Morgunblaðið - 19.07.1996, Page 27
MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
+ Guðjóna Bene-
diktsdóttir fædd-
ist í Bensahúsi að
Gerðalandi í Garði
25. nóvember 1909.
Hún lést í Arnarholti
á Kjalarnesi 2. júlí
síðastliðinn. Foreldr-
ar Guðjónu voru
Benedikt Sæmunds-
son formaður og
skipstjóri á Haffr-
únni, f. 6. febrúar
1870, d. 16. júní
1914, og Hansína
Marie Sentsius
Karlsdóttir, f. 17.
maí 1873, d. 24. nóv-
ember 1958. Systkini Guðjónu
voru sjö, fjögur alsystkini og þijú
hálfsystkini. Eftirlifandi bróðir
hennar er Njáll Benediktsson
framkvst., f. 16. júlí 1912, en hin
systkinin er nú öll látin.
Hinn 8. febrúar 1930 giftist
Guðjóna Jóni Z. Guðmundssyni
málmsteypumeistara, f. 10. jan-
úar 1907, d. 8. júlí 1972. Þau
skildu 1943. Börn Guðjónu og
Jóns eru: 1) Guðrún Soffía, f.
9. september 1928, fv. sauma-
kona við saumastofu Borgarspít-
alans, var gift Henning Back-
mann og eiga þau tvö börn, en
sambýlismaður hennar er Bjarni
Sigurðsson frá Geysi í Hauka-
dal. 2) Haukur Geirmundur, f.
8. febrúar 1931, rennismiður í
Reykjavík og starfsmaður ál-
versins í Straumsvík, kvæntur
Erlu Jónsdóttur og eiga þau þijú
börn. 3) Soffía Guðrún, f. 8.
mars 1933, sjúkraliði í Reykja-
vík, gift Siguijóni Ingasyni frá
Vaðnesi í Grímsnesi og eiga þau
sex börn. 4) Guðlaug Dagmar,
f. 7. október 1936, vinnur við
hjúkrunarstörf á Skjóli í Reykja-
Kallið er komið,
komin er nú stundin,
vinaskilnaðar viðkvæm stund.
Vinimir kveðja
vininn sinn iátna,
er sefur hér hinn síðsta blund.
Margs er að minnast,
margt er hér að þakka.
Guði sé lof fyrir liðna tíð.
Margs er að minnast,
vík, gift, Helga Guð-
jónssyni og eiga þau
fimm börn. 5) Guð-
mundur Hafsteinn,
f. 13. júlí 1942, d. 2.
júní 1986, lásasmið-
ur í Reykjavík, og
átti hann fjögur
börn.
Hinn 31. desember
1948 giftist Guðjóna
Jakobi Einarssyni
garðyrkjubónda á
Norður-Reykjum, f.
18. mars 1898, d. 11.
maí 1981. Börn Guð-
jónu og Jakobs eru:
1) Einar Ingi, f. 8.
júní 1948, verkfræðingur á Norð-
ur-Reykjum. 2) Rúnar, f. 4. maí
1950, verkstjóri á Norður-Reykj-
um, kvæntur Helgu Rósu Ragn-
arsdóttur og eiga þau þijú börn.
Guðjóna ólst upp að Gaukstöð-
um í Garði, en flutti síðan til
Hafnarfjarðar, þar sem hún m.a.
dvaldist að Kóngsgerði ásamt
Garðari bróður sínum. Hún fór
snemma að vinna og stundaði
ýmis störf, var m.a. í fiskvinnslu
og vann á Vífílsstaðahælinu. Eft-
ir að hún giftist Jóni Guðmunds-
syni, stofnuðu þau nýbýlið Teig-
skóg í Gufudalssveit 1931. Þau
fluttu síðan til Reylyavíkur 1940,
þar sem Guðjóna starfaði við
Elli- og hjúkrunarheimilið
Grund. Hún var einnig ráðskona
um skeið og varð síðan húsfreyja
að Norður-Reykjum í Mosfells-
sveit, þar sem hún hefur átt
heima síðan. Árið 1966 hóf hún
störf við umönnun á Reykjalundi
og vann þar til 1976, er hún
hætti stöfum fyrir aldurs sakir.
Útför Guðjónu fer fram frá
Mosfellskirkju í dag og hefst
athöfnin klukkan 14.
margs er að sakna.
Guð þerri tregatárin strið.
(V. Briem.)
Elskuleg amma mín, Guðjóna
Benediktsdóttir, Norður-Reykjum,
hefur nú gengið lífsins veg. Minn-
ingarnar eru margar um ljúfa konu.
