Morgunblaðið - 12.09.1996, Page 14
14 FIMMTUDAGUR 12. SEFfEMBER 1996
MORGUNBLAÐIÐ
\
LAIMPIÐ
Kostnaður 4,3 milljarðar við V estfj arðagöngin sem opnuð verða formlega á laugardag
Næstlengstu
jarðgöng á
N or ðurlöndum
Halldór Blöndal samgönguráðherra opnar
jarðgönffln undir Breiðadals- og Botnsheiðar
formlega iyrir umferð á laugardaginn. Þá
verða liðin fímm ár og níu dagar frá því
fyrst var sprengt í göngunum. Sigurjón J.
Sigurðsson rifjar upp sögu ganganna
AÆTLAÐ er að 500 þús. rúmmetrar efnis hafi komið úr göngun-
um eftir sprengingar og fór það að mestu í vegagerð utan ganga.
ísafirði - Undirbúningur að gerð
jarðganganna hófst með jarðfræði-
rannsóknum á árunum 1983 til 1985.
Unnið var að frekari rannsóknum,
hönnun og forvali verktaka á árunum
1988 til 1990 og verkið var síðan
boðið út á alþjóðlegum vettvangi
vorið 1991. Samið var við verktaka-
samsteypuna Vesturís sf., sem átti
iægsta tilboðið, en aðilar að því fyrir-
tæki eru Istak hf., sem er í forsvari,
Skanska frá Svíþjóð, Selmer Anlegg
frá Noregi og E. Phil & Son frá
Danmörku. Samningur vegna verks-
ins var síðan undirritaður 6. júní
1991 og jarðgangagerðin hófstform-
lega 5. september sama ár, þegar
Halldór Blöndal samgönguráðherra
sprengdi fyrstu hleðsluna.
550 tonn af sprengiefni
Þann 16. september 1994 var
sprengt í gegn í Botndalsgöngum og
lokasprenging var síðan 23. mars
1995, þegar síðasta haftið í Breiða-
dalsgöngunum var sprengt. Alls voru
boraðir um 650 km af sprengiholum,
sprengt var 2.050 sinnum og notuð
til þess 550 tonn af sprengiefni.
Rúmmál efnis sem kom úr göngunum
var um 500 þúsund rúmmetrar.
Jarðgangagerðin gekk samkvæmt
áætlun nema hvað óvænt og mikið
innrennsli vatns, einkum á einum
stað í göngunum, olli töfum og jók
kostnað. Rennslið hefur minnkað
með tímanum á þessum stað, frá því
að vera um 2.000 lítrar á sekúndu
niður í 400 lítra á sekúndu. Nú renna
innan við 900 lítrar á sekúndu úr
göngunum í Tungudal og um 1.000
lítrar á sekúndu úr göngunum í heild.
Hluta vatnsins er veitt inn á Vatns-
veitu ísafjarðarbæjar.
Næstlengstu göng á
Norðurlöndum
Jarðgöngin voru opnuð fyrir al-
menna umferð 20. desember á síð-
asta ári eins og að var stefnt í upp-
hafí, þótt þau væru ekki fulibúin.
Þeim var síðan lokað aftur í maí á
þessu ári og síðan hefur verið unnið
að lokafrágangi. Lagt hefur verið
malbikslag, gengið frá rafbúnaði,
vegmerkingum og ýmsu fleiru.
Göngin eru nú fullbúin til umferðar
en eftir er að ljúka endanlega við
stýrikerfí rafbúnaðar sem verður
væntanlega gert fyrir ársiok.
Göng í bergi eru um 8.685 metrar
og steyptir forskálar eru samtals 435
metrar. Heildarlengd allra ganganna
eru því um 9.120 metrar. Milli
Tungudals og Breiðadals eru göngin
5.930 metrar og milli Tungudals og
Botnsdals eru þau um 4.720 metrar.
Hér er því um að ræða langlengstu
jarðgöng á íslandi, og til samanburð-
ar má nefna að Múlagöng eru 2.400
metrar að lengd, Strákagöng 800 m
og Oddskarðsgöng 640 metrar.
Ef litið er til Evrópu eru göngin
meðal þeirra lengstu og þau næst-
lengstu á Norðurlöndum. Gatnamót
í jarðgöngum, um 300 metrum undir
yfírborði, eru ekki algeng og hafa
þegar vakið athygli erlendra sérfræð-
inga. Þá hefur einnig vakið athygli
hversu vel tókst að ráða fram úr
þeim vandamálum sem upp komu
vegna hins mikla vatnsrennslis.
3-4 kílómetrum
styttra á milli staða
Endanlegt kostnaðaruppgjör hefur
ekki farið fram, en heiidarkostnaður
verður um 4,3 miiljarðar króna,
framreiknað til núgildandi verðlags.
Kostnaðaráætlun frá árinu 1991
hljóðaði upp á 3,7 milljarða á sama
verðlagi og hefur verkið því farið rúm
16% fram úr upphafiegri áætlun og
er viðbótarkostnaðurinn að mestu
vegna ófyrirséðs vatnsrennslis.
Vegurinn um Breiðadals- og
Botnsheiðar fer hæst í 614 metra
yfír sjó og hefur að meðaltali verið
lokaður um sjötíu daga á ári og svip-
aðan dagsljölda hefur aðeins verið
opið hluta úr degi.
Með jarðgöngunum verður gjör-
breyting á, og er reiknað með að
vegum að þeim verði haldið opnum
flesta daga ársins. Vegalengdir
styttast um 3-4 kílómetra, og verða
um 23 km milli ísafjarðar og Suður-
eyrar og sama vegalengd milli ísa-
fjarðar og Flateyrar. Eins og kunn-
ugt er áttu göngin sinn þátt í því
að sveitarfélög á svæðinu hafa sam-
einast.
