Morgunblaðið - 12.09.1996, Qupperneq 10
10 FIMMTUDAGUR 12. SEPTEMBER 1996
MORGUNBLAÐIÐ
EIGNAMIÐIIMIN .m
Abyrg |)jónusta í aratngi
Sími 588 9090 - Fax 588 9095
Síöumúli 21.
Sverrir Kristinsson,
löggiltur fasteignasali.
ÍBÚÐ ÓSKAST TIL KAUPS
STAÐGREIÐSLA í BOÐI
Traustur kaupandi hefur beðið
okkur að útvega vandaða
(glæsilega) 4ra herb. íbúð.
Æskileg staðsetning Þingholt,
Vesturbær, Landakotstún eða
nágrenni við miðborgina. Stað-
greiðsla - ein ávísun í boði.
Nánari upplýsingar veitir
Sverrir Kristinsson.
EINBÝLI Á
SELTJARNARNESI
ÓSKAST
Höfum traustan kaupanda að
180 - 280 fm einbýli á
Seltjarnarnesi, gjarnan á einni
hæð. Mjög rúmur afhendingar-
tími. Góðar greiðslur í boði.
Lyngvfk
FASTEIGNASALA
SÍÐUMÚLA 33
SÍMI 588 9490
Hagamelur — 2ja. Sérl. falleg stúdíóib.
í risi. Áhv. 3,6 millj. Verð 5,1 millj. (2563).
Bergþórugata — 2ja-3ja. Mjög góð
ca 50 fm íb. á jarðh. Áhv. ca 1,5 millj.
byggsj. Verð 4,4 millj. (2561).
Meðalholt — 2ja. Vorum að fá i sölu
þessa prýðiseign ca 66 fm m/ aukaherb.
Áhv. 2,6 millj. Verð 5,5 millj. (3565).
Vallarás — 2ja. Nýkomin í sölu vönduð
52 fm ib. á 5. hæð í lyftuh. Mikið útsýni.
Áhv. 3,5 milij. Verð 5,2 millj. (2569).
Dvergabakki — 3ja. Björt 68 fm íb. á
2. hæð. Áhv. 3,2 millj. húsbr. Verð 5,2
millj. (3558).
Furugrund — 3ja. Mjög falleg og
rúmg. 75 fm ib. á 1. hæð. Áhv. 3,2
millj. byggsj. Verð 6.490 þús. (3514).
Hörðaland — 4ra. Nýkomin í sölu ca
90 fm ib. á efstu hæð (2. hæð). 3
rúmg. herb. Verð 7,9 millj. (4572).
Trönuhjalli — 4ra. Vorum að fá í sölu
nýl. 96 fm ib. á efstu hæð. Áhv. ca 3,6
millj. byggsj. Verð 8,9 millj. (4573).
Hrefnugata — hæð. Falleg og endurn.
96 fm ib. á neðri hæð. Áhv. 5,0 millj.
byggsj. og húsbr. Verð 8,4 millj. (7470).
FRÉTTIR
Atli Gunnar Jónsson nývígður kaþólskur prestur
Hef stigið
mikið al-
vöruskref
SÉRA Atli Gunnar Jónsson var
vígður í Kristskirkju í Landakoti
síðastliðinn laugardag og söng
sína fyrstu messu þar á sunnu-
dag.
Hann segist í samtali við
Morgunblaðið hafa hlotið ósköp
venjulegt islenskt uppeldi.
„Mamma kenndi okkur systkin-
unum faðirvorið eins og sem
betur fer er gert ennþá í mörg-
um fjölskyldum," segir Atli.
Vendipunkturinn var þegar
hann fór barn að aldri með for-
eldrum sínum í Þjóðleikhúsið
1974 og sá leikritið um Jón bisk-
up Arason. „Mér fannst svo
merkilegt að maðurinn skyldi
láta taka sig af lífi fyrir trú sína.
Ég fór að fá áhuga á því að fara
í kirkju og var meira og minna
viðloðandi kaþólsku kirkjuna al-
veg fram á unglingsár, tók svo
smáhlé og kom aftur þegar ég
var 17 ára. Síðan gekk ég í kirkj-
una þegar ég var tæplega 21
árs.“
Hætti við að hætta
Atli hefur stundað nám í
Lundúnum og Róm. „Ég var í
prestaskóla í Lundúnum í eitt
ár og byrjaði líka í heimspeki.
Þaðan fór ég til Rómar, kláraði
heimspekina og hélt áfram í
guðfræði. Síðan hætti ég í tvö
ár en hætti svo við að hætta og
sem betur fer var tekið við mér
aftur,“ segir séra Atli.
Hann segir það stórt skref og
ekki alls kostar auðvelt að
ákveða að ganga í þjónustu
Morgunblaðið/Kristinn
SERA Atli Gunnar Jónsson
kirkjunnar heill og óskiptur.
„Þetta er mikið alvöruskref sem
maður er að taka í lífinu. Það
er svona eins og að ganga í
hjónaband, maður vill að það
endist til æviloka."
