Morgunblaðið - 11.08.1996, Síða 25
MORGUNBLAÐIÐ
AFMÆLI
SUNNUDAGUR 11. ÁGÚST 1996 B 25
VIGDIS
FERDINANDSDÓTTIR
MIKIÐ hlýtur hún
Vigdís að hafa verið
falleg þegar hún var
ung var meðal þess
fyrsta sem flaug gegn-
um huga mér þegar ég
sá hana fyrst. Gamlar
myndir sanna fyrir mér
að þetta hugboð mitt
var rétt. Ég kynntist
Vigdísi fyrst þegar ég
heimsótti son hennar
Harvey Georgsson
Tousignant á heimili
þeirra fyrir mörgum
árum. Fáir eru þeir inn-
an íslensku skákhreyf-
ingarinnar sem ekki þekkja Harvey.
Harvey er sterkur skákmaður, var
meðal annars skákmeistari Reykja-
víkur fyrr á árum og hefur í tímarit-
inu Skák verið kallaður vinsælasti
skákmaðurinn á íslandi. Nú hafa þau
Vigdís og Harvey búið á hæðinni
fyrir neðan mig í stigahúsinu í rú-
man áratug og hefi ég því haft að-
stæður til að kynnast þeim enn bet-
ur og nánar.
Vigdís hefur verið allt í öllu í
stigahúsinu. Hún sá um hússjóðinn,
samdi um viðhald og umhirðu, þekkti
alla, jafnt sögu hússins og viðgerða
sem og fólkið í blokkinni. Ef eitt-
hvað kom upp varð að leita upplýs-
inga hjá Vigdísi.
En Vigdís fylgist líka ótrúlega vel
með mönnum og málefnum í þjóðfé-
laginu, þekkir söguna og tekur óhik-
að afstöðu þegar málin eru rædd.
Ævi hennar hefur ekki alltaf verið
auðveld, einhveijir hefðu sjálfsagt
látið bugast í þeirri baráttu sem hún
hefur háð.
Vigdís Ferdinandsdóttir er fædd
11. ágúst 1921. Foreldrar hennar
voru Ferdinand Róbert
Eiríksson, skósmiður í
Reykjavík og kona hans
Magnea Ólafsdóttir.
Ferdinand rak skó-
smíðaverkstæði hér í
borg í 60 ár, þar af
hálfa öld að Hverfis-
götu 43 og hafði um
tíma fimm lærlinga.
Magnea var fædd á Ól-
afsvöllum á Skeiðum og
meðal systkina^ hennar
voru Siguijón Ólafsson
myndhöggvari, Guðni
sem stofnaði og rak
Ingólfsapótek og síðar
heildverslunina G. Ólafsson, og Gísli
faðir Erlings leikara.
Vigdís lauk prófi frá Verslunar-
skólanum 1939 og vann ýmis skrif-
stöfustörf, þar á meðal í atvinnu-
og samgöngumálaráðuneytinu í sjö
ár. Árið 1941 kynntist Vigdís banda-
rískum lækni af frönskum ættum,
Harvey Georg Tousignant og hafði
það mikil áhrif á allt lífshlaup henn-
ar.
Þau Vigdís trúlofuðust en fengu
ekki að giftist vegna ákvæða hers-
ins. Harvey læknir var sendur til
írlands áður en sonur hans Harvey
fæddist. Eftir stríðið hittust þau
Vigdís en lentu í alvarlegu bílslysi í
Bandaríkjunum. Harvey var sendur
á hersjúkrahús en Vigdís á almennt
sjúkrahús og leiðir skildu. En læknir-
inn reyndist Vigdísi vel. Framan af
lét hann hana hafa helming launa
sinna og í rúm 40 ár sendi hann
syni sínum mánaðarlegar greiðslur.
Aðeins þriggja ára smitaðist
Harvey Georgsson af berklum, fyrst
í rist. Sex ára gamall fékk hann
berkla í mjaðmagrind og var þá lagð-
INNLENT
ur á sjúkrahús þar sem hann lá í 2
ár í gipsi á hægri fæti frá tám upp
að mitti. Síðar tóku berklarnir sig
aftur upp og Harvey lá í gipsi enn
í tvö ár frá 10 til 12 ára aldurs.
Erfiðleikasagan varð löng og um 17
ára aldur réðst Harvey í að láta
lengja hægri fótinn, losnaði við sér-
smíðaða skó og líf hans breyttist.
Hann hefur verið móður sinni stoð
og stytta alla tíð síðan.
