Morgunblaðið - 06.10.1996, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 6. OKTÓBER 1996 B 7
VOICI LKS l'REMIEKS DOCUMENTS ARRIVES A l'ARIS DE LA CATASTHOMIK OU • I'OURQUOl l'AS ? 1
KRISE PAR I.A TKMI'ETL SUR I.F.S RECIFS DE l.A COTE O'ISLANOE. A CAUCHL : LA MER A REJflTE LES
CADAVRES QUI SONT DEPOSES SUR U'. RIVACE, PRES DE 1.A PKRME - STRAUMFJORD .. AU PREMIE8
ELW . Lll COIll'S DU DOCTEUR CHARCOT. A BROlTi: LE SÚRVIVANT CONIDUC. AUX CÖTES DES FER-
MIF.RES DE - STRAUMFJORD a QUI I.ÖNT RECUEILLI F.T SOICNE.
IHIWIOS rXrœíZSWÚltíetátlWtXXmkn: MÍmeÍAa« ASCÍiÍÍAWæ'l'Aa l m MILVJ V; RiOVirASS AUS/-I1SAAI: - IWVA corcwiAci-T r
IKAASMIRIS 00 CmE VIUE A - fA»«-SC« - 11« fJAIHOORAWfœ'
ÞANNIG var frásögnin í frönsku dagblaði strax eftir sjóslysið
1936 og segir að myndirnar hafi verið fengnar með Dronning
Alexandrine til Kaupmannahafnar og siðan með Belinogramm
myndsendi til Parísar. A þessum myndum, sem Finnbogi Rútur
Valdimarsson tók, eru líkin í fjörunni og Gonidec stýrimaður
með bóndakonunum í Straumsfirði sem hjúkruðu honum.
ÞESSAR síðustu
myndir af dr. Carcot
sendi hann frá
Reykjavík til aðstoð-
arkonu sinnar síð-
ustu 10 árin, Marthe
Emmanuel, „til að
hlæja að“. Þær eru
úr safni hennar og
birtar í nýlegri
franskri bók um
hann. Ekki vissi hún
hver tók þær. En það
var Kaldal og var ein
þeirra stækkuð á
nýlegri sýningu hans
í Nýlistasafninu.
NÝ SENDING!
EPISODE
• KÁPUR
• KJOLflR • DRAGTIR
• PILS
af fjórum doríum skipsins, en hún
sökk á skammri stundu. Hann sá
Jaouen háseta, sem synti við hliðina
á honum, hverfa í hafið. Þá náði
hann í viðarbút og fleytti sér um
stund, en nokkru síðar bar hann
þangað sem landgöngustigi flaut og
náði þar handfestu. Þar var líka vél-
stjórinn Péron. Héngu þeir lengi á
honum saman í hafrótinu og uppörv-
uðu hvor annan, þar til félagi hans
uppgafst, sleppti takinu og hvarf í
hafið. Er frá leið missti stýrimaður-
inn sjálfur meðvitund og vissi ekki
hvað gerðist fyrr en tveir menn reistu
hann á fætur í fjörunni.
Fyrstu myndirnar
Meðfylgjandi mynd af gamla land-
göngustiganum af Pourquoi pas? í
fjörunni við Straumsfjörð birtist m.a.
í veglegri bók um Charcot, „heim-
skauta sjentilmanninn" eftir Benoit
Heimermann og Garard Janichon frá
1991. Þar er myndin sögð fengin í
sjóminjasafninu Musée de la Marine,
en ljósmyndara ekki getið. Aðeins
sagt að hún sé af stiganum sem
Gonidec, eini skipsmaðurinn sem eft-
ir lifði, hékk á. í þessu sama safni
eru fleiri myndir, án þess að vitað
sé um ljósmyndara. í fyrrnefndri
bók, sem kom út 1991, er á mynd
úrklippa í frönsku blaði sem birtist
strax eftir slysið með fyrirsögninni:
Fyrstu myndirnar frá harmleik Pour-
quoi pas? Þar eru tvær myndir, önn-
ur hin fræga mynd af líkunum í fjör-
unni, þar sem dr. Charcot er í for-
grunni og hin sýnir Gonidec milli
kvennanna sem hjúkruðu honum á
bóndabænum. Þar segir: „Þetta eru
fyrstu myndir sem borist hafa til
Parísar af sjóslysi Pourquoi pa_s? sem
brotnaði í óveðri á skeri við ísland.
Til vinstri er mynd af líkunum í fjör-
unni þar sem þau rak við bæinn
Straumsfjörð. Fremst liggur dr.
Charcot. Myndin til hægri sýnir skip-
brotsmanninn Gonidec milli bænda-
kvennanna í Straumsfirði, sem björg-
uðu honum og hjúkruðu." Svo segir:
„Myndimar voru sendar af fréttarit-
ara okkar í Reykjavík með skipinu
Drottning Alexandrine til Kaup-
mannahafnar og þaðan sendar áfram
hingað til blaðsins Paris Soir með
Belinogrammi. En sú nýja tækni var
kennd við Edouard Belin sem fann
upp tæki og sendi með fyrsta mynd-
senditækinu 1907, og á þriðja og
fjórða áratugnum var þessi aðferð
notuð af evrópsku pressunni þegar
mikið lá við.
