Morgunblaðið - 12.09.1996, Page 15

Morgunblaðið - 12.09.1996, Page 15
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. SEPTEMBER 1996 15 NEYTENDUR Tilskipanir um geymsluþolsmerkingar frá Evrópusambandinu Mbl/Þorkell. Súkkulaði og fleira sælgæti ekki geymsluþolsmerkt SUKKULAÐI, lakkrís, hlaup, kakó, og sykur þarf ekki að geymsluþols- merkja . Aðrar tegundir sem ekki þarf að tilgreina geymsluþol á eru til dæmis ferskir ávextir og græn- meti, ýmsar víntegundir, salt, tyggi- gúmmí, hunang og edik. Sigríður Klara Árnadóttir, mat- vælafræðingur hjá Hollustuvernd ríkisins, segir gildandi reglugerð um merkingu matvæla unna samkvæmt tilskipunum frá Evrópusambandinu en þar kveður á um að umræddar vörur þurfi ekki að merkja með „best fyrir“. Eldri reglugerð hafði einnig samsvarandi undanþágur. - Þýðir þetta að sami súkkulaðis- kassinn geta verið í hillum verslunar svo árum skiptir? „Það er ekkert í merkingar reglu- gerðinni sem mælir á móti því. Yfir- leitt er ekki hættulegt að borða gam- alt sælgæti og hugsunin á bakvið þessar reglur er að varan sé ekki lífshættuleg þótt hún sé gömul. Syk- ur og salt er notað sem rotvörn fyr- ir ákveðin matvæli s.s. saltfisk og niðurlagða ávexti. Hinsvegar er það hagur framleiðanda að geymsluþols- merkja vörur sínar því ef neytendur lenda í því að kaupa gamalt og vont sælgæti verður það ekki aftur fyrir valinu og margir erlendir framleið- endur geymsluþolsmerkja sitt súkk- ulaði.“ - Er eitthvað um að íslenskir framleiðendur geymsluþolsmerki samt sem áður vörur sínar? „Þessi reglugerð sem um ræðir setur lágmarkskröfur og allt umfram það er í höndum framleiðenda. Ég hef ekki orðið vör við að mikið sé um að íslenskir sælgætisframleið- endur geymsluþolsmerki vörur sínar nema í þeim tilfellum sem um er að ræða dýrari vöru eins og konfekt." Neytendur velja frekar ómerkta vöru Sigríður Klara segir að borið hafi á því að neytendur velji frekar ómerkta vöru en vöru sem komin er nálægt geymsluþolsdagsetningu ef slík dagsetning er á umbúðunum. Auk þess ef varan er geymsluþols- merkt má ekki hafa hana í hillum verslana eftir að tímabili líkur og styttir það sölutíma vörunnar að mati framleiðenda. Sigríður Klara segist nýlega hafa fengið á borðið til sín dæmi um sambærilegar súkk- ulaðitegundir sem voru til sölu í einni verslun. Önnur tegundin var merkt og hin ómerkt. Nýrri varan sem var geymsluþolsmerkt var tekin úr um- ferð þegar „best fyrir“ dagsetningin var útrunnin en sú vara, sem ekki var merkt og var þar að auki eldri, fékk að vera í hillunum áfram. S vínakj ötsútsala Bændur selja svínakjöt með 20% afslætti BÆNDUR eru að selja nýtt svína- kjöt með 20% afslætti fram að helgi. „Svínakjöt hefur á þessu ári almennt verið selt á lægra verði en í fyrra og að viðbættri þessari lækkun nemur hún því um 30% sé miðað við sama tíma í fyrra,“ segir Kristinn Gylfi Jónsson for- maður Svínaræktarfélags Islands. Hann segir að bændur búist við að selja á bilinu 70-100 tonn að þessu sinni og segir ljóst að lækk- unin gangi beint til neytenda því verslanir séu þegar farnar að lækka verð á svínakjöti. Kristinn Gylfi segir að ekki verði um aðra svínakjötsútsölu að ræða fyrir áramót því nú taki við undirbúningur fyrir jólasöluna. NYTT Svali með jarð- arbeijabragði NÝR bróðir bættist við Svalafjöl- skylduna í vikunni. Um er að ræða Svala með jarðarberjabragði. Þriðjungur drykkjarins er hreinn safi en það samsvarar því að í drykknum séu 87 ml af ávaxta- safa sem eru um 130 g af kreistum jarðarbeijum og vínbeijum. I jarðarbeijasvala er enginn hvítur sykur heldur ávaxtasykur og þrúgusykur. Sama á reyndar við um annan Svalasafa líka. Auk þess var þess gætt að stilla sýru- magni í hóf. Engin litarefni eða rotvarnarefni eru í Svalanum. ó SP4Í-CMCITIUO0 fl söflfliiLflflimjóLfl i l kr. 139.-10; DfPíl & DIÍT P-CPSI21 þih mm Pizzfl 400«. 2 t«. kr. 199 1 m flílMU flflUKflflW: fJÖLflflíVTíflfl flVKHIHGflfl OC ITtflftCT f LEIflfl fl flf LCflflTILflODI asíffl- Kaupgarður ■ í MJÓDD Þönglabakka 1 • 109 Reykjavík • Sími 557 3900 • Fax 567 0048 MUOTaRNKMUHMUMi^l hjá iMnni \mlun! | SVÍNAKJÖTS- VEISL | SVÍNAHNAKKI SVÍNABÓGAR SVÍNAKÓTILETTUR SÍÐUR Plastprent hf. börnin og heimilið: Blautbúningar, magabretti, Ajax vindsængur, hengirúm, Dun-Iet mýkingarefni, Ajax þvottaefni og margt tleira. Allt sem þú þarft að gera er að fylla út þátttökuseðil og koma með hann í Þína verslun ásamt kassakvittun af Dun-Iet mýkingarefni eða Ajax þvottaefni - fyrir 15. september. Dregið verður 16. september.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.