Lengi hef ég þekkt Harvey Ge-
orgsson en aldrei heyrt hann tala
um sjúkrasögu sína, þó hann hafi
misst af stórum hluta æsku og skóla-
göngu. Ef á þetta er minnst segir
hann: „Ég held margir hafi lent í
verra.“
Engum getum þarf að því að leiða
að hlutskipti Vigdísar hefur ekki
ailtaf verið auðvelt. Þegar Harvey
var 13 ára giftist hún Ragnari Frí-
mannssyni sjómanni og eignaðist
með honum tvo syni, Róbert og
Ragnar Frímann. Þau skildu eftir
átta ára sambúð.
Lengst af hefur því Vigdís brotist
áfram ein og oftast haft vindinn í
fangið. Upplagið er gott og þessi
gáfaða, heiðvirða og góða kona hef-
ur sigrast á erfiðleikunum. Henni
hefur tekist að varðveita vilja sinn
óbrotinn þótt öldurnar hafi stundum
risið hátt. Vigdís er greind og marg-
fróð. Hún segir skoðanir sínar oftast
óhikað og umbúðalaust. Hún er list-
hneigð og hefur mikla ánægju af
höggmyndalist, myndlist og tónlist.
Hún fylgist vel með þjóðmálum og
minnið er sterkt og það svo að hún
getur rakið löngu liðna atburði oft
með verulegri nákvæmni. Og Vigdís
er hjálpsöm, greiðvikin og vinföst.
Um leið og ég sendi henni vinar-
kveðjur á þessu merkisafmæli henn-
ar þakka ég margan kaffisopann,
þegar við Harvey höfum raðað upp
á sextíu og fjögurra reita borði. Bið
ég þann sem öllu ræður og „himins-
ins gætir stjórnarlaga“ að færa
henni björt og gleðirík elliár.
Guðm. G. Þórarinsson.
HJÓNIN Dorothy Ellison og Rúnar Hartmannsson með sýnis-
horn af nýju grafskreytingunum.
Nýjung í
grafskr eytingum
Hveragerði. Morgunblaðið.
FYRIRTÆKIÐ Okkar markmið
ehf. var nýverið stofnað í Hvera-
gerði. Hið nýja fyrirtæki sérhæfir
sig í framleiðslu grafskreytinga.
Grafskreytingar eru nýjung á
markaðnum, bæði hérlendis og er-
lendis, og hefur fyrirtækið þegar
sótt um einkaleyfi á hugmyndinni.
Að sögn Rúnars Hartmannsson-
ar, sem er einn eigandi fyrirtækis-
ins og aðalhönnuður þess, felst
hugmynd þeirra í nýrri tækni er
gerir kleift að vernda ljósmyndir
og ritaðan texta fyrir sólarljósi og
veðrun mun betur en áður hefur
þekkst. Grafskreytingarnar eru því
legsteinar sem á margan hátt eru
frábrugðnir þeim sem fyrir eru á
markaðnum. Er þá bæði átt við
útlit og hönnun. Grafskreytingarn-
ar eru til í fjölmörgum gerðum og
stærðum bæði með og án inn-
byggðra ljósa.
Rúnar tók þátt í hugmyndasam-
keppninni „Snjallræði“ árið 1993
og hlaut í framhaldi af því styrk
til áframhaldandi þróunar verkefn-
isins. Grafskreytingarnar voru síð-
an í fyrsta sinn til sýnis almenningi
á handverkssýningunni „íðir“ sem
fram fór í Laugardalshöll nýlega
og vöktu þar mikla athygli.
Til sölu pallhýsi
Glæsilegasta pallhýsi sem sést
hefur á íslandi er til sölu. Nýtt
sérhannað fyrir Dodge Ram,
short bed, Texon 8 feta fellitopp-
ur með 24 aukahlutum.
Uppl. í símum 896-8320 Kristinn
og 852-5027 Magnús.
KENNSLA
Erum að fara aftur af stað eftir
sumarfrí. Opið hugleiðslukvöld
í kvöld kl. 20.30 í Sjálfeflissaln-
um, Nýbýlavegi 30, (gengið inn
Dalbrekkumegin) undir stjórn
Kristínar Þorsteinsdóttur.
Aðg. 350 kr. Allir velkomnir.
Hörgshlíð 12
Boðun fagnaðarerindisins.
Bænastund í kvöld kl. 20.00.
Nýja
postulakirkjan,
Ármúla 23,
108 Reykjavík.
Guðsþjónusta alla sunnudaga
kl. 11.00. Verið hjartanlega vel-
komin í hús Drottins.
Ungt folk
Almenn samkoma i Breiöholts-
kirkju kl. 20.00.
