Morgunblaðið - 19.07.1996, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ
LANDIÐ
FÖSTUDAGUR 19. JÚLÍ 1996 11
Endurbygg-
ing á merku
mannvirki á
Sauðanesi
Þórshðfn - Mikil breyting hefur
orðið á gamla prestsbústaðnum á
Sauðanesi á Langanesi, en end-
urbygging hans er nú langt kom-
in. Þetta merka hús var byggt
árið 1879 og lét sr. Vigfús Sig-
urðsson byggja það. Steinsmiður-
inn sem byggði húsið hét Sveinn
Brynjólfsson. Núna er húsið á
vegum húsfriðunarnefndar Þjóð-
minjasafnsins og núverandi arki-
tekt hússins er Guðmundur L.
Hafsteinsson.
Húsið verður opið almenningi
næstu helgi, á 150 ára verslunar-
afmæli Þórshafnar, og þá mun
Aðalsteinn Maríusson, múrara-
meistari frá Sauðarkróki, fræða
fólk um sögu hússins og bygging-
arlag, en endurbygging þess hef-
ur verið undir hans stjórn. Að-
stoðarmenn hans hafa verið
Björn Ottósson, múrari frá Sauð-
arkróki ásamt Lýði Oddssyni og
Jónasi Pálssyni. Þessi fallega
bygging er Aðalsteini afar hug-
leikin og er fróðlegt að hlýða á
frásögn hans af sögu hússins svo
eflaust leggja margir leið sína
þangað um helgina.
Húsið var orðið n\jög illa farið
en búið var í því til ársins 1958,
síðan hefur það staðið autt. Húsið
var mikið mannvirki á sínum tíma
og var hleðslugijótið í það flutt
um langan veg, bæði úr Hallgils-
staðanipa og Brekknafjalli og að
því að talið er einnig austan úr
Prestlækjabotnum í Hliðólfsfjalli.
Viðgerð á útveggjum hússins
hófst árið 1992 og er ytra útlit
hússins nú komið í upprunalegt
horf en innanstokks er mikið eft-
ir. Þjóðminjasafnið á húsið og
hefur fjármagnað viðgerð ásamt
heimamönnum en Héraðsnefnd
N-Þingeyjarsýslu leggur árleg
framlög í húsið.
Sjálfboðaliðum þakkað
Að sögn Aðalsteins Maríusson-
ar eiga sjálfboðaliðar heima fyrir
þakkir skildar fyrir vinnufram-
lög og ábúendur Sauðaness,
Dagný Marinósdóttir og Agúst
Guðröðarson, hafa þar mikið til
lagt, en burðarbitana í húsið sag-
aði Ágúst og lagði til mikið timb-
ur. Slíkur hugur frá heimamönn-
um er ómetanlegur, sagði Aðal-
steinn, en hópur sjálfboðaliða var
mættur undir hans stjórn þegar
fréttaritara bar að garði með
myndavélina. Verið var að
hreinsa til í kringum húsið, en
búið er að rífa innviði þess og
því dágóður haugur af timburr-
usli og öðru sem til fellur við við-
gerð og endurbyggingu.
f húsnefnd er áhugasamt fólk,
en það eru Kristín Krisljánsdóttir
og Reinhard Reynisson í Þórs-
hafnarhreppi, Ingunn St. Svav-
arsdóttir á Kópaskeri, Steingrím-
ur J. Sigfússon frá Gunnarsstöð-
um og múrarameistarinn Aðal-
steinn Maríusson frá Sauð-
árkróki. Hugmyndir nefndarinn-
ar eru að þar verði byggðasafn
með áherslu á sögu Langaness-
ins, en einnig gæti húsið verið
notað sem móttökuhús. Þar mætti
jafnvel mætti hugsa sér aðsetur
fyrir fræðimenn til lengri eða
skemmri tíma, að sögn Reinhards
Reynissonar.
Hann sagði ennfremur að húsið
væri kjörinn viðkomustaður
ferðamanna sem leið sína leggja
út á Langanesið og þar yrðu fá-
anlegar upplýsingar um nesið og
annað sem ferðamenn lysti að
vita. Þetta myndarlega hús býður
því upp á marga möguleika sem
ekki eru enn fullmótaðir, sagði
Reinhard.
Síðustu tveir prestar sem
bjuggu í gamla prestssetrinu voru
sr. Þórður Oddgeirsson og þar
næst sr. Ingimar Ingiinarsson.
Morgunbiaðið/Líney Sigurðardóttir AFKOMENDUR sr. Þórðar Oddgeirssonar sem þarna bjó - þrír
SJÁLFBOÐALIÐAR við hreinsunarstarf á lóð gamla hússins ásamt ættliðir. Þórður R. Þórðarson, sonarsonarsonur hans, Gyða Þórðar-
Aðalsteini Maríussyni, múrarameistara. dóttir, dóttir hans og Þórður Þórðarson, sonarsonur hans.
HAGKAUP
yrirflölskttlcluna-
A$aI HtSdldM er
N/fjftt
RortrttíwAbíl.