Morgunblaðið - 28.07.1996, Blaðsíða 10
10 B SUNNUDAGUR 28. JÚLÍ 1996
MORGUNBLAÐIÐ
KVIKMYNDIR
í Samvinnuskólann á ■
Bifröst. Þá komst ■
sveitin á samning og hóf að
gefa út lög sem náðu mikilli
hylli. Alls urðu breiðskífur
Upplyftingar þrjár og þó
sveitin hafi mjög breyst á
starfsævinni hélt hún vin-
sældum og heldur enn, en
ekki hefur komið frá henni
ný tónlist í nokkurn tíma. Á
safnplötunni nýju, sem heitir
einfaldlega Upplyfting, er
að finna mörg lög eins og
Traustan vin, Endurfundi,
Einmana, Elska þinn mann
og La-la-syrpuna, en einnig
eru á plötunni endurupptek-
in tvö lög, Kveðjustund,
sem Sigrún Eva Armanns-
dóttir syngur að þessu sinni,
og 17. júní, sem Magnús
Stefánsson syngur með
skólakór Kársnesskóla. Spor
gefur safnið út.
FRÍSKASTA
SVEITIN
VINSÆLASTA hljómsveit síðasta árs, að minnsta kosti
á ballmarkaðnum, var án efa Sixties, sem sendi frá sér
safn bítlalaga og seldi í þúsundaupplagi, aukinheldur
sem sveitin var á kafí í verkefnum út árið. I kjölfarið
sendi sveitin frá sér jólaskífu, sem seldist illa, og marg-
ur taldi að þar með væri sagan öll. Sixties-liðar voru þó
á öðru máli og fyrir skemmstu kom út þriðja breiðskíf-
an, Ástfangnir.
Sixties-félagar segja að
hljómsveitin hafi
spilað sig vel saman á
árinu sem liðið er frá því
fyrsta skífan kom út og
eins og heyra megi á plöt-
unni nýju sé hún búin að
finna sinn eigin hijóm.
„Þegar við gerðum fyrstu
plötuna pældum við ekki
í neinu öðru en að skemta
okkur. Þegar hún sló svo
Spilagleði Hljómsveitin Sixties.
rækilega í gegn fórum að
athuga okkar gang.“
Lagaval á plötunni var
í höndum þeirra félaga
sem nutu liðsinnis Rafns
Jónssonar útgefanda plöt-
unnar. Þeir segjast hafa
reynt að velja á plötuna
lög sem væru vænleg fyr-
ir áheyrendur, en ekki síst
að hafa á henni minna
þekkt lög sem þá langaði
til að spila. Það virðist og
hafa tekist vel, því breið-
skífan nýja hefur gengið
vel og mikið að gera í
spilamennsku.
„Aðal okkar er böllin
og við erum án efa frísk-
asta sveit landsins," segja
þeir ákveðnir. Þeir segja
að Sixties-bólan sé
kannski sprungin, en í
stað stundarævintýris sé
komin vel samspiluð
hljómsveit sem gæti þess
vegna haldið áfram í það
óendanlega.
Hlédrægur Nasir „Nas“ Jones.
EitthvoÖ
TÓNLISTARUNNENDUR hafa sjálfsagt margirtekið eftir
því á veturna að reglulega steðjar ungmennamergð að plötu-
versluninni Þrumunni ofarlega á Laugarvegi. Þá daga sem
nýjar sendingar af danstónlist og rappi berast í búðina er
iðulega harður atgangur við búðarborðið og erfíðleikum
bundið að komast inn. Á sumrin segjar starfsmenn verslun-
arinnar að ástandið sé bærilegra, vinna og aðrar annir sjái
til þess að salan jafnast yfír vikuna, en þó sé spennan allt-
af töluverð þegar nýtt efni berst.
eftir Áma
Matthíasson
Verslunarstjóri og eigandi
Þrumunnar, Ómar Arn-
arson, segist hafa byijað
plötuverslun sína á þúnga-
rokki vegna þess að hann
wm^mmwmmm vildi sinna
neðanjarð
artónlist-
inni, ekki
síst eftir að
Grammið
lagði upp
laupana.
„Þá kom
dauðarokk-
ið og síðan techno og ég fór
að selja það því það var eng-
ipn sem sinnti því af viti.“
Ómar segir að dauðarokkið
sé ekki með öllu dautt, þó
lítið beri á því nú um stund-
ir, en hann segist enn selja
dijúgt af dauðarokkinu, þá
helst út á land og nánast
aðeins á vínyl. „Þeir vilja
hafa umslögin almennileg,"
segir hann en bætir við að
vínylsala sé reyndar rúmur
helmingur af sölunni í búð-
inni og vínyllinn því fráleitt
dauður.
„Bæði er það að menn vilja
umslögin, eins og ég nefndi,
en það fínnst svo mörgum
hljómurinn betri og fyllri á
vínylnum, auk þess sem hann
er aðeins ódýrari.“
Ómar segist hafa snemma
komið sér af stað í danstón-
listinni. „Ég fór til Englands
sumarið 1992 og komst þá í
snertingu við plötusnúða-
menninguna og smábúðirnar
sem spruttu upp út um allt.
