Morgunblaðið - 24.11.1996, Side 8
8 SUNNUDAGUR 24. NÓVEMBER 1996
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Kiám eða llrt? :
Heitar umræðnr uröu & Al-B
þingi i gær’um fatafellusýuing- pBI
ar á skemmtistððum' hérlend-
is. HjörleifUr GÍuttórmsson vill
melna að um klém sé að ræða
og hvatti ráðherTa ríkhgtjóm- pÞ
arinnar tílað kýnna 8<fr májjð
svö úrskurðaÍ5ttilBttí>''ÍWÍi
4 svo ursKuroar. mæiu/' vnyort
fklám eöailist sé þama’fi ferð-
^ ÍnnL
1 ffBff i, ií IHiBfiíi í v \ sr&VU
ÞAÐ ríður á að ráðherrar úrskurði um þetta sem fyrst til að koma í veg fyrir að landinn
sé plataður með einhverju fúski sem ekki er list . . .
Hverfafundir í Garðabæ
Knúið á um byggingu
hávaðavarnar í Bæjargili
_ Morgunblaðið/Árni Sæberg
BÆJARSTJORI Garðabæjar talar á hverfafundi í safnaðar-
heimilinu Kirkjuhvoli.
BÆJARSTJÓRI Garðabæjar, Ingi-
mundur Sigurpálsson, hefur undan-
farið haldið hverfafundi með íbúum
í Garðabæ. Ingimundur segir tvö
mál brenna heitast á Garðbæingum
um þessar mundir; nauðsyn á bygg-
ingu hávaðavarnar meðfram Reykja-
nesbraut sem liggur þvert í gegnum
íbúðahverfið Bæjargil og slæm veg-
tenging við Hnoðraholt og Vífíls-
staðaveg en þar er talin vera mikil
slysahætta.
Hverfafundirnir voru þrír talsins
og segir bæjarstjóri þá hafa gengið
vonum framar, um 250 manns hafí
sótt þá og almennt hafí fólk lýst
yfír ánægju með fyrirkomulag og
upgbyggingu í bænum.
A einum fundanna kvörtuðu íbúar
í Bæjargili undan hávaða vegna bíla-
umferðar um Reykjanesbraut. „íbúar
knúðu á um að byggingu hávaða-
vamar verði hraðað en sú fram-
kvæmd hefur staðið til lengi. Við
teljum að Vegagerð ríkisins eigi að
kosta nauðsynlegar hljóðvamir til að
vemda byggð fyrir stofnbrautum
eins og Reykjanesbraut en enn sem
komið er hefur ekki fengist fjárveit-
ing til verksins," segir Ingimundur.
Á vegum bæjarstjórnar er nú unnið
að tillögum um hugsanlegar úrbætur
varðandi umferðarhávaða í hverfínu
sem að sögn Ingimundar munu liggja
fyrir um áramót.
Bráðabirgðavegtenging
slysagildra
íbúar í Hnoðraholti lýstu yfir
óánægju með slæma vegtengingu
hverfísins við Vífilsstaðaveg en eins
og ástandið er nú er þar talin vera
mikil slysahætta. „í langtímaáætlun
um framkvæmdir bæjarins er gert
ráð fyrir að varanlegri tengingu verði
komið á innan þriggja ára en sú sem
fyrir er var einungis byggð til bráða-
birgða," segir Ingimundur.
Bæjarstjóri hafði framsögu á
fundunum um stjórnsýslu bæjarins
og rakti framkvæmdaáform næstu
árin. Athygli bæjarbúa var m.a. vak-
in á aðalskipulagstillögum til ársins
2015 sem nú liggja fyrir og lúta
aðallega að samgöngumálum og
landnotkun. Varðandi landnotkun
segir Ingimundur að hverfum verði
forgangsraðað. „í nánustu framtíð
verður úthlutað lóðum í Hraunsholti,
Hnoðraholti, Garðahverfí og hugsan-
lega Amarneshálsi," segir hann.