Séra Magnús Björnsson predik-
ar. Mikil lofgjörð og fyrirbænir.
Allir velkomnir.
N VEGURINN
íV Kristið samfélag
Smiðjuvegi 5, Kopavogí
Kvöldsamkoma kl. 20.00.
Nýtt upphaf! Samúel Ingimars-
son predikar.
Hjá Drottni er gnægð lausnar
Sálm. 130:8.
Fyrirbænir og þjónusta í Heilög-
um anda.
Jesús elskar þig. Allir velkomnir.
Rauðarárstíg 26, Reykjavík,
símar 561 6400, 897 4608
Guðsþjónusta sunnudag kl. 20
og fimmtudag kl. 20. Altaris-
ganga öll sunnudagskvöld.
Prestur: Sr. Guðmundur Örn
Ragnarsson.
Kristið s t • I í I i |
Samkoma í Bæjarhrauni 2, 2.
hæð. í kvöld kl. 20.00. Jón Þór
Eyjólfsson predikar.
Allir velkomnir.
Bænastund öll kvöld þessa viku
kl. 20.30.
Hvítasunnukirkjan
Fíladelfía
Brauðsbrotning kl. 11.00.
Ræðumaður Daníel Glad.
Almenn samkoma kl. 20.00.
Ræðumaður Hafliði Kristinsson.
Lofgjörðarhópur Fíladelfíu leiðir
söng. Barnagæsla á meðan á
samkomu stendur. Allir hjartan-
lega velkomnir.
Dagskrá vikunnar framundan:
Miðvikudagur kl. 20.00, Bibllu-
lestur. Föstudagur kl. 20.30,
unglingasamkoma.
Sma auglýsingar
Aðalstöðvar KFUM
og KFUK, Holtavegi 28
Almenn samkoma í kvöld
kl. 20.00.
Fagnaðarsamkoma fyrir kristni-
boðana Karl Jónas Gíslason
og Ragnheiði Guðmundsdóttur,
sem komin eru heim frá störfum
í Eþíópíu.
Allir velkomnir.
Scímhjólp
Almenn samkoma í Þríbúöum,
Hverfisgötu 42, I dag kl. 16.
Mikill almennur söngur.
Samhjálparkórinn tekur lagið.
Vitnisburðir. Barnagæsla.
Ræðumenn: Björg Lárusdóttir
og Þórir Haraldsson.
Kaffi að lokinni samkomu.
Allir velkomnir.
Orð lífsins,
Grensásvegi8
Samkoma í dag kl. 11.
Guðlaugur Laufdal prédikar.
„Fyrstu skrefin11 (Heilagurandi),
í kvöld kl. 20
„Samfélag v/Heilagan anda“.
Kennsla á miðvikudag kl. 20.
Jódís Konráðsdóttir.
Bóksala alla virka daga frá kl.
14-16 og eftir samkomur.
Allir hjartanlega velkomnir til
okkar!
ui
Samhjálp.
T
O,
c*
JÓGASTÖÐIN
HEIMSLJÓS
Kripalujóga:
Vellíðunar-
námskeið
12.-21. ágúst
á mán./mið.
kl. 18.15-20.15.
Lærðu að lesa úr skilaboðum
likamans.
- Skoðaðu streituvaldana í lífi
þínu og lærðu að skilja þá.
- Kynnstu einföldum aðferðum
til þess að hlúa að líkamanum.
- Öðlastu aukna meðvitund um
samskipti þin við sjálfa/n þig
og aðra.
Öndunaræfingar, slökun og hug-
leiðslutækni.
Leiðbeinandi: Helga Mogensen,
jógakennari.
Uppl. og skráning í sima
588 4200 kl. 13-19.
Jógastöðin Heimsljós,
Ármúla 15.
Hallveigarstíg 1 • simi 561 4330
Sumarleyfisferðir
13.-18. ágúst:
Laugar, Strútslaug, Básar
kl. 8.00. Farið í Laugar og þaðan
gengið í Hattver. Áfram er hald-
ið yfir Torfajökul, í Strútslaug.
Gengið um Emstrur og endað í
Básum. Stórkostleg tjaldferð um
stærstu hrafntinnu- og líparít-
svæði landsins.
Verð 9.900/10.900.
13. -17. ágúst:
Landmannalaugar-Básar
kl. 8.00. Gisting í skálum.
Verð 12.700/13.900.
14. -17. ágúst-Vatnajökull
kl. 8.00 Ferð yfir Vatnajökul á
sérútbúnum jeppum. Ekið upp
Skálabrekkujökul og þaðan þvert
yfir jökulinn í Kverkfjöll þar sem
hinir stórfenglegu Hveradalir
verða skoðaðir. Þaðan verður
fariö í Grímsvötn þar sem gist
verður í tvær nætur.
