Morgunblaðið - 12.09.1996, Qupperneq 32
32 FIMMTUDAGUR 12. SEPTEMBER 1996
AÐSENDAR GREINAR
MORGUNBLAÐIÐ
Equitana USA 1996
DAGANA 18.-21. júlí var haldin
hestasýningin Equitana USA í Louis-
ville í Kentucky fylki í Bandaríkjun-
um. Sýningin ber sama nafn og Equ-
itana sýning sú sem haldin hefur ver-
ið annað hvert ár í Essen, Þýska-
landi, síðastliðin 25 ár. Hugmyndin
að Equitana sýningunum kom frá
Þjóðverjanum Kröber, og hefur hann
nú selt Bandaríkjamönnum, er hyggj-
ast halda Equitana sýningar á hveiju
ári, hugmyndina.
Ganghestakyn og sirkusatriði
A sýningunni voru öll þau helstu
atriði sem höfða til hestafólks sem
sækir sýningar. Styrkur sýningarinn-
ar felst í miklli breidd hestategunda
sem búa yfir fleiri gangtegundum en
grunngangtegundunum, sem eru fet,
brokk og stökk. Á sýningunni voru
mörg hestakyn sem bjóða upp á tölt,
t.d. Morgan, Tennesee Walker, Saddle
Bred og Paso Fino. Þegar litið er til
þess að íslenski hesturinn hefur ekki
sérstöðu hvað varðar töltgang, vaknar
sú spurning hvort íslendingar verði
ekki að breyta áherslum í markaðs-
setningu á íslenska hestinum. Það
sem íslenski hesturinn hefur fram
yfir önnur ganghestakyn er hversu
auðveldur hann er í meðförum og
einstakt geðslag hans.
Sýningaraðilar frá 17 löndum
Það sem gerði þessa sýningu sér-
staka var breidd sýningaratriðanna.
Þama var hvorki kynslóðabil né
kynjaskipting og áttu allir aldurs-
fiokkar sinn þátt í sýningunni. Áhorf-
endum var boðið upp á fjölbreytt atr-
iði, allt frá hádramatískum burtreið-
um frá dögum Arthúrs konungs upp
í nútíma kvikmyndastjömur á borð
við Fagra Blakk (Black Beauty).
Þjálfari Fagra Blakks stjómaði hest-
ipum án reiðtygja og sýndi áhorfend-
um svo ekki var um villst að þama
var á ferðinni ferfættur leikari sem
kunni sitt fag. Fagri Blakkur !ék bol-
taleik við 5 ára son þjálfarans og lék
ótrúlegustu kúnstir sem ekki er hægt
að lýsa með orðum. Það sem íslenski
sýningarhópurinn hafði umfram önn-
ur atriði var mikill hraði, léttleiki og
kraftur gangtegundanna. Áhorfendur
kunnu vel að meta íslenska atriðið
og sýndu óspart ánægju sína með
miklum fagnaðarlátum. Stjómendur
sýningarinnar sýndu mikla dirfsku
að hafa íslenska atriðið sem lokaatr-
iði sýningarinnar í landi stórhesta-
kynja. íslenska hestinum var þar með
sýnd mikil virðing og fengu þeir enn
meiri umfjöllun en ella. íslenski sýn-
ingarhópurinn stóð sig með ágætum
þó að hestakosturinn hefði mátt vera
betri þegar á heildina er litið.
Stjómendur íslenska sýningarhóps-
ins vom þeir Sigurbjöm Bárðarson
og Baldvin Ari Guðlaugsson. Með
skipulegri stjómun og
útsjónarsemi þeirra
Sigurbjöms og Baldvins
Ara tókst að sýna hina
frábæru eiginíeika ís-
lenska hestsins eins og
best varð á kosið.
