Morgunblaðið - 12.09.1996, Qupperneq 47
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 12. SEPTEMBER 1996 47
I DAG
Arnað heilla
Q/VÁRA afmæli. í dag,
i/V/fimmtudaginn 12.
september, er níræð Sigríð-
ur Halldórsdóttir, frá
Orrahóli, Dalasýslu, nú til
heimilis á EUiheimilinu
Grund. Eiginmaður hennar
var Hans Matthíasson, en
hann lést 1987. Sigríður
tekur á móti gestum á
heimili dóttur sinnar og
tengdasonar í Hverafold
62, Reykjavík, milli kl.
15-18 í dag, afmælisdag-
SKÁK
llmsjón Margeir
l’ftursson
HVÍTUR leikur og vinnur
STAÐAN kom upp í skák-
keppni „Action Bosnia" í
Ósló um síðustu helgi.
Mótið var haldið til styrkt-
ar átaki Norsk Folkehjelp
til að fjarlægja jarð-
sprengjur í Bosníu, sem
eru arfur frá borgarastyij-
öldinni þar. Predrag Ni-
kolic (2.670), Bosníu, var
með hvítt og átti leik,
en Simen Agdestein
(2.600) hafði svart.
41. Hxa7! - Hxg6 42.
Db7! — Rc6? (Skárra var
42. — Hh6 þótt endataflið
með peði minna sé tapað)
43. Rxg6! - Rxa7 44.
Rxe7 - Kf8 45. Rxf5 -
De5 46. Rh4! og svartur
gafst upp.
Tefldar voru stuttar
skákir og lauk keppninni
með jafntefli, 4—4. Bos-
níumönnunum tveimur
gekk mjög misjafnlega.
Nikolic fékk þijá og hálfan
vinning, en félagi hans,
Ivan Sokolov, aðeins hálf-
an. Á hinn bóginn fékk
Simen Agdestein tvo og
hálfan vinning og Einar
Gausdal einn og hálfan.
Keppnin vakti athygli í
Noregi og hægt var að
fylgjast með henni beint á
Internetinu.
70
ÁRA afmæli. í dag,
fimmtudaginn 12.
september, er sjötug Svein-
björg Pétursdóttir,
Hrafnagilsstræti 9, Akur-
eyri. Þeir sem vilja gleðja
hana á afmælisdaginn eru
velkomnir að Þúfubarði 12,
Hafnarfirði milli kl. 16-22,
þar sem hún dvelur hjá
systur sinni, á afmælisdag-
inn.
50
ÁRA afmæli. í dag,
fimmtudaginn 12.
september, er fimmtug Sól-
veig Guðrún Ólafsdóttir,
leikskólakennari, Vestur-
bergi 115, Reykjavík. Hún
og eiginmaður hennar Har-
aldur Tyrfingsson, flug-
virki, taka á móti vinum
og vandamönnum, laugar-
daginn 14. september, eftir
kl. 20_ í sal Flugvirkjafé-
lags Islands, Borgartúni
22.
september, er fimmtugur
Kolbeinn Finnsson, fram-
kvæmdastjóri, Urriða-
kvísl 22, Reykjavík. Eigin-
kona hans er Bryndís Jó-
hannesdóttir, hár-
greiðslukona. Þau hjónin
taka á móti gestum á heim-
ili sínu í dag, afmæiisdag-
inn, kl. 17-20.
Ljósmynd Binni
BRÚÐKAUP. Gefin voru
saman 20. júlí í Lágafells-
kirkju af sr. Jóni Þorsteins-
syni Hrönn Harðardóttir
og Kristinn Grétarsson.
Heimili þeirra er að Tungu-
bakka 6, Reykjavík.
COSPER
JÆJA, vinur. Hvað gerðirðu nú þér til dundurs
meðan amma hvildi sig?
Farsi
4-6
C HXM Faitui C*rtoona/DtUnbutod by Uolvrul Prw« Syndkats
jJAIi&LASS/c6öi.raAa.T
O, UÓ,- /hnuxr þá.tbar af„AUt er þegar
þrtnnter/"
STJÖRNUSPÁ
cftir Franccs Drake
MEYJA
Afmælisbarn dagsins:
Þjóðrækni er þér í blóð
borin ogþú annt fjöl-
skyldu og heimiii.
