Morgunblaðið - 24.11.1996, Page 15
MORGUNBLAÐIÐ
LISTIR
SUNNUDAGUR 24. NÓVEMBER 1996 15
Tónlist
fyrir alla
1 Kópa-
vogi
FJÖLSKYLDUTÓNLEIKAR verða
á mánudagskvöld í Listasafni Kópa-
vogs kl. 20.30. í lok fyrstu tónleika-
syrpu skólaársins fyrir grunnskóla-
nemendur í Kópavogi á vegum
verkefnisins Tónlist fyrir alla. Að
þessu sinni spila Gunnar Kvaran
sellóleikari og Selma Guðmunds-
dóttir píanóleikari en þau hafa leik-
ið fyrir liðlega 2.900 skólabörn á
20 skólatónleikum.
Á efnisskránni eru eftirtalin verk:
Ave Maria eftir Bach-Gounod, Són-
ata arpeggione eftir Franz Schu-
bert, Vocalise op. 34 nr. 1 eftir
Sergei Rachmaninoff og Sónata í
e-moll op. 38 eftir Johannes
Brahms.
Gunnar Kvaran hóf ungur tón-
listarnám. Að loknu námi hér heima
stundaði hann nám við Tónlistarhá-
skólann í Kaupmannahöfn. Fram-
haldsnám stundaði hann í Basel í
Sviss.
Gunnar hefur komið fram sem
einleikari og i kammertónlist á
Norðurlöndum og mörgum öðrum
Evrópulöndum, í Bandaríkjunum og
í Kanada. Gunnar er deildarstjóri
strengjadeildar Tónlistarskólans í
Reykjavík og kennir þar sellóleik
og kammertónlist. Fyrirhugaðir eru
tónleikar á næstunni hjá Gunnari í
Noregi, Danmörku, Þýskalandi og
Mexíkó, ýmist í kammertónlist eða
einleiksverkum.
Selma Guðmundsdóttir hóf tón-
listarnám á ísafirði en stundaði síð-
an nám við Tónlistarskólann í
Reykjavík og lauk þaðan einleikara-
píófi undir handleiðslu Árna Krist-
jánssonar pianóleikara. Hún stund-
aði framhaldsnám í Salzburg og
Tónlistarháskólanum í Hannover í
Þýskalandi og hlaut þá námsstyrk
frá þýska ríkinu (DAAD) um
tveggja ára skeið. Hún hefur enn-
fremur sótt námskeið víða erlendis.
Selma hefur haldið íjölda ein-
leikstónleika hér heima og erlendis
auk þess að leika einleik með hljóm-
sveit og kammertónlist. Selma
starfar nú meðfram tónleikahaldi
sem píanókennari við Tónlistarskól-
ann í Reykjavík.
DJASSTRÍÓ Árna Heiðars.
Djasstríó Árna
Heiðars 1 Kaffi-
••
húsinu Ommu
í kvöld kl. 22 mun djasstríó Árna
Heiðars leika á kaffihúsinu Ömmu
í Réttarholti sem er staðsett í húsi
gömlu ísafoldarprentsmiðjunnar í
Þinholtsstræti. Auk Árna sem leik-
ur á Fender-Rhodes-píanó mun
Tómas R. Einarsson plokka strengi
kontrabassans en Harvey Burns
lemur húðir og simbala. Harvey var
á árum áður liðsmaður Cat Stevens
auk þess sem hann hefur spilað
með mönnum innan djassgeirans
og má þar nefna Gorgie Fame og
trompetleikarann Kenny Wheeler.
Aðgangur er ókeypis og öllum
*
Jón Oskar og Eggert
í Hafnarborg
EGGERT Magnússon. Stúlkan við gjána.
NÚ standa yfir sýningar Jóns
Óskars og Eggerts Magnússon-
ar í Hafnarborg, menningar- og
listastonfun Hafnarfjarðar.
Jón Óskar sýnir 100 manna-
myndir sem unnar eru með
tölvutækni. Hér er um að ræða
andlit sem ekki eru ljósmynduð
heldur skönnuð beint inn í tölv-
una og síðan unnin og prentuð
aftur.
Jón Óskar hefur haldið fjölda
sýninga, bæði hér heima og er-
lendis.
Eggert Magnússon hefur
fengist við málaralist um nokk-
urra ára skeið og hefur gjarnan
verið talinn til naífista, meðal
annars fjallaði Aðalsteinn Ing-
ólfsson um hann í bók sinni Einf-
arar í íslenskri myndlist og voru
myndir hans þá til sýnis í Hafn-
arborg á samnfndri sýningu.
Efniviður Eggerts er annars
vegar veruleiki íslensku sveit-
anna og hins vegar svipmyndir
frá fjarlægum löndum, frá Afr-
íku og Indlandi.
Sýningarnar standa til 9. des-
ember.
Veruleg
verðlækkun!
Næstu daga rýmum við fyrir árgerð '97
af Arctic Cat vélsleðum með því að slá
verulega af verði '96 árgerðinnar.
Tæknilegir eiginleikar, búnaður og
útlit '96 línunnar frá ARCTIC CAT
eru með þeim hætti, að þú veltir
því fyrir þér af hverju einhver vilji
keyra aðra sleða.
Nú gefst þér kostur á að eignast
þessi tæki á einstöku verði.
Kötturinn hefur níu líf
BREIÐ LINA
lli^
SUÐURLANDSBRAUT 14, SÍMI: 568 1200
Phanther Liquid...........
Bearcat 550 Widetrack.....
EXT 580 EFI...............
Pantera ..................
ZRT 600 ..................
Wildcat EFI Touring........
Thundercat................
og margir fleiri
ATH! TAKMARKAÐ MAGN