Morgunblaðið - 19.07.1996, Blaðsíða 10
10 FÖSTUDAGUR 19. JÚLÍ 1996
MORGUNBLAÐIÐ
AKUREYRI
Morgunblaðið/Kristján
Á MYNDINNI sjást gatnamót Borgarbrautar og Hlíðarbrautar en stefnt er að því að hefja fram-
kvæmdir við tengingu Borgarbrautar og Tryggvabrautar næsta vetur. 1 framhaldinu verður farið
í tengingu Dalsbrautar við Borgarbraut frá Þingvallastræti. í framtíðinni verða svo Dalsbraut og
Borgarbraut aðal-akstursleiðirnar frá Þorpinu og Brekkunni í miðbæinn og á athafnasvæðið á Oddeyri.
Tilkoma Borgarbrautar og Dalsbrautar
Sparar bfleigendum
rúmar 36 millj. á ári
ÞINGMENN Norðurlandskjördæm-
is eystra hafa lýst yfir vilja til að
vinna að því að Borgarbraut á
Akureyri verði tekin inn sem þjóð-
vegur við endurskoðun vegaáætlun-
ar upp úr næstu áramótum. Þetta
kom fram í máli Jakobs Bjömsson-
ar, bæjarstjóra, á fundi bæjarstjóm-
ar í vikunni.
Sparnaður bíleigenda rúmar
36 milljónir á ári
Gísli Bragi Hjartarson, formaður
skipulagsnefndar, segir að Borgar-
braut og tenging Dalsbrautar við
hana stytti vegalengdir innanbæjar
umtalsvert og muni spara bíleigend-
um í bænum rúmar 36 milljónir
króna á ári í beinan rekstrarkostn-
að, miðað við þær forsendur sem
fyrir liggja.
Framkvæmdir hefjist
næstá vetur
/
Þeir Gunnar Jóhannesson á
tæknideild bæjarins og Guðmundur
Heiðreksson yfirtæknifræðingur
hönnunardeildar Vegagerðarinnar
á Norðurlandi eystra hafa verið
skipaðir í nefnd til að vinna að
undirbúningi málsins. Vinna þeirra
er rétt að fara af stað og í upphafi
snýst hún um að skilgreina hver
greiði hvað við framkvæmdina.
Verði Borgarbraut þjóðbraut i þétt-
býli fellur langmestur hluti kostnað-
arins á ríkið. Hins vegar mun það
koma í hlut bæjarins að greiða t.d.
kostnað við göngustíga og fleira.
Gísli Bragi segist vonast til að
framkvæmdir við Borgarbraut geti
hafist strax næsta vetur, eða um
leið og vegurinn er komin inn á
vegaáætlun. Samkvæmt fýrstu
tölum er heildarkostnaður áætlaður
100-120 milljónir króna. Um er að
ræða tengingu Borgarbrautar frá
Hlíðarbraut og niður að Tryggva-
braut, með nýrri brú yfir Glerá.
Þessi leið tengir einnig væntanlegan
byggðakjarna í Glæsibæjarhreppi að
sögn Gísla Braga, þar sem framhald-
ið yrði væntanlega. til norðurs fyrir
ofan byggðina í Síðuhverfi.
Gríðarlega stórt mál
„Þá er hugmyndin að tengja
Dalsbraut frá Þingvallastræti og
inn á Borgarbrautina, enda er í
framtíðinni gert ráð fyrir að þetta
verði aðal-akstursleiðin bæði frá
Brekkunni og Glerárþorpi í miðbæ-
inn og á athafnasvæðið á Oddeyri.
Einnig er hér um ræða mikilvæga
tengingu við Háskólann á Sólborg-
arsvæðinu. Þetta er því gríðarlega
stórt mál fyrir okkur og mikilvægt
að Borgarbrautin komist inn á
vegaáætlun," sagði Gísli Bragi.
Gatnadeild bæjarins hefur unnið
frumathugun á vegastæði Borgar-
brautar en framkvæmdin á þó eftir
að fara í umhverfismat. Gísli Bragi
segir alveg ljóst að menn verði að
vanda sig við þessa framkvæmd,
enda sé hún á fallegum og við-
kvæmum stað og m.a. farið í gegn-
um friðað svæði.
>-c
3
*o
&
I
2
3
P4
W
v»
Ekta teppi á lœgra verði en gerfimottur!
Balutch extra,
rúml. 1x2
Balutch extra,
bænamottur
Pakistan ca 130 x 185
320.000 hnútar á fm
Algengt
verð:
45.000 28-35.000
30.000 11-15.800
45.000 32-35.800
Ásamt mörgum öðrum frábærum tilboðum, t.d.
Pak. Bochara 310 x 218, áður 129.800 NÚ: 79.800
Pak. Keshan 284 x 186, áður 149.800 NÚ: 89.800
Antik Rússnesk Yomud 332 x 215, áður 489.000 NÚ: 239.000
Persnesk Keshan 217x 136, áður 139.000 NÚ: 79.800
Hótel Grartd Sígtúní, í dag. 19. júlí, kl. 13-18
Laugardag 20. júlí H. 11 - 17
Austurlenska teppasalan k£.
Akureyrarbær og UA
Samningur um
framsal forkaups-
réttar staðfestur
BÆJARRÁÐ staðfesti á fundi sín-
um í gær samning milli Akureyrar-
bæjar og Útgerðarfélags Akur-
eyringa hf. um framsal til stjórnar
UA á forkaupsrétti bæjarins í
hlutfjárútboði félagsins, að nafn-
virði rúmar 80 milljónir króna.
