Morgunblaðið - 12.09.1996, Page 11
MORGUNBLAÐIÐ
FRETTIR
FIMMTUDAGUR 12. SEPTEMBER 1996 11
ÁRNAR í Þistilfirði skila alltaf sínum skammti af stórlöxum
sumarsins, eins og þessum rúmlega 20 punda hæng sem erlend-
ur veiðimaður veiddi á spón í síðasta mánuði.
Hafbeitarlaxar
í Leirársveit
ÞAÐ dregur nú að lokum laxveið-
innar vítt og breitt um landið og
ljóst að landsins gæðum hefur
verið afar misskipt. Er veiðin allt
frá því að vera léleg í einstökum
ám og upp í að vera ágæt. Fer
það nokkuð eftir landshlutum.
Við skulum renna yfir nokkrar
ár og athuga stöðuna.
Milii 500 og 600 laxar eru
komnir úr Haffjarðará á Snæ-
fellsnesi og er það á rólegri nót-
unum. Síðustu vikurnar hefur
veiðin varla risið hærra en að
teljast reytingsveiði. Talsverður
lax hefur verið í ánni í sumar,
en allur kraftur er löngu farinn
úr göngum og menn því að beija
á legnum löxum sem hafa verið
lagstir í leti. Það er alltaf von á
að glæðist þegar líður á septem-
ber og laxinn fer að stirðna í
skapi.
Það eru komnir upp undir 800
laxar úr Laxá í Kjós og dágóður
slatti af sjóbirtingi að auki. Menn
hafa verið að reyta upp úr Laxá
að undanförnu og hún hefur
fengið smáskvettur af nýjum
laxi. Þetta útleggst þó lélegt
sumar í Laxá í Kjós, á því er
enginn vafi. Ekki verður ytri skil-
yrðum um kennt, þau hafa verið
allgóð þegar á heildina er litið.
Það er einfaldlega lítið af laxi.
Veiðin í Laxá á Ásum er að-
eins skriðin yfir 600 fiska og enn
er verið að betja á hrygningar-
stofninum í Langhyl, veiðistað
sem var lokaður eftir miðjan
ágúst vegna mikilvægis sem
hrygningarmiðstöð hér á árum
áður. í Langhyl hefur verið tals-
verður lax, en lítið annars staðar
í ánni.
Villuráfandi hafbeitarlaxar
Allgóð veiði hefur verið í Laxá
í Leirársveit þótt hún sé eilítið
lakari en í fyrra. í vikubyijun
voru komnir hátt í 1.400 laxar
úr ánni, en allt síðasta sumar
veiddust 1.466 laxar. Aflestur
merkja og hreistursýna í fyrra
sýndu fram á að allt að 400 af
þeim löxum voru úr gönguseiða-
sleppingum. Flestir voru þó ekki
úr fiskræktartilraunum í Laxá,
heldur villuráfandi laxar úr haf-
beitarstöðinni í Hraunsfirði. Sig-
urður Már Einarsson fiskifræð-
ingur í Borgarnesi sagði að fylgst
væri með þessu, en ótímabært
væri að nefna hlutdeild þessara
laxa í sumar. Vildi hann aðeins
segja að brögð væru að þessu
enn.
Leiðrétting
Fyrir slysni var ranglega haft
eftir Vífli Oddssyni varðandi veiði-
tölur í Selá í Morgunblaðinu á
þriðjudaginn. Þar stóð að veiðin
í ánni næmi 860-870 löxum, en
rétt er að veiðin nemur um 750
löxum og er þá veiðin aðeins und-
ir meðalveiði síðustu tuttugu ára.
OPERA
EFTIR |Ofl ASCEIRSSOn
■ BEST SÓTTA ATR.IÐIÐ Á LISTAHATIÐ
„Sýningin á Galdra-Lofti i íslensku óperunni er
fágætur listviöburöur."
„Jón Ásgeirsson er heilsteypt tónskáld, sjálfum
sér samkvæmur og þorir aö semja tónlist sem
hljómar vel í eyrum.“
Þ.P., Mbl.
„Frammistaöa Þorgeirs Andréssonar í hlutverki
Lofts telst til tíðinda."
F.T.St., DV
Niöurstaöa: Sýning sem telst til stórviöburöa í
íslensku listalífi. Höfundurinn Jón Ásgeirsson
hefur unniö þrekvirki og öll vinna aöstandenda er
þeim til mikils sóma.