Veigamestu framkvæmdir í sam-
göngumálum næstu 20 árin varða,
að sögn Ingimundar, tvöföldun
Reykjanesbrautar, ný lagning Álfta-
nesvegar, lenging Vífilsstaðavegar
til vesturs og framkvæmdir við
Hafnarfjarðarveg í Hraunsholti.
10 ára afrjiaeKEJ'.laðborö
Caje Úm m
Jólahladbordid svignar undan krœsingum öll kvökl og jólaandinn svífur um í húsid med sál.
-Jorréttir O
Hefðbundnir og óhefðbundnir réttir.
.glðalréltir
Allt það besta sem tilheyrir alvöru jólahlaðborði.
£ftirréttir
Hver öðrum girnilegri
Vter&bt.Mm
HluK af 'Oerði jótahlaöborösins rennur
Kl krabbameinssjúkra bama.
J'ifandi mtingahús í miðborginni, Lækjargöty 2.
Ökukennarafélag íslands 50 ára
Bættir umferðar-
hættir eitt
meginmarkmiðið
• •
Okukennarafélag ís-
lands var stofnað 22.
ber 1946. Meðlimir
þess eru nú rúmlega tvö
hundruð. Ýmis starfsemi er
rekin á vegum félagsins, t.d.
ökuskóli og útgáfa kennslu-
efnis. Félagið hefur verið að
undirbúa sérstakt aksturs-
kennslusvæði í Smálöndun-
um, til þess ætlað að auka
skilning ökumanna á því
hvernig ökutækið hegðar sér
við erfið akstursskilyrði. Eitt
af meginmarkmiðum Öku-
kennarafélagsins hefur verið
að beita sér fyrir bættum
umferðarháttum. Nú er félag-
ið að reyna að hafa áhrif á
ný lög og reglugerðir sem
verið er að vinna að og tengj-
ast breyttum reglum innan
ESB.
Guðbrandur Bogason
Ertu ánægður með tilhög-
un ökukennaranámsins eins
°g því er nú háttað?
„Mikil framför varð á náminu
er Kennaraháskóli íslands tók við
því árið 1993. í náminu er vel
tekið á almennri kennsiufræði og
grundvallaratriðum í mannlegum
samskiptum. Mér finnst þó að
megi auka verklega þáttinn sem
felst í stjórnun og meðhöndlun
ökutækisins. Einnig finnst mér að
mætti kenna meira um virkni eðl-
isfræðilegra lögmála við akstur
svo tilvonandi ökumenn skilji bet-
ur hvernig bifreiðin hagar sér við
mismunandi skilyrði. Þá tel ég að
þurfi að skilgreina betur hver rétt-
indi ökukennara til hinna ýmsu
flokka ökutækja eigi að vera. Nú
er það svo að þegar menn taka
ökukennarapróf þá gildir það á
þau ökutæki sem kennarinn hefur
réttindi til að stjórna nema ef um
bifhjól er að ræða. Til þess að
kenna á bifhjól þarf sérstök rétt-
indi og ég tel að svo eigi að vera
með alla flokka ökutækja. Eins
finnst mér að þurfi að taka upp
sérstakt nám fyrir stjórnendur
ökuskóla."
Fyrir tveimur árum var sett í
iög að foreidri eða aðrir aðstand-
endur sem eru orðnir tuttugu og
fjögurra ára megi til viðbótar öku-
námi þjálfa ökunema í akstri eftir
ákveðinn tíma en ökukennararnir
ákveða hvenær æfingaleyft skuli
gefið út til aðstandenda. Hvernig
hefur þetta reynst?