í samningnum kemur fram að
gengi hlutabréfa í ÚA í yfirstand-
andi hlutafjárútboði er 4,5. Kaup-
verð ÚA er því um 360 milljónir
króna. Selji ÚA eftir að yfirstand-
andi hlutafjárútboði lýkur, hluta-
bréf í félaginu sem hinn framseldi
forkaupsréttur tekur til hvort held-
ur er í beinni sölu eða í skiptum
fyrir önnur verðmæti, á hærra
gengi en 4,5 skal ÚA greiða til
bæjarins sem nemur 50% af um-
framverðinu strax að gerðum slík-
um einstökum samningum.
Útgerðarfélag Akureyringa mun
fyrst nýta hlutafé þetta til að
mæta óskum annarra hluthafa í
yfirstandandi hlutafjárútboði um
kaup á auknum hlut í forkaups-
rétti. Ef hluthafar skrá sig fyrir
hærra hlutafé en til ráðstöfunar
verður skal það selt viðkomandi
hluthöfum í hlutfalli við hlutafjár-
eign þeirra í félaginu. ÚA mun að
hlutafjárútboði loknu bjóða öðrum
sem áhuga hafa á að eignast hlut
í félaginu.
Leiksýning
í Deiglunni
í SUMAR verða í Deiglunni
nokkrar leiksýningar á vegum
Listasumars með styrk frá Jafn-
réttisnefnd Akureyraræbæjar, í
samvinnu við Kaffileikhús Hlað-
varpans og höfundarsmiðju Borg-
arleikhússins.
Þriðja sýningin þennan mánuð-
inn er úr Kaffileikhúsi Hlaðvarp-
ans. Það er leikkonan Sigrún Sól
Ólafsdóttir sem flytur verkið „Ég
var beðin að koma“ einfaldan
gamanleik um flókinn harm, eftir
Þorvald Þorsteinsson. Þorvaldur
sem er borinn og barnfæddur
Akureyringur er löngu lands-
þekktur sem myndlistarmaður og
þá ekki síður sem leikhússtjóri
og höfundur Vasaleikhússins.
Leikstjóri er Guðjón Pedersen.
Sýningarnar verða í Deiglunni í
kvöld, 19. júlí og annað kvöld 20.
júlí kl. 20.30.
Dúóið Harmslag í kvöld
Að lokinn leiksýningu í kvöld
kemur dúóið Harmslag; Stína
bongó og Böðvar á nikkunni.
Tónlist þeirra fyrir harmonikku
og bongótrommur byggir á þekkt-
um slögurum sem færðir eru í
suðuramerískan takt, s.s. rúmbu
og cha cha cha. Leikurinn hefst
kl. 22 og er aðgangur ókeypis.
Kántrýdans á
Akureyri og
í Eyjafjarðar-
sveit
JÓHANN Örn Ólafsson dans-
kennari verður með námskeið í
kántrýdönsum (línudönsum) í
dag, föstudaginn 19. júlí og á
morgun, laugardaginn 20. júlí.
Námskeiðið fer fram í Púslinum
í KA-heimilinu og í hlöðunni á
bænum Hrísum í Eyjafjarðar-
sveit.
í kvöld verða tveir tímar í Púls-
inum, sá fyrri kl. 19.30 fyrir þá
sem hafa dansað slíka dansa áður
og kl. 20.30 fyrir byijendur. Á
morgun verður sameiginlegur
tími fyrir báða hópa kl. 16.15,
einnig í Púlsinum. Á námskeiðinu
verða kenndir nokkrir einfaldir
og bráðskemmtilegir kántrýdans-
ar og það þarf engan dansfélaga.
Verð fyrir hvern tíma er 500 kr.
á mann.
Kl. 18 á morgun verður haldið
áfram að dansa kántrý og þá í
hlöðunni á Hrísum, en orlofshúsin
þar og Meistarinn efna til nýstár-
legrar kynningar á vörum og
þjónustu fyrirtækjanna við þetta
tækifæri.
Síminn hjá Jóhanni Erni er 896
6197 og þar fást nánari upplýs-
ingar.
Skólastjóri Síðuskóla
Þrír sóttu um
ÞRJÁR umsóknir bárust um stöðu
skólastjóra við Síðuskóla, en frest-
ur til að sækja um stöðuna er nú
útrunninn.
Þeir sem sóttu um stöðuna eru
Ragnhildur Skjaldardóttir, Akur-
eyri, Sveinbjörn Markús Njálsson,
Dalvík, og Sturla Kristjánsson,
Akureyri. Skólanefnd Akureyrar-
bæjar mun væntanlega fara yfir
umsóknir á fundi í næstu viku.
Síðuskóli er stærsti grunnskól-
inn á Akureyri með um 650 nem-
endur í 1. til 10. bekk.
MESSUR
LAUFÁSPRESTAKALL: Guðs-
þjónustan sem fyrirhuguð var í
Grenivíkurkirkju nk. sunnudags-
kvöld fellur niður vegna viðgerða
á kirkjunni.
j[\WAW/Vl HEIL8UQÆSLU8TQOIN A AKUREVRI
Hjúkrunarfræöingar
Starf hjúkrunarfræðings við heimahjúkrun á Heilsugæslustöðinni á
Akureyri er laus til umsóknar. Um er að ræða 80-100% starf f'rá 1. sept. nk.
eða eftir samkomulagi.
Heimahjúkrunin er í örri þróun. Unnið erað einstaklingsbundinni hjúkrun
í heimahúsum.
Starfið er lifandi og gefandi. Starfsandi er góður.
Umsóknarfrestur um starfið er til 1. ágúst nk.
Hafið samband við dcildarstjóra heimahjúkrunar eða hjúkrunarforstjóra og
fáið nánari upplýsingar í síma 462 2311.