Morgunblaðið - 12.09.1996, Blaðsíða 43

Morgunblaðið - 12.09.1996, Blaðsíða 43
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. SEPTEMBER 1996 43 fl J I fl fl fl 1 Cj 4 4 4 i i i < 4 : < < < < < i < FRÉTTIR Ljósmynd/Sigríður Dúna Kristmunsdóttir TRUMBU SL AGARAR á hátíð heilags Jóhannesar, Grænhöfðaeyjum. Ráðstefna um mannfræði- rannsóknir Islendinga FÉLAGSVÍSINDADEILD Háskóla Islands á 20 ára afmæli á þessu skólaári. Jafnframt er nú aldarfjórð- ungur liðinn síðan kennsla í mann- fræði hófst við skólann. Af þessu tilefni verður haldin ráðstefna um íslenska mannfræði dagana 13.-14. september. Hér er ekki um að ræða rannsóknir mannfræðinga á íslensku samfélagi eingöngu heldur verða á ráðstefnunni kynntar fjölbreytilegar rannsóknir íslenskra mannfræðinga víða um heim. Meðal annars verður fjallað um rannsóknir í Thailandi, á Nýju Gíneu, á Spáni, á Grænhöfðaeyjum, auk rannsókna hér á íslandi. Með þessari ráðstefnu er ætlunin að sýna þá breidd sem er í rannsóknum ís- lenskra mannfræðinga og jafnframt að gera grein fyrir þeim margbreyti- legu viðfangsefnum sem mannfræð- ingar fást við. Á ráðstefnunni verða 17 fyrirles- arar sem fjalla um ólík viðfangsefni. Sem dæmi má nefna erindi um hval- veiðideiiur Islendinga, goðsagnaheim íslenskra heimildamynda, vináttu og efnahag á Grænhöfðaeyjum, mann- fræði íslendingasagna, sálnahug- myndir og ímynd Islands í augum ferðamanna. Ráðstefnan er haldin í stofu 101 í Odda og hefst hún kl. 15.15 föstu- daginn 13. september og kl. 10 á laugardeginum. Þátttaka í ráðstefn- unni er ókeypis og er allt áhugafólk um mannfræði velkomið. Á heima- síðu ráðstefnunnar á veraldarvefnum má einnig finna frekari upplýsingar um fyrirlestra og dagskrá, slóðin er: http://www.rhi.hi.is/'sbh/isl.html Saman um fjöl- skylduráðgjöf HAFIN er starfsemi Samvistar - fjöl- skylduráðgjafar Mosfellsbæjar og Reykjavíkurborgar. Fjölskylduráð- gjöfin Samvist er samvinnuverkefni sveitarfélaganna beggja og jafnframt tilraunaverkefni til tveggja ára. Við ráðgjöfina starfa 5 fjölskylduráðgjaf- ar auk fulltrúa. Meðferðaraðilamir hafa allir menntun í meðferðarfræð- um og reynslu í fjölskylduvinnu. Meginmarkmið fjölskylduráðgjaf- arinnar er stuðningur, ráðgjöf og meðferð fyrir fjölskyldur í vanda. Fjöl- skyldur eða foreldri með börn á aldrin- um 0-18 ára geta leitað til Samvist- ar með hvaða viðfangsefni sem þeim á einhvern hátt finnst íþyngja sér. Eftirtaldir starfsmenn hafa verið ráðnir til Samvistar: Rannveig Guð- munsdóttir félagsráðgjafi, forstöðu- maður, Brynjólfur G. Brynjólfsson sálfræðingur, Þuríður Hjálmtýsdóttir sálfræðingur, Ari Bergsteinsson sál- fræðingur, Björg Karlsdóttir félags- ráðgjafi og Halia María Árnadóttir fulltrúi. Samvist hefur aðsetur á Laugavegi 103, 2. hæð, sími 562-1266, fax 562-1270. Fyrir fjölskyldur búsettar í Mosfellsbæ fara viðtöl fram á félags- málastofnun bæjarfélagsins. Greiðsla fyrir þjónustu er sú sama og á heilsu- gæslustöðvum, þ.e. 700 kr. fyrir við- talið. Fyrir lífeyrisþega og atvinnu- lausa gildir lægra gjald eða 300 kr. Rætt um hval- veiðar o g geisla- virkan úrgang HALDIN verður ráðstefna þing- manna, dagana 13. og 14. septem- ber, um hvalveiðar og geislavirkan úrgang á Norðurhöfum á vegum umhverfisnefndar Alþingis og ís- landsdeildar GLOBE Europe Net- work. Verður ráðstefnan á Hótel Sögu. Meðal þátttakenda verða þingmenn m.a. frá