Amma var af íslensku aldamóta-
kynslóðinni og þekkti því tímana
tvenna. Hún þekkti fátækt og kröpp
kjör en vildi þó alla tíð miðla öðrum
af gjöfulu hjarta sínu. Hún hefur
lifað hraða þróun mannlífsins og
verið þátttakandi í sigrum og ósigr-
um.
Hún var hagleikskona í höndun-
um og hafði gaman af að búa til
muni til að gefa. Dúkurinn undir
jólatréð, pokinn fyir jólapóstinn og
svo mætti lengi telja - efalaust
prýða hlutirnir hennar ömmu mörg
heimili. Ekki má gleyma gróðurhús-
unum - litla sælureitnum hennar,
þar sem hún ræktaði aðallega tóm-
ata og agúrkur en einnig blóm og
vínber.
Ofarlega í huga æskuminning-
anna eru heimsóknirnar til ömmu
í sveitina. Þegar foreldrar mínir
með allan barnahópinn komu í hlað-
ið á Norður-Reykjum stóð amma
oftar en ekki úti og tók á móti
okkur eða hún veifaði okkur neðan
frá gróðurhúsunum. Þetta voru
miklar ánægjustundir, sem alltaf
var beðið eftir með tilhlökkun.
Ég var svo lánsöm að njóta hand-
leiðslu hennar sumarlangt - fyrsta
sumarið mitt í „alvöru“vinnu og
kynntist henni betur á þeim tíma.
Þá varð hún ekki bara amma, held-
ur einnig manneskja með væntingar
og J)rár.
Ég var á 16. ári og hafði fengið
vinnu við ræstingar á Reykjalundi.
Þá var gott að fá að vera í litla
kvistherberginu á Norður-Reykjum.
Í góðu veðri gekk ég eftir hitaveitu-
stokknum yfir dalinn upp að Reykja-
lundi. Að vinnudegi loknum gekk
hún ósjaldan á móti mér og sagði
mér þá margar sögur frá því hún
var ung og upplifði gleði og sorg,
eins og oft vill verða á lífsleiðinni.
Ég minnist þess hve gaman hún
hafði af því að punta sig upp. Mér
fannst amma alltaf vera svo fín,
gjaman í hvítri blússu með fallega
nælu í hálsinn. Þannig var hún svo
oft klædd og þurfti ekki endilega
til þess veislur eða mannamót.
Einnig setti hún gjarnan upp fín-
ofna hvíta hanska og var þá sem
„punkturinn væri kominn yfir i-ið“.
Amma var orðin þreytt og farin
að heilsu hin síðustu ár og hvíldin
var henni því kærkomin. Hvað er
fegurra en fá að hverfa inn í sumar-
blíðuna frá öllum þjáningum og
þreytu.
Élsku Guðjóna amma, þakka þér
kærleiksarf þinn og umhyggju,
blessun Guðs fylgi þér.
Ingibjörg Siguijónsdóttir.
GUÐJÓNA
BENEDIKTSDÓTTIR
JÓHANNA ÓLAFSDÓTTIR
T Jóhanna Ólafs-
dóttir fæddist í
Geirakoti í Fróðár-
hreppi, 15. maí
1923. Hún lést 8.
júlí síðastliðinn í
Reykjavík. Foreldr-
ar hennar voru
Ólafur Gíslason og
Ólöf Einarsdóttir.
Fóstursonur henn-
ar er Reynir Björg-
vinsson.
Útför Jóhönnu
fór fram frá Ás-
kirkju 15. júlí.
Með nokkrum orðum vil ég fá
að minnast Hönnu eins og hún var
ávallt kölluð, en andlát hennar bar
mjög skyndilega að. Hana hef ég
þekkt frá því að ég fyrst man eftir
mér, en hún bjó ásamt systur sinni
Línu í sama húsi og amma mín
Lára heitin. Það voru ófá skiptin
Handrit afmælis- og minningargreina
skulu vera vel frá gengin, vélrituð eða
tölvusett. Sé handrit tölvusett er æski-
iegt, að disklingur fylgi útprentuninni.
Auðveldust er móttaka svokallaðra
ASCll-skráa, öðru nafni DOS-textaskrár.
Ritvinnslukerfin Word og Wordperfect eru
einnig auðveld í úrvinnslu. Senda má
greinar til bl-ðsins á netfang þess
Mbl@centrum.is "th*. nánari upplýsingar
þar um má lesa á heiniesiðum. Það eru
vinsamleg tilmæli að lengö v-reina fari
ekki yfir eina örk A-4 miðað við rhfcisllinu-
bil og hæfilega línuleng — eða 2.20U>iög.