Nú lá mikið við að fá myndir þeg-
ar þessi heimsfrægi heimskautafari,
á borð við Amundsen og Scott, fórst
við ísland. En hvergi er getið ljós-
myndarans. Það er saga að segja frá
því. Árni Óla hafði ekki myndavél
eða filmur meðferðis. En það hafði
annar blaðamaður, Finnbogi Rútur
Valdimarsson, ritstjóri Alþýðublaðs-
ins. Hann tók myndirnar, sem Morg-
unblaðið fékk hjá honum til birting-
ar. Öll heimspressan æpti á myndir
af atburðinum. Morgunblaðið var
fréttaritari fyrir Politiken í Dan-
mörku og þegar myndirnar höfðu
verið notaðar var þeim stungið í
umslag og þær sendar með Dronning
Alexandrine til Danmerkur. Þeim á
Politiken lá svo á að þegar skipið
kom í nánd við Jótland sendi blaðið
bát til móts við það tii að sækja
myndirnar. Þegar svo filma Finnboga
Rúts, sem hafði líka sent filmurnar
sínar með skipinu til að selja mynd-
imar og dreifa, komu til Kaupmanna-
hafnar, var Politiken búið að svara
kalli frá Frakklandi og heimspress-
unni og senda myndirnar út um allt.
Enn eru þær í notkun og enginn
veit hver tók þær.
Að þetta eru sömu myndirnar sem
Finnbogi Rútur tók á fyrsta degi
uppi á Mýrum má sjá af ýmsu. M.a.
því að á mynd hans af líkunum hef-
ur hann dr. Charcot í forgrunni og
líkin af félögum hans í framhaldi, en
í rauninni lá dr. Charcot í miðjum
hópnum með menn sína beggja meg-
in.
Fleiri myndir í þessari fallegu bók
eru í leit að höfundi. Þar er heil síða
með 48 andlitsmynda syrpu af dr.
Charcot, þar sehi hann gerir sig til
og segir í texta að bak við hátíðlega
framkomu opinberlega hafi verið
stutt í grínið hjá honum. En þessar
myndir hafi hann sent sinni hægri
hönd síðustu 10 árin, Marthe Em-
manuel, til „að hlæja að“. Og þessar
myndir eru fengnar úr myndasafni
hennar. Sýnilega er ekki vitað hver
tók þær. En á sýningunni á myndum
Kaldals í Nýlistasafninu nýlega er
ein af þessum myndum, sem Kaldal
tók af dr. Charcot í Reykjavík og
munu þetta vera síðustu myndirnar
af þessum fræga heimskautafara,
teknar af Kaldal.
Loks má geta þess að í tilefni
þess að 60 ár eru síðan þessi frægi
heimskautafari fórst við ísland, var
efnt til sýningar dagana 14.-25. sept-
ember sl. í fundahöllinni í Aix-les-
Bains í Frakklandi undir nafninu
„Les Journées Charcot 96“ og undir-
titillinn: í fótspor heimskautafaranna
miklu. Þar voru sýndir munir og
myndir úr heimskautaleiðöngrum frá
19. öld og fram á þennan dag með
níu fyrirlestrum um þekkingu á
heimskautasvæðunum sem aflað var
í leiðöngrum undir stjórn gömlu
heimskautafaranna. En dr. Charcot
er talinn einn af þeim fremstu þar í
flokki.
Lægsta verðid til
London
í nóvember frá kr.
16.930
Flug og hótel
kr. 19.930
Við kynnum nú nýtt hótel, frábærlega
staðsett skammt frá Oxfordstræti með góðum aðbúnaði fyrir
farþega okkar. Bókaðu ferðina þína strax og tryggðu þér sæti til
þessarar höfuðborgar Evrópu og njóttu um leið öruggrar
þjónustu íslenskra fararstjóra Heimsferða í London.
Síðustu 40 sœtin á sértilboði
Verð kr.
16.930
Flugsæti. Verð með flugvallarsköttum,
4. og 11. nóv. mánudagur ti! fimmtudags.
Verð kr.
19.930
M.v. 2 í herbergi, Butlins Hotel með
morgunverði. 4. og 11. nóv. 3 nætur.
Verðkr.
26.930
Inverness Court, 14. nóv. 4 nætur,
m v. 2 í herbergi.
HEIMSFERÐIR
Austurstræti 17, 2. hæð. Sími 562 4600
Gluggatjaldaefni frá 200 kr./m.
Komið og gerið góð kaup!
Símar 553 1870 & 568 8770
Tjarnargötu 12, Keflavík
Sími 421 2061
§ U 8 R H N S VEIFU
t Sa/sa - . (/ere/uje
Nýlt