Reyntað útskýra hið
óútskýranlega
Atli Iauk guðfræðináminu fyr-
ir ári og er nú rúmlega hálfnað-
ur með framhaldsnám sem hann
gerir ráð fyrir að ljúka næsta
vor. Framhaldsnámið er á sviði
kenningafræði eða svokallaðrar
dogmatískrar guðfræði. „Þar er
farið í höfuðatriði kristindóms-
ins og þau athuguð með hliðsjón
af Biblíunni, hefð og kennivaldi
kirkjunnar. Þá eru skoðuð skjöl
og biblíustaðir og kenningar
hinna fornu fræðimanna kirkj-
unnar, kirkjufeðranna og guð-
fræðinga miðalda. Þannig er
reynt að útskýra eins og hægt
er það sem raunar er óútskýran-
legt, en það er guð sjálfur og
allt sem að honum snýr,“ segir
presturinn ungi.
Aðspurður um hvað taki við
þegar heim kemur að námi loknu
segist Atli ekki vita það nákvæm-
lega. „Það kemur betur í ljós
þegar tíminn líður en maður
vonast auðvitað til að geta orðið
að gagni.“
Hann segir kaþólsku kirkjuna
ekki vera í beinni samkeppni
við aðrar kirkjudeildir á Is-
landi. „Hún stendur auðvitað
öllum opin og helsta framtíðar-
verkefni kaþólsku kirkjunnar á
Islandi, eins og ég skil það, er
að hún festi hér dýpri rætur og
verði meiri hluti af þjóðlífinu.
Ég vil að hún taki meiri þátt í
þvi sem hér er að gerast, reyni
að skilja fólkið sem hér býr og
koma betur til móts við það. Ég
held að það sé númer eitt, tvö
og þrjú,“ segir séra Atli Gunnar
Jónsson.
Ráðstefna
um íslenska
máisögu og
textafræöi
STOFNUN Sigurðar Nordals minnist
tíu ára afmælis síns laugardaginn
14. september nk. á fæðingardegi
dr. Sigurðar Nordals. Af því tilefni
gengst stofnunin fyrir alþjóðlegri
ráðstefnu um íslenska málsögu og
textafræði í Norræna húsinu dagana
14. og 15. september.
Á ráðstefnunni flytja fyrirlestra:
Anatoly Liberman, Britta Olrik
Frederiksen, Emst Walter, Guðrún
Þórhallsdóttir, Guðvarður Már Gunn-
laugsson, Halldór Ármann Sigurðs-
son, Jonna Louis-Jensen, Jón G. Frið-
jónsson, Magnus Rindal, Odd Einar
Haugen, Oskar Bandle, Stefán Karls-
son, Svavar Sigmundsson og Vetur-
liði Óskarsson.
Ráðstefnan hefst kl. 9 árdegis
laugardaginn 14. september með
ávarpi menntamálaráðherra, Björns
Bjarnasonar. Allir eru velkomnir á
ráðstefnuna.
♦ ♦ ♦------
Nýr formaður
Hitaveitu
Suðurnesja
Á STJÓRNARFUNDI Hitaveitu Suð-
urnesja, sem haldin var 5. september
sl., var Ingólfur Bárðarson, rafverk-
taki og fyrrverandi forseti bæjar-
stjórnar Njarðvíkur, kosinn einróma
sem stjórnarforamður.
Ingólfur er einn af fulltrúum
Reykjanesbæjar. Hann sat í Bæjar-
stjórn Njarðvíkur í um 16 ár, var
oddviti sjálfstæðismanna tvö kjör-
tímabil og forseti bæjarstjórnar
1990-94. Ingólfur hefur starfað
mikið að félagsmálum gegnum árin.
Einnig voru kosin í stjórn þau Jón
Norðfjörð, Sandgerði, varaformaður
og Margrét Gunnarsdóttir, Grinda-
vík, ritari.
HÆÐ EÐA STÓR ÍBÚÐ í VESTURBÆ!
Okkur vantar ca 100 - 140 fm íbúð eða hæð í vesturbæ.
Ákveðnir og traustir kaupendur. Bein sala.
Eignamiðstööin - Hátún, S: 568 7800
Suðurlandsbraut 10, Reykjavík.
(F
FASTEIGNA
MARKAÐURINN ehf
%
%
OÐINSGÓTU 4. SÍMAR 551-1540. 552-1700, FAX 562-0540
FROSTAFOLD
— Byggsj. 5,2 mill.
Góð 85 fm íb. á 2. hæð í litlu fjölbýli. Parket. Svalir í suðvestur. Frábært útsýni. Stutt í alla
þjónustu. Þvottaherb. í íb. Áhv. 5,2 millj. byggsj.
FASTEIGNAMARKAÐURINN ehf
ÓÐINSGÖTU 4. SÍMAR 551-1540, 552-1700, FAX 562-0540 E
Litlavör - Vesturbær, Kóp.
181 fm vönduð parhús á þessum frábæra stað.
