Morgunblaðið - 19.07.1996, Blaðsíða 9
MORGUNBLAÐIÐ
FRETTIR
FÖSTUDAGUR 19. JÚLÍ 1996 9
Skálholts-
hátíð um
helgina
SKÁLHOLTSHÁTÍÐ er að vanda
haldin um Þorláksmessu á sumri.
Hefst hún laugardaginn 20. júlí
kl. 16 með tónleikum Skálholtshá-
tíðarkórsins og erindi Stefáns
Karlssonar um Skálholtsbækur frá
miðöldum.
Á þessum tónleikum verða flutt-
ir kaflar úr hátíðarkantötum sem
samdar voru fyrir Skálholtshátíð
1956. Kaflar úr kantötum Karls
Ó. Runólfssonar og Sigurðar
Þórðarsonar verða þarna fluttir í
fyrsta sinn.
í erindi sínu um Skálholtsbækur
mun Stefán Karlsson meðal annars
kynna handritsbrot það sem Árna-
stofnun barst í vetur og talið er
að ritað sé í Skálholti.
Á samkomu um kvöldið kl. 20.30
verður kynnt það helsta sem verið
er að framkvæmda í Skálholti og
áform um framtíðaruppbyggingu.
í messu kl. 14 sunnudaginn 21.
júlí syngur Skálholtshátíðakórinn
undir stjóm Hilmars Arnar Agn-
arssonar og séra Guðmundur Óli
Ólafsson prédikar.
Á tónleikum kl. 16.30 mun
strengjakvartett flytja verk Ha-
ydns um „Sjö orð Krists á krossin-
um“. Leikið verður á upprunaleg
hljóðfæri og er þetta í fyrsta sinn
sem verkið er flutt hérlendis, segir
í fréttatilkynningu. í lok þeirra
tónleika mun biskup Islands flytja
bæn og fararblessun.
-----» ♦ ♦----
Ætlaði að
bjarga fjár-
hagnum
UNGUR maður hefur viðurkennt
að hafa stolið myndbandstæki úr
Valsheimilinu í vikunni. Hann
hugðist koma því í verð til að
bæta fjárhagsstöðuna.
Maðurinn kom í Valsheimilið við
annan mann og gerði stuttan
stans. Talið er að hann hafi stung-
ið tækinu í íþróttatösku sem hann
hafði meðferðis. Starfsmaður Vals-
heimilisins hafði orðið var við ferð-
ir bifreiðar og náð númeri hennar
og var talið að þar hefði þjófurinn
verið á ferð.
Bifreiðin fannst skömmu síðar
mannlaus í miðbænum og var
dregin á lögreglustöð. Maðurinn
hafði samband við lögreglu vegna
bílsins og viðurkenndi að hafa tek-
ið tækið. Hann var búinn að láta
það af hendi en tókst að ná því
aftur og komst það í réttar hendur.
Við yfirheyrslur kom í ljós að
maðurinn var í miklum peninga-
kröggum og ætlaði hann að selja
tækið og bæta þannig fjárhags-
stöðu sína.
Rannsóknarlögregla ríkisins
hefur málið til meðferðar.
-----♦—♦—♦----
Meintir
hjólaþjófar
handteknir
LÖGREGLAN í Reykjavík flutti
þijá menn á lögreglustöð um fimm-
leytið í fyrrinótt eftir að hafa stöðv-
að þá á bíl við Bifreiðastöð ís-
lands. Ökumaður bílsins var grun-
aður um ölvun við akstur. Þá voru
mennirnir grunaðir um að hafa
tekið reiðhjól, sem þeir höfðu með-
ferðis, ófijálsri hendi við Eggerts-
götu.
FALLEG urriðaveiði úr Meðalfellsvatni.
Beðið eftir rign-
ingn á Yesturlandi
VEIÐI hefur verið góð í Langá á
Mýrum og óvenju margir stórlax,-
ar. Laxá í Dölum er aftur á móti
orðin heldur vatnslítil og þar er
takan treg.