„Reynslan er eflaust mjög mis-
jöfn. í sumum tilfellum skilar
þetta leiknari ökumönnum út í
umferðina og með jákvæðara við-
horf til umferðarinnar. Til að þetta
markmið náist er mikil ábyrgð
lögð á ökukennara að hann meti
rétt aðstæður, þ.e. hvort neminn
er tilbúinn að fara út í umferðina
á ökutæki sem er ekki með neinum
sérstökum öryggisbúnaði og jafn-
vel með lítt reyndan aðila sér við
hlið. Mér finnst vanta betri skiln-
ing almennings hvernig þetta er
hugsað og ákveðnari reglur um
fyrirkomulagið."
Um tvö hundruð ökukennarar
eru starfandi á landinu og eru
áform um að útskrifa nokkra tugi
í viðbót á næstu árum, er ástæða
til svo örrar endurnýjunar í stétt-
inni?
„Ég tel vafasamt að
hafa svo hraða end-
urnýjun innan stéttar-
innar þó auðvitað þurfi
hún að eiga sér stað í
þessari stétt sem öðr-
um. Það liggur fyrir að á næstu
árum öðlist 3.500-4.000 ungir
íslendingar ökupróf. Með svo örri
aukningu innan stéttarinnar sem
ráð er gert fyrir minnkar hlutfall
nemenda á hvern kennara. Það
► Guðbrandur Bogason er
fæddur 6. júní, árið 1943 í
Reykjavík. Hann lauk véivirkja-
námi frá Iðnskólanum í Reykja-
vík árið árið 1964. Starfaði hann
við vélvirkjun til ársins 1967.
Þá gerðist hann slökkviliðsmað-
ur við Slökkviliðið í Reykjavík
og starfar þar nú sem varð-
stjóri. Árið 1969 aflaði hann sér
réttinda til ökukennslu hér á
landi en hann hefur sótt viðbót-
arnám á Norðurlöndunum. Árið
1994 lauk hann ökukennara-
námi við Kennaraháskóla Is-
Iands. Hann hefur setið í stjórn
NTU sem eru samtök norrænna
ökuskóla. Guðbrandur hefur
verið formaður Ökukennarafé-
lags íslands síðan 1982.
er ekki til að auka fagmennsku í
ökukennslu ef ökukennarar geta
ekki haft samfelldan starfa við
kennsluna."
/ flestum nágrannalöndunum
er lágmarksaldur ökumanna átján
ár. Finnst þér þurft að hækka lág-
marksaldur ökumanna samsvar-
andi hér á landi?
„Mér finnst koma til greina að
skoða það af fullri alvöru. Ýmsar
forsendur hafa breyst. Hér áður
fyrr fóru ungmenni fyrr út í at-
vinnulífið sem var mjög þroskandi
en breytingar hafa orðið á vinnu-
markaðnum. Ég hef iðulega heyrt
það hjá 18-19 ára ungmennum
sem ég hef verið að kenna að
þeim hefur ekki fundist þau tilbú-
in að axla þá ábyrgð að aka í
umferðinni sautján ára. Það er
staðreynd að flest umferðarslys
verða hjá yngstu aldurshópunum.
í nágrannalöndunum, þar sem ald-
urinn er hærri, er hlutfall aðildar
ungri ökumanna að umferðaslys-
um lægra. Hvort það ber að þakka
hærri aldri eða betra ökunámi er
ekki gott að segja.“
Hafa einhverjar rannsóknir ver-
ið gerðar á orsökum umferðar-
óhappa og á umferðarmenningu
íslendinga?
„Því miður eru þær alltof fáar
og nánast engar rannsóknir hafa
verið gerðar á því hvað það er í
mannlegri hegðun sem
getur valdið umferðar-
óhöppum. Erlendar
rannsóknir hafa sýnt að
í 70-80% tilvika er það
mannlegi þátturinn sem
er ein aðalorsök um-
ferðaróhappa. Það er sama hversu
ökumaðurinn er leikinn, ökutækið
fullkomið eða vegakerfið gott, ef
ökumaðurinn er ekki með hugann
við það sem hann er að gera þá
ræður hann ekki við verkefnið."
Lágmarksald-
ur ökumanna
í átján ár