Ég sá það í hendi mér að
þetta myndi koma á Islandi,
náði mér í sambönd og nú
er danstónlistin aðal_ tónlistin
í búðinni," segir Ómar og
Grétar bætir við að hiphopið
sé líka snar þáttur í sölunni
og hafí reyndar aukist veru-
lega eftir að Þruman fór að
taka sendingar af hiphopi
beint frá Bandaríkjunum.
„Það er mest um hart rapp,
en það er líka mikið
um það að rápparar
séu að taka stef úr
gömlum diskó- eða
fönklögum og rappa
inn á þau og fer
vaxandi. Ekki má
svo gleyma jungle,
það er gríðarlega
sterkt, en ber mest
á því á vorin og
sumrin."
Ómar segir að
síðustu tvö ár hafi
hann tekið inn
sendingar með
flugi vikulega, enda
skipti öllu fyrir
hann að hafa alltaf
eitthvað nýtt á boð-
stólum því við-
skiptavinir hans,
sem margir eru
plötusnúðar, geri
miklar kröfur til
þess að alltaf sé það
nýjasta á boðstól-
um. „Við finnum
það líka sjálfir að
okkur líður ekki vel
ef við fáum ekki
eitthvað nýtt að
hiusta á í hverri viku,“ segir
Ómar Arnarson og kímir.
VESTUR í Bandaríkjunum heldur þrefíð áfram milli vesturbófa og austur-
spekinga. Síðast sló þríeykið Fugees í gegn með poppskotið rapp og gríp-
andi og nú er röðin komin að Nasir Jones, sem kallar sig einfaldlega Nas,
er að austan líkt og Fugees og því með heilbrigðara yrkisefni en vestmenn.
Fyrsta breiðskífa Nas kallaðist Illmatic, kom út fyrir tveimur árum og
vakti mikla athygli, ekki síst fyrir þá sök að textar hans voru frá-
brugðnir því sem hæst lét á þeim tíma; í stað þess að rappa um byssur,
stelpur og dóp var yrkisefnið daglegt líf í heimahverfinu, venjulegt fólk
og framtíðin. A nýjum
Adisk sinum er Nas við
1 a sama heygarðshornið, en
i -i p|4- q y> nyv/A I ef eitthvað er má segja að
UO Lctl 1.0 Ut/ivl heimssýnin sé dekkri en
IT forðum. Mikið hefur verið
leikið í útvarpi lagið If I
Ruled the World, sem fjallar einmitt um það hve gera mætti heiminn
betri með breyttum áherslum. Lagið er endurgerð Nas á gömlu lagi
frumrapparans Kurtis Blows, en Nas yrkir textann upp á nýtt, tónlistin
er nútímalegt fönkað triphop og sér til halds og traust hefur hann
fengið Lauryn Hill úr the Fugees. Fleiri grípandi hugvekjur eru á
disknum sem hefur selst vel vestan hafs og austan. Þrátt fyrir
það segist Nas kunna frægðinni illa; „helst vildi ég
standa algjörlega utan sviðsljóssins".
MEIN VINSÆLASTA
hljómsveit seinni tíma er
hljómsveitin Upplyfting.
Hún fagnaði 20 ára af-
mæli fyrir skemmstu og
gaf af því tilefni út safn
helstu laga, aukinheldur sem
tvö lög voru endurupptekin.
Upplyfting var stofnuð á
Hofsósi fyrir tuttugu árum
en ekki bar svo mjög á sveit-
inni fyrr en tveir liðs- ■
menn hennar settust “
ÍCUIÍI3J
Pure Lofidnn Tekno
' ' V/ '
fwKimni
ðUnOERUJORLD ouREBDZOIlE
öERTBTRTIC DORUÍTÍ CLUB
ocHRitiTtnn vaoet otribhi entrom
otof onm urbi opctl lhzoiibu * ninre
.... v-
stÐnnfromlheeasl.T
ioiIM't l<«t MBMÚkMRM
Morgunblaðið/Ásdís
Danstónar Grétar stendur vaktina í Þrumunni.
ÞEGAR Ómar er beðinn
að tína til nokkrar plötur
sem dæmi um það sem
Þruman flytur inn nefnir
hann fyrstan Club Alien-
diskinn sem inniheldur
breskt techno, meðal
annars geysivinsælt lag
Underworld, Born
Slippy, en hann segist
einmitt hafa flutt það
lag inn á smáskífu fyrir
tæpu ári.
Annar diskur er
Storm from the East,
sem á er jungle-safn frá
austurhluta Bretlands úr
sarpi Moving Shadow-
útgáfunnar. Þriðji disk-
urinn sem hann nefnir
er svo hardhop+trypno,
safn triphop-laga frá
Mooonshine.
Sem vonlegt er nefnir
hann einnig vinylplötur,
eina jungle-tólftommu
með Excursions á Mo-
wax. Önnur vínylplata
er Mephisto Remixes 2,
sem á eru endurunnin
ýmis house-lög, sum í
alllöngum útgáfum.