málinu var vísað til Hæsta-
réttar og er dóms að vænta í fyrsta
lagi á næsta ári.
Páll Sigurðsson sagði greinilegt
að Hæstiréttur hefði markað þá
stefnu að leggja mikla skyldu á
þann sem krefðist eignarréttar á
hálendinu um að sanna sitt mál.
Hann sagði að í Auðkúluheiðarmál-
inu hefði Héraðsdómur ekki síst
farið eftir Geitlandsdómnum og fátt
benti til annars en að Hæstiréttur
myndi staðfesta dóm Héraðsdóms.
Páll sagði að ef Hæstiréttur stað-
festi úrskurð Héraðsdóms gæti það
haft áhrif á skipulagsmál á Hvera-
völlum. Þegar skipulagsstjóri vísaði
deiliskipulagi fyrir Hveravelli til
baka setti hann í úrskurðinn ákvæði
um að meðan Svínavatnshreppur
hefur ekki sannað eignarrétt á
svæðinu geti sveitarfélagið ekki
gefið út byggingarleyfi.
„Þetta er staðhæfing í úrskurði
skipulagsstjóra sem við í Ferðafé-
laginu munum vísa í ef Hæstiréttur
staðfestir dóm Héraðsdóms um
eignarrétt á Auðkúluheiði," sagði
Páll.
Grípur inn í skipulagsvinnuna
Hjörleifur Guttormsson alþingis-
maður hefur margsinnis fjallað um
skipulagsmál á hálendinu bæði inn-
an þings og utan. Hann sagði í sam-
tali við Morgunblaðið að ákvörðun
umhverfisráðherra væri gagnrýnis-
verð út frá því sjónarmiði að með
henni væri verið að taka fordæmis-
skapandi ákvörðun um skipulags-
mál á hálendinu á sama tíma og
verið væri að vinna að heildarskipu-
lagi á hálendinu af hálfu stjórnvalda
á tvennum vettvangi. Annars vegar
væri starfandi ráðherraskipuð nefnd
sem ætti að draga upp mörk sveitar-
félaga á landinu, þar með talið á
hálendinu. Hins vegar væri skipu-
lagsstjóri ríkisins að vinna að tillögu
að skipulagi á miðhálendinu. Þessi
vinna væri unnin í samræmi við
viðauka við skipulags- og bygging-
arlög sem samþykktur var árið
1993.
Tillögur um skipulag á miðhá-
lendinu eru unnar í samráði við
héraðsnefndir. Á undanförnum
mánuðum hafa drög að tillögum
verið kynnt fyrir íbúum
þeirra sveitarfélaga sem
eiga land sem liggur að
hálendinu. Reiknað er
með að skipulagsstjóri
leggi fram formlega til-
lögu í lok ársins. Tillögurnar verða
ekki endanlega staðfestar fyrr en
ný skipulags- og byggingalög hafa
verið samþykkt á Alþingi. Frumvarp
um skipulags- og byggingalög hefur
verið lagt fram á undanförnum
þingum án þess að hljóta afgreiðslu.
Hvorki frumvarpið né tillögur
skipulagsstjóra taka á ágreiningi
um eignarhald á hálendinu. Hjörleif-
ur Guttormsson sagði að Alþingi
yrði að taka á þessum ágreiningi.
Unnið að til-
lögum um
hreppamörk
Ekki hægtað
gefa út bygg-
ingaleyfi