Höfundar eru beðnir að hafa skírnarnöfn
8Ín en ekki stuttnefni undir greinunum.
sem ég labbaði niður
til þeirra systra og
spjallaði við þær en
Hanna var einstaklega
bamgóð manneskja og
hafði alltaf tíma til að
hlusta á mann, þó að
maður væri ennþá
ungur að árum. Og þó
að amma hefði farið á
Hafnarbúðir fyrir 3
árum, þá heilsaði ég
jafnan upp á þær syst-
ur þegar ég átti leið
um í hverfinu.
Hanna hafði ýmis-
legt fyrir stafni og þar
á meðal var hún mikið fyrir blóm
og garðrækt og ber garðurinn
hennar þess vel merki hversu lagin
hún var í höndunum.
Hanna var ávallt einstaklega
góðhjörtuð og blíð manneskja og
henni verður aldrei nógu vel þakk-
að hve góð hún var við ömmu mína,
þó að hún væri sjálf ekki svo góð
til heilsunnar, þá gaf hún sér samt
tíma til að fara upp til hennar og
spjalla við hana. Ög ég veit að
heimsóknir hennar styttu ömmu
mikið stundirnar, enda beið hún
Hönnu jafnan með mikilli óþreyju.
Vil ég ásamt móður minni Sig-
rúnu Theresu þakka Hönnu fyrir
alla hennar vináttu og elsku sem
hún sýndi okkur og ömmu Láru
ætíð í gegnum árin.
Ég veit að nú tekur erfiður tími
við lijá Línu og Baldvini sem bjuggu
með henni og fóstursyni hennar
Reyni og viljum við votta þeim alla
okkar samúð og jafnframt öllum
hennar ættingjum og vinum.
„Þó ég sé látinn harmið mig
ekki með tárum, hugsið ekki um
dauðann með harmi og ótta. Ég
er svo nærri að hvert ykkar tár
snertir mig og kvelur þó látinn mig
haldið. En þegar þér hlæið og syng-
ið með glöðum hug lyftist sál mín
upp í mót til ljóssins. Verið glöð
og þakklát fyrir allt sem lífíð gefur
og ég, þó látinn sé, tek þátt í gleði
ykkar yfir lífínu." (Ókunnur höf-
undur).
Karen Linda Einarsdóttir.
HÁALEITIS
APÓTEK
Háaleitisbraut 68
VESTURBÆJAR
APÓTEK
Melhaga 20-22
eru opin til kl. 22
Næturafgreiðslu
eftir kl. 22 annast
Háaleitisapótek
FÖSTUDAGUR 19. JÚLÍ1996 27
SIGURÐUR
HJARTARSON
+ Sigurður Hjart-
arson, múrari í
Reykjavík, var fædd-
ur í Auðsholtshjá-
leigu í Ölfusi 12.
apríl 1926. Hann lést
á hjúkrunarheimil-
inu Eir í Reykjavík
9. júlí síðastliðinn.
Sigurður var sonur
hjónanna Hjai-tar
Sigurðssonar bónda
í Auðsholtshjáleigu,
f. 4. janúar 1898 í
Holti í Ölfusi, d. 19.
júní 1981, og konu
hans Jóhönnu Ástu
Hannesdóttur, f. 7.
júní 1898 í Stóru-Sandvík í Flóa,
d. 4. júlí 1966. Systkini Sigurðar
eru Hannes Guðmundsson, sjó-
maður í Hafnarfirði, f. 1919, d.
1983; Guðinundur bóndi í Græn-
hól í Ölfusi, f. 1925; Jón Ástvald-
ur vörubifreiðasljóri á Selfossi,
f. 1928; Rósanna húsmóðir á Sel-
fossi, f. 1930; Ástríður húsmóðir
í Keflavík, f. 1932; Steindór
Starfsmaður Landsbanka íslands
í Reykjavík, f. 1936, og Jónína
húsmóðir í Reykjavík, f. 1942.
Hinn 12. júlí 1952 kvæntist Sig-
urður Freyju Þorsteinsdóttur
frá Hamri í Svarfaðardal í Eyja-
firði, fædd þar 9. ágúst 1916,
dáin 7. jan. 1990 og bjuggu þau
alla tíð í Reykjavík. Börn þeirra
eru: 1) Kristrún Júlíana, f. 30.
sept. 1950, kennari á Hauganesi
við Eyjafjörð, maður hennar er
Hilmir Sigurðsson útgerðarmað-
ur og eiga þau þijú
börn, Guðrúnu,
Freyju og Trausta
Sigurð. 2) Hjörtur,
f. 21. jan. 1953,
húsasmiður á Akur-
eyri, kona hans er
Sigrún Stefánsdótt-
ir húsmóðir, börn
þeirra eru fjögur,
Sigurður, Kristrún
Sigríður, Katrín
María og Stefán
Þór. 3) Þorsteinn Óli
sölu- og markaðs-
sljóri í Reykjavík, f.
