Morgunblaðið - 19.07.1996, Síða 6
6 FÖSTUDAGUR 19. JÚLl 1996
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Ályktun bæjar-
ráðs Akureyrar
Villandi
umræða
um flutning
stofnana
BÆJARRÁÐ Akureyrar samþykkti
ályktun á fundi sínum í gær, í fram-
haldi af umræðum um flutning rík-
isstofnana út á land. Ráðið telur að
sú umræða hafí að ýmsu leyti verið
villandi og of mikið hafi verið gert
úr þeim tímabundnu erfíðleikum sem
slíkir flutningar hafa í för með sér.
Bæjarráð vekur athygli á starf-
semi embættis veiðistjóra sem fyrir
tæpum tveimur árum var flutt frá
Reykjavík til Akureyrar. Ekki verði
annað séð en að allt starf við embætt-
ið gangi vel og að vel fari um bæði
stofnun og starfsfólk á Akureyri. Þá
séu fjölmörg dæmi um flutning starf-
semi fyrirtækja og starfsfólks þeirra.
Ekki verði annað séð en það fólk uni
hag sínum vel á nýjum stöðum.
Dæmi um þetta sé flutningur á hluta
starfsemi Sölumiðstöðvar hraðfrysti-
húsanna til Akureyrar.
Bæjarráð telur því mikilvægt að
stjórnvöld haldi áfram á þeirri braut
að flytja stofnanir að hluta eða öllu
leyti út á land. Um sé sé að ræða
réttlætismál fyrir landsbyggðina og
færa megi rök fyrir því að í sumum
tilfellum séu stofnanir betur settar
úti á landi.
Landsmót skáta 1996 verður sett á Úlfljótsvatni á sunnudaginn
Skátar í
víking
„Á VÍKINGASLÓÐ" eru kjörorð
landsmóts skáta sem haldið verður
á Úlffjótsvatni vikuna 21.-28. júlí.
Skátar um land allt eru nú að
leggja síðustu hönd á undirbúning
mótsins, sem sett verður á sunnu-
dag. Gert er ráð fyrir að 4-5.000
manns á öllum aldri sæki lands-
mótið.
Von er á um 1300 skátum á aldr-
inum 11-14 ára í almennar skáta-
búðir, 300 eldri skátum og rúm-
lega 500 erlendum skátum í drótt-
skátabúðir. Starfsmenn mótsins
eru um 250 taisins auk 200 hjálp-
arsveitarmanna. Gert er ráð fyrir
800 gestum í fjölskyldubúðir, en
þær munu hýsa eldri skáta og fjöl-
skyldur þeirra auk fjölskyldna og
systkina mótsgesta. Jafnframt
hefur verið tekin upp sú nýbreytni
að bjóða nokkrum hópum krakka
sem ekki eru starfandi skátar að
heimsækja mótið. Allt mun þetta
lið búa í tjaldbúðum í heljarmiklu
víkingaþorpi, sem rís um helgina
á Úlfljótsvatni.
Skátar hafa undanfarið verið
að setja sig inn í hugarheim vík-
inganna, læra rúnir, æfa glímu
Morgunblaðið/Þorkell
FÉLAGAR í Ægisbúum héldu kvöldvöku í vikunni og hituðu sig upp fyrir landsmótið.
og aðrar fornar íþróttir og leiki,
og útbúa tjöld og fatnað að hætti
fornmanna. Á mótinu verður
keppt í víkingaleikjum og einnig
verður þar starfrækt svokölluð
víkingasmiðja. Þar er boðið upp á
fjölbreytileg verkefni, svo sem að
höggva öndvegissúlur, dengja
spjótsodd, spinna þráð úr ull, súta
skinn og roð, rista torf og dansa
vikivaka. Ennfremur verður farið
í víkingaleiðangra, róið til fislqar
og gerð forkönnun á ránsferð til
Vestmannaeyja.
Þó að yfirbragð mótsins sé allt
í víkingastíl, verður þó boðið upp
á ýmis nútímaþægindi. Þar má
nefna Víkingaútibú Landsbank-
ans, pósthús, útvarpsstöð og móts-
blað, kaffihús, sjúkraþjónustu,
þvottaaðstöðu og vatnssalerni.
Morgunblaðið/Árni JSæberg
GEIR Magnússon forstjóri Olíufélagsins hf. og Þórólfur Árna-
son framkvæmdastjóri markaðssviðs ásamt starfsmönnum Esso-
stöðvarinnar við Stórahjalla, Þórarni Þórarinssyni og Gunnari
Ásgeirssyni, og lengst til vinstri á myndinni er Pálmar Viggós-
son rekstrarstjóri bensínstöðva Esso.
