Morgunblaðið - 12.09.1996, Side 20

Morgunblaðið - 12.09.1996, Side 20
20 FIMMTUDAGUR 12. SEPTEMBER 1996 MORGUNBLAÐIÐ ERLENT Sáttmála um bann við kjarnorkusprengmgum fagnað víða um heim Sagður mjög' mikilvægur þótt hann taki ekki gildi Sameinuðu þjóðunum, Nýju Delhí. Reuter. LEIÐTOGAR flestra ríkja heims fögnuðu í gær sáttmálanum um bann við kjarnorkusprenging- um sem samþykktur var á allsheijarþingi Sam- einuðu þjóðanna í fyrradag. Sáttmálinn tekur ekki gildi formlega nema Indveijar staðfesti hann og þeir sögðust í gær ætla að streitast gegn honum af sömu staðfestu og Mahatma Gandhi gegn breskum yfirráðum á sínum tíma. Sáttmálinn var samþykktur á allsheijarþing- inu með 158 atkvæðum gegn þremur. Aðeins Indland, Líbýa og Bhutan lögðust gegn sáttmál- anum og fímm ríki sátu hjá, Kúba, Líbanon, Máritíus, Sýrland og Tansanía. Þjóðþing 44 ríkja sem eiga kjamakljúfa, þeirra á meðal Indlands, þurfa að staðfesta sáttmálann til að hann geti tekið gildi. Bill Clinton, forseti Bandaríkjanna, hyggst undirrita sáttmálann í höfuðstöðvum Sameinuðu þjóðanna 24. septem- ber. Bretar og Frakkar sögðust einnig ætla að undirrita sáttmálann sama dag. Hefur mikla þýðingu Sérfræðingar segja að þótt sáttmálinn taki ekki formlega gildi vegna andstöðu Indveija verði þau ríki, sem undirrita hann, skuldbundin til að virða öll ákvæði hans. Sáttmálinn hafi mikla pólitíska og siðferðilega þýðingu þótt Indveijar komi í veg fyrir gildistöku hans. Umræðan um bann við kjarnorkusprenging- um hófst fyrir fjórum áratugum. „Venjulegt fólk út um allan heim vildi þennan sáttmála og þessi alheimsósk var svo máttug að ekkert gat hindrað hana nú,“ sagði Madeleine Al- bright, sendiherra Bandaríkjanna hjá Samein- uðu þjóðunum, eftir atkvæðagreiðsluna. Öll ríkin fimm, sem viðurkenna að hafa yfir kjarnavopnum að ráða, hafa þegar samþykkt að hætta kjarnorkusprengingum í tilrauna- skyni. Bandaríkin, Rússland og Bretland hættu tilraununum á árunum 1990-92 en Frakkland og Kína fyrir nokkrum mánuðum. Þijú önnur ríki, Indland, Pakistan og ísrael, eru talin eiga kjarnavopn eða geta smíðað þau með skömmum fyrirvara. Stjórn Pakistans seg- ist ekki ætla að undirrita sáttmálann um til- raunabannið nema erkióvinir þeirra, Indveijar, geri það en ísraelar segjast styðja sáttmálann. „Við ætlum ekki að undirrita sáttmálann,“ sagði Inder Kumar Gujral, utanríkisráðherra Indlands, í efri deild indverska þingsins og þing- menn létu stuðning sinn í ljósi með því að berja á borðin. „Við höldum áfram á þeirri dýrðarbraut sem Gandhi og Nehru lögðu," bætti ráðherrann við og vísaði til Mahatma Gandhis og Jawaharlals Nehrus, fyrsta forsætisráðherra Indlands, sem voru í fylkingarbijósti í baráttu Indveija gegn breskum yfirráðum sem lauk árið 1947. Indveijar segjast ekki ætla að sprengja kjarn- orkusprengjur í tilraunaskyni en vilja ekki undirrita sáttmálann þar sem kjarnorkuveldin fimm neituðu að verða við kröfu þeirra um að skuldbinda sig til að eyðileggja öll kjarnavopn sín innan ákveðins tíma. Leiðtogar flestra Asíuríkja fögnuðu sam- þykkt allsheijarþingsins og sögðu sáttmálann nauðsynlegan þótt hann væri ekki gallalaus vegna ýmissa málamiðlana. Kínverjar, sem forðast yfirleitt að hvetja önnur ríki til að undir- rita alþjóðasamninga, sögðust vona að öll ríki heims undirrituðu og virtu sáttmálann. iáTZÉMm Hmtmmesnmmm a Xrí-"- „Noregur“ í heimahöfn Reuter Flugvél snúið við af öryggis- ástæðum Glasgow. Reuter. BANDARÍSK flugvél, með 193 far- þega innanborðs, lenti heilu og höldnu á flugvellinum í Glasgow í gær, eftir að henni var snúið við yfir miðju Atlantshafí, „af öryggisá- stæðum“. Vélin, sem er frá American Air- lines-flugfélaginu, var á leið frá London til Chicago, um 800 km. vestur af írlandi, þegar henni var snúið við. Ástæðan var grunsamleg- ur pakki sem talið var að væri um borð. Talsmenn flugfélagsins vildu ekki veita nánari upplýsingar um málið að svo stöddu. Er vélin lenti í Glasgow þustu lögreglu- og slökkviliðsmenn að henni til að leita í vélinni. Farþegar voru fluttir í snarhasti inn í flugstöð- ina, þar kannað var