Morgunblaðið - 12.09.1996, Side 13
MORGUNBLAÐIÐ
AKUREYRI
FIMMTUDAGUR 12. SEPTEMBER 1996 13
Morgunblaðið/Kristján
Áramótaferðir til
Akureyrar seldar í París
MIKILl áhugi er, að sögn Guð-
mundar Birgis Heiðarssonar for-
stöðumanns upplýsingaskrifstofu
ferðamála í Eyjafirði, meðal Frakka
fyrir áramótaferðum til Akureyrar
en sala á slíkum ferðum hófst ytra
nýlega. Þetta er í fyrsta skipti sem
slíkar ferðir eru boðnar.
Guðmundur Birgir sagði að
ferðaþjónustuaðilar í Eyjafirði
hefðu með sér samstarf vegna ára-
mótaferðanna og væru þeir í sam-
vinnu við sjö ferðaskrifstofur í Par-
ís og nágrenni, auk þess sem ferð-
irnar verða einnig kynntar í Belgíu
og almennt í frönskumælandi hluta
Evrópu. Áramótaferðirnar standa í
þrjá daga, en möguleiki er að lengja
ferðina.
„Miðpunkturinn í þessari ferð
verður að upplifa þá sérstöku
stemmningu sem fylgir áramótum
á íslandi,“ sagði Guðmundur Birg-
ir. „Hér er að mörgu leyti betra að
sjá flugeldana þar sem iðulega er
snjór yfír öllum firðinum á þessum
árstíma, þannig að andrúmsloftið
er annað en t.d. í Reykjavík."
„Þessar ferðir hafa verið
kynntar að undanförnu og salan
er rétt að hefjast þessa dagana.
Við höfum orðið vör við mikil
viðbrögð, m.a. hefur verið haft
samband frá Skandinavíu þar sem
verið var að spyijast fyrir um
möguleika á að komast inn í þess-
ar ferðir. Við höfum hugsað okkur
að byija smátt, en nú lítur út fyr-
ir að áhuginn sé það mikill að
þetta gæti farið fram úr okkar
björtustu vonum,“ sagði Guð-
mundur Birgir.
Skyndi-
mynda-
sjálfsali
settur upp
UÓSMYNDASTOFAN Norður-
mynd á Akureyri hefur sett upp
sjálfsala til passamyndatöku og
hefur honum verið komið fyrir til
bráðabirgða í verslunarmiðstöðinni
Krónunni. í sjálfsalanum er mögu-
legt að fá þijár stærðir af myndum,
eina stóra 9x7 cm, fjórar venjulegar
passamyndir eða 16 litlar myndir.
Myndirnar eru tilbúnar eftir aðeins
45 sekúndur og hægt er að velja
um litmyndir eða svart/hvítar
myndir.
Sjálfsalinn er mjög auðveltur í
notkun og hann talar til viðskipta-
vina og leiðbeinir þeim við mynda-
tökuna. Ásgrímur Ágústsson, ljós-
myndari í Norðurmynd, hefur verið
með passamyndasjálfsala á stofu
sinni sl. 6 ár en hann segir að þessi
sé mun fullkomnari og auk þess
staðsettur í alfaraleið. A myndinni
er Ásgrímur við sjálfsalann í Krón-
unni.
Aðalfundur Sam-
taka tónlistarskóla
Atli Guð-
laugsson
formaður
ATLI Guðlaugsson, skólastjóri Tón-
listarskóla Eyjafjarðar, var kjörinn
formaður Samtaka tónlistarskóla-
stjóra á aðalfundi á Akranesi fyrir
skömmu. Með Atla í stjórn eru aðr-
ir tveir skólastjórar af Norðurlandi
eystra, Björn Þórarinsson, Tónlist-
arskóla Reykdæla og Hlín Torfa-
dóttir, Tónlistarskóla Dalvíkur.
Á aðlfundinum voru samþykktar
ályktanir um mál sem miklu varða
fyrir tónlistarfræðsluna í landinu.
Áðalfundur Samtaka tónlistarskóla
fer þess á leit við menntamálaráðu-
neytið að greiðslur til Sinfóníu-
hljómsveitar æskunnar, samkvæmt
samningi um árleg fjárframlög til
reksturs hljómsveitarinnar, verði
inntar reglulegar af hendi en verið
hefur.
Sinfóníuhljómsveitin er mjög
mikilvægur vettvangur fyrir ís-
lenska tónlistarnemendur og menn-
ingarauki fyrir íslenskt samfélag.
Það er því slæmt ef hljómsveitinni
er gert erfitt um vik vegna seina-
gangs í greiðslum til hennar, segir
í ályktuninni.
Aðalfundurinn fagnar útkomu
Aðalnámskrár tónlistarskóla en
hvetur til að menntamálaráðuneytið
hraði sem kostur er útgáfu greina-
námskráa svo Aðalnámskrá geti
tekið formlegt gildi haustið 1997.
UTSALA
Okkar árlega stór útsala er hafin.
Allar pottaplöntur með 20-50% afslátt. Dæmi
Kaktusar og Þykkblöðungar
kr. 169,-/stk.
Fíkus kr. 990
100 sm
Perluburkni kr. 299
Keramik-
pottahlífar
20-50% afsláttur
Drekakústur kr,
Friðarlilja kr. 499
m