Olíufélagið hf. opnar hraðbúðir
Áhersla á aukið vöru-
úrval til heimilisins
Forstjóri Sjúkrahúss Reykjavíkur segir greiðslustöðuna þrönga
Vonar að ekki
komi til uppsagna
OLÍUFÉLAGIÐ hf. kynnti í gær
opnun hraðbúða, sem reknar verða
í tengslum við og innan nokkurra
af stærstu bensínstöðvum Esso.
Hraðbúðir Esso bera undirtitilinn
„Allt til al!s“ og eru hugsaðar fyrir
fólk, sem vill gera hagkvæm innkaup
til heimilisins á sem skemmstum
tíma. Áhersla verður lögð á sérstök
tilboð í hverri viku. Hraðbúðir Esso
verða formlega opnaðar í dag, en
þær verða framvegis opnar lengur
en nokkrar aðrar verslanir, frá kl.
7.30 á morgnana til kl. 23.30 á
kvöldin frá mánudegi til laugardags
og frá kl. 9.00 til 23.30 á sunnudög-
um.
Þórólfur Árnason, framkvæmda-
stjóri markaðssviðs, sagði að ætlun-
in væri að bjóða upp á vöruframboð,
sem fullnægði flestum þörfum heim-
ilisins í mat, hreinlætisvörum og
öðrum heimilisvörum á samkeppnis-
hæfu verði. Það bæri þó ekki að
skilja það svo að benslnstöðvar Esso
ætluðu að taka yfír stóru matarkörf-
una, „en við ætlum að vera fyrsti
valkostur á eftir stórinnkaupunum
og ætlum ekkert að gefa eftir í verð-
lagningu og vörutilboðum. Við höf-
um kannað viðbrögð viðskiptavina
okkar. Yngra fólkið og þeir, sem
hafa lítinn tíma aflögu, kunna mjög
vel að meta þessar breytingar, sem
smátt og smátt hafa verið að gerast
á stærstu stöðvunum. Við teljum
okkur vera mjög samkeppnishæfa í
vöruverði. Olíufélagið hf. er aðili að
innkaupasambandinu BÚR ásamt
flestum kaupfélögunum og Nóatúni
og nýtur þar með viðskiptakjara og
verslunarsamninga við birgja í krafti
stærðar sem í raun er lykillinn að
því að geta farið út í slíkt verkefni."
Að sögn Þórólfs, hefur stundum
þurft að kljást við reglugerðir heil-
brigðiseftirlitsins, en með því að
gera verslanirnar hreinni og betri
úr garði, hefur fengist leyfi fyrir því
að hafa saman matvöru og olíuvöru,
líkt og þróunin hefur orðið í löndun-
um í kringum okkur. Bensínstöðvar
væru heidur ekkert einar um það
því stórmarkaðir byðu sömuleiðis
alls kyns hreinsiefni, olíuvörur, sam-
hliða matvöru.
Stærsta verslunarkeðja
landsins
Olíufélagið hf. rekur um 120 bens-
ínstöðvar á landinu öllu í verslunar-
rými, sem er allt frá 60 og upp í
100 fermetrar og er þar með stærsta
verslunarkeðja landsins. Til að byrja
með verða fimm hraðbúðir opnaðar
á höfuðborgarsvæðinu, en síðan er
gert ráð fyrir sama fyrirkomulagi á
stærstu stöðvunum hringinn í kring-
um landið í samráði við rekstrarað-
ila þar. Þær fímm stöðvar, sem um
ræðir nú, eru við Stórahjalla í Kópa-
vogi, Skógarsel í Breiðholti, Lækjar-
götu í Hafnarfírði, Gagnveg í Graf-
arvogi og Ægisíðu í Reykjavík.
JÓHANNES Pálmason, forstjóri
Sjúkrahúss Reykjavíkur, segir að
mæta þurfi rekstrarvanda spítalans,
sem nemi 200-250 milljónum krgna,
með aukinni hagræðingu og mark-
vissari starfsemi á þeim deildum sem
séu í rekstri þannig að til sem
minnstrar skerðingar komi. Hann
segir stöðugt leitað leiða til að leysa
vandann en sagði ótímabært að tjá
sig um ákveðnar tillögur. Þær verði
lagðar fyrir stjómarfund spítalans í
næstu viku og þá muni verða tekin
afstaða til þeirra.
