Morgunblaðið - 12.09.1996, Side 21
MORGUNBLAÐIÐ
LISTIR
FIMMTUDAGUR 12. SEPTEMBER 1996 21
Upphafstónleikar Sinf óníuhlj óms veitar íslands haldnir í Háskólabíói í kvöld
Fagott
fremst
á sviðinu
Fagottleikararnir Hafsteinn
Guðmundsson og Rúnar Vilbergsson
verða í aðalhlutverki í konsert fyrir tvö
fagott og hljómsveit. Þröstur Helgason
ræddi við þá.
Morgunblaðið/Kristinn
RÚNAR Vilbergsson og Hafsteinn Guðmundsson segja að þessir tónleikar séu
kærkomin kynning á fagottinu, sem hefur skemmtilegan og jafnvel
skondinn hljóm.
í DAG hefst nýtt starfsár Sinfóníu-
hljómsveitar Islands með sérstök-
um upphafstónleikum. Á þeim er
leitast við að sýna tónleikagestum
hvað er í vændum í vetur þótt ekki
séu leikin sömu verk og eru á tón-
leikaskrá vetrarins. Hljómsveitar-
stjóri að þessu sinni verður Takuo
Yuasa frá Japan sem er flestum
tónleikagestum kunnur en hann
hefur stjórnað Sinfóníhljómsveit-
inni nokkrum sinnum og nú síðast
í apríl þegar Þýsk sálumessa
Brahms var flutt í Hallgrímskirkju.
Kynnir á tónleikunum verður Lana
Kolbrún Eddudóttir.
Á efnisskránni verður sitt lítið
af hveiju. Eftir austurríska óperu-
tónskáldið Franz von Suppé (1819-
1895) verður leikinn forleikurinn
að Galateu fögru. Tveir þættir úr
Simple Symphony eftir kunnasta
tuttugustu aldar tónskáld Englend-
inga, Benjamin Britten (1913-
1976), eru á efnisskránni og Sirkus
polka eftir Igor Stravinskíj (1882-
1971), sem fæddist í Rússlandi en
bjó lengst af í Bandaríkjunum. Á
efnisskránni eru einnig þrír þættir
úr ballettinum Þyrnirósu eftir landa
Stravinskíjs, Pjotr Tsjækovskíj
(1840-1893), Dauðadansinn eftir
Frakkann Camille Saint-Saéns
(1835-1921), Lærisveinn galdra-
meistarans eftir landa hans Paul
Dukas (1865-1935) og Dansar frá
Pólovetsíu eftir rússneska lækninn,
efnafræðinginn og tónskáldið AJex-
ander Borodin (1833-1887). Á tón-
leikunum verður svo leikinn kon-
sert fyrir tvö fagott og hljómsveit
eftir tónskáldið Jan Krtitel Yanhal
(1739-1813). Á fagottin tvö leika
tveir meðlimir Sinfóníuhljómsveit-
arinnar, Hafsteinn Guðmundsson
og Rúnar Vilbergsson, en þeir hafa
flutt verkið einu sinni áður í heild
sinni, árið 1989.