hvemig koma mætti þeim á áfangastað. FARÞEGASKIPIÐ „Noregur' kemur til heimahafnar í Le Havre í Frakklandi í gæ r. Skipið, sem er eitt stærsta farþegaskip heims, 315 metr- ar á lengd, hét áður „Frakk- land“ og var þekkt fyrir mun- aðinn sem farþegar nutu um borð. Kom skipið frá New York í gær en frá Le Havre heldur það til Bretlands til viðgerða. Eystra- saltsríki í ESB? PAAVO Lipponen, forsætis- ráðherra Finnlands, hvatti í gær til þess að Eystrasaltsrík- in gleymdust ekki þegar stækkun Evrópusambandsins kæmi til umræðu. Varaði hann sterklega við að svæðið ein- angraðist, sagði það nauðsyn- legt fyrir Finna að ríkin þijú fengju sama tækifæri og önn- ur lönd til aðildar. Þjóðverjar ósáttir við refsiaðgerðir GÚNTHER Rexrodt, efna- hagsmálaráðherra Þýska- lands, lýsti í gær andstöðu Þjóðveija við efnahagsþving- anir sem Bandaríkjamenn hyggjast beita gegn þeim fyr- irtækjum sem eiga viðskipti við Kúbu. Sagði ráðherrann þessa leið kolranga ef ætlunin væri að styðja lýðræðisþróun og að Þjóðveijar myndu ekki fallast á aðgerðir Bandaríkj- anna. Norðmaður dæmdur fyrir iðnaðarnjósnir VERKFRÆÐINGUR sem starfaði hjá Norsk Hydro, var í gær dæmdur í fimm ára fang- elsi fyrir iðnaðarnjósnir. Var maðurinn fundinn sekur um að koma leynilegum upplýs- ingum fyrirtækisins til keppi- nautar þess. Hann neitar ásök- ununum. Páfagaukur drepur barn PÁFAGAUKUR varð unga- barni að bana í Mið-Afríkurík- inu Kongó, með því að gogga í nef þess á meðan móðirin brá sér í sturtu. Olli fuglinn svo miklum blæðingum að bamið kafnaði. Foreldrar þess börðu páfagaukinn til bana þegar þau áttuðu sig á því hvað hafði gerst. KOMPU SALAH allar helgar I Kolaportinu er kompusala alla markaðsdaga og bósinn kostar ekki nema kr.w2i8i0i0. Nú er tilvalið að taka til í geymslunum oa fataskápunum; panta bás i Kolaportinu og breyta gamla dótinu í goðan pening. Pantanasími er 562 5030 V > KOLAPORTIÐ MIIIIIIIIIIM Harka færist í deilu Kínveija og Japana um smáeyjar Kínaher hvattur til að beita herskipum IJ..I.1.W. T>nnn! Ufllltur Peking, Tæpei. Reuter. RÚMLEGA hundrað kínverskir þjóðernissinnar skoruðu í gær á æðstu yfirmenn Kínahers að senda herskip til eyja í Kínahafi, sem Kín- veijar og Japanir hafa deilt um. Harka færðist í deiluna í júlí þegar japanskir þjóðernissinnar reistu vita og minnismerki um síð- ari heimsstyijöldina á einni eyj- anna. Þeir héldu þangað aftur á mánudag til að gera við vitann, sem skemmdist í fellibyl nýlega, og segj- ast aðeins hafa reist hann af um- hyggju fyrir sjómönnum. Japanska stjórnin hefur stutt þjóðemis- sinnana og sent varðskip til að stöðva tævanska báta sem hafa reynt að sigla til eyjanna síðustu daga í því skyni að rífa vitann og minnismerkið niður. Kínversku þjóðernissinnarnir sendu æðstu embættismönnum hersins bréf og hvöttu þá til að senda herskip til að fylgja íbúum Kína, Tævans og Hong Kong til eyjanna. Hópur íbúa Hong Kong er einnig í Peking til að afhenda kínverskum ráðamönnum áskorun, sem 15.000 Hong Kong-búar undir- rituðu, um að beita hervaldi ef nauðsyn krefði til að leiða deiluna til lykta. Tævanskir þingmenn hafa enn- fremur hvatt stjórn Tævans til að senda herskip gegn japönsku varð- skipunum. „Vandræðalegl" bandalag Deilan hefur orðið til þess að sameina Kínveija og Tævani, sem hafa átt í deilum frá árinu 1949. Ráðamenn í Kína og Tævan era sammála um að eyjarnar hafi til- heyrt Kína í margar aldir, en Japan- ir segjast hafa ráðið yfir eyjunum frá því Kínveijar neyddust til að láta þær af hendi eftir ósigur í stríði árið 1895. „Deilan um eyjarnar hefur sett stjórnvöld í Kína og Tævan í mjög vandræðalega stöðu,“ sagði Lu Ya-li, sérfræðingur í samskiptum ríkjanna við Tævan-háskóla. DEILT UM EYJAR Kínverjar, Japanir og Tævanir deila um nokkrar óbyggðar smáeyjar, sem eru nefndar Senkakus í Japan og Diaoyus í Kína Japanir hafa gert tilkall til eyjanna frá 1895, þegar þeir báru sigurorð af Kínverjum og náðu eyjunum og fleiri svæðum á sitt vald. Kfnverjar segja eyjarnar hafa tilheyrt Kína í margar aldir REUTERS

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.