Jóhannes segir greiðslustöðu spít-
alans afar þrönga en fullyrðingar
um að ekkert hafí verið greitt und-
anfarið nema laun og að spítalinn
sé kominn í greiðsluþrot, séu orðum
auknar. „Við eigum í rekstrarfjár-
vanda og fyrir því hafa birgjar okk-
ar fundið. Við höfum mætt miklum
skilningi hjá þeim og vonum að þetta
Vaðbrckku. Morgunblaðið
HÁKON Aðalsteinsson formaður
kjörstjórnar og hreppsstjóri í Fljóts-
dalshreppi, segir að líkur séu á að
farið verði í meiðyrðamál vegna
ummæla Hjartar E. Kjerúlf oddvita
um að kjörstjórnin hafi breytt kjör-
seðlum í kosningu um sameiningu
þriggja hreppa í Norður-Múlasýslu.
Hákon telur að þessi ummæli séu
ásakanir um að kjörstjórn Fljótsdals-
hrepps hafi gert aðför að lýðræðinu.
Sameiningarkosningin var kærð
og úrskurðuð ógild í vikunni vegna
þess að tekið var gilt atkvæði manns
sem ekki reyndist vera á kjörskrá.
Hákon segir þennan úrskurð eðli-
sé tímabundinn vandi sem við náum
að vinna okkur út úr í samvinnu við
alla aðila,“ sagði hann.
Uppsagnir til umræðu
Aðspurður um það hvort úrræði
eins og uppsagnir yrðu til umræðu
á umræddum stjórnarfundi sagði
Jóhannes að svo yrði, eins og hvað
annað. „Við höfum ekki enn þurft
að grípa til uppsagna þrátt fyrir
ýmsar aðgerðir til hagræðingar í
rekstri. Þótt maður óttist að til slíks
geti komið þá vonar maður að svo
verði ekki. I svona stóru fyrirtæki
með jafnmörgum starfsmönnum er
heilmikil hreyfíng á fólki og maður
gerir ráð fyrir að geta fært til fólk
áður en farið er í uppsagnir. Hag-
ræðing, sem felst í hugsanlegri
sameiningu deilda og tilfærslu, mið-
ar að því að auka hagkvæmni og
að geta sinnt sama sjúklingafjölda
legan. Varðandi vörslu kjörgagna
segir hann að farið hafí verið með
kjörgögnin milli talninga samkvæmt
venju, en kominn sé tími til að endur-
skoða það í framtíðinni hvemig farið
sé með kjörgögn að kosningum lokn-
um. Hákon segist ekki ætla að áfrýja
úrskurðinum og tóku félagar hans í
kjörstjórn Fljótsdalshrepps undir það.
Hjörtur segist ekki hafa kynnt sér
úrskurðinn út í hörgul en sé í sjálfu
sér ánægður með hann og nú séu
málin komin á hreint. Nú sé bara
að vinna málstaðnum fylgi, það er
að fella sameininguna ef komi til
þess að kjósa aftur.
og áður. Hvort allt gengur svo eft-
ir, verður tíminn að leiða í ljós.“
Jóhannes leggur áherslu á að
Borgarspítalinn sé ekki eini spítal-
inn sem á í vanda. „Við verðum
hins vegar að horfa í eigin barm
og hagræða enn frekar. Við höfum
verið með ýmsar hugmyndir uppi
og gripið til aðgerða sem þegar
hafa skilað árangri upp á 150 millj-
ónir króna í hagræðingu og til-
færslu. Við ætlum að reyna að halda
áfram á þeirri braut.“
Kristján Erlendsson, skrifstofu-
stjóri í heilbrigðisráðuneytinu, sagði
að síðustu daga hefði verið unnið
mjög stíft að því að leita leiða til
að leysa eða létta vanda Sjúkrahúss
Reykjavíkur, bæði í framkvæmda-
stjórn þess og í ráðuneytinu, og um
það væri full samvinna. Hann sagði
ótímabært að tjá sig um þær tillög-
ur sem um hefði verið rætt.
Hjörtur segist muni leggja fram
bókun í sinni sveitastjórn um að
ekki verði kosið aftur. Hann segir
engin rök hafa komið fram um að
sameining yrði til hagsbóta fyrir
sveitafélagið nema síður væri. Hann
egir ennfremur að komi í ljós að
sveitarfélagið hafi hagnað af sam-
einingu þá verði hann fyrsti maður
til að beygja sig í auðmýkt fyrir
þeim útreikningum.
Anna Bryndís Tryggvadóttir, einn
kærenda telur úrskurðinn eðlilegan
og sama sinnis er Jón Björnsson,
sveitarstjórnarmaður í Fljótsdals-
hreppi, og einn kærenda.
Eftirköst kæru vegna sameiningarkosninga í Fljótsdal
Hreppstjóri íhugar meið-
yrðamál gegn oddvita