Til afhendingar nú þegar, fullbúin og máiuð að utan. Tilbúin
til innréttingar. 3-4 sv.herbergi. Innb. bílskúr.
Áhv. 6 m. Verð 10,9 m.
Húsið fasteignasala, Suðurlandsbraut 50,
Þórarinn Jónsson, hdl., lögg. fasteignasali.
Sími 533 4300.
Vatnsflóð
í fjöl-
býlishúsi
VERULEGAR skemmdir urðu
á íbúðum í fjölbýlishúsi í
Hraunbæ í fyrrinótt vegna
vatnsleka úr íbúð á fjórðu hæð
hússins.
Slökkviliðinu í Reykjavík var
tilkynnt um lekann um klukkan
hálffimm í fyrrinótt og þegar
liðsmenn þess komu á staðinn
rann vatn á móti þeim niður
stigaganginn. Ibúar voru þá að
reyna að finna vatnsinntakið til
að skrúfa fyrir vatn inn í húsið,
og fannst það loks í kjallara.
Streymdi niður í íbúðir
Við eftirgrennslan kom í ljós
að krani undir eldhúsvaski
hafði farið sundur { íbúð á
fjórðu hæð og vatn flætt út.
Að sögn slökkviliðs er talið að
eigandi hafi verið sofandi þegar
atvikið átti sér stað og því ekki
strax orðið var við lekann.
Vatn lá yfir allri íbúðinni og
streymdi niður í íbúðir á neðri
hæðum.
Fjarlægja þurfti parket og
aðra hluti á gólfum og voru
liðsmenn slökkviliðs á þriðja
tíma að hreinsa burt vatnið.
MÚLAHVERFI
í Múlahverfinu er til sölu ísbúð og sæl-
gætisverslun. Til afhendingar strax. Gott
verð og skilmálar.
SMYRILSHÓLAR
Gullfalleg 5 herb. endaíb. 100,6 fm á 2. hæð
í vinsælu fjölbýlishúsi. Fallegt útsýni.
Rúmgóðar suðursvalir. Verð 7,4 millj.
Stakfell, fasteignasala.
Suðurlandsbraut 6,
sími 568-7633.
Samstarf Flugleiða og íslandsflugs
í flugi til V estmannaeyj a
Bæjarsljórn
telur að dregið
hafi úr þjónustu
BÆJARSTJORN Vestmannaeyja
telur að samstarf Flugleiða og Is-
landsflugs á flugleiðinni milli Eyja
og Reykjavíkur hafi leitt til hærra
verðs, fækkunar ferða og lélegri
þjónustu. Því telur hún rétt að Flug-
félagi Vestmannaeyja verði veitt
leyfí til áætlunarflugs á leiðinni.
Þetta kemur fram í greinargerð sem
bæjarstjórnin hefur sent til sam-
gönguráðuneytis og Flugráðs.
Hilmar B. Baldursson, formaður
Flugráðs, bendir á að flug á fjöl-
förnustu leiðum innanlands verði
gefið fijálst í júlí á næsta ári.
„Greinargerð Vestmannaeyjabæj-
ar verður rædd á næsta fundi Flug-
ráðs, en mér finnst líklegt að af-
greiðsla umsóknar Flugfélags
Vestmannaeyja mótist af því
hversu stutt er þangað til flug
verður gefið ftjálst á þessari leið.“
Gunnar Þorvaldsson, fram-
kvæmdastjóri íslandsflugs, segist
hlynntur því að Flugfélagi Vest-
manneyja verði gefið leyfi til flugs
á leiðinni. „Við höfum alltaf verið
talsmenn fijáls flugs og munum
ekki setja okkur á móti því í þessu
tilfelli. En verðhækkanir hjá okkur
hafa ekki verið úr takt við það sem
gerst hefur á öðrum leiðum og hjá
öðrum þeim sem sinna samgöngum
við Vestmannaeyjar. Við vissum
að viðbrögð kæmu eftir samstarf
okkar við Flugleiðir, en þau eru
ekki öll á þennan veg. Ég var að
fá skeyti frá bæjarstjórn Sauðár-
króks þar sem lýst er yfir ánægju
með flugsamgöngur þangað eftir
að samstarfið hófst.“
Verð og þjónusta óbreytt
Einar Sigurðsson, blaðafulltrúi
Flugleiða, segir enga ástæðu til
breytinga á leyfísveitingum til
áætlunarflugs svo skömmu fyrir
gildistöku reglna um fijálst flug.
Hann segir engar verðbreytingar
hafa orðið hjá Flugleiðum á leið-
inni milli Vestmannaeyja og
Reykjavíkur síðan samstarf var
tekið upp við íslandsflug og þjón-
usta sé svipuð, að teknu tilliti til
árstíðabundinna breytinga.
„Flugið hefur verið rekið með
tapi hjá báðum félögum því of-
framboð var á sætum. Með sam-
starfinu vildum við undirbúa okkur
undir samkeppnina sem verður
þegar flug verður gefið frjálst á
leiðinni. Flugtíðni hefur í raun ekki
minnkað og sætaframboðið er
nægilegt."