Tenging við önnur
hestakyn
Með þessari sýningu
náðist samband við
ræktendur og reiðmenn
annarra hestakynja, og
stækkaði þar með
markhópurinn fyrir ís-
lenska hestinn. Þessir
aðilar eru í hesta-
mennsku í atvinnuskyni
jafnt sem af hugsjónaá-
stæðum, og em því móttækilegir fyr-
ir þeim möguleikum sem íslenski hest-
urinn hefur óneitanlega upp á að
bjóða sem markaðsvara. Þessir aðilar
em lykilmenn að markaðnum þar sem
þeir ráða yfir stærstum hluta hesta-
áhugamanna og em leiðandi í mark-
íslenzku hestarnir, segir
—
Axel Omarsson, fengu
mjög góðar viðtökur.
aðssetningu í Bandaríkjunum. Þar
sem aukin samvinna náðist með þess-
um aðilum má segja að stóram áfanga
hafi verið náð sem á eftir að skila
ávinningi. Fólk sem kemst í kynni við
íslenska hestinn sækir í að kynnast
Íslandi, heimkynnum hestsins. Þetta
þýðir aukinn ferðamannastraum til
Islands og auknar gjaldeyristekjur á
mörgum sviðum fyrir íslendinga, svo
sem flug, bílaleigur, bændagisting,
hótel, hestaferðir, gjafavörur og auk-
in sala á íslenskum hestum.
Mikil fjölmiðlaumfjöllun
Þáttur fjölmiðla var athyglisverður
á þessari sýningu. Sjónvarpsstöð, sem
eingöngu fjallar um hesta og hesta-
mennsku, hafði aðsetur á sýninga-
svæðinu, og sendi út í beinni útsend-
ingu um gjörvöll Bandaríkin. Þátttaka
fjölmiðla var mjög víðtæk hvort sem
um var að ræða blöð eða Ijósvaka-
miðla. Samkvæmt bandarískum
könnunum hefur komið fram að
hestaíþróttir em þriðja vinsælasta
áhorfendaíþróttin. A íslandi em iðk-
endur hestaíþrótta öllu fleiri miðað
við fólksfjölda, og hafa fjölmiðlar á
íslandi engan veginn sinnt umfjöllun
um þessa göfugu íþróttagrein sem
skyldi.
Stór hópur áhugafólks
Sýningin höfðar til allra áhuga-
manna um hesta og allra þeirra sem
leita nýrra áhugamála til útivistar.
Jafnframt höfðar sýn-
ingin til mjög stórs
markhóps sem stundar
hestamennsku í atvinnu-
skyni. Á sýningunni var
mikið framboð á vam-
ingi, allt frá gjafavömm
upp í lúxusbíla svo eitt-
hvað sé nefnt.
Móttökur
Islensku hestamir
fengu mjög góðar mót-
tökur, en í byrjun var
ákveðin varfærni og tor-
tryggni vegna þekking-
arskorts. Margir sýning-
argestir og stjómendur
vom að sjá íslenska hest-
inn í fyrsta sinn og þurfa
tíma til þess að kynnast hestinum
frekar. Stjómendur sýningarinnar
þekktu hestinn aðeins af orðspori
hans í Evrópu, og tóku nokkra áættu
með því að hafa íslenska hestinn sem
lokaatriði aðalsýningarinnar. Banda-
ríkjamenn vita yfirieitt lítið um Island
og hvað það hefur að bjóða, og ís-
lenski hesturinn er einhver áhrifa-
mesta landkynning sem völ er á. ís-
lensku hestarnir hlutu stórkostlegar
móttökur áhorfenda og sýningargest-
ir sýndu velvild og hlýju í garð þeirra
í alla staði. Það leikur enginn vafí á
því að íslenski hesturinn hefur nú
hlotið gott brautargengi í Bandaríkj-
unum, og það er mikilvægt að halda
áfram á þessari braut og nýta
árangurinn enn frekar,
Hvað vantar?
Til þess að átak sem þetta nýtist
til fulls þurfa íslensk stjórnvöld að
fýlgjast vel með og leggja sitt af
mörkum. Sýning sem þessi getur
þjónað hagsmunum alls íslensks út-
flutningsiðnaðar svo og íslensks
ferðaiðnaðar. Það er mikilvægt að
tengja vem jslenska hestsins á slíkri
sýningu við Island og þá vöm og þjón-
ustu sem íslendingar hafa upp á að
bjóða. Einhver áhrifamesta kynningin
væri opinber móttaka á vegum sendi-
ráðs íslands þar sem í boði væm ís-
lenskar matarafurðir. Opinberar mót-
tökur draga að sér fyrirmenn, og í
Bandaríkjunum vekja fyrirmenn
ávallt eftirtekt. Einnig er mikilvægt
að yfirbragð kynningarinnar sé að
bjóða fólk velkomið í stað þess að
eingöngu sé sölumennska á ferðinni.