A.B., Abl.
Laugardaginn 14. sept. kl. 20:00
Laugardaginn 21. sept. kl. 21:00
Laugardaginn 28. sept. kl. 20:00
AÐEÍnS ÞRjÁR sÝnincAR
mÍÐÖSALÖ OPÍn DACL.
15-19 Simi 551-1475 ISLKNSK.A OPERAN /
Forsætis-
ráðherra
Lettlands í
heimsókn
FORSÆTISRÁÐHERRA Lettlands,
hr. Andris Skele, er væntanlegur til
landsins í opinbera heimsókn dagana
18.-20. septmber nk. ásamt fylgdarl-
iði og viðskiptasendinefnd.
Meðai dagskrárliða heimsóknarinn-
ar eru viðræður við forsætisráðherra,
sjávarútvegssýningin í Laugardals-
höll, fundur í Verslunarráði, heimsókn
til Bessastaða, í Árnastofnun og Ráð-
húsið og skoðunarferð um Suðurland
tii Vestmannaeyja og Þingvalia, orku-
verið í Svartsengi og Bláa lónið.
Þá mun forsætisráðherra afhjúpa
höggmynd sem lettnesk stjórnvöld
færa íslenskum stjórnvöldum að gjöf
í þakklætisskyni fyrir stuðning þeirra
við frelsisbaráttu lettnesku þjóðar-
innar.
------♦ ♦ ♦-----
Jim Cartwright
væntanlegur
BRESKA leikskáldið Jim Cartwright
og fjölskylda hans verða viðstödd
sérstaka hátíðarsýningu á nýjasta
leikriti hans, Stone Free, á Stóra
sviði Borgarleikhússins í byrjun októ-
ber. Jim Cartwright hefur unnið til
fjölda verðlauna í heimaiandi sínu
eftir að fyrsta verk hans, Stræti, var
frumsýnt í lok níunda áratugarins.
Hér á landi hafa verið sýnd eftir
hann leikritin Stræti, Taktu iagið
Lóa, Bar-Par og nú síðast Stone
Free, öll við miklar vinsældir.
Leikskáldið og fjölskylda hans
koma hingað til lands í boði Leikfé-
lags íslands sem stendur fyrir sýn-
ingum á Stone Free. Til stóð að þau
kæmu á frumsýninguna en af því
gat ekki orðið þá vegna veikinda í
fjölskyldunni.
Starfsmenn í matvælaiðnaði
Ný haustnámskeið
Vekjum athygli á námskeiðum sem uppselt var á vorönn og
nýjum námskeiðum fyrir saltfiskverkendur og sjómenn.
Þurrkun fískafurða: Eðliseiginleikar lofts, upp-
bygging þurrkbúnaðar, orku- og massavægi og gæða-
og örverubreytingar við þurrkun.
18. september - frá kl. 9:00-14:30.
Frysting sjávarafurða: Vannafræði, þróun frysti-
kerfa, frystibúnaður, frystihraði, geymsla, flutningar
og tvífrysting.
19. -20. september - frá kl. 8:30-12:30 og 8:30-12:00.
Kvörðun á vogum, hitamælum og pH-mælum:
Kvörðun á vogum, hitamælum og pH-mælum, mis-
munandi gerðir hitamæla, rekjanleiki, viðmiðunar-
mörk, mæligrunnur, mælióvissa, eftirlit og umhirða.
23. september - frá kl. 9:00-14:30.
Saltfiskverkun: Vinnsluferli, aðbúnaður, geymsla,
verkunaraðferðir, flutningar.
10.-11. október - frá kl. 8:30-12:30 báða dagana.
Meðhöndlun fisks um borð í veiðiskipum: Bætt
meðferð á fiski, verðmætasköpun.
17.-18. október - frá kl. 8:30-12:30 báða dagana.
8.-9. nóvember á Homafirði.
Skráning og nánari upplýsingar í síma 562 0240.
Tölvupóstfang: info@ifsk.is
Veffang: h ttp://www. rfisk. is/
Leiðbeinendur:
Bima Guðbjömsdóttir,
matvælafræðingur
Dr. Guðmundur Stefánsson,
matvælafræðingur
Jón Heiðar Ríkharðsson,
verkfræðingur
Rannsóknastofnun fiskiðnaðarins
Sigurjón Arason,
efnaverkfræðingur
Unnur Steingrímsdóttir,
líffræðingur