Morgunblaðið - 27.10.1996, Síða 31
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 27. OKTÓBER 1996 B 31
HAFSTEINN Hafsteinsson, staðarstjóri E. Phil & Sön í Ashdod.
OKKAR maður í ísrael, Ólafur Gíslason verkfræðingur.
ÞEIR deila ábyrgðinni á sljórn hafnargerðarinnar í Ashdod.
Staðarstg órinn
Þegar fyrirtæki leggur upp í til-
tekna framkvæmd hefur mikið ver-
ið reiknað, kannað og áætlað og
sé rétt reiknað hreppir verktakinn
hnossið og hefur samt eitthvað út
úr tilboði sínu. Margt er og verður
ófyrirséð og þá liggur árangurinn
í þrennu: Trausti og reynslu verk-
takans, þreki og kunnáttusemi
þeirra sem verkið leiða á hvetjum
stað og á góðum starfsanda meðal
allra. Það er ekki ósanngjamt að
segja að hvílupunktur flestra þess-
ara forsendna sé skrifborð staðar-
stjórans; ætti ég að segja persóna
hans. Þess vegna leggur verktakinn
uppúr því að fá í það hlutverk þann
besta sem völ er á. E. Phil & Sön
sótti sem staðarstjóra í þetta verk
Hafstein Hafsteinsson, verkfræðing
hjá ÍSTAK. Hann hafði áður unnið
fýrir þá að hafnargerð í Færeyjum,
en hjá ÍSTAK hefur hann unnið
m.a. að vegagerð við Vestfjarða-
göngin, stíflugerð við Blöndu auk
margra annar verka eða verkhluta.
Þannig hefur Hafsteinn kynnt sig
að hann hefur reynst úrræðagóður
og sérlega einarður, enda gamall
íslandsmeistari í körfuknattleik
með Val. Keppnisskapið er því vel
ræktað og kemur þeim ekki á óvart
sem þekktu hann á þeim ámm.
Hann er einnig slíkur maður sem
er náttúrlega til þess kjörinn að
stýra liði.
Verkið sem Hafsteinn stýrir er á
margan hátt flókið og mikið. Miklir
fjármunir eru í húfi fyrir alla aðila
sem þessu verkefni tengjast. Hindr-
anir sem þarf að yfirstíga em sum-
ar jafnfyrirferðarmiklar og þjörgin
sem hafnargarðurinn er byggður
úr og sumar lausnirnar ganga
manni jafngreitt úr greipum og
sandurinn sem byggt er á.
í vetur og fram eftir sumri hefur
óvenjumikill sjógangur valdið töfum
en nú sækist allt betur og góðar
líkur á að verkinu verði lokið innan
settra tímamarka.
Hafsteini er ofarlega í huga þeg-
ar um aðstæður er rætt hversu
mikill mismunur er á mönnum eftir
uppmna þeirra og hve ólíkt verklag
þeirra er. Svo er hitinn sem gerir
menn pirraða, langir vinnudagar
og margir. Þá er eins gott að hafa
styrka stjórn á öllu og vera viðbúinn
hinum óvæntustu hlutum. ísraels-
menn vinna ekki frá því um tvöleyt-
ið á föstudögum. Þá fara þeir og
dansa og skemmta sér, sumir við
að versla þar til hvíldardagshelgin
gengur í garð.
Brúðhjónin í Kana
Hera Hjálmarsdóttir kona Haf-
steins er lyfjafræðingur og fylgdi
honum til náms í Kaupmannahöfn
með þá litla dóttur þeirra, Ingu
Dís; síðar einnig til Færeyja með
hana og soninn Vigni eftir að hann
var kominn til sögunnar. Þau hafa
öll verið í Ashdod í sumar og tekið
á móti gestum. Þeirra á meðal var
pílagrímur sá er þetta ritar og
fylgdu þau honum á helstu helgi-
staði hér í Landinu helga.