Noregi, íslandi, írlandi, Fær- eyjum, Grænlandi, Bretlandi og Evr- ópuþinginu auk þess sem erlendum fyrirlesurum hefur verið boðið hingað til að halda þar erindi. Þá hefur ýms- um embættismönnum verið boðið að sitja ráðstefnuna. Mun ráðstefnan fara fram á ensku. Djass í Hafnarborg HAFNIRSKIR skátar taka upp þráð- inn, fimmtudaginn 12. september, sem frá var horfíð í vor en þá stóðu þeir fyrir djasskvöldum í Hafnarborg. Þeir sem koma fram á þessum þriðja áfanga tónleikaraðarinnar Djass fyrir alla er Tríó Björns Thor- oddsen ásamt sérstökum gesti, Agli Ólafssyni söngvara. Tónleikarnir hefjast kl. 21 og kynn- ir er Jónatan Garðarsson. Aðgangs- eyrir er 700 kr. og allir velkomnir. * Herra Is- land valinn á föstu- dagskvöld HERRA ísland verður valinn á Hótel íslandi á föstudagskvöld. Keppendur eru 20 talsins og koma frá öllum landshlutum að Norðurlandi undanskildu. Þetta er fjórða skiptið sem keppnin um titilinn herra ísland er haldin, en fyrsti herra ísland var Helgi V. Olafsson sem hlaut titilinn árið 1957 í Tívolíinu í Vatnsmýrinni. Fegurðarsamkeppni íslands, sem er í eigu Ólafs Laufdal, held- ur keppnina að þessu sinni. Sviðmynd keppninnar er göm- ul blikksmiðja sem Þór Vigfússon þjá Sviðsmyndum hefur hannað. Keppendur koma fram í gallabux- um og jakkafötum auk þess sem þeir sýna sportlegan fatnað. Undanfarið hefur Alma Árna- dóttir, stílisti, kennt þeim sviðs- framkomu og göngu. Eins hafa keppendur æft líkamsrækt í Morgunblaðið/Jón Svavarsson ÞÁTTTAKENDUR í keppninni Herra ísland. World Class og farið í ljós hjá Sólbaðsstofu Grafarvogs. Hár- snyrtistofan Hár Class sér um hársnyrtingu keppenda og snyrtistofan Face farðar þá. Herra Island verður fulltrúi Islands í keppninni Herra Evrópa í október. Að sögn Jóhannesar Bachmann, sem situr í fram- kvæmdastjórn keppninnar, er til mikils að vinna, því herra ísland fær sérsmíðaðan sprota frá Jens gullsmið auk gullhrings, árskort frá World Class og Sólbaðsstofu Grafarvogs, ókeypis klippingu hjá Hár Class í eitt ár auk þess sem allir keppendur verða leystir út með gjöfum. í dómnefndinni silja Ásdís Höskuldsdóttir frá Stöð 3, Björn Leifsson, eigandi World Class, Hrafn Friðbjörnsson, eigandi Stúdiós Ágústu og Hrafns, Sig- ríður Sigurðardóttir, markaðs- stjóri DV, Silja Allansdóttir, framkvæmdastjóri Fegurðar- samkeppni Vesturlands, Unnur Steinsson, fyrrum ungfrú Island og Þórarinn J. Magnússon, rit- stjóri Mannlífs og Vikunnar. verðið í bænum! Lokað Skrifstofa mín verður lokuð í dag, fimmtudaginn 12. september, vegna jarðarfarar BERGRÓSAR JÓHANNESDÓTTUR. Jóhannes Ásgeirsson hdl., Suðurlandsbraut 10, Reykjavík. Whirlpool gæða frystikistur AFG015 130L Nettó H:88 B: 60 D: 66 Verö: 33.900 kr AFG027 249L Nettó H:88 B: 95 D:66 Verð: 38.900 kr AFG033 307L Nettó H:88 B:112 D: 66 Verö: 42.900 kr AFG041 384L Nettó H:88 B: 134,5 D: 66 Whirlpool frystikistur eru meö: læsingu á loki, Ijósi í loki, advörunarbúnaði. Whirlpool gæða frystiskápar VerÖ: 47.900 kr AFB410 130L Nettó H:85 B: 55 D: 60 Verö: 42.000 kr AFG311 203L Nettó H:140 B: 59,2 D: 60 Verð: 59.900 kr AFG312 288L Nettó H:160 B: 59,2 D: 60 Verö: 64.900 kr AFG313 283L Nettó H:180 B: 59,2 D: 60 Whirlpool frystiskápar eru með læsingu á hurðum og aðvörunarbúnaði. Verö: 68.900 kr Heimilistæki hf SÆTÚNI S SlMI 569 1500 Umboösmenn um land allt. f t
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.