9. jan. 1957, kona
hans er Ingileif
Sigfúsdóttir hjúkrunarfræðing-
ur og eiga þau fjögur börn, Arn-
ar, Bjarka, Árna Frey og Rakel.
Sigurður var 17 ára þegar
hann gerðist vinnumaður á Víf-
ilsstöðum, en árið 1944 var
byggt nýtt íbúðarhús úr steini á
föðurleifð hans og tók hann að
sér að múra það undir leiðsögn
Kjartans Ólafssonar múrara-
meistara í Reylqavík, sem síðar
kom honum í iðnnám hjá Einari
Sveinssyni múrarameistara hjá
Almenna byggingafélaginu í -
Reykjavík og starfaði hann við
þá iðn alla tíð meðan heilsa ent-
ist.
Minningarathöfn um Sigurð
fór fram í Fossvogskapellu
mánudaginn 15. júli síðastliðinn.
Útför hans fer fram frá Dalvík-
urkirkju í dag og hefst athöfnin
klukkan 13.30.
Sigurður, eða Siggi eins og hann
var kallaður, lést eftir erfiða sjúkra-
legu síðustu ár. Það var ótrúlega
erfitt fyrir okkur sem næst stóðum
að sjá þennan stóra og sterka mann
fara eins og hann fór, síðustu ár
smám saman verða meir og meir
ósjálfbjarga.
Það var aðdáunarvert hvað Siggi
sinnti konu sinni vel í hennar veik-
indum. Við sem utar stóðum gerðum
okkur ekki grein fyrir að hann var
væntanlega orðinn sjúkur sjálfur á
þeim tíma, en eftir dauða Freyju fór
þetta að koma í Ijós.
Þegar ég tengdist fjölskyldu
Sigga, þá var hann að byggja í
Hvassaleiti hús sem hann bjó í
þangað til sjúkrahúsvist tók við.
Það var ótrúlegt þrek sem hann
hafði, vann erfiða vinnu í múrverki
á daginn í uppmælingu og byggði
síðan eigið hús í hjáverkum.
í gegnum tíðina taldi hann ekki
eftir sér að hjálpa vinum og kunn-
ingjum við hin ýmsu verk á kvöldin
og um helgar. Mér er minnisstætt
þegar við hjónin vorum að byggja.
Þá var það oft þegar ég kom út á
morgnana, þá stóðst þú fyrir utan
og sagðir: „Ég er búinn að þessu
lítilræði sem þú varst að orða um
daginn, ég vaknaði snemma svo það
var best að ljúka þessu áður en ég>.
færi i vinnu.“ Það var einkenni
Sigga, eins og systkina hans, ótrúleg
vinnusemi og mikil afköst, án þess
að nein læti eða bægslagangur
fylgdi.
Öfáir voru þeir sem nutu húsa-
skjóls og fæðis hjá þeim hjónum á
námsárum sínum, þar á meðal ég.
Þó voru mest áberandi ættingjar
Freyju frá Dalvík, sem margir
dvöldu hjá þeim á sínum námsárum.
Siggi minn, það var veruleg hlýja
sem ætíð stafaði frá þér. í veikindum
þínum kvartaðir þú aldrei, það var
eins og þú teldir sjálfsagt að taka
því æðrulaust sem að höndum bar.
Það var sama þó þú gætir ekki tjáð
þig undir lokin. Þá sá maður bregða
fyrir brosi ef svo bar undir þegar ~
maður talaði við þig. Hlýju og
traustu handtaki hélst þú alveg fram
til síðustu stundar. Það er erfitt fyr-
ir okkur hjón að geta ekki fylgt þér
síðasta spölinn. Við sendum ykkur
aðstandendum fyllstu samúðar-
kveðjur okkar.
Gísli Erlendsson,
Jónína Hjartardóttir.
Hjartkær móðir mín, tengdamóðir,
amma, langamma og langalangamma,
SOFFÍA SÍMONARDÓTTIR
frá Selfossi,
verður jarðsungin frá Selfosskirkju laug-
ardaginn 20. júlí kl. 10.30.
Fyrir hönd aðstandenda.
Friðrik Friðriksson.
t
Föðurbróðir minn,
GUÐJÓNÓLAFUR AUÐUNSSON
frá Svínhaga,
verður jarðsunginn frá Skarðskirkju
laugardaginn 20. júlí kl. 15.00.
Fyrir hönd aðstandenda.
Auðunn Ágústsson.