Vignir, fermingarpiltur úr Dóm-
kirkjunni frá því í vor, er hér með
öðru í uppgötvunarferð guðsbarns-
ins og vill allt vita sem gerst og
verður sífellt fróðari. Hann var á
dögunum sæmdur Jerúsalems-
krossinum af fermingarföður sínum
og þar með orðinn krossfari.
Þetta elskulega fólk leiðsagði
pílagrím þeim er þetta ritar í fót-
spor Jesú í Galíleu þar sem m.a.
var komið til Kana til þess að kaupa
messuvín. Gat hann þá stoltur sett
undir síðbúna brúðkaupsmynd af
foreldrum sínum þennan texta:
Brúðhjón sem ég gifti í Kana í
Galíleu.
Öll var ferðin góð og útaf fyrir
sig frá mörgu að greina en þetta
með hafnargerð íslendinga í Israel
þykir mér ástæða til að fara með
í blöðin. Ég sé fyrir mér þessa
stráka koma hingað að tilskildum
tíma liðnum með barnabömin sín
og fara um ströndina frá norðri til
suðurs og geta bent á flestöll hafn-
armannvirki hér og sagt: Þetta
byggðum við íslendingar! Þá verður
komin hér í Ashdod stór sportbáta-
höfn, lúxushótel og skemmtistaðir
og fjöldi ferðamanna, það er ef
vonir manna um frið hérna rætast.
Höfunáur er Dómkirkjuprestur
Brautarholt 8 - til leigu
Tvö skrifstofuherbergi til leigu á 2. hæð.
Upplýsingar í síma 562 1370.
Verslunarhúsnæði,
Hamraborg 20a
Til sölu verslunarhúsnæði 90 fm á götuhæð
+ 90 fm á neðra gólfi. Frábærir útstillingar-
gluggar. Að auki 90 fm á 2. hæð.
Hlutdeild í bílageymslu og sameign.
Upplýsingar í vs. 552 1555 og hs. 568 5075.
Auglýsinga-
og markaðsfólk
Til leigu 1-2 skrifstofuherbergi (allt að 60 fm)
í nýju sérhönnuðu auglýsingahúsnæði
á Grensásvegi.
Áhugasamir hafi samband í síma 568 6121
á skrifstofutíma.
Skrifstofuhúsnæði
Til leigu um 100 fm skrifstofuhúsnæði í Síðu-
múla. Tilvalið undir lögfræðiskrifstofur eða
skyldan atvinnurekstur. Húsnæðið getur leigst
með vönduðum húsgögnum og skrifstofuáhöld-
um. Um er að ræða 3 skrifstofuherbergi, ásamt
móttöku og eldhúsi. Laust strax.
Tilboð sendist afgreiðslu Mbl. fyrir 2. nóvem-
ber nk., merkt: „Lögmannsstofa - 4356“.
Nálægt Hlemmi!
Til leigu skrifstofuhúsnæði á 2. hæð (50-70
fm) og 3. hæð (70-80 fm) í Fossberghúsinu,
Skúlagötu 63. Næg bílastæði.
Upplýsingar hjá G.J. Fossberg vélaverzlun
ehf. Sími: 561 8560.
Til leigu
Þrjár 3ja herb. íbúðir í sama húsi eru til leigu
nú þegar. íbúðirnar eru nálægt Landspítala.
Leiga getur verið til langs tíma. íbúðirnar eru
ca. 100 fm hver og er mánaðarleiga kr.
46.000.
Tilboð sendist afgreiðslu Mbl. merkt:
„A-7322" fyrir 31. október.
Til leigu
Til leigu ca 420 fm fallega innréttuð skrif-
stofuhæð í húsi Sjóvár-Almennra, Kringlunni
5. Glæsilegt húsnæði. Góð staðsetning.
Næg bílastæði. Húsnæði laust nú þegar.
Allar nánari upplýsingar veitir Jón Guð-
mundsson í síma 551 1540, og Fasteigna-
markaðurinn ehf., Óðinsgötu 4.