Sé ekki fylgt staðfastlega á eftir þessu
strandhöggi sem nú hefur náðst, er
hætt við að árangurinn glatist.
Bandaríkin em gífurlega stórt land
þar sem meira þarf til en eina vel
heppnaða sýningu til þess að ná fót-
festu.
Höfundur starfar að
lítflutningi hrossa.
Axel
Omarsson
TILKYNNING UM ÚTBOÐ MARKAÐSVERÐBREFA
HLUTABRÉF í
ÍSLENSKA FJÁRSJÓÐNUM HF.
Heildarnafnverð nýs hlutafjár: 200.000.000.- kr.
Sölugengi á útgáfudegi: 1,81
Fyrsti söludagur: 12. september 1996 - 1. mars 1997
Umsjón með útboði: Landsbréf hf. og umboðsmenn Landsbréfa hf.
í útibúum Lanasbanka Islands um land allt.
Skráning: Aður útgefin hlutabréf Islenska fjársjóðsins hf.
eru skráð á Verðbréfaþingi Islands. Oskað
verður eftir skráningu þeirra hlutabréfa, sem
nú eru boðin út, á Verðbréfaþingi Islands.
Utboös- og skráningarlýsing vegna ofangreindra hlutabréfa liggur frammi hjá Landsbréfum hf.
og umboðsmönnum Landsbréfa hf. í útibúum Landsbanka Islands um allt land.
«
, LANDSBRÉF HF.
ÍSLENSKI FIÁKSJÓDURINN HF. //. - hn^^ihh.
Suðurlandsbraut 24, 108 Reykjavík, simi 588 9200, bréfasími 588 8598.
LÖGGILT VERÐBRÉFAFYRIRTÆKI, AÐILIAÐ VERÐBRÉFAÞINGIÍSLANDS.
Svartá
skjannahvítu
HARALDUR Jo-
hannessen háskólanemi
skrifar grein í Morgun-
blaðið 5. september síð-
astliðinn, þar sem hann
heldur áfram umfjöllun
sinni um Svart á hvítu.
Hann lítur svo á að ósk
mín um réttláta um-
fjöllun um mál fyrir-
tækisins, lausa við póli-
tískt ofstæki, setji ýms-
ar skyldur mér á herð-
ar, eins og til dæmis
að sanna að önnur fyr-
irtæki hafi fengið nið-
urfelldar skuldir eða
hluta af skuldum,
(hvort sem það heita
dráttarvextir eða eitthvað annað).
Ósk mín um að gagnrýnendur, hann
og aðrir, kanni önnur sambærileg
mál og beri saman við mál Svarts
á hvítu, er hunsuð og mér síðan
falið að afsanna róginn og vitleys-
una.
Grein Haraldar virðist vera skrif-
uð af góðum hug og í þágu réttlæt-
isins eins og síðast, og þá spyr ég
aftur: Hvernig er hægt að segja að
fá dæmi séu um að fyrirtæki hafi
fengið jafngóða meðferð og Svart
á hvítu, þegar hægt er að fletta
upp í þingskjölum mörgum fyrir-
tækjum sem hafa fengið niðurfellda
dráttarvexti og meira að segja hluta
af höfuðstól. (sbr. Fylgiskjal I og
II með þingskjali 1298 frá árinu
1989). Hvernig er hægt að ákveða
hvort þau veð sem lögð voru á bak
við skuldabréf þau sem nefnd eru
í þingskjali 1298 frá 1989, séu góð
eða vond, sambærileg eða ósam-
bærileg, án þess að rannsaka mál-
ið? Hefur engum dottið í hug að
skoða veðin á bak við þau 28 fyrir-
tæki sem fengu að greiða skatta-
skuldir með skuldabréfum og þau
10 fyrirtæki sem fengu eftirgjöf af
skuldum? Og hér er bara tekið fyr-
ir 18 mánaða tímabil og tveir íjár-
málaráðherrar.
