Morgunblaðið - 19.07.1996, Síða 7
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 19. JÚLÍ 1996 ' 7
Hefur sagt
af sér þing-
mennsku
3KRIFSTOFU forseta Alþingis
barst í vikunni bréf frá Ólafi Ragn-
ari Grímssyni, verðandi forseta ís-
lands, þar sem hann óskar eftir
lausn frá þingstörfum og er bréfið
dagsett 10. júlí síðastliðinn. Sæti
Ólafs Ragnars á Alþingi tekur Sig-
ríður Jóhannesdóttir kennari í
Keflavík.
Ólafur G. Einarsson, forseti Al-
þingis, hitti Ólaf Ragnar að máli á
heimili hans í gær, en þar var að
sögn Ólafs G. m.a. rætt um það
hvernig þingmenn Reykjaneskjör-
dæmis myndu standa að því að
kveðja Ólaf Ragnar þegar hann nú
lætur af þingmennsku. Sagði Ólafur
G. Einarsson í samtali við Morgun-
blaðið að þess misskilnings hefði
gætt að hann færi á heimili Ólafs
Ragnars til að taka við afsagnar-
bréfi hans sem alþingismanns en
svo hafi ekki verið. Það tíðkaðist
ekki að forseti Alþingis sækti slíkt
bréf til þeirra þingmanna sem láta
af störfum heldur sendu þeir bréfið
til skrifstofu forseta Alþingis eins
og gert hefði verið í þessu tilfelli.
-----» ♦ ♦-----
Aukafj árveiting-
til Námsflokka
BORGARRÁÐ hefur samþykkt 21,5
milljóna króna aukafjárveitingu
vegna frágangs á nýju húsnæði fyr-
ir Námsflokka Reykjavíkur í Suð-
urmjódd.
í erindi byggingadeildar til borg-
arráðs segir að tilboð hafi verið opn-
uð 'í lok júní í heildarfrágang á hús-
næðinu. Eitt tilboð hafi borist sem
var um 22,5% yfir kostnaðaráætlun
og var því hafnað. Þess í stað fór
fram verðkönnun á einstökum verk-
þáttum.
Farið hefur verið fram á að Póst-
ur og sími, sem er með afgreiðslu í
húsinu greiði hlutdeild í stofnkostn-
aði vegna lyftu samkvæmt eignar-
hluta eða 1,4 millj.
-----♦ ♦ ♦-----
Deilur íbúa í
Efstaleiti til
Hæstaréttar
HÚSFÉLAGIÐ í Efstaleiti 10, 12
og 14 hefur ákveðið að áfrýja til
Hæstaréttar niðurstöðu Héraðsdóms
Reykjavíkur í máli húsfélagsins gegn
Bent Scheving Thorsteinssyni.
Niðurstaða Héraðsdóms var á þá
leið, að uppsetning húsfélagsins á
skilrúmum í sameiginlegu rými
hússins hafi falið í sér svo óvenju-
lega ráðstöfun og mikla breytingu
frá samþykktum teikningum varð-
andi nýtingu sameignar í næsta
nágrenni við íbúðs Bents að þær
hafi ekki mátt gera án samþykkis
hans.
Sigurður H. Guðjónsson, lögmað-
ur húsfélagsins, sagði að eigendur
27 af 34 íbúðum í húsinu hefðu
mætt á fund á þriðjudag og sam-
þykkt einróma að áfrýja niðurstöðu
Héraðsdóms. íbúðaeigendurnir litu
svo á, að dómurinn vængstýfði hús-
félög með svo þröngum skilyrðum
til breytinga. Þá gengi dómurinn
gegn niðurstöðu Hæstaréttar í öðru
máli sömu aðiía. Hæstiréttur hefði
talið húsfélaginu heimilt að selja
húsvarðaríbúð án þess að hafa til
þess samþykki allra íbúa.
-----»-■»-•♦---
Vinnuslys í
Engjaskóla
FLEKI féll úr lofti á fót manns sem
var að vinna í nýbyggingu Engja-
skóla í Grafarvogi í gærmorgun.
Maðurinn var fluttur á slysadeild
með sjúkrabifreið.
FRÉTTIR
Morgunblaðið/Kristinn
Ungir brids-
spilarar á
Evrópumót
LANDSLIÐ bridsspilarara 25 ára
og yngri tekur þátt í Evrópumóti
sem hefst í dag í Cardiff í Wales.
Keppt er um Evrópumeistaratitil
en fjórar efstu þjóðirnar fá einnig
rétt til að taka þátt í heimsmeist-
aramóti spilara 25 ára og yngri
sem haldið verður á næsta ári.
í landsliðinu eru talið frá
vinstri: Ragnar Hermannsson fyr-
irliði, Sigurbjörn Háraldsson,
Steinar Jónsson, Ljósbrá Baldurs-
dóttir, Magnús Magnússon, Stefán
Jóhannsson og Olafur Jónsson.
Jívað sem öðru líður er
gullið alltaf ejtirsóttast
ÖLGERÐIN EGILL SKALLAGRÍMSSON EHF.
Stofnað 1913