Morgunblaðið - 12.09.1996, Side 33

Morgunblaðið - 12.09.1996, Side 33
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. SEPTEMBER 1996 33 12. - 28. septeniber I JANUAR 1994 hófust mikil skrif í fjölmiðlum gegn því, að fyrirhugað dómhús Hæstaréttar yrði reist á lóðinni við Lindar- götu 2 hér í borg. Mótmælin voru lituð mikilli þröngsýni, eins og svo oft er umhvers konar framkvæmdir með þjóðinni og að venju þrungin tilfinn- ingasemi, en minna viti. Kjarni þeirra skrifa var, að dómhús- ið mætti ekki rísa „á bak við Safnahúsið við Hverfisgötu". Það var aftur á móti reisn yfir því að ætla að reisa dómhúsið við Amarhól, nærri gömlu hjarta borgarinnar. Mótmælaskrif þessi jukust og urðu til þess, að undirritaður og fleiri andmæltu þeim. Sérstaklega með heilsíðuauglýsingu, sem birt- ist í Morgunblaðinu 13. febrúar 1994, með nöfnum nærri 160 „menningarvita", sem mótmæltu því „menningarslysi" að reisa hús Hæstaréttar á áðurnefndum stað. Greinar mínar urðu þijár og birtust allar hér í blaði. Sú fyrsta var rituð 13. febrúar þ.á., en birt 19. s.m. og var fyrsta vörnin fyrir staðarvalinu. Yfirskriftin var Öf- undsjúkir arkitektar? Greinin var aðallega svar við mótmælum „menningai,vitanna“ auk þriggja forneskjulegra arkitekta. Næsta grein birtist 4. mars þ.á. með fyrirsögninni: Andlit þjóðar- innar. í henni var bent á, að það þyrfti þjálfuð augu til þess að geta áttað sig á byggingum og skipulagi og að þyngst væri á metunum, að rúmlega 150 arki- tektar mæltu bæði með frágangi og staðsetningu byggingarinnar. Jafnframt var mótmælt þeirri fá- sinnu, sem voru ein helstu rökin gegn húsinu, að „rödd fólksins hefði meira vit á arkitektúr en arkitektar“. Lokaorð hennar voru um heimsóknir mínar í dómhús hæstaréttar í a.m.k. 20 löndum og væri Hæstaréttardómhús okkai hvað tilkomumest bæði vegna út lits og staðsetningar. Og vitnai var í orð forsta hæstaréttai Venezuela er ég dáðist að dómhús- inu mikla í Caracas, „að slík dóm■ hús væru andlit hverrar þjóðad'. Þriðja greinin: Byggingu Hæstaréttarhúss fagnað, birtist 7. apríl þ.á. til þess m.a. að fagna endanlegri staðsetningu hússins. Auk þess var svarað mótmælum starfsmanna í Safnhúsinu og fleiri, sem töldu að sér vegið með bygg- ingu hússins. Þá var ítrekað, að þetta fyrirbæri „rödd fólksins, sé oftast nær hópur fólks, sem hefur ánægju af því að láta nafn sitt birtast á undirskriftarplaggi í fjöl- miðlum án nokkurrar ábyrgðaf'. Hús Hæstaréttar var sem kunn- ugt er vígt sl. fimmtudag. Vígslan var hátíðleg með viðeigandi ræðu- höldum og veitingum við mikla hrifningu allra viðstaddra yfir því afreki, sem unnið hafði verið með smíð þess og gerð. Er full ástæða til þess að óska þjóðinni til ham- ingju með þann merka áfanga í menn- ingarsögu hennar. Mér þótti persónu- lega sérstaklega ánægjulegt vegna fyrri afskipta minna að taka þátt í þessum Gunnlaugur fögnuði. Þórðarson Það stóð svo á, að forseta Hæstaréttar, Haraldi Henryssyni, gafst tæki- færi til að láta mig vita, að honum hefði þótt miður, að minnst skyldi Hús Hæstaréttar var sem kunnugt er vígt sl. fimmtudag, segir Gunnlaugur Þórðar- son. Vígslan var hátíð- leg með viðeigandi ræðuhöldum hafa verið á undirskrift forseta íslands að drengskaparheitinu í blaðagrein eftir mig. Varð ég að taka þeirri aðfinnslu. Einnig, að ritari réttarins, frú Erla Jónsdótt- ir, gat bent mér á, að ég hefði ekki haft rétt eftir henni, er ég hafði sagt, að hún hefði upplýst mig um, að skriffæri forsetans hefði verið venjulegur kúlupenni. Hið rétta væri, að hún hefði sagt: „ekki venjulegur kúlupenni". Mér þykir skylt að skýra frá þessum ábendingum. Því rétt skal vera rétt. Höfundur er hæstaréttarlögmaður. Á köldum dögum í Húsasmiðjunni Skútuvogi eru allir Eletrolux frystiskápar seldir með 20% afslætti ef staðgreitt er og 15% afslætti ef greitt er með afborgunum ▼ Verðdœmi 1251frystiskápur verð áður: 42.549 kr. verð á köldum dögum: 33.990 tr. 5 heppnir kaupendur verða dregnir út 30. september 1996 og fær hver þcirra lambsskrokk að gjöf frá Húsasmiðjunni. myommm HUSASMIÐIAN Skútuvogi 16 ■ Símar 525 3000 og 800 6688 Taktu ábyrgð á eigin heilsu!! Lestu bókina Candida sveppasýking eftir Hallgrím Magnússon og Guörúnu G. Bergmann leiöbeinanda. í bókinni er listi yfir öll þau sjúkdómseinkenni sem Candida sveppasýking veldur, ásamt upplýsingum um árangursríkar aöferöir til aö takast á viö hana, leiöbeiningar um matraræöi og stuðningsleiðir. Bókin er uppseld LEIÐARLJ#S ehf. hjá Útgefanda - Fyrirlestrar - Ráðgjöf — Námskeið - Útgáfa Fáanleg I helstu Sími 435 6800 • Fax 435 6801 • bókaverslunum Brekkubíc • Hellnum • 355 SnsefellsbíE. „ Okkar markmíð er að hjálpa þér að ná þínu! AÐSENDAR GREINAR Vígsla hússins Hæstaréttar og kúlupenninn t I t i í. HEFST EFTIR 5 DAGA HEIMSVIÐBURÐUR íLAUGARDALSHÖLL Alþjóðlega sjávarútvegssýningin 18.-21. sept.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.