I kvartett með Mozart
og Haydn
Það er fremur sjaldgæft að fag-
ott heyrist sem einleikshljóðfæri
með sinfóníuhljómsveit og hvað þá
að skrifaður sé konsert fyrir tvö
fagott og hljómsveit. Vivaldi var
sennilega ötulastur við að semja
fyrir fagott, en til eru 38 fagottkon-
sertar eftir hann. Einnig samdi
Mozart einn slíkan og er hann lík-
lega sá frægasti þeirra. Vanhal
skrifaði raunar einnig konsert fyrir
eitt fagott en ekki er langt síðan
þessi verk hans urðu almenningi
heyrinkunn. Að sögn þeirra Haf-
steins og Rúnars var konsertinn
sem þeir ætla að leika í kvöld ekki
hljóðritaður fyrr en árið 1983. „Þá
var sennilega notast við handrit,
því nóturnar voru ekki prentaðar
fyrr en tveimur árum síðar,“ bætir
Hafsteinn við. „Vanhal er eitt af
þessum tónskáldum sem hefur fall-
ið í skuggann af stærri meisturum
eins og Haydn og Mozart.“
Vanhal var samtímamaður þess-
ara tónskálda, fæddur þar sem
heitir Bóhemía og myndi nú senni-
lega flokkast undir Tékkland. Hann
starfaði lengst af í Vínarborg en
var einnig um tíma á Ítalíu og
Englandi að kynna sér tónlist. „I
Vínarborg voru margir fremstu
tónlistarmenn síns tíma og þar
kynntist hann til dæmis bæði Moz-
art og Haydn,“ segir Rúnar. „Sag-
an segir að Vanhal hafi spilað á
selló í strengjakvartett ásamt bæði
Mozart og Haydn, sem léku á víólu
og fyrstu fiðlu, en sá fjórði var
Nýjar bækur
Konur þriggja kynslóða
í HAUST er væntan-
leg ný bók eftir Elínu
Pálmadóttur blaða-
mann og rithöfund.
Bókin nefnist Með
fortíðina í farteskinu
og er saga sem Elín
spinnur í kringum
þijár konur úr ætt
sinni, raunar eru þar
í aðalhlutverki amma
höfundar, langamma
og langa-langamma.
Konur þessar geta
með sanni talist full-
trúar þriggja kynslóða
á nítjándu og tuttug-
ustu öld. Elín sendi frá
sér fyrir nokkrum árum bókina
Fransí Biskví um frönsku Islands-
sjómennina sem tilnefnd var til Is-
lensku bókmenntaverðlaunanna og
varð ein söluhæsta bók ársins.
Með fortíðina í farteskinu segir
örlagasögu ólíkra kvenna frá 1821
Elín Pálmadóttir
maður að nafni barón von Dittersd-
orf sem lék á aðra fiðlu.“
„Það er merkilegt,“ segir Haf-
steinn, „að sagan er höfð eftir ein-
hveijum samtímasöngvara sem
kom í heimsókn í hús þar sem þessi
kvartett var á æfingu, sagði hann
að hljóðfæraleikararnir hafi hver
og einn verið svona þokkalegir spil-
arar; ummælin eru eilítið fyndin í
ljósi þess sem síðar varð.“
Vitað er að Vanhal og Mozart
voru góðir kunningjar, en Mozart
lék einmitt einleikshlutverkið í
frumflutningi á einum af fiðlukon-
sertum Vanhals. Vanhal var geysi-
lega afkastamikill, samdi yfir hund-
rað sinfóníur, um hundrað
strengjakvarteta, níutíu verk af
trúarlegum toga, auk þess sem
hann samdi konserta fyrir mörg
hljóðfæri.
Verkið segja Hafsteinn og Rúnar
vera afskaplega þægilegt áheyrnar.
„Við getum flokkað þetta verk sem
snemmklassískt," segir Hafsteinn,
„en það er mjög hefðbundið í flesta
staði og melódískt. Fagottin tvö eru
látin kallast á, stundum hefur ann-
að þeirra framsögu og hitt svarar
eða endurtekur með einhveijum til-
brigðum.“
„Sagan á bak við verkið er ekki
þekkt,“ heldur Rúnar áfram, „það
er ekki vitað hvenær það var sam-
ið eða af hvaða tilefni. Þó má heyra
hugmyndir úr fagottkonsert Moz-
arts í því, en ómögulegt er að segja
til um hvor hefur þegið frá hinum.
En greinilegt er að þetta barn síns
tíma.“
Fagottið eins og mannsröddin
Ekki er langt síðan fagottið nam
land við ísland. Að sögn Hafsteins
og Rúnars var kennari þeirra, Sig-
urður Markússon, fyrstur til að
leggja fagottleik fyrir sig af alvöru.
