Morgunblaðið - 12.09.1996, Qupperneq 35
MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
GUÐMUNDA M.
GUÐMUNDSDÓTTIR
+ Guðmunda Mar-
grét Guðmunds-
dóttir fæddist í
Reykjavík 19. mars
1908, en fluttist
barnung með for-
eldrum sínum til
V estmannaeyja.
Hún lést á Sjúkra-
húsi Reykjavíkur i
Fossvogi 4. septem-
ber síðastliðinn.
Foreldrar hennar
voru Guðmundur
Magnússon, húsa-
smíðameistari í
Vestmannaeyjum, f.
5.9. 1877, d. 21.9. 1959, og
Helga Jónsdóttir kona hans, f.
19.1.1874, d. 19.10.1947. Systk-
ini Guðmundu voru Karl, f. 4.5.
1903, d. 10.5. 1993, Jón, f. 15.7.
1905, d. 4.3. 1972, og Dagmar,
f. 23.6. 1914, sem búsett er í
Vestmannaeyjum.
Hinn 23. september 1932
giftist Guðmunda Þórarni Stef-
ánssyni kennara á
Laugarvatni, f. 17.
maí 1904, og áttu
þau þar heimili í
40 ár, en fluttu þá
til Reykjavíkur og
hafa síðustu níu
árin búið á Dal-
braut 20. Börn
þeirra eru: 1) Erna
Helga, f. 8.7. 1933,
gift Daníel Emils-
syni og eiga þau
þrjú börn, Haf-
stein, Þór og
Helgu. 2) Stefán
Guðmundur, f.
9.12. 1934, kvæntur Láru Krist-
ínu Samúelsdóttur og eru börn
þeirra fjögur, Þórarinn, Ragn-
hildur, Margrét og Lára.
Barnabarnaböm þeirra Guð-
mundu og Þórarins em nú
þrettán.
Útför Guðmundu Margrétar
fer fram frá Áskirkju í dag og
hefst athöfnin klukkan 15.
Guðmunda Margrét ólst upp í
Vestmannaeyjum, seinni uppvaxt-
arárin til heimilis á Goðalandi þar
sem faðir hennar starfrækti einnig
trésmíðaverkstæði. Hún var góðum
gáfum gædd og hlaut þá bóklegu
menntun sem þar var hægt að fá.
Ekki var um fjölbreytilegt starfsval
að ræða fyrir ungar stúlkur á þess-
um tíma en algengt var að þær
sæju sér farborða með því að ger-
ast hjálparstúlkur á efnimeiri heim-
ilum sem hún og gerði. En vorið sem
hún varð 24 ára urðu þáttaskil í
hennar lífí.
Á Laugarvatni lágu leiðir þeirra
saman, ungu stúlkunnar frá Vest-
mannaeyjum, sem kom þangað á
hússtjómarnámskeið, og unga
smíðakennarans austan af landi.
Þau voru hvort öðru ætluð, vísbend-
ing forsjónarinnar var skírnardagur
hennar 17. maí, sem er afmælisdag-
ur hans. Munda og Þórarinn stigu
gæfuspor er þau bundust tryggða-
böndum 23. september 1932 og ein-
huga og samstiga hafa þau leiðst
um lífsins veg, svo samofin í 64 ár
að ekki verður annars þeirra minnst
öðruvísi en hins sé getið.
Það voru þröng húsakynni og
þægindalítil, sem þau höfðu til um-
ráða 11 fýrstu hjúskaparárin, en
hamingjan heimilisföst og þau eign-
uðust sín „óskabörn", stúlku og
dreng. Ánægjan varð líka ómæld
þegar fjölskyldan flutti í nýtt og
betra húsnæði, kennarabústaðinn
Hlíð, en þaðan munu ótal margir,
skyldir og óskyldir, minnast þeirra
hjóna með hlýjum hug. Munda og
Þórarinn hafa alls staðar og alla tíð
verið vinsæl og vinmörg og gestrisni
þeirra viðbrugðið. Húsbóndinn hitti
ekki svo mann utan dyra að ekki
væri boðið inn í kaffí enda vissi hann
að konan átti alltaf jóiaköku eða
kleinur í boxi og að enginn bakaði
þær betur. Hótel Hlíð hefði mátt
kalla heimilið á sumrin þegar oft var
sofíð í hverju homi. Þurfti þá að
sýna mikla útsjónarsemi, ekki síst
meðan engin búð var á hominu og
panta þurfti allar nauðsynjar með
mjólkurbflnum frá Selfossi.
Síðustu 15 árin, sem þau bjuggu
á Laugarvatni og bamabörnin sjö
sáu dagsins ljós hvert af öðru, kom
stórfjölskyldan jafnan saman þar á
jólum og mæddi þá mikii undirbún-
ingsvinna á ömmu á Laugarvatni
fyrir margra daga stanslaus hátíða-
höld. Barnabörnin voru líka oft lang-
dvölum í sveitinni á sumrin hjá afa
og ömmu. Hún hafði lengi lítinn
garð niðri við vatn þar sem hún
ræktaði eigið grænmeti, sem bragð-
aðist vel með nýjum silungi úr vatn-
inu, en henni var umhugað um að
fjölskyldan borðaði hollan og góðan
mat.