Stærsti laxinn sem veiðst hefur
í Langá á Mýrum það sem af er
sumri var 21,5 pund og að sögn
Runólfs Ágústssonar, eins þriggja
leigutaka árinnar, er mikið af stór-
laxi í ánni og jöfn og góð veiði.
Þó nokkrir 17, 18 og 19 punda
fiskar hafa veiðst þar undanfarið
og alls eru 663 laxar komnir á
land, eða um 30-40 fiskar á dag.
Veiðin er heldur meiri en um sama
leyti í fyrra.
„Laxinn er ekki í tökustuði þessa
dagana. Það hefur ekki rignt lengi,
en við kvörtum þó enn ekki undan
vatnsleysi í ánni,“ segir Runólfur.
Veitt er á tólf stangir í Langá
og nú er þar blandaður hópur Is-
lendinga, Bandaríkjamanna og
Spánveija og mikið fjör. Þeir síð-
astnefndu veiða helst á maðk, að
sögn Runólfs.
Við Laxá í Dölum bíða allir eft-
ir rigningu, bæði laxar og veiði-
menn. Kristinn Gunnarsson, leið-
sögumaður, segir að veiðin sé ekki
mikil sem stendur, en hins vegar
sé talsvert af fiski, hann taki bara
ekki fyrir vatnsleysi.
Úr ánni eru komnir 166 fiskar,
mest ársgamall lax. Sá stóri ligg-
ur ennþá niðri í sjó, að sögn Krist-
ins.
Húsavíkurdagar um helgina
Mímaiári
Gagnrýni - DV 9.júlí
Ekta fín sumar-
skcmmtun.
Gagnrýni - Mbl ó.júlí
Ég hvet sem flesta að
verða ekki af þessari
sumarskemmtun.
Laugard. 20. júlí kl. 20.
Örfá sæti laus.
Fös. 26. júlí kl, 20.
Örfá sæti laus.
Fim, 1. ágúst kl. 20
Komdu e! þú ÞORIR!!!
Frumsýning
föstudaginn 19. júlí,
MaONu
** uppselt
/
Lau. 27. júlí kl. 20
Miðasala í síma 552 3000.
Fólk er alltaf
að vinna
íGullnámunni:
102 milljónir
HÚSVÍKINGAR gera sér daga-
mun um helgina og verður ýmis-
legt þar á dagskrá fyrir bæjarbúa
og gesti.
Meðal annars verður söguganga
um bæinn, bíla- og tækjasýning á
vegum björgunarsveitarinnar og
slökkviliðsins og aflraunakeppni. Á
sunnudag verður' helgistund upp
við Botnsvatn en þar var messað
á hveiju sumri fyrr á öldinni. Mess-
að er hjá stórum steini sem nefnd-
ur var „kirkjan". Þýskur stúlkna-
kór syngur við athöfnina.
Sunnudagurinn er jafnframt
landgræðsludagur og gróðursett
verður í Aðaldalshrauni vestan við
flugvöllinn. Þar verður boðið upp
á pylsur og leikur verður skipu-
lagður fyrir börn á öllum aldri.
Laugavegi 4, sími 55 I 4473
Vikuna 11.-17. júlí voru samtals 101.721.027 kr.
greiddar út í happdrættisvélum um allt land. Þetta voru
bæöi veglegir Silfurpottar og fjöldinn allur af öðrum
vinningum. Silfurpottar í vikunni:
Dags. Staöur Upphæö kr.
13. júlí Háspenna, Laugavegi....... 890.735
13. júlí Videomarkaðurinn, Kóp..... 134.185
15. júlí Feiti dvergurinn.............. 125.133
15. júlí Háspenna, Hafnarstræti.... 202.441
16. júlí Kringlukráin.................. 188.415
Staöa Gullpottsins 17. júlí, kl. 23.00
var 12.337.500 krónur.
Silfurpottarnir byrja alltaf í 50.000 kr. og Gullpottarnir í 2.000.000 kr.
og hækka siöan jafnt og þétt þar til þeir detta.
YDDA F53.185/SÍA