Morgunblaðið - 12.09.1996, Side 23

Morgunblaðið - 12.09.1996, Side 23
MORGUNBLAÐIÐ LISTIR FIMMTUDAGUR 12. SEPTEMBER 1996 23 Sýningar á Bar Pari hefjast á ný SÝNINGIN Bar Par eftir Jim Cartwright verður tekin upp að nýju frá fyrra leikári í Borgarleik- húsinu. Fyrirhugaðar eru örfáar sýningar og verður sú fyrsta á þessu hausti föstudaginn 20. sept- ember. Bar Par gekk fyrir fullu húsi á Leynibarnum allt síðasta leikár og urðu sýningar alls sextíu talsins. Leikritið gerist á bar og segir þar frá hjónunum sem eiga og reka barinn, einnig koma við sögu gestir þeirra af ýmsu sauðahúsi, skrautiegir og skemmtilegir per- sónuleikar. Hlutverkin eru fjórtán, en að- eins tveir leikarar, Saga Jónsdótt- ir og Guðmundur Olafsson, fara með öll hlutverkin. Leikstjóri er Helga E. Jónsdótt- ir, leikmynd og búninga gerði Jón Þórisson en lýsingu annaðist Lárus Björnsson. Eins og áður sagði, verður fyrsta sýningin 20. september kl. 20.30. VERK eftir Mörtu Maríu. Marta María sýnir í Stöðlakoti í STÖÐLAKOTI við Bókhlöðustíg opnar Marta María glerlistakona sýningu á laugardaginn. Sýning- una kallar hún „Ljós og gler“. Hún sýnir þar sjálfstæð steind glerverk og samleik járns og glers, þar sem ólíkir efniviðir tóna sig saman og mynda verk. Þetta er sjötta einkasýning Mörtu Maríu, en hún hefur tekið þátt í nokkrum samsýningum hér heima og í Gall- erí Evers í Köln í Þýskalandi. Sýningin er opin daglega frá kl. 14-18 og stendur til sunnu- dagsins 29. september. ORMSTUNGA gefur út sex bækur í haust og eru þær allar skáldsögur, fjórar eftir íslenska höfunda og tvær þýddar. Thor er eftir íslensk-kanadíska rit- höfundinn William D. Valgardson og segir frá litlum dreng í Kanada, Thor að nafni, sem heimsækir afa sinn um jólin. Afinn stundar fiskveiðar á ísi- lögðu Winnipegvatni og æsilegir at- burðir taka að gerast meðan á dvöl drengsins stendur. Thor var kosin besta bamabók fyrir börn yngri en sjö ára þegar hún kom út í Kanada 1994. Guðrún Guðsteinsdóttir þýddi Thor. Refskák — eða bríkin frá Flandri nefnist bók eftir spænska metsöluhöf- undinn Arturo Pérez-Reverte í þýð- ingu Kristins R. Ólafssonar. Flétta sögunnar snýst um málverk frá lokum fímmtándu aldar sem sýnir menn að tafli. Fimm öldum síðar reyna menn að leysa skákþraut myndarinnar og sami leikur er leikinn með öðmm leik- mönnum þar sem raunverulegir glæp- Verk eftir Aðal- heiði Ólöfu í Þýskalandi SÝNING á 25 verkum eftir Aðal- heiði Ólöfu Skarphéðinsdóttur verð- ur opnuð 12. september í Búcherei Tarp í Kappeln í Þýskalandi. Verkin eru graf- íkverk unnin í dúk og tré og verk með bland- aðri tækni. Þetta er 7. einkasýning Aðalheiðar, en hún hefur tekið þátt í fjölda sam- sýninga heima og erlendis. Sama dag opnar Aðalheið- ur gluggasýningu í Listhúsi 39 í Hafnarfirði þar sem hún sýnir trér- istur og þurrnálsgrafík, en Aðal- heiður vann þau síðarnefndu undir handleiðslu Ríkharðar Valtingojer á vinnustofu hans á Stöðvarfirði síð- astliðið sumar. Aðalhciður Ólöf Skarphéðinsdóttir Bifreið morgundagsins - fáanleg strax í dag IE1 HEKLA Auöi Vorsprung durch Technik er hagvanur. Draugasinfónían er ný skáldsaga eftir Einar Örn Gunnars- son, en hann hefur áður sent frá sér skáldsögumar Næðing (1990) og Benjamín (1992). Sagan greinir frá ungum manni sem kemur til Reykja- víkur utan af landi í ársbyrjun 1940 til að læra bókband en er jafnframt að flýja vafasama fortíð. í Reykjavík kemst hann í kynni við andartrúar- menn. Endurkoma Maríu heitir ný skáld- saga eftir Bjarna Bjamason, en í sög- unni er leitast við að svara þvi hvern- ig María mey væri sem ung kona í nútímaþjóðfélagi og hvernig henni yrði þá tekið. Sagan er sögð nýstárleg og skilin milli draums og veruleika ekki alltaf ljós. Bjami hefur áður sent frá sér ýmiss konar skáldskap, síðast bókina Vísland (1994). Hann átti verðlaunasögu í smásagnakeppni Rík- isútvarpsins á þessu ári. Ormstunga gefur einnig út tímarit þýðenda, Jón á Bægisá, og er það væntanlegt í næsta mánuði. Sex skáldsogur frá Qrmstungu Yarhugaverð skák- þraut og María mey ir eru framdir. Bókin hefur komið út í sextán löndum og hlotið ýmis verðlaun. Rigning með köflum er ný skáldsaga eftir Ólaf Hauk Símon- arson, fyrsta skáldsaga höfund- Einar Örn ar um árabil. Sag- Gunnarsson an gerist í íslensku sveitasamfélagi um 1960 og lýsir dvöl höfuðborgardrengs í sveitinni, basli í búskap og unglingaástum. tfölmóðs saga föðurbetrungs er eftir Kristin R. Ólafsson og lýst sem ævintýraleg- um spennutrylli frá tólftu öld fyrir unglinga og alla þá sem unna kynjasögum. Bjarni Söguhetjan er ís- Bjarnason lenskur kolbítur sem drýgir dáðir heima fyrir og ratar í æsilegar mann- raunir víða og berst leikurinn suður að Miðjarðarhafi þar sem höfundurinn

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.