Hrútur
(21. mars - 19. apríl) W*
Það er betra að ljúka þeim
verkefnum, sem fyrir liggja,
áður en þú snýrð þér að öðru.
í kvöld getur þú slakað á í
vinahópi.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Einhver óvissa ríkir í vinn-
unni og þú kemur ekki miklu
í verk. En að vinnudegi lokn-
um nýtur þú frístundanna
með ástvini.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní) 5»
Þú kemur vel fyrir þig orði
og ert með áform á pijónun-
um sem geta leitt til ferða-
lags vegna vinnunnar eða í
einkaerindum.
Krabbi
(21. júní — 22. júlí)
Þér berast góðar fréttir af
fjármálum árdegis. Erilsamt
er á vinnustað í dag og þú
gætir komið meiru í verk
heima.
Ljón
(23. júlí — 22. ágúst)
Dreifðu ekki kröftunum um
of í dag. Ef þú einbeitir þér
að verkefnunum í réttri for-
gangsröð verður afrakstur-
inn mikill.
Meyja
(23. ágúst - 22. september)
Þótt þér opnist nýjar leiðir í
viðskiptum ættir þú ekki að
taka neina óþarfa áhættu.
Bjóddu ástvini út að vinnu-
degi loknum.
Vog
(23. sept. - 22. október)
Góð samvinna leiðir til vel-
gengni í vinnunni í dag. Af-
koman hefur farið batnandi
undanfarið og ástvinir eru
að íhuga ferðalag.______
Sporódreki
(23. okt. - 21. nóvember)
Einhveijar breytingar eru í
vændum í vinnunni. Ef þú
lítur í kringum þig sérðu að
margt er ógert heima. Taktu
til hendi.
Bogmaóur
(22. nóv. - 21. desember) m
Láttu ekki blekkjast af freist-
andi tilboði í dag sem lofar
meiru en unnt er að standa
við. Dugnaður færir þér
frama í vinnunni.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar) &
Misskilningur veldur þér töf-
um í vinnunni árdegis. En
þú nærð þér á strik þegar á
daginn líður. Sinntu fjöl-
skyldunni í kvöld.
Vatnsberi
(20.janúar- 18.febrúar) ðk
Þú ættir frekar að spara fjár-
muni þína en að eyða þeim
í óþarfa. Taktu enga áhættu
í peningamálum og varastu
ágengan sölumann.
Fiskar
(19. febrúar-20. mars) ^hk
Dugnaður og einbeitni færa
þér velgengni í vinnunni og
þú færð tækifæri til að bæta
afkomuna. Ættingi þarfnast
umhyggju._______________
Stjörnuspána d að lesa sem
dægradvöl. Spár af þessu tagi
byggjast ekki á traustum grunni
vísindalegra staðreynda.
•mm
GAMLA STUÐIÐ
endurtekið ú laugardagskvöld
Það verður mikið fjör, laugardaginn 14. september þegar
stuðið í Höfðaborg verður rifjað upp. íbúar sem bjuggu
við Skúlagötu, Samtún, Miðtún, Hátún, Höfðatún og
Defensori árunum 1960-1980 eru sérstaklega velkomnir.
Kvöldið hefst með borðhaldi þar sem snæddur er
veislumatur í anda vinsælustu réttanna frá 1950-60.
Höfðaborgarar skemmta:
Soffía Bjarnleifidóttir og Einar Gunnarsson
flytja sígild dægurlög
Gerður Benediktsdóttir
með lögin sem slógu í gegn í “den”
Davið Guðbjartsson leikur á harmónikku valsa o.fl.
Bertba Bieringfulltrúi Skúlagötunnar fer á kostum
André Bacbmann flytur dægurlagaperlur
áranna milli, 1950 og ’60
Sami rokk ogjóhannes Bacbmann
sýna danstilþrif ásamt Diddu og Rósu
Húlahopp og harkkeppni
Hljómsveitin Saga Klass leikur fyrir dansi
ásamt söngvurunum
Reyni Guðmundssyni og Sigrúnu Evu Ármannsdóttur.
Veislustjóri er hinn síkáti rokkari og laganna vörður
Sœmundur Pálsson
Verð aðgöngumiða 2.700 kr.
matur, skemmtun og dansleikur innifalin.
Verð á dansieik 1.000 kr.
Borðapantanir hjá söludeild Hótel Sögu, sími 552 9900.
SIMIW
-þin saga!
YDDA F69.80 / SÍA