„Við erum því önnur kynslóð ís-
lenskra fagottleikara," segir Haf-
steinn, „og hljþðfærið því tiltölu-
lega nýtt fyrir íslendingum eins og
svo margt annað reyndar, það er
til að mynda ekki svo langt síðan
Islendingar fóru að gefa klassískri
tónlist gaum. Þessir tónleikar eru
því kærkomin kynning á þessu
hljóðfæri sem hefur þennan
skemmtilega og jafnvel skondna
hljóm. Fyrstu kynni margra af fag-
ottinu eru einmitt í Pétri og úlfin-
um, þar sem það leikur hlutverk
afans gamla, þannig kynntist ég
því til dæmis fyrst.
Hljómur fagottsins er ekki mjög
sterkur, en það hefur mikinn lit,
það líkist kannski svolítið manns-
röddinni. Það getur átt dálítið erf-
itt með að spila í gegnum stóra
hljómsveit, en í verki Vanhals er
tekið tillit til þessa og hljómsveitin
minnkuð."
Báðir segjast Hafsteinn og Rún-
ar hlakka mjög til að takast á við
verkefnið. „Það er skemmtilegt að
spila þetta verk, enda er það afar
áheyrilegt," segir Rúnar. „Og svo
erum við auðvitað í allt öðrum
hlutverkum þarna en vanalega,
það er jú ekki svo oft sem við fag-
ottleikararnir fáum tækifæri til að
standa fremst á sviðinu. Þetta
verður ánægjulegt en vissulega
erum við líka með fiðring í magan-
NÝJUNG
LIFT-MINCEUR
FRÁ CLARINS
Mótandi áhril:
Sýnileg, skjótvirk og varanleg.
í tyrsta skipti nýtir Clarins nú
virkni ensíma til að skapa
áhrifaríkari meðferð fyrir
líkaman. Garcinna Camogia,
nýtt jurtaefni, örvar ensímið
sem sér um losun fitu um leið
og það vinnur gegn fitusöfnun.
Umfram fita minnkar hratt.
Árangurinn endist lengi.
til 1946. Þær komu úr
mismunandi þjóðfélags-
hópum en líf þeirra
tvinnaðist saman með
dramatískum hætti.
Elín byggir frásögn
sína á einkabréfum,
dagbókum og frásögn-
um sem lifað hafa í
munnlegri geymd, og
öðrum óprentuðum og
prentuðum gögnum.
I kynningu forlagsins
segir:
„Hún gefur lesand-
anum innsýn í aðstæður
einstaklinga en lýsir um
leið lífí fólksins í landinu
á þessum tíma. Þannig er bókin
aldarspegill þar sem aðstæður
kvenna fyrr á tíð eru í brenni-
punkti en kallast jafnframt á við
nútímann.“
Vaka-Helgafell gefur Með fortíð-
ina í faiteskinu út.
Frískar og fegrar
Lift-Minceur kremið gefur
frískleikatilfinningu sem
varir. Það eykur blóðstreymi
í yfirborði húðar og dregur
úr þyngslatilfinningu í fótum.
I
%
Þú bæði sérð árangurinn og
finnur fyrir honum...
Ilanda valinna efna með
rlega mótandi eiginleika
dregur úr „appelsínuhúð"
strax frá fyrstu notkun.
Jurtaefnið keratólín mýkir
húðina og með hverjum
deginum sem líður verður
hún sléttari og þéttari.
LIFT-MINCEUR
Lagaðu þig
1
lí.
„.aToI'®
LIFT-MINCEUR FRÁ CLARINS:
Einstök reynsla í meðferð húðar.
Ekki prófað á dýrum.
Veldur ekki ofnæmi.
m
K
að framtíðinni
Framúrskarandi árangur.
-94% kvenna upplifðu
frískleikatilfinningu
f húðinni strax við fyrstu
notkun.
Ettir daglega notkun í 4 vikur:
-86% fundu að húðin
varð stinnari:
-71% tók eftir mótandi
áhrifum kremsins.
CLARINS
---------P A R I S------