Vegagerðin sá um allar rannsókn-
ir, undirbúning og hönnun vegna
jarðganganna, og var Hreinn Har-
aldsson verkefnisstjóri. Jarðtækni-
stofan sf. og Orkustofnun unnu að
jarðfræðirannsóknum. Hreinn Har-
aldsson hannaði jarðgöng. Einar
Hafliðason forskála og Kristján
Kristjánsson vegi. Elísbet Gunnars-
dóttir arkitekt hannaði útlit for-
skála. Raftákn hf. hannaði lýsingu
og raflagnir, Raftæknistofan hf.
stýrikerfi fyrir viðvörunar- og raf-
búnað, og Verkfræðistofa Sigurðar
Thoroddsen vann að brunatæknileg-
um málum og viðbúnaðaráætlun.
Sérstök tækninefnd var skipuð
vegna vandamála tengd innrennsli
vatns og hana skipuðu Hreinn Har-
aidsson Vegagerðinni, Christoph
Múller frá Sviss og prófessor Hákon
Stille frá Svíþjóð.
Framkvæmdir voru í umsjá um-
dæmisskrifstofu Vegagerðarinnar á
Isafirði, undir stjórn Gísla Eiríksson-
ar umdæmisverkfræðings. Umsjón-
armaður var Björn A. Harðarson
jarðverkfræðingur og auk hans
starfaði Björgvin Guðjónsson jarð-
fræðingur að eftirliti allan fram-
kvæmdatímann. Að verkinu komu
einnig frá Vegagerðinni Jón Rögn-
valdsson, Einar Erlingsson, Jón Erl-
ingsson, Halldór Sveinn Hauksson,
Gunnar H. Guðmundsson og fleiri.
Verkfræðistofa Sigurðar Thorodds-
en hafði eftirlit með steypufram-
kvæmdum og malbikun.
Aðalverktaki við gangagerðina
var eins og áður segir Vesturís sf.,
og undirverktaki þeirra við malbik-
un var Hlaðbær-Colas hf., við slit-
lagslögn utan ganga Klæðning hf.
og við framleiðsiu steinefna Arnar-
fell hf. Ágúst og Flosi hf. byggðu
brú í Skutulsfirði og unnu nokkur
smærri frágangsverk. Póllinn hf, var
verktaki við lýsingu og annan raf-
búnað í göngunum. Póstur og sími
lét legga ljósleiðara um göngin og
Orkubú Vestfjaða lét leggja raf-
magnsjarðstreng um göngin milli
Tungudals og Botnsdals.
FRÁ opnun Skóbúðarinnar Brákar í Vöruhúsi KB.
Sæunn Jónsdóttir aðstoðar viðskiptavini.
KATRÍN Gunnarsdóttir eigandi
tískuverslunarinnar K2 í nýrri verslun sinni.
TÖLVUBÓNDINN Sverrir Guðmundsson
i Vöruhúsi KB í Borgarnesi.
Einkavæðing í kaupfélagshúsinu í Borgarnesi
Borgarnesi - Segja má að Kaupfélagið í Borgarnesi,
KBB, sé að einkavæðast að hluta til. Opnaðar hafa verið
þrjár verslanir í eigu einstaklinga í Vöruhúsi KB við
Egilsgötu í Borgarnesi. Þá stendur til að Rakarastofa
Hauks Gíslasonar flytjist einnig þangað, auk hraðbanka
sem verður við nýjan inngang í húsið.
í fréttablaði KB er haft eftir Þóri Páli Guðjónssyni
kaupfélagsstjóra að um viss straumhvörf sé að ræða í
rekstri Kaupfélags Borgfirðinga með því að fyrirtæki í
einkaeign séu að hefja starfsemi innan veggja Vöruhúss-
ins. Þróun í þessa átt hófst er áfengisútsala ATVR var
opnuð á neðstu hæðinni. Miklar breytingar hafa verið
gerðar innanhúss, matvörumarkaðurinn stækkaður og
breytingar gerðar á sérvöruverslunum.
Þrjár verslanir í Vöruúsið
Þörfin fyrir lagerhúsnæði hefur minnkað svo rýmkað
hefur um starfsemina innan Vöruhússins. Auglýst var
eftir aðilum sem áhuga hefðu á að selja upp starfsemi
í húsinu, bæði til að nýta húsnæðið betur og einnig til
að bæta þjónustu við viðskiptavini Vöruhúss KB.
Þrjár verslanir eru teknar til starfa í Vöruhúsi KB.
Skóbúðin Borg, rekin af Sæunni Jónsdóttur, sem áður
var staðsett við Brákarbraut. Tískuverslunin K2, sem
er ný verslun í eigu hjónanna Katrínar Gunnarsdóttur
og Hákonar Arnþórssonar. Þar verður fyrst og fremst
fatnaður fyrir unglinga en einnig dömur og herra.
Tölvubóndinn heitir ný verslun sem er í eigu bóndans
Sverris Guðmundssonar frá Hvammi í Norðurárdal.
Hann verður með skrifstofuþjónustu fyrir einstaklinga
og fyrirtæki. Tölvubóndinn selur tölvur, prentara, ljósrit-
unarvélar, faxtæki og reiknivélar. Einnig mun hann bjóða
upp á skrifstofuhúsgögn.
)
I
>
i
l
I
I
í
i
I
í
i
I
I:
I
5
I
I
(
I
V