Hvernig væri að athuga tímabilið
frá 1980 til 1987 þar sem í ljós
kemur að fjármálaráðherrar hafa
„heimilað 127 sinnum. . . greiðslu
opinberra gjalda með skuldabréfum
eða sambærilegum skuldaviður-
kenningum umfram það sem mælt
hefur verið fyrir um í sérstökum
lögum,“ eins og segir í þingskjali
177 frá árinu 1987. Þegar búið er
að kanna veðin sem liggja þarna
að baki og bera saman tilfellin, þá
er hægt að ræða málin á réttlætis-
grundvelli, en fyrr ekki. Við yfirferð
yfir málin sem listuð eru í þing-
skjali 177, virðast kjörin sem menn
fá afar ólík. í þingskjalinu eru veð-
in sem sett eru sögð vera: „banka-
ábyrgðir, fasteignaveð eða sam-
bærilegar tryggingar". Hvað þýðir
„sambærilegar" tryggingar? Er það
sjálfskuldarábyrgð forstjórans?
Hvað þýðir fasteignaveð? Er það
rófugeymsla á Hornströndum? í
svari fjármálaráðuneytis frá 1987
ér?) SILFURBÚÐIN
NjL/ Kringlunni 8-12 • Sími 568 9066
- I>ar fccröu gjöfina -
segir: „Ef staða skuld-
ara og trygging fyrir
skattkröfu er það léleg
að telja má víst að
skuldin sé að verulegu
leyti töpuð hefur ráðu-
neytinu verið talið
heimilt að ganga til
samninga við skuldara
um greiðslufyrir-
komulag skuldar og
jafnvel falla frá hluta
skuldarinnar gegn
tryggingu fyrir
greiðslu eftirstöðva."
Þetta er skrifað árið
1987. Það kom ekki
til álita, ári seinna, að
veita neina niðurfell-
ingu á dráttarvöxtum fyrir Svart á
hvítu en það hefði skipt sköpum,
þar lágu næstum Vihlutar skuldar-
upphæðarinnar.
Nú tel ég rétt að menn sem eru
að „rannsaka" tiltekið mál skoði
samhengi hlutanna, sem í þessu til-
felli eru sambærileg mál, það er að
Ég treysti því að fulltrú-
ar góðs siðferðis, eink-
um þeir sem sérhæfa
sig í málum Svarts á
hvítu, segir Björn Jón-
asson, minnist þess að
jafnvægisreglan gildir
ekki bara fyrir aðra og
stundum.
segja hvort niðurfelldir hafi verið
dráttarvextir eða hluti skulda hjá
öðrum og hvernig veðum hafi verið
háttað og lánskjörum - og ekki
síst hvernig hafi gengið að láta veð
duga upp í skuldir hjá þeim sem
ekki tókst að lifa nógu lengi til að
klára sínar skuldir.
Málið snýst alls ekki um hvort
tekið hafi verið á einum aðila „með
silkihönskum", heldur hvort tekið
hafi verið með mismunandi hætti á
aðilum. Mér sýnist að minnsta kosti
10 sinnum á árunum 87-88 hafi
fyrirtæki fengið niðurfellingu (og
þar komu tveir fjármálaráðherrar
við sögu), en Svart á hvítu komst
ekki í þann hóp.
Mig langar í lokin að minnast í
stuttu máli á þá fullyrðingu Harald-
ar, að það að tveir ófullgerðir
gagnagrunnar hafi á uppboði selst
á 100.000 krónur hljóti „að segja
töluvert um það hversu tryggt veð-
ið var.“ Að mínu mati segir það
nákvæmlega ekkert um það. Ég tel
fullkomlega út í hött að láta sér
detta í hug að koma slíkum verð-
mætum í verð með þeim hætti. Það
er að renna upp fyrir mönnum að
hugbúnaðargerð lýtur sínum eigin
lögmálum, þarfnast tíma og þolin-
mæði, en niðurstaðan getur orðið
mjög verðmæt vara. Eitt stærsta
fyrirtæki heims er hugbúnaðarfyr-
irtæki, sem er aðeins sextán ára
gamalt. Mörg íslensk fyrirtæki eru
að þróa verðmætan hugbúnað, en
það er ekki þar með sagt að uppboð
í Tollstöðvarhúsinu sé rétti vett-
vangurinn til að meta slík verðmæti.
Eg treysti því að fulltrúar rétt-
lætis og góðs siðferðis, einkum þeir
sem hyggjast sérhæfa sig í Svart
á hvítu málinu, minnist þess að jafn-
ræðisreglan gildir ekki bara fyrir
aðra og stundum. Menn verða að
ástunda sanngirni, líka í baráttu
fyrir betri heimi og jafnvel þótt
mönnum liggi á.
Höfundur erfyrrv. forstjóri
Svnrts A hvítu.
Björn
Jónasson.