Þegar Þórarinn tók að sér að sjá
um símstöð staðarins og seinna líka
bóksölu, sá Munda að mestu um
reikninga og bókhald fyrir hvort
tveggja, svo oft var I æði mörg
horn að líta. Kom sér þá vel hvað
hún hafði einstaklega yfirvegaða og
stillta skapgerð. Hún heyrðist aldrei
hækka róminn, hvorki til að skamm-
ast né taka orðið af öðrum, og gerði
engar kröfur til annarra en sjálfrar
sín, vann verk sín hljóð og var öðr-
um góð. Hún hafði afar geðþekkt
yfirbragð, en það var líkt og kyrrlát-
um tignum ljóma stafaði frá henni
og hún virtist ekkert verða gömul
þrátt fyrir háan aldur, í henni blund-
aði alltaf glettin ung stúlka. Hún
hafði gaman af allri handavinnu og
vann allt slíkt af kostgæfni enda
hafði hún ríkt fegurðarskyn og bar
heimili þeirra hjóna, bæði austan-
fjalls og síðan hér í Reykjavík, með
sér hlýjan og menningarlegan
þokka.
Saga Guðmundu Margrétar er
farsæl saga um konu sem aldrei
tranaði sér fram en ávann sér ást
og virðingu allra sem henni kynnt-
ust. Fyrir réttum mánuði fóru
Munda og Þórarinn með okkur hjón-
um hringferð um landið og heim-
sóttum við þá m.a. æskuheimili Þór-
arins á Mýrum í Skriðdal. Saman
nutu þau ferðalagsins til fullnustu
og fjölbreyttrar náttúrufegurðarinn-
ar. Sterk mynd kemur nú fram í
hugann af þeim þar sem þau leidd-
ust hönd í hönd líkt og nýtrúlofað
par á sólskinsdegi í Skaftafelli.
Ég finn til með tengdaföður mín-
um, sem hefur misst elskaðan lífs-
förunaut, og kveð tengdamóður
mína með þakklæti fyrir 40 ára ein-
staklega góð kynni, sem aldrei bar
skugga á. Við söknum hennar öll.
Blessuð sé minning hennar.
Lára Kristín Samúelsdóttir.
Elsku besta amma.
Að koma til ykkar á Laugarvatn
var alltaf ævintýri fyrir okkur
barnabörnin, jafnt að sumri sem á
jólum. í huga okkar tengjast jólin
ósjálfrátt Laugarvatni og ekki fjarri
að við sem smábörn héldum að jólin
væru bara þar. Á leiðinni austur í
svarta myrkri var spennandi að sjá
ljósin á Laugarvatni loks birtast í
íjarska eins og glitrandi perlufesti,
við kölluðum þau ömmuperlur.
Elsku amma, þú varst sjálf algjör
perla og ekta amma, alltaf til stað-
ar, einhvem veginn eins og eilíf.
Hjá þér ríkti friður og ró og við
gleymdum amstri og önn dagsins.
Þú varst hlédræg en skemmtileg og
lumaðir á góðri kímni.
Hvenær sem við komum í heim-
sókn var tínt til hvers kyns góð-
gæti og ekki undan því komist að
þiggja og ekki þurfti að bjóða okkur
kleinurnar þínar tvisvar því þær
vom þær bestu og gerðu okkur
vandlát á aðrar kleinur. Þú vissir
alltaf allt um okkur, varst svolítið
skemmtilega forvitin, en við fundum
að þú vildir fylgjast vel með okkar
högum, og vexti og viðgangi okkar
barna, barnabarnabamanna þinna.
Elsku amma, þú varst „engla-
kona“ með húsið fullt af englum og
nú ert þú á meðal þeirra. Við biðjum
í huganum með þér bænina okkar:
Vertu yfir og allt um kring
með eilífri blessun þinni.
Sitji guðs englar saman í hring
sænginni yfir minni.
(Sig. Jónsson frá Presthólum)
Elsku afí, það er erfitt að hugsa
sér þig án ömmu. Okkur fannst þið
óaðskiljanleg og alltaf reiðubúin að
gera allt fyrir okkur.
Elsku amma, við kveðjum þig
með söknuði í hjarta.
Barnabörn.
FIMMTUDAGUR 12. SEPTEMBER 1996 35
HRAÐLESTRARNAMSKEIÐ
v/'' Viltu margfalda lestrarhraðann og afköst í námi?
V'' Viltu auka afköst í starfí um alla framtíð?
^ Viltu lesa góðar bækur með meiri ánægju?
Ef svar þitt er jákvætt skaltu skrá þig strax á næsta
hraðlestrarnámskeið.
Skráning er í síma 564-2100
HRAÐLESrrRARSKÖLIlNlV
Komdu til okkar efþig
iangar í failegan húsbúnað.
KJötpottur
kr. 1.240,- 3ja hluta baðmottusett
frá kr. 2.700,-
(margar gerðir)
Falleg veggklukka
kr. 1.920,-
'i-|2C .
Salatskál frá '
kr. 330,- (3 ntir) Smákökumót 6stk
kr.1.370,- (margar gerðir)
Nlðusuðukrukkur
frákr.170,-
Dúkur 180cm kringlóttur
kr. 1.540 ,- (margar gerðir)
Pottaleppar
kr. 370,- stk.
Blldshöföa 20 -112 Reykjavlk - Sfmi 587 1410
Skál á fæti
v b:30cm
kr. 1.890,-
(margar gerðir)
5
Helgardvöl í heimsborg
Verð frá
39.100 kr
á mann í tvíbýli í 4 daga*.
'lnnifaUð: Flug, gisting mcð morgunverði ogflngvallarskattar.
fyrir líkama og sál
Falleg borg sem kemur á óvart -
og verðlagið er mun hagstæðara
en í Bandaríkjunum!
Halifax
Haföu samband viö söluskrifstofur okkar, umboðsmenn, feröa-
skrifstofumar eöa söludeild Flugleiöa í síma 50 50ÍOO
(svarað mánud. - föstud. kl. 8-1.9 og á laugard. kl. 8-16).
FLUGLEIDIR
Traustur íslenskur ferðafélagi