20.-24. ágúst Landmanna-
laugar- Básar
kl. 8.00Trússferð. Allur farangur
fluttur á milli gististaða á bíl.
Gist í tjöldum. Verð
14.700/15.800.
Netfang:
http://www.centrum.is/utivist
KROSSINN
Sunnudagur:
Samkomuherferðin með Mike
Riordan heldur áfram í dag kl.
16.30. Allir velkomnir meðan
húsrúm leyfir. Strax að lokinni
samkomunni verður veisla í
efri sal kirkjunnar til heiðurs
gestum okkar.
Þriðjudagur:
Samkoma með Mike Riordan og
gestum okkar frá Hollandi kl.
20.30.
Miðvikudagur:
Samkoma með Mike Riordan og
gestum okkar frá Hollandi kl.
20.30.
Dagsferð 11. ágúst
Kl. 10.30: Reykjavegurinn,
6. áfangi, Bláfjöll - Kolviðarhóll.
Gangan hefst að nýju eftir sum-
arfrí í júlí. Farið verður frá BSÍ,
hægt að koma inn i ferðina við
Mörkina 6 og Árbæjarsafn.
Helgarferðir
14.-15. ágúst Fimmvörðuháls,
í miðri viku
kl. 8.00 Verð 5.100/5.600.
16.-18. ágúst Básar
kl. 20.00 Fjölskyldusvæði í gróð-
urvin undir jöklum. Gönguferðir
við allra hæfi. Verð 4.300/4.900.
16. -18. ágúst Skaftárdalur,
Leiðólfsfell
kl. 20.00 Gist í Skaftárdal, geng-
ið að Leiðólfsfelli þar sem hópur-
inn veröur sóttur. Ný gönguleið
um einstaklega fallegt svæði.
Verð 7.800/8.400.
17. -18. ágúst Fimmvörðuháls,
norður niður
kl. 8.00 Ekið upp á hálsinn og
gengiö niður í Bása þar sem er
gist. Verð 6.100/5.600.
Netfang:
http://www.centrum.is/utivist
Hjálpræðis-
herinn
Kirkjustræti 2
Kl. 20.00 Hjálpræðissamkoma
í umsjá Miriam Óskarsdóttur.
Allir hjartanlega velkomnir.
FERÐAFÉLAG
# ISLANDS
MORKINNI 6 - SlMI 568-2533
Dagsferðir
sunnudag 11.ágúst
1) kl. 10.30 Reykjavegur 6. ferð.
Raðganga Ferðafélagsins og
Útivistar hefst nú að nýju eftir
nokkurt hlé. Gangan hefst við
þjónustumiðstöðina i Bláfjöllum
og liggur leiðin suður fyrir Blá-
fjöll að Fjallinu eina. Síðan verð-
ur fylgt Ölafsskarðsvegi að eld-
stöðinni Leitin, Syðri- og Nyrðri-
Eldborg, Lambafelli (Þrengsla-
vegi) að Litla Reykjafelli. Áfang-
anum lýkur í Sleggjubeinsdölum
(Kolviðarhól). Sætaferðir f rá SBK
- Keflavík kl. 10.00.
Verð kr. 1.000.
2) Kl. 13.00 Lakastígur-Ölfus,
gömul þjóðleið. Gangan hefst
v/Gráhnúk sunnan Hveradala.
Verð kr. 1.200. Brottför frá Um-
ferðarmiðstöðinni og Mörkinni
6. Brottför frá Umferðarmið-
stöðinni og Mörkinni 6 í ferðirn-
ar.
Helgarferðir F.Í.:
16. -18. ágúst: kl. 20.00 Þórs-
mörk. Gist í Skagfjörðsskála.
17. -18. ágúst: kl. 9.00 Ævintýra-
ferð í Þórisdal (gist i helli).
Sumarleyfisferðir:
14.-18. ágúst: Kjalvegur hinn
forni. Nokkur sæti laus í ferðir
um „Laugaveginn" i ágúst.
Fundur alla mánudaga fyrir
„Laugavegs-farþega" í Risinu,
Mörkinni 6 (kl. 20.00), þriðju-
daga kl. 20.00 fyrir farþega í
Kjalvegsferðir.
16.-18. ágúst: Milli Hvítár og
Þjórsár.
Árbókarferð 1996 (3 dagar).
Upplýsingar og farmiðasala á
skrifstofu Ferðafélagsins!
Ferðafélag íslands.